Morgunblaðið - 22.09.2021, Page 22

Morgunblaðið - 22.09.2021, Page 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021 Undankeppni HM kvenna C-RIÐILL: Ísland – Holland ....................................... 0:2 Tékkland – Kýpur .................................... 8:0 Staðan: Tékkland 2 1 1 0 9:1 4 Holland 2 1 1 0 3:1 4 Hvíta-Rússland 1 1 0 0 4:1 3 Ísland 1 0 0 1 0:2 0 Kýpur 2 0 0 2 1:12 0 A-RIÐILL: Finnland – Slóvakía.................................. 2:1 Svíþjóð – Georgía ..................................... 4:0 _ Svíþjóð 6, Finnland 3, Írland 0, Slóvakía 0, Georgía 0. B-RIÐILL: Ungverjaland – Spánn ............................. 0:1 Skotland – Færeyjar................................ 7:1 _ Spánn 6, Skotland 6, Úkraína 0, Ung- verjaland 0, Færeyjar 0. D-RIÐILL: Norður-Makedónía – Austurríki ............ 0:6 Norður-Írland – Lettland........................ 4:0 Lúxemborg – England........................... 0:10 _ England 6, Austurríki 6, Norður-Írland 6, Lettland 0, Lúxemborg 0, Norður-Make- dónía 0. E-RIÐILL: Rússland – Svartfjallaland ...................... 5:0 Aserbaídsjan – Danmörk......................... 0:8 Malta – Bosnía .......................................... 2:2 _ Danmörk 6, Rússland 6, Svartfjallaland 3, Bosnía 1, Malta 1, Aserbaídsjan 0. F-RIÐILL: Armenía – Pólland.................................... 0:1 Kósóvó – Noregur .................................... 0:3 Belgía – Albanía........................................ 7:0 _ Noregur 6, Belgía 4, Pólland 4, Kósóvó 1, Albanía 1, Armenía 0. G-RIÐILL: Króatía – Ítalía ......................................... 0:5 Moldóva – Sviss ........................................ 0:6 Rúmenía – Litháen................................... 3:0 _ Sviss 6, Ítalía 6, Rúmenía 6, Litháen 0, Króatía 0, Moldóva 0. H-RIÐILL: Þýskaland – Serbía................................... 5:1 _ Þýskaland 6, Portúgal 4, Tyrkland 1, Serbía 0, Ísrael 0, Búlgaría 0. I-RIÐILL: Grikkland – Kasakstan ............................ 3:2 Eistland – Wales....................................... 0:1 Slóvenía – Frakkland............................... 2:3 _ Frakkland 6, Wales 6, Slóvenía 3, Grikk- land 3, Eistland 0, Kasakstan 0. England Deildabikarinn, 3. umferð: Burnley – Rochdale................................. 4:1 - Jóhann Berg Guðmundsson var vara- maður hjá Burnley og kom ekki við sögu. QPR – Everton ......................... (2:2) 10:9 (v) - Gylfi Þór Sigurðsson er utan hóps hjá Everton. Preston – Cheltenham ............................. 4:1 Fulham – Leeds.......................... (0:0) 5:6 (v) Brentford – Oldham................................. 7:0 Watford – Stoke ....................................... 1:3 Wigan – Sunderland................................. 0:2 Norwich – Liverpool ................................ 0:3 Sheffield Utd – Southampton ... (2:2) 4:6 (v) Manchester City – Wycombe.................. 6:1 C-deild: Crewe – Morecambe ............................... 1:3 - Jökull Andrésson var varamarkvörður Morecambe í leiknum. Tyrkland Besiktas – Adana Demispor ................... 3:3 - Birkir Bjarnason lék allan leikinn með Adana Demispor. Katar Al-Arabi – Al Sailiya ............................... 1:0 - Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Ítalía A-deild: Bologna – Genoa....................................... 2:2 Atalanta – Sassuolo .................................. 2:1 Fiorentina – Inter Mílanó........................ 1:3 B-deild: Crotone – Lecce ....................................... 0:3 - Þórir Jóhann Helgason lék fyrstu 70 mínúturnar með Lecce en Brynjar Ingi Bjarnason var á varamannabekknum. Pisa – Monza............................................. 2:1 - Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Pisa. SPAL – Vicenza ....................................... 2:2 - Mikael Egill Ellertsson var varamaður h́ja SPAL og kom ekki við sögu. Frakkland B-deild: París FC – Nimes..................................... 2:0 - Elías Már Ómarsson kom inn á hjá Nim- es á 66. mínútu. Svíþjóð B-deild: Helsingborg – Jönköping ....................... 3:0 - Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með Helsingborg. Danmörk Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: Helsingör – OB......................................... 1:3 - Aron Elís Þrándarson var varamaður hjá OB og kom ekki við sögu. Lyngby – AaB .......................................... 0:4 - Sævar Atli Magnússon og Frederik Schram léku allan leikinn með Lyngby. Freyr Alexandersson þjálfar liðið. 0-'**5746-' Sænska knattspyrnufélagið IFK Gautaborg tilkynnti í gær að það ætli að standa við bakið á Kolbeini Sigþórssyni og styðja hann í endur- hæfingu vegna þeirra mála sem hann hefur glímt við á Íslandi. Í yfirlýsingu segir að langtímaplan hafi verið sett upp fyrir Kolbein, byggt á gildum félagsins og skyld- um þess sem vinnuveitanda. Það byggist jafnframt á markmiðum Kolbeins um að bæta sig persónu- lega og byggist fyrst og fremst á honum sjálfum. Félagið verði hon- um til stuðnings og aðstoðar. IFK Gautaborg styður Kolbein Morgunblaðið/Eggert Meiddur Auk endurhæfingarinnar fer Kolbeinn í aðgerð á fæti. Ágústa Edda Björnsdóttir hafnaði í 37. sæti í tímatöku á heimsmeist- aramótinu í götuhjólreiðum í Flanders í Belgíu í fyrradag. Ágústa kom í mark á tímanum 40:59 mínútum en þetta er í þriðja sinn sem hún keppir á HM. Hún tók þátt á HM 2019 í Harrogate í Bret- landi, fyrst íslenskra kvenna, þar sem hún hafnaði í 49. sæti í sömu grein. Árið 2020 hafnaði hún svo í 42. sæti í tímatöku á HM í Imola á Ítalíu og þetta er því hennar besti árangur og jafnframt besti árangur Íslendings í greininni á HM. Besti árangur Íslendings á HM Ljósmynd/Hörður Ragnarsson HM Ágústa Edda er fremsta götu- hjólreiðakona landsins. Á HLÍÐARENDA Kristján Jónsson kris@mbl.is Valsmenn reyndust flottir fulltrúar íslenskra félagsliða í handknattleik í gærkvöldi þegar þeir töpuðu naum- lega fyrir þýsku bikarmeisturunum í Lemgo á Hlíðarenda. Þýska liðið slapp með skrekkinn að þessu sinni og vann 27:26. Valur var yfir 17:14 að loknum fyrri hálfleik og náði sex marka forskoti 23:17 þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Fyrir vikið er tapið sárt fyrir Valsmenn. Því fylgir slæm tilfinning að kasta frá sér slíku forskoti á síðasta þriðjungi leiksins, sama hversu sterkur and- stæðingurinn er. Liðin eiga eftir að mætast á ný í Þýskalandi en úr því sem komið er ætti Lemgo að komast áfram í næstu umferð. Þar á bæ hafa menn hins vegar ekki miklu reynslu af Evrópu- leikjum. Ekki þeir leikmenn sem nú spila með liðinu. Lemgo hefur ekki verið á meðal fimm efstu liðanna á síðustu árum og hefur því ekki verið í Evrópukeppnum. Bikarævintýrið tryggði liðinu Evrópusæti. Liðið vann vel fyrir þeim sigri og sló til að mynda Kiel út úr bikarnum. Liðið ætti því að vera töluvert sterkara en íslenskt fé- lagslið en leikmenn liðsins eru hins vegar einnig að læra eins og Vals- menn. Öflug vörn Vals Ef til vill skýrir það að einhverju leyti hversu erfitt uppdráttar Lemgo átti í leiknum í gær. Önnur ástæða er virkilega öflug vörn Valsliðsins. Þar voru þeir Alexander, Þorgils, Einar Þorsteinn og Magnús Óli mjög góðir. Fyrir vikið lenti útilínan hjá Lemgo í vandræðum í sókninni. Þau vandræði fóru ekki að minnka fyrir en á síðustu tuttugu mínútunum. Íslendingurinn í liði Lemgo, Bjarki Már Elísson, hafði ekki svo lítil áhrif á úrslitin. Hann var markahæstur með níu mörk. Nýtti hann öll sín markskot ef frá er talið þegar hann reyndi fyrir sér þegar leiktíminn var liðinn og einungis aukakastið eftir. Eins og liðið blasti við mér þá eru hornamennirnir Bjarki Már Elísson og Lukas Zerbe bestu menn liðsins ásamt sænska markverðinum Peter Johannessen. Sjaldnast eru það góð tíðindi ef Svíi stendur í marki gegn ís- lenskum handboltaliðum. En Vals- mönnum gekk þó ágætlega að finna leiðina fram hjá Johannessen og þá sérstaklega Magnúsi Óla. Hann sýndi í sókninni að hann á erindi í þýsku deildina ef því er að skipta. Björgvin Páll Gústavsson, mark- vörður Vals, fékk rauða spjaldið á 23. mínútu eftir árekstur við Bjarka Má um leið og Bjarki skoraði úr hraða- upphlaupi. Lemgo slapp með skrekkinn gegn Val - Valur missti niður sex marka forskot - Bjarki Már markahæstur á vellinum Morgunblaðið/Unnur Karen Hraðaupphlaup Magnús Óli Magnússon og Bjarki Már Elísson voru markahæstir á Hlíðarenda. Pétur Viðarsson, varnarmaðurinn reyndi hjá FH, var besti leikmaður 21. umferðar úrvalsdeildar karla í fótbolta sem var leikin á sunnudag og mánudag, að mati Morgunblaðsins. Pétur átti stórleik í vörn FH-inga þeg- ar þeir lögðu Breiðablik að velli, 1:0, í Kaplakrika og skoraði auk þess sig- urmark Hafnarfjarðarliðsins. Hann fékk tvö M fyrir frammistöðu sína hjá Morgunblaðinu. Einn annar leikmaður fékk tvö M en það var Mark Gundelach, hægri bakvörður KA-manna, sem lagði upp þrjú mörk þegar Akureyrarliðið lagði Valsmenn 4:1 á Hlíðarenda. Fjórir nýliðar eru í úrvalsliði 21. umferð- arinnar sem sjá má hér fyrir ofan. 21 . umferð í Pepsi Max-deild karla 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 24-3-3 Ingvar Jónsson Víkingur R. Pétur Viðarsson FH Guðmundur Þór Júlíusson HK Mark Gundelach KA Magnús Þór Magnússon Keflavík Ísak Snær Þorvaldsson ÍA Steinar Þorsteinsson ÍA Valgeir Valgeirsson HK Pablo Punyed Víkingur R. Matthías Vilhjálmsson FH Nökkvi Þeyr Þórisson KA 2 5 2 2 6 3 2 Pétur bestur í 21. umferðinni Origo-höllin, Evrópudeild karla, 2. umferð, fyrri leikur, 21. september. Gangur leiksins: 2:1, 6:5, 10:6, 12:9, 14:12, 17:14, 20:16, 23:17, 23:21, 24:23, 25:26, 26:27. Mörk Vals: Magnús Óli Magnússon 7, Agnar Smári Jónsson 6, Tumi Steinn Rúnarsson 3/2, Vignir Stef- ánsson 3, Finnur Ingi Stefánsson 2, Þorgils Svölu Baldursson 1, Tjörvi Týr Gíslason 1, Stiven Tobar Valencia 1, Alexander Júlíusson 1, Einar Þor- steinn Ólafsson 1. Varin skot: Motoki Sakai 7, Björgvin VALUR – LEMGO 26:27 Páll Gústavsson 3. Utan vallar: 12 mínútur. (Björgvin Páll fékk rautt spjald á 23.) Mörk Lemgo: Bjarki Már Elísson 9/4, Lukas Zerbe 5, Lukas Hutecek 5, Andrej Kogut 4, Isaias Guardiola 2, Bobby Schagen 1, Gedeon Guar- diola 1. Varin skot: Peter Johannesson 14. Utan vallar: 12 mínútur. ( Carlsbog- ard fékk rautt spjald á 30.) Dómarar: Ivars Cernavskis og Ed- munds Bogdanovs, Lettlandi. Áhorfendur: 434.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.