Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.09.2021, Blaðsíða 29
við víða á þessum tíma, eins og í dag, en fyrr má nú aldeilis fyrrvera. Platan átti upphaflega að heita Soundtrack to the Apocalypse – sem hefði svo sem alveg eins átt við dag- inn sem hún kom út – en Tom Araya, söngvara og bassaleikara, fannst sá titill passa betur við safnöskju með fjölbreyttu efni sem bandið sendi síðan frá sér tveimur árum síðar. Setningin God Hates Us All er end- urtekin í sífellu í téðu lagi Disciple og þá í samhenginu: Hvers vegna lætur almættið hluti eins og sjálfsvíg og hryðjuverk viðgangast án þess að koma í veg fyrir þá? Fram hefur komið að það hafi verið meðlimur Pantera, mikils vinabands Slayer, sem stakk upp á titlinum. Kerry King gítarleikari á obbann af textunum á God Hates Us All. Hann hefur aldrei viljað tjá sig mikið um þá en í bókinni The Bloody Reign of Slayer, sem málmfræðing- urinn Joel McIver sendi frá sér árið 2008, segir King: „Mig langaði ein- faldlega ekki að skrifa um gleðilega hluti. Gleðilegir hlutir eru leiðin- legir, þannig að ég freistaði þess að finna hluti sem fólk tengir við á hinu myrka rófi tilverunnar. Allir vilja hefnd, allir hata einhvern og öllum líður einhvern tímann eins og Guð hati þá. Þess vegna hygg ég að allir ættu að geta fengið eitthvað út úr þessum lögum – finna persónulegan flöt á þeim.“ Í samtali við tímaritið Guitar World skömmu eftir að platan kom út kvaðst King hafa viljað auka á raunsæið og dýptina í textum Slayer sem á köflum höfðu verið sem sog- aðir út úr blóðugustu hryllings- kvikmyndum. „God Hates Us All er ekki andkristinn áróður heldur meira hugmynd sem ég hygg að margir geti tengt við í sínu daglega lífi. Einn daginn er allt í lukkunnar velstandi en þann næsta verður maður fyrir bíl eða missir hundinn sinn. Þá hellist þetta yfir mann: Guð hatar mig virkilega í dag.“ King var að vonum kallaður Nost- radamus okkar tíma en lét sér fátt um finnast. „Ég minnist þess ekki að nokkur maður hafi kallað mig spá- mann áður,“ segir hann í The Bloody Reign of Slayer. „Það er helst að Disciple og Payback hafi átt við þennan tiltekna dag [11.9.].“ Kynnist nágrönnum ykkar Tom Araya hefur alltaf verið mælsk- ari og pólitískari en King og eftir honum er haft í bókinni: „Það er eins og allir hafi verið að bíða eftir merki. Tvíturnarnir voru helvítis merki! Það eru mergjaðir textar þarna sem hitta mig í hjartastað.“ Textarnir á plötunni öðluðust nýja merkingu út af árásunum og Pay- back smaug beint inn í þjóðarsálina enda leið ófáum Bandaríkjamönnum þannig eftir áfallið. Slayer gerði sér fulla grein fyrir því og á tónleikum í San Francisco þremur mánuðum eftir árásirnar lét Araya herská orð falla: „Ég vil að þið gerið svolítið fyr- ir mig. Kynnist vinum ykkar og ná- grönnum almennilega. Og ef þið sjá- ið einhvern óviðkomandi á svæðinu, þá megið þið drepa helvítið!“ Þetta var úr karakter en Araya þykir alla jafna yfirvegaður í sam- félagsrýni sinni. Hér var hann hins vegar að enduróma andann í Banda- ríkjunum á þessum tíma enda lá snemma fyrir að hryðjuverkamenn- irnir hefðu laumað sér inn í sam- félagið og samlagast því. „Það sem ég átti við var það að við í málm- samfélaginu – eða samfélaginu al- mennt – þyrftum að fylgjast betur hvert með öðru,“ sagði hann við McIver. „Sjáðu bara allt ruglið sem er í gangi núna. Fólk er ekki ánægt; það vill sjá blóð renna. Maður verður að vita hvað er á seyði í kringum mann. Allt getur gerst. Bandaríkin voru klárlega blind gagnvart því og 9/11 opnaði augu okkar.“ Paul Bostaph, trymbill Slayer, leitaði skýringa á hatrinu og orkunni á plötunni í praktíkinni fremur en hugmyndafræðinni. „Þegar við gerð- um God Hates Us All vorum við á túr með Slipknot og þeir voru svo bandvitlausir á sviðinu á þessum tíma að við vorum alveg spólandi þegar túrnum lauk og gátum ekki beðið eftir að byrja að æfa [nýtt efni]. Það var út af orkunni í þeim en ekki stílnum,“ segir hann í The Bloody Reign of Slayer. „Það að við vissum af þessari orku þarna úti hafði klárlega áhrif á djöfulganginn sem er að finna á God Hates Us All.“ Það gildir svo sem einu hvaðan gott kemur. Guði sé lof. Kerry King tekur gítarinn til kostanna á Secret Solstice-hátíðinni sumarið 2018. Morgunblaðið/Árni Sæberg 12.9. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 GLÆPIR Þeir hjá Showtime í Bandaríkjunum eru duglegir að framleiða frumlega þætti, þar á meðal glæpaþætti. American Rust nefnist sá nýjasti, sem frumsýndur verður vestra um helgina. Byggist hann á samnefndri skáldsögu eftir Philipp Meyer en sögusviðið er smábær í Pennsylvaníu. Það reynir heldur betur á lögreglustjórann á staðnum eftir að sonur konunnar sem hann ann er sakaður um morð. Í aðalhlutverkum eru Jeff Daniels og Maura Tierney. Sonurinn liggur undir grun Maura Tierney leikur í þáttunum. AFP BÓKSALA 1.-7. SEPTEMBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Þögla ekkjan Sara Blædel 2 Dagbók Kidda Klaufa 14 – brot og braml Jeff Kinney 3 Þung ský Einar Kárason 4 Eyland kilja Sigríður Hagalín Björnsdóttir 5 Skrímslaleikur Áslaug Jónsdóttir 6 Stúlka A Abigail Dean 7 Bréfið Kathryn Hughes 8 Iceland from above Björn Rúriksson 9 Kennarinn sem kveikti í Bergrún Íris Sævarsdóttir 10 Stóra bókin um sjálfsvorkunn Ingólfur Eiríksson 1 Dagbók Kidda Klaufa 14 – brot og braml Jeff Kinney 2 Skrímslaleikur Áslaug Jónsdóttir 3 Kennarinn sem kveikti í Bergrún Íris Sævarsdóttir 4 Drottningin sem kunni allt nema ... Gunnar Helgason / Rán Flygenring 5 Þín eigin saga Rauðhetta Ævar Þór Benediktsson 6 Drengurinn sem dó úr leiðindum Guðríður Baldvinsdóttir 7 Skrímsli í heimsókn Áslaug Jónsdóttir 8 Skrímslapest Áslaug Jónsdóttir 9 Spæjarahundurinn Guðjón Ingi Eiríksson 10 Palli Playstation Gunnar Helgason Allar bækur Barnabækur Það var fyrir einhverja slembi- lukku, ekki alls fyrir löngu, að ég hnaut um bandaríska rithöfund- inn William Gay (1941-2012) og fór í framhaldinu að lesa verk hans, fyrst af forvitni en fljótlega af áhuga, ef ekki áfergju. Þessi höfundur var sér á parti að því leytinu til að hann skrifaði nánast eingöngu sjálfum sér til ánægju. Hann lét sér semsagt í léttu rúmi liggja hvort verk hans fengj- ust út gefin en hafði í sig og á með smíðasnikki og húsamálun. Bækur hans flokkast undir ein- hvers konar suðurríkja-gotneskju (sjálfur var hann frá Tennessee) og gerast í kringum miðja síð- ustu öld. Þar eru fátækt, biturð, heift og ofbeldi jafn sjálfsagðir þættir daglegs lífs og hvíld og næring. Samt hlær lesandinn upphátt með reglulegu milli- bili. Fyrsta bókin sem Gay fékk gefna út er The Long Home árið 1999, þá 58 ára gamall, og meðal þess sem kom út meðan hann lifði er hin stórkostlega Provinces of Night (2000), en eins og önnur verk hans er hún full af kostuleg- um einstaklingum sem rata í misgæfulegar hvunndagsógöngur. Einnig verður að nefna The Lost Country sem Gay handskrifaði í ógrynni af minnisbókum þegar tími vannst til í kringum 1975. Útgefandinn komst yfir komp- urnar og með hjálp fjölskyldu höfundarins varði hann nokkrum árum í að raða þeim í heild sem kom út árið 2018, sex árum eftir fráfall Gays. Stíll þessa lítt lesna snillings er með hreinum ólík- indum og text- inn svo blæ- brigðaríkur og lifandi að unun er að lesa. Einhverra hluta vegna hef ég upp á síðkastið líka lesið fáeina vel heppnaða samtímakrimma sem eiga sér stað í suðurríkjum Bandaríkjanna. Kannski finnst mér svæðið bara heillandi af því það er pólitísk dystópía um þess- ar mundir? Hver veit. En fyrir alla sem hafa gaman af hraðri framvindu, vel meitluðum sögu- hetjum sem eiga erfitt með að fóta sig á hinu þrönga einstigi löghlýðninnar, glæpamönnum svo skelfilegum að þeir fá hárin til að rísa og safaríkum texta er óhætt að mæla með Blacktop Wasteland eftir S.A. Cosby og She Rides Shotgun eftir Jordan Harper. Báðar segja frá mönnum sem vilja undan hrammi undir- heimanna, en eigi má sköpum renna og fyrr en varir er veru- lega vont fólk komið á spor þeirra. JÓN AGNAR ÓLASON ER AÐ LESA Jón Agnar Ólason er fréttamaður hjá RÚV. Einhvers konar suðurríkjagotneskja Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Ennþá meira úrval af listavörum Listverslun.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.