Morgunblaðið - 21.09.2021, Page 29

Morgunblaðið - 21.09.2021, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021 Bandarísku Emmy-sjónvarpsverð- launin voru afhent í 73. sinn í fyrra- kvöld. Enska dagblaðið The Guardi- an bendir á að Bretar hafi verið sigursælir og er þá einkum vísað til fjölda verðlauna fyrir þættina The Crown, sjö talsins, en engin önnur þáttaröð hlaut jafnmörg verðlaun. Af einstökum verðlaunum fyrir The Crown má nefna að leikkonurnar Olivia Colman og Gilian Anderson og leikararnir Josh O’Connor og Tobias Menzies hlutu verðlaun og hlaut þáttaröðin einnig verðlaun fyr- ir bestu dramaþætti. Þykir þetta mikill fengur fyrir streymisveituna Netflix sem sýnt hefur þáttarað- irnar og hlaut veitan alls 44 verðlaun ef með eru talin verðlaun á fyrri Emmy-verðlaunahátíð sem kennd er við skapandi listir, Creative Arts Emmys. Bestu gamanþættirnir þóttu Ted Lasso og hlutu þeir þrenn önnur verðlaun og þáttaraðirnar Mare of Easttown og Hacks hlutu þrenn hvor. The Queen’s Gambit hlaut verðlaun fyrir bestu stuttu þáttaröð- ina og bestu leikstjórn sem var í höndum Scotts Franks. Besta spjall- þáttaröðin þótti Last Week Tonight sem John Oliver stýrir og er þetta sjötta árið í röð sem hún hlýtur slík verðlaun. Líkt og oft áður þótti halla á til- nefnda úr röðum þeldökkra og að- eins einn leikari eða leikkona hlaut verðlaun, Courtney B. Vance fyrir bestan leik kvenna í aukahlutverki fyrir leik sinn í Lovecraft Country. Dragdrottningin RuPaul, stjórnandi þáttanna RuPaul’s Drag Race, hlaut verðlaun fyrir bestu keppnisþátta- röðina og varð þar með sú þeldökka manneskja sem hlotið hefur flest verðlaun í sögu Emmy-verðlaun- anna. Þriðji þeldökki verðlaunahaf- inn var Michaela Coel sem hlaut verðlaun fyrir besta handrit að stuttri þáttaröð, I May Destroy You. Varð Coel jafnframt fyrst þeldökkra kvenna til að hljóta þau verðlaun. Konur hlutu svo eftirsóttustu leikstjórnarverðlaunin í drama- og gamanflokki, Jessica Hobbs fyrir The Crown og Lucia Aniello fyrir Hacks. Bestu leikstjór- arnir konur - Þáttaröðin The Crown hlaut flest Emmy-verðlaun í ár eða sjö alls AFP Karl Josh O’Connor hlaut verðlaun fyrir bestan leik karls í aðalhlutverki í dramaþáttum fyrir túlkun sína á Karli Bretaprins í The Crown. Dragdrottning RuPaul hlaut verð- laun fyrir RuPaul’s Drag Race. Kát Helstu aðstandendur gamanþáttanna Ted Lasso sem hlutu Emmy-verðlaunin í ár fyrir bestu gamanþætti. Tvenna Lucia Aniello sést hér með verðlaunin sem hún hlaut fyrir besta leikstjórn gamanþátta og bestu skrif fyrir gamanþætti, þættina Hacks. Drama Michaela Coel hlaut verð- laun fyrir handrit að stuttri drama- þáttaröð, I May Destroy You.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.