Morgunblaðið - 22.09.2021, Page 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021
✝
Hjördís Þórð-
ardóttir
íþróttakennari
fæddist á Ísafirði
5. júní 1926. Hún
lést á Eir 13. sept-
ember 2021, 95 ára
að aldri.
Foreldrar henn-
ar voru Þórður Jó-
hannsson úrsmiður
á Ísafirði f. 16. des-
ember 1888, d. 13.
desember 1979 og Kristín
Magnúsdóttir f. 22. ágúst 1898,
d. 26. september 1991. Hjördís
átti 5 systkini: Högni f. 6. febr-
úar 1924, Anna f. 7. júlí 1928, d.
1. janúar 2017, Helga f. 9. mars
1931, d. 20. apríl 2017, Ólafur f.
23. maí 1932, d. 10. október
1990, og Magnús f. 21. janúar
1939, d. 14. október 1993. Hjör-
Árnason f. 2. febrúar 1999.
Fyrir átti Dóra Egil K. Wild f.
9. ágúst 1986 og Agnesi Wild f.
10. október 1989.
Hjördís ólst upp á Ísafirði og
gekk þar í Barna- og Gagn-
fræðaskólann. Hún lauk prófi
frá Íþróttakennaraskóla Ís-
lands 1948 og fór í framhalds-
nám í Rythmikdeild Tónlistar-
skólans í Stuttgart í Þýska-
landi.
Hjördís starfaði sem íþrótta-
kennari við Miðbæjarskólann í
Reykjavík, kenndi rythmik við
Melaskólann í Reykjavík, ásamt
því að kenna þjóðdansa. Hún
var ráðin sem íþróttakennari
við Íþróttakennaraskóla Ís-
lands á Laugarvatni árið 1956
og kenndi einnig við hina
skólana á Laugarvatni. Hjördís
var í kirkjukór, kvenfélaginu
og björgunarsveitinni Ingunni
á Laugarvatni. Hjördís og Árni
fluttu til Reykjavíkur 1997 og í
Mosfellsbæ 2012.
Útför Hjördísar fer fram frá
Lágafellskirkju í dag, 22. sept-
ember 2021, klukkan 13.
dís var gift Árna
Guðmundssyni
fyrrverandi skóla-
stjóra
Íþróttakennara-
skóla Íslands.
Hann var fæddur
12. september 1927
og lést 7. mars
2016. Foreldrar
hans voru Guð-
mundur Sveinsson
frá Hóli í Sæmund-
arhlíð, fulltrúi hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga f. 11. mars 1893,
d. 19. október 1967 og Dýrleif
Árnadóttir húsmóðir frá Utan-
verðunesi f. 4. júlí 1899, d. 8.
mars 1993. Sonur Hjördísar og
Árna er Árni Árnason f. 6. febr-
úar 1963, kvæntur Dóru G.
Wild f. 4. október 1962. Sonur
Árna og Dóru er Árni Haukur
Elsku mamma, ég þakka þér
fyrir öll 58 árin sem við höfum átt
samleið. Fyrstu minningarnar
eru bundnar við Laugarvatn og
litlu fjölskylduna okkar þegar þið
pabbi dróguð mig á sleða eftir
snjónum og ég fékk að renna nið-
ur litlar brekkur. En þær brekk-
ur urðu brattari og lengri með
árunum. Oft var farið á fjöllin í
nágrenni Laugarvatns, jafnt
sumar sem vetur og minnisstæð
eru skíðagönguævintýrin þegar
farið var t.d. á Lyngdalsheiðina,
inn í Kálfsdal, inn með Kálfstind-
unum eða upp að Gullkistu og inn
á Hlöðuvelli svo eitthvað sé
nefnt. Einnig voru vatnið og
vatnsströndin vinsæl leiksvæði
og oft var farið út á bát og þá
stundum með veiðistöng með-
ferðis. Á vetrum þegar vatnið
hafði lagt fórum við oft á skauta
eða gönguskíði ef ísinn var snævi-
þakinn. Þú kenndir mér að virða
náttúruna og náttúruöflin og
hvað bæri að varast í umgengni
við viðkvæma náttúru, einnig að
fylgjast með gróðri og dýralífi, en
sá áhugi hefur fylgt mér alla tíð.
Einnig kenndir þú mér á hætt-
urnar í náttúrunni og hvað bæri
að varast. Og þótt mér yrði á með
vinum mínum, t.d. dytti niður um
ís á vatninu og kæmi rennblautur
og kaldur heim, voru bara fundin
þurr föt í skyndi og svo var ég
rokinn aftur niður á ísinn til að
missa ekki af gleðinni og leiknum
þar. Síðsumarsferðir með þér til
að heimsækja afa og ömmu á Ísa-
firði eru einnig minnisstæðar, þar
sem farið var í berjamó inn í
Tungudal. Berin voru síðan fryst,
söftuð eða sultuð og geymd til
vetrarins.
Stuðningur þinn við mig í gegn
um allt námið mitt er ómetanleg-
ur, alltaf varst þú tilbúin til að
hlusta og ræða málin og alltaf
gast þú gefið góð ráð hvort sem
það var á barnaskólaárunum, há-
skólaárunum eða í framhalds-
náminu mínu í Noregi. Þú varst
óþrjótandi uppspretta alls kyns
æfinga sem ég gat nýtt mér í
námi og starfi og til eigin þarfa.
Alltaf hafðir þú tíma fyrir mig
sama hvernig á stóð og hve mikið
var að gera hjá þér.
Þú kenndir mér mikið varð-
andi uppeldi sonar míns, en hann
var mikið hjá ykkur pabba þegar
hann var lítill og þá hófust aftur
gömlu leikirnir sem ég hafði upp-
lifað sem barn ásamt lestri Ís-
lendingasagna og fleiri góðra
bóka. Sumarhúsið á Laugarvatni,
ykkar sælureitur, var einnig vin-
sæll viðkomustaður þar sem
fylgst var með dýralífi og gróðri
og landið ræktað í sátt og sam-
lyndi við þann gróður sem fyrir
var á svæðinu. Þú varst einnig
óþreytandi við að segja honum til
við alls konar leiki og íþróttir og
gaman var t.d. að sjá áhugann og
einbeitnina hjá ykkur báðum
þegar farið var í fótbolta við
ömmustrákinn úti í garði.
Elsku mamma, innilegar þakk-
ir fyrir það frábæra veganesti
sem þú hefur gefið mér út í lífið.
Takk fyrir að kenna mér að virða
náttúruna og lífríkið og að líta á
björtu hliðarnar í lífinu. Guð
blessi minningu þína, þinn sonur
Árni Árnason.
Mig langar til að kveðja elsku-
legu tengdamóður mína með
nokkrum orðum. Ég kynntist
Hjördísi þegar ég fór að vera með
Árna einkasyni þeirra hjóna fyrir
u.þ.b. 26 árum. Henni leist nú
ekki mjög vel á gripinn í fyrstu,
fráskilin með tvö börn og það tók
nokkurn tíma að fanga hjarta
hennar. Þegar það loksins tókst
urðum við bestu vinkonur og nut-
um samvista, fórum m.a. í búð-
arferðir og kaffihús og hún naut
sín í botn. Hún var börnum mín-
um Agli og Agnesi afar góð og svo
bættist Árni Haukur í hópinn og
voru þau miklir vinir alla tíð. Ég
er svo heppin að vinnustaður
minn, leikskólinn Hlaðhamrar, er
beint á móti Eirhömrum þar sem
þau bjuggu. Við vinkuðumst á í
glugganum og hún naut þess að
horfa á börnin leika sér, og fylgj-
ast með þeim hreyfa sig. Alla
daga eftir vinnu fór ég yfir til
Hjördísar og hún beið með kaffi
og konfekt. Við sátum, spjölluð-
um og sögðum tíðindi. Þessar
samverustundir okkar voru afar
dýrmætar og ég er mjög þakklát
fyrir þær. Nú er hún loksins kom-
in til Árna, en þau voru óaðskilj-
anleg alla tíð og áttu svo fallegt
samband. Hvíl í friði elsku Hjör-
dís og takk fyrir allt.
Dóra Wild.
Í dag kveðjum við samferða-
konu til margra ára, Hjördísi
Þórðardóttur.
Leiðir lágu saman á Laugar-
vatni í Laugardal, fallegu sveit-
inni okkar.
Ólíkar um margt en náðum að
tengjast sérstökum vinaböndum.
Hittumst m.a. í kirkjukórnum,
leikfimi, seinna í menningarferð-
um í höfuðstaðinn. Þar var farið á
sýningar, veitingahús o.fl. og ekki
má gleyma hláturklúbbnum góða
og kvenfélaginu.
Hjördís markaði spor í sam-
félagið m.a. sem húsmóðir á gest-
kvæmu og fallegu heimili þeirra
hjóna, hennar og Árna Guð-
mundssonar, skólastjóra Íþrótta-
kennaraskóla Íslands í rúmlega
40 ár. Hjördís var í nokkur ár for-
maður Kvenfélags Laugdæla.
Þar naut sín vel skipulagshæfni
hennar, smekkvísi og metnaður
við hvaðeina sem hún tók sér fyr-
ir hendur. Hún fékk t.d. Sigríði
Thorlacius til að halda viku fé-
lagsmálanámskeið sem sannar-
lega hristi vel upp í hópnum.
Einnig var haldin glæsileg þjóð-
búningasýning, með aðkomu Sig-
ríðar Valgeirsdóttur, Mínervu
Jónsdóttur og að sjálfsögðu
Hjördísar. Aðeins það besta í
boði fyrir kvenfélagskonur og
íbúa í Laugardal. Þetta var félag-
inu til mikils sóma og um leið
hvatning til ungra kvenna um að
ganga til liðs við félagið. Hjördís
hlaut á sínum tíma rífandi kosn-
ingu til formanns á aðalfundi. En
einn hængur var á, hún var ekki
mætt á fundinn. Fundarkonur
létu það ekki hagga ákvörðun
sinni og kusu sína konu. Við fund-
um fljótlega að nýi formaðurinn
var ekki skaplaus. Það gustaði
hressilega af henni þegar við
sögðumst vera saklausar af
gjörningnum og ekki stóð á svari.
„Einmitt, ég hef hitt fleiri sem
kannast ekki við neitt, – hvers
vegna er ég þá orðin formaður?“
Hún sagði sína meiningu, það
gerði hún ávallt. Við vissum hvar
við höfðum hana og jafnframt að
því sem hún tók að sér væri vel
borgið.
Hjördís var listhneigð og tón-
elsk. Hún var náskyld Sigrúnu
Magnúsdóttur söng- og leikkonu
og Jónasi Tómassyni tónskáldi,
þekktu ísfirsku listafólki. Við
minnumst þess hve fallega alt-
röddin hennar hljómaði með
Söngkór Miðdalskirkju. Þar
stóðu þær hlið við hlið vinkonurn-
ar Hjördís og Anna Böðvarsdótt-
ir og sungu af hjartans lyst. Við
þökkum allar góðar minningar
frá liðnum samverustundum. Nú
er hún Hjördís vinkona okkar
farin „meira að starfa Guðs um
geim“ með ljúfmenninu honum
Árna sínum. Við vottum Árna
syni hennar og fjölskyldunni allri
innilega samúð. Þið voruð ljós í
lífi hennar. Guð blessi ykkur öll.
Margét Steina
Gunnarsdóttir,
Rannveig Pálsdóttir.
Það er svo ótrúlega skrýtið að
missa þig elsku Hjördís þegar
það er svo langt síðan við hitt-
umst síðast. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa drifið mig af stað
þegar það opnaðist gluggi í fyrra-
sumar og heimsóknarbanni var
aflétt. Svo dýrmæt stund sem við
áttum saman og það var svo ynd-
islegt að sjá Odd í fanginu þínu og
þig að spóka þig með hann í vagn-
inum um gangana á Eir. Í gegn-
um lífið hef ég verið svo heppin að
vera umvafin sterkum og hvetj-
andi konum og þar ert þú engin
undantekning. Svo ótrúlega
ákveðin og þver, ljúf sem lamb og
vildir öllum vel. Þótt fyrsta svarið
væri alltaf nei var oftast ekkert
mál að fá þig til að samþykkja.
Minningarnar eru óteljandi,
það var alltaf svo gott að koma í
Súluhóla í strangheiðarlegt ís-
lenskt sunnudagslæri með brúnni
sósu, alvöru brúnuðum kartöflum
(ekki þessar eins og mamma ger-
ir) og salati með fetaosti sem þú
keyptir bara fyrir mig. Þér fannst
hann vera svo framandi og stór-
skrítið að ég borðaði ekki salat
nema með fetaosti og sullaði svo
brúnu sósunni yfir allt. Svo kom
ekki annar í jólum nema koma til
ykkar Árna í jólamat; sama
hversu mörg jólaboð við Andri
vorum búin að fara í yfir daginn
enduðum við alltaf hjá ykkur í
Nóatúns-hamborgarhrygg, fró-
masi og tilbehör. En minningarn-
ar eru meira en matur og kaffi-
drykkja. Ég gleymi því aldrei
þegar þú hoppaðir jafnfætis fimm
sinnum frekar hátt í kringum 90
ára afmælið þitt, bara af því að þú
vildir sanna fyrir mér að þú gætir
það.
Þú varst alltaf svo góð við mig
og Egil og tókst okkur opnum
örmum eins og við hefðum alltaf
verið barnabörnin þín, þú varst
alltaf til staðar fyrir okkur og
vildir allt fyrir okkur gera. Fyrir
það er ég ævinlega þakklát.
En nú ertu farin til elsku Árna
þíns og þið getið faðmast og farið
í gönguferðir saman um sumar-
landið, eftir situr pínu tómarúm í
hjartanu okkar hérna megin. Við
eigum eftir að sakna þín en leyf-
um minningunum að lifa. Ég mun
sérstaklega hugsa til þín þegar
ég geri brúnaðar kartöflur næst
og bölva því að ég hafi ekki fylgst
nógu vel með þegar þú kenndir
mér.
Agnes, Andri og Oddur.
Hjördís
Þórðardóttir
HINSTA KVEÐJA
Í lifanda lífi varst áræðnin ein
og aldrei þú lagðir upp laupa.
Á tíræðisaldri barst eitt frá þér
kvein,
„Æ hvað ég sakna að hlaupa“.
Laus ertu núna við líkamans mein
og langþráður svefninn þig geymir.
En eftir er hlýjan og minningin
hrein,
sem heimsækir mig er mig dreymir.
Og hvort sem ég trúi og hvað
heiminn um held,
fæ huggun af fullvissu þinni.
Að almættið fram yfir ævinnar
kveld,
þig upplýsi ásjónu sinni.
Árni Haukur Árnason.
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÖRN S. SVEINSSON,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Víðihlíð,
Grindavík, föstudaginn 17. september.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 29. september klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð.
Vignir Arnarson Helga Birna Berthelsen
Steinar Arnarson Marion G. Worthmann
Guðbjörg Arnardóttir Benedikt Páll Jónsson
Björgvin Arnarson Eva Lind Jóhannesdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FERUCCIO MARINÓ BUZETI,
Marinó Antonsson,
Sóleyjarima 7,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
17. september.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 23. september
klukkan 13. Jafnframt verður útförinni streymt á:
https://youtu.be/qhCP_s8AKZY
Vésteinn H. Marinósson Margrét Á. Ósvaldsdóttir
Hólmfríður B. Marinósdóttir Halldór Rósi Guðmundsson
Bragi Þór Marinósson Erla S. Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
GUNNLAUGUR V. SNÆVARR,
fyrrverandi kennari og
yfirlögregluþjónn,
lést á Landspítalanum 18. september.
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju
miðvikudaginn 29. september klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarfélög. Streymt verður frá athöfninni
á: https://youtu.be/kwr390hhniw
Auður Adamsdóttir
Þórhildur Erla Pálsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN SVEINSSON
skipstjóri,
Brúnavegi 9,
lést miðvikudaginn 15. september
á Hrafnistu Laugarási. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 29. september klukkan 13.
Valgerður Hjartardóttir
Sigríður Kristjánsdóttir Friðrik Björgvinsson
Þorbjörg Kristjánsdóttir
Elína Hrund Kristjánsdóttir
Karítas Kristjánsdóttir Ingólfur Hartvigsson
afabörn og langafabörn
Okkar ástkæri
GUNNAR ÓLAFSSON
skipstjóri,
Hæðargarði 35, Reykjavík,
lést á Hrafnistu laugardaginn
18. september. Útförin fer fram frá
Garðakirkju föstudaginn 1. október klukkan 13.
Dýrleif Hallgríms
Ólafur Örn Gunnarsson Erla María Erlendsdóttir
Hallgrímur H. Gunnarsson Sólborg Alda Pétursdóttir
Guðrún Ingibjörg Gunnarsd. Stefán Thors
Halldóra Dýrleifar Gunnarsd. Hreinn Hreinsson
og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
DAGNÝ JEREMÍASDÓTTIR,
Fellasneið 18, Grundarfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, laugardaginn 18. september.
Útför fer fram frá Grundarfjarðarkirkju
laugardaginn 25. september klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á krabbameinsfélagið Von, Grundarfirði.
Sigurður Þorkelsson
Hugrún Dögg Sigurðardóttir Svavar Hávarðarson
Davíð Sigurðsson Kristín Stefánsdóttir
og barnabörn
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Minningargreinar