Morgunblaðið - 27.08.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.08.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021 NÝTT Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is GÁMAFESTINGAR Einföld lausn til að tryggja að gámar fjúki ekki. Gámafestingar og undirstöður fyrir flutningagáma Tryggðu gámnum þínum góða festu á undirstöðu eða steypt plan Tveir erlendir ferðamenn sem gerðu sér ferð upp að steinskipinu á Fagradalsheiði í Mýrdal voru með heiðna helgiathöfn á staðnum. Þeir helltu niður mörgum flöskum af dýru koníaki og skildu eftir hrúgu af ávöxtum, brauðhleif og hálsfesti á bak við stein. Þetta mun vera fórn þeirra til að blíðka heiðnu guðina. Koníakið hefur þá verið blóðfórn. Ýmsar kenningar hafa komið fram um tilurð og tilgang stein- höggsins, meðal annars að steinninn sé frá írskum eða skoskum munkum sem hér voru fyrir landnám og hafa verið færð rök fyrir því. Ef steinninn hefur verið blótbolli eða blótstallur á þessum afvikna stað er hann vænt- anlega yngri því kristnitakan var um árið 1000 og eitthvað blótuðu lands- menn goðin eftir það. Erlendu gestirnir munu hafa tengt staðinn við Eiri, lækninga- gyðju heiðinna manna. Ekki virðist hafa orðið umræða meðal ásatrúar- manna um steinskipið eða hugsan- legt hlutverk þess í hinum forna sið, eftir því sem næst verður komist eft- ir samtöl við forystumenn úr söfn- uðinum. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Fórnir Daginn eftir helgiathöfn fólks við steinskipið sást að það hafði reynt að blíðka goðin með sínum hætti. Ávextir og brauð fannst á bak við stein. Reynt að blíðka goðin - Ráðgátan um tilgang steinskipsins óráðin - Tengt heiðnum trúarsiðum Ragnhildur Þrastardóttir Oddur Þórðarson Óverulegar breytingar á núverandi sóttvarnaaðgerðum vegna kórónu- veirufaraldursins taka gildi á laugar- dag. Þær gilda í þrjár vikur. Frekari breytingar taka svo gildi 3. september næstkomandi. Þær breytingar sem taka gildi á laugardag varða aðallega líkamsrækt- arstöðvar og sundlaugar, sem munu mega hleypa inn 100% af leyfilegum hámarksfjölda, en þær máttu áður hleypa inn 75%, sem og veitingastaði sem mega frá laugardegi hýsa 200 manns samtímis í stað 100. Þá fellur eins metra fjarlægðarregla niður á sitjandi viðburðum og verða bæði hlé og veitingasala heimiluð. Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir vill fara varlega í afléttingar. Á mið- vikudag greindust 103 kórónuveiru- smit innanlands en sex daga þar á undan höfðu dagleg greind smit inn- anlands náð að haldast vel undir 100. Áfram miðast almennar fjöldatak- markanir við 200 manns en frá og með 3. september munu allt að 500 manns mega koma saman grímu- klæddir án fjarlægðartakmarkana á sitjandi viðburðum ef allir gestir framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi sem má ekki vera eldra en 48 klukkustunda gamalt. Í minnisblaði sem Þórólfur sendi Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðis- ráðherra segir hann að hátt verð á hraðprófum geti verið hamlandi við að ná því markmiði að fleiri geti notið menningar og lista hér á landi. Svandís sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að augljóst sé að hrað- próf geti verið forsenda rýmri sam- komutakmarkana hérlendis og að þau hjálpi til við að opna samfélagið eins mikið og kostur er á. Þó á eftir að útfæra það hvernig framkvæmd þessa verði háttað. „Það eru fjölmargar spurningar sem þarf að svara; í fyrsta lagi varð- andi innkaupin, í öðru lagi varðandi framkvæmdina og í þriðja lagi varð- andi greiðsluþátttökuna. Megin- markmið stjórnvalda með notkun hraðprófa er að opna bara eins mikið og við getum,“ sagði Svandís. Andlát af völdum Covid Einn lést á Landspítala vegna Co- vid-19 á miðvikudag. Sjúklingurinn var á sjötugsaldri, en að sögn Önnu Sigrúnar Baldursdóttur, fram- kvæmdastjóra skrifstofu forstjóra Landspítala, hefur spítalinn ekki heimild til að veita frekari upplýsing- ar um andlátið að svo stöddu. Var þetta fyrsta andlátið af völdum Co- vid-19 síðan í maímánuði. Sóttvarnareglur breyt- ast örlítið á laugardag - Veitingastaðir og sundlaugar mega taka á móti fleirum Breytingar á fjöldatakmörkunum frá 28. ágúst Eins meta regla fellur niður á sitjandi við- burðum Fjöldatakmarkanir í líkamsrækt og sundi falla niður Leyfi til að halda sitjandi viðburði með allt að 500manns, án fjarlægðartak- markana, verður útfærtmeð notkun hraðprófa 200 manna sam- komutak- mörk verða áfram almenn regla Óbreyttar reglur um grímuskyldu Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær 103 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring 872 eru í skimunar- sóttkví1.493 einstaklingar eru í sóttkví Einn lést sl. miðvikudag 31 einstaklingur hefur látist af völdum Covid-19 4 þeirra eru á gjörgæslu 200manns mega koma saman á æfing- um og keppn- um í íþróttum og sviðslistum og leyfilegur hámarksfjöldi gesta á veit- ingastöðum fer einnig úr 100 í 200 í rými Heimild: Stjórnarráðið 930 eru með virkt smit og í einangrun 18 einstak- lingar eru á sjúkrahúsi *Tekur gildi 3. september Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Vinirnir Bergþór Sverrisson og Daní- el Darri Arnarsson hafa síðustu daga selt gamlar fótboltatreyjur af knatt- spyrnumanninum Eiði Smára Guð- johnsen á Facebook-síðunni Brask og Brall. Strákarnir, sem eru 15 ára, segja í stöðunni að fá fleiri treyjur frá knattspyrnumanninum og halda söl- unni áfram. Í samtali við blaðamann segir Eið- ur Smári að hann hafi verið að flytja og gefið félögunum treyjurnar fyrir aðstoð þeirra við flutninga en Berg- þór er sonur grínistans Sverris Þórs Sverrissonar, eða Sveppa eins og hann er betur þekktur. Sveppi hefur verið góður vinur Eiðs Smára til margra ára. „Strákarnir munu fá hluta af ágóð- anum fyrir að hafa staðið í því að selja treyjurnar en annars mun allur ágóð- inn renna til góðs málefnis sem á eftir að ákveða hvert verður,“ segir Eiður Smári í samtali við Morgunblaðið. Strákarnir segja söluna hafa geng- ið vonum framar en viðurkenna að hafa vanmetið virði treyjanna í byrj- un. „Svona í byrjun vorum við með þetta frekar lágt en við vorum snögg- ir að hækka verðið,“ segja strákarnir í samtali við blaðamann. Þeir segjast fyrst hafa selt stykkið á 5.000-10.000 kr. en svo hækkað þær í 30.000- 40.000 kr. per stykki. Vinirnir fengu Eið Smára til að árita nokkrar treyj- ur og hafa selt þær fyrir aðeins meiri pening. Tóku þrjár til hliðar fyrir sig Alls hafa félagarnir fengið um 30 treyjur frá Eiði Smára en það er til skoðunar að þeir fái fleiri til að selja. Af þessum 30 tóku þeir þrjár sérvald- ar til hliðar fyrir sig. Spurðir um þeirra helsta kaup- endahóp segja þeir hann vera mjög fjölbreyttan, unga sem aldna. „Það eru aðeins fleiri strákar en stelpur,“ segja þeir. Bergþór og Daníel hafa verið vinir í rúm 10 ár. Strákarnir kynntust í gegnum eldri systur sínar sem voru saman í Réttarholtsskóla, sama skóla og strákarnir stunda nú nám við. Þeir eru ekki nýgræðingar í sölu- mennsku þar sem þeir segjast hafa verið duglegir tombólumenn þegar þeir voru yngri og gáfu þá ágóðann til Rauða krossins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sölumenn Daníel Darri Arnarsson og Bergþór Sverrisson með treyjur sem Eiður Smári Guðjohnsen klæddist á glæstum knattspyrnuferli sínum. Selja fótboltatreyj- ur af Eiði Smára - Til skoðunar að styrkja gott málefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.