Morgunblaðið - 27.08.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021
Útsölustaðir: Apótek og heilsuhillur stórmarkaða.
Vönduð bætiefnalína
hönnuð til að styðja
við almenna heilsu
Bragðgóðar & sykurlausar freyðitöflur
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Talið er að 60 manns hið minnsta hafi
látist og 150 særst þegar tvær
sprengjur sprungu með skömmu
millibili í hryðjuverkaárás á alþjóða-
flugvöllinn í Kabúl, höfuðborg Afgan-
istans. Fyrr um daginn höfðu stjórn-
völd í Bandaríkjunum, Bretlandi og
Ástralíu varað ríkisborgara sína og
Afgana við því að fara á flugvöllinn
vegna mikillar og aðvífandi hættu.
Á meðal þeirra sem létust í árás-
unum voru óbreyttir borgarar, sumir
á barnsaldri, sem og ellefu bandarísk-
ir landgönguliðar og einn herprestur.
Þá hermdu fyrstu fregnir að víga-
menn talíbana hefðu einnig orðið fyrir
árásinni, en nákvæmar tölur um
mannfall voru ekki fyrir hendi í gær.
Fyrsta sprengingin varð um kl.
13:50 að íslenskum tíma, eða um
hálfsjöleytið að staðartíma, við Bar-
on-hótelið, en óstaðfestar fregnir
hermdu að sendiferðabíll hlaðinn
sprengiefni hefði sprungið þar. Seinni
sprengingin varð við svonefnt
„Klausturhlið“ að flugvellinum, í ná-
grenni við hótelið, en þar hafði fjöldi
Afgana og annarra sem freistuðu
þess að yfirgefa Afganistan komið
saman, þrátt fyrir viðvaranir um
hættuna.
Mun sjálfsvígssprengjumaður hafa
komið sér fyrir í miðjum hópi fólks
sem var að fá vegabréfsáritanir sínar
staðfestar, og hóf samverkamaður
hans skothríð eftir ódæðið.
Endalok brottflutninganna?
Deild hryðjuverkasamtakanna
Ríkis íslams, Isis-K, sem kennd er við
Khorasan-héruð Afganistans, lýsti yf-
ir ábyrgð á árásunum. Samtökin hafa
framið nokkur skæð hryðjuverk í
Afganistan og Pakistan á síðustu ár-
um, en fjandskapur ríkir á milli þeirra
og talíbana. Sérfræðingar í öryggis-
og varnarmálum sögðu líklegt að
samtökin myndu reyna frekari árásir
við flugvöllinn, þar sem þær hefðu
mikið áróðursgildi í augum samtak-
anna.
Bandaríska varnarmálaráðuneytið
hafði fyrr um daginn vísað á bug
fregnum um að hætt yrði að flytja
óbreytta borgara burt frá Afganistan
nú um helgina, þar sem huga þyrfti
senn að því að flytja á brott þá 5.800
hermenn sem hafa staðið vörð um
flugvöllinn síðustu daga. Sagði í til-
kynningu ráðuneytisins að það hygð-
ist standa að flutningum út 31. ágúst,
en Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði
í gærkvöldi að allt herlið yrði dregið
frá Afganistan fyrir þann dag. Biden
sagðist harma dauða þeirra banda-
rísku ríkisborgara sem létust og sagði
þá vera hetjur. Þá hygðust Bandarík-
in hafa hendur í hári vígamannanna
sem ábyrgir eru fyrir voðaverkunum.
„Við munum finna ykkur og láta
ykkur gjalda fyrir það sem þið hafið
gert,“ sagði Biden. „Við munum ekki
fyrirgefa og við munum ekki gleyma.“
Nú þegar er búið að flytja rúmlega
95.000 manns, bæði Afgana og er-
lenda ríkisborgara, frá Afganistan, en
óvissa ríkti um framhaldið eftir árás-
ina í gær. Kanada, Þýskaland og Hol-
land voru á meðal þeirra ríkja sem
ákváðu að stöðva brottflutninga sína
alfarið í gær, en Frakkar ætla að
reyna að flytja nokkur hundruð
manns til viðbótar í dag, en hætta svo
aðgerðum.
Árásin fordæmd víða
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, fordæmdi árásina í gær og
sagði hana fyrirlitlega. Sagði Johnson
að Bretar myndu halda sínum brott-
flutningum áfram til mánaðamóta
þrátt fyrir árásina, en Bretar hafa
flutt um 15.000 manns frá Afganistan
til þessa. Pedro Sanchez, forsætisráð-
herra Spánar, hét því einnig að Spán-
verjar myndu halda sínum brottflutn-
ingum áfram, en þeir hafa forðað
rúmlega 1.500 manns undan yfirráð-
um talíbana.
William Wechsler, fyrrverandi
embættismaður í bandaríska varnar-
málaráðuneytinu, sagði hins vegar við
Washington Post að árásin hefði lík-
lega bundið enda á tilraunir vest-
rænna ríkja til þess að flytja fleiri
óbreytta borgara frá landinu.
Þjóðarleiðtogar hvaðanæva for-
dæmdu árásina á flugvöllinn sem níð-
ingsverk gagnvart óbreyttum borg-
urum. Þar á meðal voru Antonio
Guterres, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, og Angela Merkel
Þýskalandskanslari, sem sagði árás-
ina sérstaklega ógeðfellda, því hún
hefði beinst að fólki sem var að leita
að öryggi og friði.
Guterres boðaði í gær fund örygg-
isráðs SÞ næstkomandi mánudag
vegna ástandsins í Afganistan.
Jens Stoltenberg, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins, for-
dæmdi árásina einnig og sendi fórn-
arlömbum og aðstandendum
samúðarkveðjur. Sagði Stoltenberg
það forgangsmál að flytja eins marga
í örugga höfn og eins fljótt og mögu-
legt væri.
Talíbanar fordæmdu árásina sömu-
leiðis, en Zabihullah Mujahid, einn af
talsmönnum þeirra, benti sérstaklega
á að hún hefði orðið á svæði þar sem
Bandaríkjaher bæri ábyrgð á öryggi
almennings. Suhail Shaheen, annar
talsmaður talíbana, sagði að þeir
fylgdust nú grannt með ástandinu til
að tryggja öryggi og vernd „þjóðar
sinnar“.
AFP
Hryðjuverk í Kabúl Fréttamyndir sýndu mikinn fjölda særðra, sem flytja þurfti á sjúkrahús eftir árásina.
Minnst sextíu látnir í Kabúl
- Talíbanar og Bandaríkjamenn sagðir meðal fórnarlamba sjálfsvígssprengjumanna - Kanadamenn,
Þjóðverjar og Frakkar hætta brottflutningum vegna hryðjuverkaógnar - Bretar hyggjast halda áfram
Flóttamaður Hermaður í breska flughernum réttir hér stúlku leikfang við
komuna til Bretlands. Bretar hafa flutt um 15.000 manns frá Afganistan.
Frank-Walter Steinmeier, forseti
Þýskalands, heiðraði í gær þá Jan
Kubis og Josef Gabcik, tékkóslóv-
ösku fallhlífahermennina sem drápu
Reinhard Heydrich, foringja í SS-
sveitum nasista og einn af arkitekt-
um helfararinnar gegn gyðingum.
Steinmeier varð þar með fyrsti
þjóðarleiðtogi Þýskalands til þess að
viðurkenna þá fórn sem þeir færðu,
en hann heimsótti meðal annars
grafhvelfingu dómkirkju St. Kýrils
og Methodíusar í Prag, þar sem þeir
Kubis og Gabcik voru felldir eftir
skotbardaga við Þjóðverja. Lagði
Steinmeier þar blómsveig í minn-
ingu þeirra.
Steinmeier minntist einnig
tveggja tékkneskra þorpa, Lidice og
Lezaky, sem nasistar jöfnuðu við
jörðu í hefndarskyni fyrir bana
Heydrichs. Alls voru 15.000 manns
handteknir, drepnir eða fluttir í
fangabúðir nasista í hefnd-
araðgerðum þeirra.
ingathora@mbl.is
Heiðraði bana-
menn Heydrichs
AFP
Minning Frank-Walter Steinmeier og Elke Büdenbender forsetafrú hlusta
hér á Michal Burian hernaðarsagnfræðing tala um hetjudáðina.