Morgunblaðið - 22.09.2021, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Andrés Magnússon
Stefán Einar Stefánsson
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri-grænna, sagði ekkert gefið
að hún kæmi að myndun ríkisstjórn-
ar eftir kosningar þótt hún væri al-
gerlega tilbúin til þess. Hún hamr-
aði hins vegar á því að þegar þar að
kæmi væri ljóst að allir flokkar, sem
að ríkisstjórnarmyndun kæmu,
þyrftu að að brjóta odd af oflæti
sínu og fallast á málamyndanir.
„Það verður ærið verkefni að
mynda ríkisstjórn, hún getur orðið
fjögurra, fimm eða jafnvel sex
flokka. Þá skiptir máli að allir
stjórnmálaflokkarnir verði lausna-
miðaðir og það þýðir að allir munu
þurfa að gefa eitthvað eftir af sínum
málum. Það er held ég mikilvægasta
umræðan, sem við þurfum að eiga,
hvernig fólk ætli að nálgast það að
mynda öfluga og starfhæfa ríkis-
stjórn. Af því að það mun kalla á
málamiðlanir.
Málamiðlanir eru oft ekki vinsæl-
ar, það þekki ég vel, en þær eru
hluti af hinu pólitíska litrófi. Þessi
mynd gefur okkur ýmsa möguleika
á stjórnarmyndun. Að sjálfsögðu
nálgast ég það út frá okkar málum
og það munu vinir mínir hér líka
gera út frá sínum málum. Við þurf-
um að gefa kjósendum raunhæfar
væntingar. Þarna munu allir þurfa
að gefa eitthvað eftir til þess að ná
farsælli lendingu fyrir samfélagið.“
Fjórir leiðtogar ræða málin
Í þessum þætti leiðtogakapp-
ræðna Dagmála komu saman fjórir
flokksleiðtogar til þess að svara
spurningum, kynna helstu áherslur
og bera stefnuna saman.
Kappræðurnar verða birtar á
mbl.is í dag.
Katrín var sérstaklega innt eftir
því hvort ekki yrði erfitt að vera for-
sætisráðherra með ekki meiri þing-
styrk á bak við sig en lesa má úr
skoðanakönnunum þessa dagana,
mun minni en nokkur annar for-
sætisráðherra lýðveldissögunnar.
„Auðvitað vonast ég til þess að
mín stjórnmálahreyfing uppskeri
meira á kjördag, við þurfum að sjá
hverju þessi vika skilar og mörg
ennþá óákveðin.
Ég vonast til þess að fólk taki af-
stöðu til þess sem við höfum verið að
gera, af því við teljum að við höfum
náð góðum málefnalegum árangri á
kjörtímabnilinu, en ekki síður þess
sem við erum að leggja fram fyrir
þessar kosningar, að það skipti
mjög miklu máli hvaða ákvarðanir
verða teknar þegar við förum út úr
heimsfaraldri. Það skiptir máli að
hafa félagslega sýn að leiðarljósi,
tryggja jöfnuð og afkomu fólks.“
Útreikningar Pírata
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir var
spurð út í reikningskunnáttu Pírata
í ljósi áhuga hennar á fjármálaráðu-
neytinu, en þar var vísað til mistaka
við útreikning á boðuðum breyting-
um á tekjuskatti og orða þingkon-
unnar Halldóru Mogensen um að
taka mætti risavaxin lán fyrir borg-
aralaunum.
„Það var vissulega mjög vand-
ræðaleg reikningsskekkja í [út-
reikningunum], sem við leiðréttum
um leið og við fengum ábendingu og
þökkuðum fyrir hana,“ svaraði hún
og benti á að stjórnarandstöðuflokk-
ar hefðu ekki sama aðgang að gögn-
um og sérfræðiaðstoð og stjórnar-
flokkar. Um borgaralaunin sagði
hún ljóst að svör Halldóru hefðu
ekki verið „upp á tíu“, enda hefði
hún leiðrétt þau skömmu síðar.
Fallandi persónuafsláttur
Inga Sæland varð spurð út í hug-
myndir Flokks fólksins um fallandi
persónuafslátt, en nokkuð hefur
verið á reiki við hvaða mörk hann
skuli falla. „Þetta er í raun algert
stillingaratriði hvernig og hvenær
persónuafslátturinn byrjar að falla.“
Það gæti gerst einhvers staðar á
milli 650 og 800 þúsund krónur. „Við
ætlum að færa til í skattkerfinu milli
50 og 60 milljarða króna til þess að
geta komið lágmarksframfærslu í
350 þúsund krónur, skatta- og
skerðingarlaust. Meginmarkmiðið
er fæði, klæði og húsnæði fyrir alla.“
Spurð hvort persónuafsláttarmörk-
in yrðu ekki gefin upp fyrir kosn-
ingar svaraði hún: „Aldrei gefið
neinn nákvæman skurðpunkt. Það
er ekki tískan fyrir kosningar. Það
vita allir,“ sagði Inga og uppskar
hlátur.
Lýðræðið tekið úr sambandi
Í þættinum var m.a. rætt hvort
stjórnmálin væru að breytast. „Það
er áhyggjuefni hvernig stjórnmálin
eru að þróast,“ svaraði Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson. „Stjórnmála-
menn eru farnir að líkjast leikurum
æ meir, meðan ákvarðanirnar eru
teknar annars staðar. En þeir geta
sjálfum sér um kennt því þeir hafa
árum saman verið að gefa frá sér
völd til stjórnkerfisins, stofnana,
nefnda, ráðuneytanna o.s.frv. Þetta
er oft gert með vísan til þess að þeir
séu svo faglegir. Ef einhver ókosinn
tekur ákvörðunina, þá sé það fag-
legt, en pólitísk ákvörðun sé slæm.
Þetta er ekki góð nálgun á stjórn-
málin, því með því er lýðræðið tekið
úr sambandi og það skiptir minna
og minna máli hvað fólk kýs, því það
fær alltaf sömu stjórnina.“
Morgunblaðið/Eggert
Dagmál Leiðtogakappræður í Morgunblaðshúsinu í Hádegismóum. Þeim var skipt í tvennt til þess að gefa frambjóðendunum rýmri tíma til þess að kynna stefnumál sín og svara spurningum.
Þurfa allir að gera málamiðlun
- Leiðtogakappræður Dagmála í dag - Atvinnumál, heilbrigðismál og stjórnarmyndun í brennidepli
- Forsætisráðherra undirstrikar að allir flokkar þurfi að gefa eftir til að mynda starfhæfa ríkisstjórn
Leiðtogakappræður
» Inga Sæland formaður Flokks
fólksins
» Katrín Jakobsdóttir formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs
» Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
frá Pírötum
» Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son formaður Miðflokksins
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
„Mér fannst þessar umræður endurspegla þessar
skrítnu kosningar,“ sagði Viggó Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Aton J.L., að loknum fyrri hluta for-
mannakappræðna Dagmála, þar sem Sigurður Ingi Jó-
hannsson, Bjarni Benediktsson, Logi Einarsson,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Gunnar Smári Eg-
ilsson tókust á. Álitsgjöf Viggós og Stefáns Pálssonar
sagnfræðings birtist á mbl.is í dag.
„Mest áberandi verður þó popúlistinn sem getur
gjammað og öskrað,“ bætti hann við og vísaði þannig til
Gunnars Smára sósíalistaleiðtoga sem oftast hækkaði
róminn meðan á átökunum stóð. Hann segir að kjós-
endum sé vorkunn að greina í sundur stefnur flokkanna
til að gera upp hug sinn enda stefnuskrár líkar.
Stefán kvaðst feginn því að geta fylgst með formanna-
kappræðum í kunnuglegri stærð, þó að einungis væri um
helming forystumanna að ræða, „með fimm þátttak-
endum en ekki tíu, þar sem þarf að ganga á röðina með
sömu spurninguna þar sem allt verður ofboðslega þving-
að“, sagði Stefán. Ljóst sé að allir hafi mætt til leiks með
það markmið að aðgreina sig frá öðrum formönnum og
þeirra flokkum. „Á meðan hefur Sigurður Ingi klárlega
fengið fyrirmælin frá Sigtryggi Magnasyni um að hoppa
inn með brandara þegar færi gefst. Hann var eini sem
var fyndinn, allavega viljandi,“ segir Stefán en rifjar
sömuleiðis upp að Logi hafi átt fyndið augnablik þar sem
hann mismælti sig og sagði Samfylkinguna vera sósíal-
demókratískan frosk.
Keppast við að aðgreina sig
- Álitsgjafar segja fámennt
pallborð góða tilbreytingu
Álit Stefán Pálsson og Viggó Jónsson eftir þáttinn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon