Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Page 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.9. 2021 V inur minn, sem spilar með mér golf í hverri viku, var að vafra á netinu eitt kvöldið fyrir nokkrum árum. Alveg bláedrú. Þar sá hann kylfurnar sem hann lang- aði í. Og ekki nóg með það, þær voru miklu ódýrari en í öllum búðum sem hann hafði farið í. Hann sló til, keypti kylfurnar og beið svo spenntur eftir að fá þær sendar. Það var mikil tilhlökkun þegar hann fór fyrsta hringinn. Alveg þar til hann sló fyrsta höggið og hluti af hausnum hrökk af kylfunni. Þá áttaði hann sig á þeirri gamalkunnu stað- reynd að ef eitthvað hljómar of vel til að vera satt þá er það sennilega þannig. Þessi vinur minn er mjög klár og yfirleitt af- skaplega varkár. Og þegar hann fór að hugsa málið, sitjandi yfir ónýtum kylfunum, þá áttaði hann sig á því að hann hefði getað séð þetta allt fyrir. Ef hann hefði hugsað málið aðeins lengur þá hefði hann sennilega áttað sig á því að það væri ólíklegt að einhver síða sem hann hefði ekki séð áður gæti selt vöru á lægra verði en allar golfbúðir heimsins og sennilega undir kostnaðarverði. Mér verður stundum hugsað til hans fyrir kosningar. Kosningaloforðin eru komin og skyndilega hafa allir fundið lausnir á öllum heimsins vandamálum. Og það sem meira er: Það er allt ókeypis. Kannski ekki alveg ókeypis en það er alltaf þannig að það er einhver annar en þú sem er að fara að borga fyrir þetta. Það er líka þannig að skyndilega er okkur sagt að allt í okkar daglega lífi sé svo glatað. Jafnvel þótt mælingar eftir mælingar hjá al- þjóðastofnunum segi okkur að hér sé allt í frekar góðum málum. En við ætlum ekki að hlusta á þær núna. Hér er allt í steik og eina leiðin til að laga það er að kjósa flokka sem eru með lausnirnar á hreinu. Þeir ætla að eyða fátækt og biðlistum, ná jafnrétti og hreinu lofti og nýrri stjórnarskrá sem lagar þetta og ýmislegt fleira. Þannig muni allir una glaðir við sitt. Sumir ganga meira að segja svo langt að þeir ætla að gefa okkur pening. Ef við kjósum rétt þá förum við bara öll hlæjandi í heima- bankann. Svo eru þeir sem ætla að rétta þetta allt af með því að taka peninga af auð- mönnum. Fremstur í flokki þar er mað- ur sem hefur ein- mitt dundað sér við það í áratugi að tapa peningum auð- manna á ýmsum rekstri. Mögulega er það lengsti vinnustaða- hrekkur allra tíma. Nú vil ég bara minna á það sem ég sagði áð- an. Ef það er of gott og það allt saman. Það er nefnilega þannig að það er ekkert ókeypis í þessum heimi. Við verðum einhvern veginn að standa undir okkur. Og þótt það hljómi nota- lega þá er harla fátt sem bendir til þess að besta leiðin til að gera það sé að fjölga opinber- um starfsmönnum og stofnunum. Stundum þarf að gera alls konar hluti sem vekja kannski ekki mikla lukku en eru nauð- synlegir og mögulega þurfum við kannski flokka sem geta gert einmitt það. Þótt það hljómi ekki jafn vel og að allt verði ókeypis. Það er nefnilega einstaklega glatað að vera kominn út á völl með ónýtar kylfur. ’ Það er allt ókeypis. Kannski ekki alveg ókeypis en það er alltaf þannig að það er einhver annar en þú sem er að fara að borga fyrir þetta. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Allt ókeypis S amtök áhugafólks um spilafíkn minntu á sig undir vikulokin. Þau vilja vita hvernig stjórn- málaflokkarnir sem bjóða fram til Al- þingis ætli að svara yfirlýstum vilja þjóðarinnar um að „söfnunarkössum“ verði lokað enda séu þeir fjármunir sem „safnað“ er komnir frá til- tölulega fáum einstaklingum, sem haldnir séu fíknisjúkdómi. Samtökin vísa í ítarlega skoðana- könnun sem Gallup gerði í maí fyrir rúmu ári en samkvæmt henni vilja 85,8% aðspurðra láta loka spilaköss- um sem Háskóli Íslands, Rauði krossinn og Slysavarnafélagið Landsbjörg reka og hagnast á um há- ar upphæðir. En fyrst afstaða yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar er þetta af- dráttarlaus, hvernig má það þá vera að ekki heyrist meira um þetta mál? Að vísu kemur alltaf öðru hvoru í ljós að kraumar undir og stundum svo um munar. Þannig sagði SÁÁ sig frá rekstri þessara kassa fyrr á árinu. Voru það mikil tíðindi og SÁÁ til mikils vegsauka. Í öðru lagi sendi Stúdentaráð Há- skóla Íslands frá sér ítarlega og af- gerandi ályktun í maí síðastliðnum þar sem sagði að Háskólinn ætti „ekki að hafa aðkomu að rekstri spila- kassa“. Á fjórða hundrað starfsmanna Há- skóla Íslands hafa og staðfest með undirskrift sinni að þeir vilji að skól- inn segi sig frá þessari starfsemi. Mér er tjáð að stöðugt bætist á þann lista. Rektor skólans gat ekki annað en brugðist við bæði Stúdentaráði og starfsmönnum og setti málið í nefnd. Sú nefnd er enn að störfum eftir því sem best er vitað. Slysavarnafélagið Landsbjörg ræddi málið á þingi sínu nýlega. Ákveðið var að skora á dómsmála- ráðherra að ráðast í endurskoðun á reglum og lögum sem snerta rekstur peningaspila og verði að horfa til þeirra sem haldnir eru spilafíkn við þá endurskoðun. Ég fylgdist á netinu með því þegar þessi mál voru rædd og reifuð á landsþinginu. Endahnút- inn á umræðuna rak fulltrúi frá Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Hann sagði að brýnt væri að finna nýja tekjustofna fyrir samtökin, en Slysa- varnafélagið Landsbjörg ætti að segja sig sem fyrst frá rekstri spila- kassa og botnaði með því að segja: „Ég held að við ættum líka að gera okkur grein fyrir því að mjög stór ef ekki stærstur hluti af innkomunni fyrir spilakassana kemur frá spila- sjúklingum, en ekki þeim sem spila einstaka sinnum sér til gamans.“ Á fundarstjóra landsþingsins var að skilja að málið myndi á næstunni fá áframhaldandi umræðu innan sam- takanna. Það hefði verið sett í nefnd fyrir þingið og myndi nefnd áfram fjalla um málið. Sem sagt, SÁÁ eru stigin út úr kas- ínórekstri. Slysavarnafélagið Lands- björg með málið í nefnd svo og Há- skóli Íslands. Og ekki má gleyma ríkisstjórninni. Hún treysti sér ekki til að taka á mál- inu en setti það þó í nefnd sem átti „að kanna mögulegar réttarbætur á sviði happdrættismála“. Heldur þótti þetta lélegt svar stjórnvalda við kröfu almennings en bót var þó í máli að dómsmálaráðherrann sem skipaði nefndina sagði að hún myndi skila tillögum í byrjun júní. Það er að segja í júní síðastliðnum. Ekkert bólar á nefndarálitinu og er þó kominn september. Síðan voru það þau sem enga nefnd þurftu til að komast að lofsverðri niðurstöðu. Hér er vísað til hjóna sem ráku veitingastað í Þor- lákshöfn og högnuðust vel á rekstri spilakassa sem þau starfræktu í um- boði Rauða krossins og Slysavarna- félagsins Landsbjargar á veitinga- stað sínum. Þau græddu á tá og fingri á kössunum en lokuðu samt! Sögðust hafa séð óhamingjuna sem væri fylgi- fiskur þessara spilavéla. Fréttir bárust af fleiri aðilum sem brugðust við ákallinu um lokun með þessum hætti. Létu á móti sjálfum sér en stóðu með samvisku sinni. Og fyrst minnst er á samviskuna má ekki gleyma þeim rekstrarað- ilanum sem lítið gefur fyrir siðferðis- talið. Rauði kross Íslands telur sig ekki einu sinni þurfa á nefnd að halda um sína samvisku. Er þá komið að máli málanna. Hvernig skyldu framboðin til Alþing- is ætla að svara spurningu Samtaka áhugafólks um spilafíkn? Styðja þau lokun spilakassa eða gera þau það ekki? Já eða nei. Heyrst hefur að einhverjir flokk- anna hyggist setja nefnd í málið. Það er þó alla vega skref í áttina að nefnd skuli vera nefnd. Morgunblaðið/Eggert Nefnd hefur verið nefnd Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Er þá komið að máli málanna. Hvernig skyldu framboðin til Al- þingis ætla að svara spurn- ingu Samtaka áhugafólks um spilafíkn? Styðja þau lokun spilakassa eða gera þau það ekki? Já eða nei. COLLAGEN BEAUTY FORMULA Fegurðin kemur að innan Náttúruleg bætiefnablanda fyrir húð, hár og neglur. Collagen Beauty samanstendur af 500 mg af kollageni, C vítamíni, kopar, B2 & B3 vítamíni ásamt sinki sem stuðlar að viðhaldi húðar, hár og nagla. Regluleg inntaka getur hægt á öldrunareinkennum og dregið úr líkum á að fínar línur og hrukkur fari að myndast of snemma. Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. 3 mánaða skammtur FINNA.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.