Morgunblaðið - 22.09.2021, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021
Ýmsar gerðir af heyrnartækjum
í mörgum verðflokkum,
stærðum og litum.
Allar helstu rekstrarvörur og
aukahlutir fyrir heyrnartæki
fást í vefverslun
vefverslun.heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
2007
HLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600 • HEYRN@HEYRN.IS • HEYRN.IS
Heyrðu
umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ávinningurinn liggur ekki fyrir og
tímasetningar eru ekki skýrar. Það
er ekkert í hendi nema útgjöldin,“
segir Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu síðustu daga hefur
Reykjavíkurborg ákveðið að verja
rúmum tíu milljörðum króna í upp-
byggingu stafrænna innviða á
næstu þremur árum. Þjónustu- og
nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar
hefur ráðið yfir 40 sérfræðinga
vegna þessa í ár og stefnt er að því
að þeir verði yfir 60 áður en árið er
úti.
Keppt við einkageirann
Samtök iðnaðarins hafa gagnrýnt
þessa uppbyggingu „hugbúnaðar-
húss“ borgarinnar. Hafa samtökin
bent á að borgin bæði stígi harka-
lega inn á samkeppnismarkað auk
þess að keppa við einkageirann um
starfsfólk. Nær lagi hefði verið að
umrædd uppbygging stafrænna
innviða hefði farið í útboð. Óskar J.
Sandholt, sviðsstjóri þjónustu- og
nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborg-
ar, sagði hins vegar að minnst þrír
milljarðar króna spöruðust með inn-
hýsingu hluta af þróun innviðanna.
Eyþór Arnalds segir að ekki sé
lengur um það deilt að ferlar borg-
arinnar hafi verið og séu í miklu
ólagi. Það hafi komið í ljós við verk-
legar framkvæmdir en einnig varð-
andi afgreiðslutíma. „Fólk fær sein
svör og jafnvel engin. Rafvæðing
borgarapparatsins hefur líka tekið
óratíma. Það er ekki nóg að setja tíu
milljarða í vandamálið heldur þarf
að huga að því hvaða árangri á að
ná. Eitt af því sem við höfum gagn-
rýnt er að það liggur ekki fyrir skýr
markmiðasýn, það er farið af stað
með ákveðna tölu, stóra fjárfest-
ingu, og ráðið inn fólk í stað þess að
bjóða verkefnið út. Við höfum ekki
séð neina útreikninga að baki þessu
verkefni.“
Eyþór hefur áhyggjur af útkom-
unni. Hann segir að dæmi séu um
að fyrirtæki, stór og smá, hafi sett
upp stafræn kerfi á stuttum tíma og
náð góðum árangri.
„Á meðan hefur Reykjavíkurborg
helst státað af því að hafa innleitt
eyðublað um fjárhagsstuðning á
netinu. Flestir ferlar eru enn á 19.
öld, það er tekið við erindum á
pappír og þeim kannski svarað og
kannski ekki,“ segir hann og nefnir
að mælaborð borgarbúa, sem kynnt
hafi verið í byrjun kjörtímabilsins,
sé að mestu leyti frosið. Uppbygg-
ing stafrænna innviða hefur verið til
umfjöllunar í borgarráði um skeið
og Eyþór segir að minnihlutinn hafi
gert athugasemdir við framkvæmd-
ina. „Við höfum talað fyrir útboðum.
Borgin hefur hins vegar ítrekað
keypt þjónustu án útboða og það
hefur komið í ljós að það hefur jafn-
vel verið ólöglegt, til dæmis að því
er varðar ljósastýringar. Í þessu til-
viki var ákveðið að fara ekki í útboð
þrátt fyrir að bæði öflug og vaxandi
hugbúnaðarhús sé að finna í
Reykjavík. Á tíma fjórðu iðnbylt-
ingarinnar velur borgin að gera
þetta sjálf. Þá er mikil hætta á að
lítið verði um eftirlit með markmið-
unum.“
Kolbrún Baldursdóttir, borgar-
fulltrúi Flokks fólksins, hefur farið
fram á að innri endurskoðun
Reykjavíkurborgar skoði fjármála-
hreyfingar þjónustu- og nýsköpun-
arsviðs. „Grundvallaratriðið er að
þarna er ekki verið að fara vel með
fé borgarbúa. Það hefði verið hægt
að fara mikið ódýrari og betri leið,“
segir hún.
Ekkert í hendi nema útgjöldin
- Minnihlutinn gagnrýnir að verja á tíu milljörðum í uppbyggingu stafrænna innviða í Reykjavík án út-
boðs - „Liggur ekki fyrir skýr markmiðasýn“ - Kallað eftir aðkomu innri endurskoðunar borgarinnar
Eyþór
Arnalds
Kolbrún
Baldursdóttir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Borgartún Reykjavíkurborg hefur uppi áform um að verja 10 milljörðum króna í uppbyggingu stafrænna innviða.
Þjónustu- og nýsköpunarsvið borgarinnar er til húsa í Borgartúni og byrjað er að ráða þangað sérfræðinga.