Morgunblaðið - 22.09.2021, Qupperneq 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2021
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Rokksveitin Dimma sendi frá sér
plötuna Þögn í sumar, 1. júní, og
þótti eflaust mörgum aðdáandanum
tími til kominn því fjögur ár eru lið-
in frá því síðasta breiðskífan kom
út. Er þetta sjötta hljóðversskífan
en hljómsveitin hefur einnig gefið
út fimm tónleikaplötur með mynd-
diskum.
Dimmu skipa þeir Stefán Jakobs-
son söngvari, Ingó Geirdal sem
leikur á gítar, Silli Geirdal bróðir
hans sem leikur á bassa og tromm-
arinn Egill Örn Rafnsson. Allir
radda þeir, auk þess að leika á
hljóðfærin og er platan nýja sú
fyrsta sem Egill trommar á.
Ingó segir að hljómsveitin hafi
tekið þá ákvörðun að gefa áfram út
á föstu formi og hafa útgáfuna eins
glæsilega og kostur væri. Þögn
kemur því út í geisladiskapakka
með 20 bls. bæklingi og á rauðvíns-
litum 180 gramma vínil, í 300 ein-
tökum. Hann segir vínilinn nær
uppseldan og plötuumslagið og alla
hönnun í kringum einnig veglega.
Fjölbreyttari plata
Ingó er spurður að því hvort
bjartara sé nú yfir Dimmu en á
fyrri plötum og segir hann bæði og,
lögin séu bæði léttari og þyngri en
á fyrri plötum og nýja platan
almennt fjölbreyttari. „Við förum
alveg frá ballöðum yfir í mjög
þungt rokk,“ segir Ingó en í einni
ballöðunni, sem er jafnframt eina
tökulagið á plötunni og nefnist
„Andvaka“, syngur hin raddbjarta
Guðrún Árný. Hún söng lagið upp-
haflega, árið 2006 og segir Ingó
Dimmu hafa gert sína útgáfu af
laginu og það fyrir vikið orðið að
kraftballöðu.
Mesti munurinn frá fyrri plötum
er þó umfjöllunarefnin. Þau hafa
hingað til verið á heldur myrkum
nótum, segir Ingó og vísar í titla
platnanna Myrkraverk, Vélráð og
Eldraunir. Nú sé komin Þögn og
meira verið að fjalla um æðruleysi
og upprisu.
Blaðamaður hváir og spyr hvað
hafi eiginlega gerst hjá Dimmu
milli platna. „Ég held bara að menn
séu á öðrum stað en þegar við vor-
um að gera hinar plöturnar, eins og
gengur og gerist,“ svarar Ingó.
„Við höfum voðalega litla trú á því
að vera eitthvað að hanga yfir plöt-
um í mörg ár og fínpússa þær, lít-
um heldur á hverja plötu sem mynd
af þeim tíma sem hljómsveitin er á
hverju sinni. Hún endurspeglar
okkar áhrif og innblástur og hvar
við erum staddir í lífinu. Það má
segja það um þessa plötu.“
Eldhærð í „Nætursól“
17 ár eru liðin frá því þeir Geir-
dalsbræður Ingó og Silli stofnuðu
Dimmu og eru þeir einu upp-
runalegu liðsmennirnir. Stefán
gekk til liðs við sveitina árið 2011
og Birgir Jónsson trommari einnig
og lamdi húðirnar til 2018. Þá tók
Egill Örn við kjuðunum. Er það
býsna þéttur trommari og segir
Ingó að hann hafi strax smollið við
hina í sveitinni.
Upptökustjórn plötunnar nýju
var í höndum Silla, Ingós og Sveins
M. Jónssonar sem hljóðblandaði
einnig en Ólöf Erla Einarsdóttir
hjá hönnunarstofunni Svart sá um
hönnun fyrir geisladisks- og vínil-
útgáfu. Gerði hún myndina sem
prýðir plötukápuna og sýnir unga
konu á baki rauðum flamingófugli.
Tveir aðrir flamingóar standa hjá.
Ekki er ljóst hvort konan er
óvenjusmá eða fuglarnir óvenju-
stórir en það skiptir væntanlega
ekki máli.
Blaðamaður nefnir að þetta
myndverk sé nú ekki dæmigert fyr-
ir rokkplötu í þyngri kantinum og
Ingó tekur undir þær vangaveltur.
Hann segir hljómsveitina hafa kom-
ið auga á skissu að þessu verki hjá
hinum grafíska hönnuði Ólöfu Erlu
og strax áttað sig á því að þarna
væri plötuumslagið komið. Konan á
flamingóinum er með fagurrautt
hár líkt og sú sem sungið er um í
upphafslagi plötunnar, „Nætursól“,
bendir Ingó á og að reyndar sé sú
„eldhærð“, hárið eldrautt eins og
flamingóarnir. Fyrirsætan er ís-
lensk stúlka, segir Ingó, og verkið
unnið í tölvu út frá ljósmyndum.
Hann segir myndina algjöra and-
stæðu við alla drekana og ófreskj-
urnar á umslögum þungarokks-
platna sem séu orðnar óttalegar
klisjur. „Þegar maður er búinn að
gefa sál sína í tónlistina finnst
manni mikilvægt að umslagið beri
þess merki og endurspegli það,“
bendir Ingó á.
Öllu tjaldað til í Eldborg
Dimma ætlar að halda í það
minnsta þrenna útgáfutónleika og
mun fyrst troða upp á Græna hatt-
inum á Akureyri laugardaginn 25.
september, 2. október í Valaskjálf á
Egilsstöðum og loks í Eldborg í
Hörpu, 8. október. „Við munum
leika Þögn í heild sinni ásamt öllum
okkar vinsælustu lögum,“ segir
Ingó um tónleikana.
Hann er spurður hvort fleiri
komi fram með sveitinni í Hörpu, í
ljósi þess hversu plássið er mikið
og margir gestir. „Það er leynd-
armál,“ svarar Ingó kíminn en þó
megi segja að útgáfutónleikarnir
verði þeir stærstu sem sveitin hafi
haldið hingað til. „Við höfum alltaf
hugsað stórt og látið hlutina ger-
ast,“ segir Ingó og að miðasala á
tónleikana í Eldborg gangi vel.
Hann er að lokum spurður hvort
Dimma ætli aftur í Söngvakeppnina
en hún var nærri því að fara með
sigur af hólmi í fyrra. „Nei, það
gerum við bara einu sinni,“ svarar
Ingó glettinn.
„Við höfum alltaf hugsað stórt“
- Þögn nefnist nýjasta plata Dimmu og sungið um æðruleysi og upprisu - Ung stúlka á flamingó-
fugli á plötumslagi sem Ingó Geirdal gítarleikari segir ágætistilbreytingu frá drekum og ófreskjum
Eldhærð Stúlka á baki flamingó-
fugli á umslagi plötunnar Þögn.
Dimmu-liðar Félagarnir
í Dimmu, frá vinstri Silli,
Egill, Stefán og Ingó.