Morgunblaðið - 22.09.2021, Qupperneq 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021
40 ÁRA Benedikt Freyr Jónsson er
Reykvíkingur og ólst upp í Árbæ en
býr á Seltjarnarnesi. Hann er með
grunnmenntun í upplýsinga- og fjöl-
miðlafræði, er með jógakennararétt-
indi og hefur verið einn af frum-
kvöðlum í íslensku hiphoppi. Benedikt
rekur fyrirtækið Lifandi Verkefni
ásamt konu sinni sem hefur fest sig í
sessi sem hugmynda- og framleiðslu-
fyrirtæki. Einnig er Benedikt mjög
virkur í íslensku tónlistarlífi og hefur
verið einn af fremstu plötusnúðum
landsins í um tvo áratugi.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Bene-
dikts er Guðrún Theódóra Hrafns-
dóttir, 1982, jógakennari. Börn þeirra
eru Hrafn Darri, f. 2009, Embla Rún, f. 2011, og Nína Björg, f. 2013. Stjúp-
sonur Benna er Grímur Ingi Jakobsson, f. 2003. Foreldrar Benedikts eru Jón
Ágúst Benediktsson, f. 1954, og Jónína Sigurðardóttir, f. 1958. Þau eru
búsett í Kópavogi.
Benedikt Freyr Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Forðastu allar skyndiákvarðanir í
fjármálum og gættu þess að hafa þá með í
ráðum sem máli skipta.
20. apríl - 20. maí +
Naut Vilji er allt sem þarf hvort heldur þig
langar að ræða eitthvað eða leysa ein-
hverja manndómsþraut. Það er einmitt
þegar skyndilega reynir á að þú finnur fyrir
styrk þínum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Varastu að hlaupa á eftir skyndi-
hugdettum í dag. Veldu þér ákveðin vekefni
og leystu þau síðan eitt af öðru.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Taktu það sem þú ætlar að fram-
kvæma í áföngum. Láttu engan þvinga þig
til samkomulags heldur láttu í þér heyra.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Hvað varðar fjármálin, þá er allt á
uppleið. Vonir um velgengni í framtíðinni
auðvelda þér að takast á við skyldur dags-
ins í dag.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Nú er rétti tíminn til þess að þú
komir hugmyndum þínum á framfæri við
starfsfélaga þína og yfirmenn. Blikkaðu,
kinkaðu kolli eða gefðu þeim olnbogaskot
sem þarf á smá leiðsögn að halda.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Frábær aðferð til að gefa letinni lausan
tauminn er að vera alltaf að athuga tölvu-
póstinn. Reyndu að koma skikki á hlutina.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú hefur komist á snoðir um
vissan fróðleik sem þig langar að ræða við
aðra. Búðu þig undir arf, greiða eða kaup-
auka af einhverju tagi.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú mátt ekki lofa upp í ermina
á þér þótt þér finnist það laga stöðuna og
redda einhverju í bili. Vinir og alls kyns fé-
lagsskapur skiptir þig miklu um þessar
mundir.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú þarft á þolinmæði að halda
til að komast gegnum daginn. Haltu þig við
efnið, það verður þess virði þegar upp er
staðið.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Sambönd á ótraustum grunni
krefjast þess að einhver taki af skarið og
taki mikilvæga ákvörðun. Fólk leitar til þín
til að fá góð ráð.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Ekki láta sjálfsgagnrýni ná tökum á
þér, þó að orð séu látin falla sem staðfesta
þínar verstu grunsemdir um sjálfa þig.
voru yngri þá fórum við á hverju
sumri í langar útilegur um landið og
heimsóttum margar sundlaugar,
legan með sonum mínum. Og það
hefur alltaf verið mjög skemmtilegt
að verja tíma með þeim. Þegar þeir
E
inar Skúlason er fædd-
ur 22. september 1971
í Kaupmannahöfn en
ólst upp í Breiðholtinu.
Hann gekk í Fella-
skóla og varði töluverðum tíma í
Fellahelli undir lok skólans, að eigin
sögn. „Ég hef alltaf haft áhuga á fót-
bolta og æfði með Fram í nokkur ár
á unga aldri og svo með Leikni og
mjög ánægjulegt að þau muni bæði
spila í úrvalsdeild á næsta ári.“
Einar er stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík, kláraði BA-
gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands og MBA-gráðu frá Háskól-
anum í Edinborg.
Einar hefur unnið á mörgum stöð-
um, m.a. sem framkvæmdastjóri Al-
þjóðahússins, skrifstofustjóri þing-
flokks Framsóknar og sem kynning-
arstjóri Fréttablaðsins og Vísis.
Síðustu árin hefur starfið snúist um
göngur í gegnum Vesen og vergang,
ritstörf í tengslum við gönguleiðir
þ.á m. skrifað tvær bækur um
gönguleiðir og unnið að uppbygg-
ingu á Wapp – Walking app sem er
app með göngu-, hjóla- og hlaupa-
leiðum um allt land.
Einar var virkur í félagslífi á há-
skólaárunum, fyrst sem formaður
Félags stjórnmálafræðinema og svo
í Stúdentaráði og var framkvæmda-
stjóri þess í eitt ár. „Á þessum árum
var ég auk þess í nýsköpunarverk-
efnum í samvinnu við Davíð Bjarna-
son og Erlu Hlín Hjálmarsdóttur og
við fengum nýsköpunarverðlaun for-
seta Íslands.“
Í framhaldi af háskólaárunum var
Einar virkur í starfi Framsóknar-
flokksins og gegndi embætti for-
manns Sambands ungra framsókn-
armanna í nokkur ár, fór í framboð
og var varaþingmaður um tíma og
leiddi framboðslista Framsóknar í
borgarstjórnarkosningum. „Ég
sagði mig úr Framsókn fyrir tíu ár-
um og hef lítið skipt mér af pólitík
síðan enda tók gönguklúbburinn yfir
allt félagslíf.“
Áhugamál Einars snúast fyrst og
fremst um hvers kyns útivist og
göngur. „Ég hef einnig ávallt haft
mikinn áhuga á knattspyrnu og
gaman að eiga þann áhuga sameigin-
fjörur, fótboltavelli og þeir voru líka
oft mjög spenntir fyrir því að dorga.
Annars hef ég verið heppinn að eiga
marga góða vini og fullt af skemmti-
legum ættingjum. Í uppvextinum
sótti ég mikið í að vera í návist
ömmu Huldu og afa Magnúsar í
Hvalfirði og ég segi alltaf að það hafi
verið hún sem kom mér af stað í
göngur og sagði mér frá umhverfinu.
Ég er líka frekar félagslyndur og
fékk áður útrás í því í félags- og
stjórnmálastarfi, en fæ nú útrás fyr-
ir þessa miklu félagsþörf í göngu-
klúbbnum Veseni og vergangi.“
Það eru endalausir viðburðir á
vegum Vesens og vergangs, smærri
sem stærri, innanlands og erlendis,
en Einar hefur einnig unnið að
skipulagi á gönguhátíð í Súðavík um
verslunarmannahelgina í samvinnu
við Súðvíkinga í sjö ár í röð og nú í
ágúst var fyrsta gönguhátíðin í
Reykjavík. „Nú í vikunni verður ein-
mitt gönguklúbburinn tíu ára gamall
og af því tilefni verður vesenis-
Einar Skúlason, frumkvöðull, framkvæmdastjóri og leiðsögumaður – 50 ára
Fjölskyldan Afmælisferð í Calpe á Spáni í tilefni sjötugsafmælis móður Einars árið 2017.
Endalausir vesenisviðburðir
Vesen og vergangur Á Gagnheiði á milli Ármannsfells og Botnssúlna. Með
Einari á myndinni eru Berglind Steinsdóttir og Renuka Chareyre.
Til hamingju með daginn
Akranes Linda Dröfn Vilhjálmsdóttir
fæddist 19. október 2020 á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Hún
vó 3.978 g og var 49 cm löng.
Foreldrar hennar eru Anna Margrét
Þórunnardóttir og Vilhjálmur
Þrastarson.
Nýr borgari
Tilboðið rennur
út um helgina!
15%