Morgunblaðið - 22.09.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.09.2021, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Andrés Magnússon Stefán Einar Stefánsson Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri-grænna, sagði ekkert gefið að hún kæmi að myndun ríkisstjórn- ar eftir kosningar þótt hún væri al- gerlega tilbúin til þess. Hún hamr- aði hins vegar á því að þegar þar að kæmi væri ljóst að allir flokkar, sem að ríkisstjórnarmyndun kæmu, þyrftu að að brjóta odd af oflæti sínu og fallast á málamyndanir. „Það verður ærið verkefni að mynda ríkisstjórn, hún getur orðið fjögurra, fimm eða jafnvel sex flokka. Þá skiptir máli að allir stjórnmálaflokkarnir verði lausna- miðaðir og það þýðir að allir munu þurfa að gefa eitthvað eftir af sínum málum. Það er held ég mikilvægasta umræðan, sem við þurfum að eiga, hvernig fólk ætli að nálgast það að mynda öfluga og starfhæfa ríkis- stjórn. Af því að það mun kalla á málamiðlanir. Málamiðlanir eru oft ekki vinsæl- ar, það þekki ég vel, en þær eru hluti af hinu pólitíska litrófi. Þessi mynd gefur okkur ýmsa möguleika á stjórnarmyndun. Að sjálfsögðu nálgast ég það út frá okkar málum og það munu vinir mínir hér líka gera út frá sínum málum. Við þurf- um að gefa kjósendum raunhæfar væntingar. Þarna munu allir þurfa að gefa eitthvað eftir til þess að ná farsælli lendingu fyrir samfélagið.“ Fjórir leiðtogar ræða málin Í þessum þætti leiðtogakapp- ræðna Dagmála komu saman fjórir flokksleiðtogar til þess að svara spurningum, kynna helstu áherslur og bera stefnuna saman. Kappræðurnar verða birtar á mbl.is í dag. Katrín var sérstaklega innt eftir því hvort ekki yrði erfitt að vera for- sætisráðherra með ekki meiri þing- styrk á bak við sig en lesa má úr skoðanakönnunum þessa dagana, mun minni en nokkur annar for- sætisráðherra lýðveldissögunnar. „Auðvitað vonast ég til þess að mín stjórnmálahreyfing uppskeri meira á kjördag, við þurfum að sjá hverju þessi vika skilar og mörg ennþá óákveðin. Ég vonast til þess að fólk taki af- stöðu til þess sem við höfum verið að gera, af því við teljum að við höfum náð góðum málefnalegum árangri á kjörtímabnilinu, en ekki síður þess sem við erum að leggja fram fyrir þessar kosningar, að það skipti mjög miklu máli hvaða ákvarðanir verða teknar þegar við förum út úr heimsfaraldri. Það skiptir máli að hafa félagslega sýn að leiðarljósi, tryggja jöfnuð og afkomu fólks.“ Útreikningar Pírata Þórhildur Sunna Ævarsdóttir var spurð út í reikningskunnáttu Pírata í ljósi áhuga hennar á fjármálaráðu- neytinu, en þar var vísað til mistaka við útreikning á boðuðum breyting- um á tekjuskatti og orða þingkon- unnar Halldóru Mogensen um að taka mætti risavaxin lán fyrir borg- aralaunum. „Það var vissulega mjög vand- ræðaleg reikningsskekkja í [út- reikningunum], sem við leiðréttum um leið og við fengum ábendingu og þökkuðum fyrir hana,“ svaraði hún og benti á að stjórnarandstöðuflokk- ar hefðu ekki sama aðgang að gögn- um og sérfræðiaðstoð og stjórnar- flokkar. Um borgaralaunin sagði hún ljóst að svör Halldóru hefðu ekki verið „upp á tíu“, enda hefði hún leiðrétt þau skömmu síðar. Fallandi persónuafsláttur Inga Sæland varð spurð út í hug- myndir Flokks fólksins um fallandi persónuafslátt, en nokkuð hefur verið á reiki við hvaða mörk hann skuli falla. „Þetta er í raun algert stillingaratriði hvernig og hvenær persónuafslátturinn byrjar að falla.“ Það gæti gerst einhvers staðar á milli 650 og 800 þúsund krónur. „Við ætlum að færa til í skattkerfinu milli 50 og 60 milljarða króna til þess að geta komið lágmarksframfærslu í 350 þúsund krónur, skatta- og skerðingarlaust. Meginmarkmiðið er fæði, klæði og húsnæði fyrir alla.“ Spurð hvort persónuafsláttarmörk- in yrðu ekki gefin upp fyrir kosn- ingar svaraði hún: „Aldrei gefið neinn nákvæman skurðpunkt. Það er ekki tískan fyrir kosningar. Það vita allir,“ sagði Inga og uppskar hlátur. Lýðræðið tekið úr sambandi Í þættinum var m.a. rætt hvort stjórnmálin væru að breytast. „Það er áhyggjuefni hvernig stjórnmálin eru að þróast,“ svaraði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. „Stjórnmála- menn eru farnir að líkjast leikurum æ meir, meðan ákvarðanirnar eru teknar annars staðar. En þeir geta sjálfum sér um kennt því þeir hafa árum saman verið að gefa frá sér völd til stjórnkerfisins, stofnana, nefnda, ráðuneytanna o.s.frv. Þetta er oft gert með vísan til þess að þeir séu svo faglegir. Ef einhver ókosinn tekur ákvörðunina, þá sé það fag- legt, en pólitísk ákvörðun sé slæm. Þetta er ekki góð nálgun á stjórn- málin, því með því er lýðræðið tekið úr sambandi og það skiptir minna og minna máli hvað fólk kýs, því það fær alltaf sömu stjórnina.“ Morgunblaðið/Eggert Dagmál Leiðtogakappræður í Morgunblaðshúsinu í Hádegismóum. Þeim var skipt í tvennt til þess að gefa frambjóðendunum rýmri tíma til þess að kynna stefnumál sín og svara spurningum. Þurfa allir að gera málamiðlun - Leiðtogakappræður Dagmála í dag - Atvinnumál, heilbrigðismál og stjórnarmyndun í brennidepli - Forsætisráðherra undirstrikar að allir flokkar þurfi að gefa eftir til að mynda starfhæfa ríkisstjórn Leiðtogakappræður » Inga Sæland formaður Flokks fólksins » Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs » Þórhildur Sunna Ævarsdóttir frá Pírötum » Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son formaður Miðflokksins Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg „Mér fannst þessar umræður endurspegla þessar skrítnu kosningar,“ sagði Viggó Jónsson, fram- kvæmdastjóri Aton J.L., að loknum fyrri hluta for- mannakappræðna Dagmála, þar sem Sigurður Ingi Jó- hannsson, Bjarni Benediktsson, Logi Einarsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Gunnar Smári Eg- ilsson tókust á. Álitsgjöf Viggós og Stefáns Pálssonar sagnfræðings birtist á mbl.is í dag. „Mest áberandi verður þó popúlistinn sem getur gjammað og öskrað,“ bætti hann við og vísaði þannig til Gunnars Smára sósíalistaleiðtoga sem oftast hækkaði róminn meðan á átökunum stóð. Hann segir að kjós- endum sé vorkunn að greina í sundur stefnur flokkanna til að gera upp hug sinn enda stefnuskrár líkar. Stefán kvaðst feginn því að geta fylgst með formanna- kappræðum í kunnuglegri stærð, þó að einungis væri um helming forystumanna að ræða, „með fimm þátttak- endum en ekki tíu, þar sem þarf að ganga á röðina með sömu spurninguna þar sem allt verður ofboðslega þving- að“, sagði Stefán. Ljóst sé að allir hafi mætt til leiks með það markmið að aðgreina sig frá öðrum formönnum og þeirra flokkum. „Á meðan hefur Sigurður Ingi klárlega fengið fyrirmælin frá Sigtryggi Magnasyni um að hoppa inn með brandara þegar færi gefst. Hann var eini sem var fyndinn, allavega viljandi,“ segir Stefán en rifjar sömuleiðis upp að Logi hafi átt fyndið augnablik þar sem hann mismælti sig og sagði Samfylkinguna vera sósíal- demókratískan frosk. Keppast við að aðgreina sig - Álitsgjafar segja fámennt pallborð góða tilbreytingu Álit Stefán Pálsson og Viggó Jónsson eftir þáttinn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.