Morgunblaðið - 27.08.2021, Page 15

Morgunblaðið - 27.08.2021, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021 Skrafað Mennirnir á bak við tjöldin, ráðherrabílstjórarnir, biðu þolinmóðir, eins og vant er, eftir því að ríkisstjórnarfundi lyki í gær. Þeir styttu sér stundir með góðu spjalli við Tjörnina. Kristinn Magnússon Það bar eitt sinn við þá er greinarhöf- undur, kjörinn fulltrúi á löggjafarsamkomu, kom á bæ í Skaga- firði, að ábúandi krafði komumann svara um það hvað stjórnmálamaðurinn ætlaði að gera fyrir hann, ábúandann. Svar stjórnmála- mannsins var stutt og laggott; hann ætlaði ekki að gera neitt sérstaklega fyrir ábúandann. Samtalið skipti stjórnmála- manninn ekki máli með tilliti til atkvæða, samtalið átti sér ekki stað í hans kjördæmi. Þessi heimsókn stjórnmála- mannsins á skagfirskan sveitabæ minnti gestinn á aðra heimsókn annars stjórnmálamanns í öðru landi, og valdameiri! Eitt sinn kom varaforsetafram- bjóðandinn Alben W. Barkley, varaforseti 1949-1953, á sveitabæ í sínu gamla kjördæmi í Ken- tucky. Frambjóðandinn til varaforseta tíundaði alla þá sérstöku „fyrir- greiðslu“ sem hann hafði ástund- að fyrir bóndann á liðnum árum. Bóndinn sagði þetta allt satt og rétt en sagðist ekki vera tilbúinn til að greiða honum atkvæði til varaforseta, því varaforsetaefnið hafði ekki gert neitt nýlega! Þannig verður frambjóðandinn að vera stöðugur í góðverkum fyr- ir útvalda, á annarra kostnað. Davíðssálmur 121 Ef til vill hefur bóndinn hafið augu sín til fjallanna og spurt: Ég hef augu mín til fjallanna, hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Og treyst því að næsti öldungadeildar- þingmaður, sem ekki þurfti að hafa áhyggjur af þjóðarhag heldur ein- ungis stundarhag bóndans, tæki að sér verk Drottins þess sem Sálm- arnir fjalla um. Drottinn leysir aldrei manninn undan ábyrgð á eigin lífi! Einfaldasta leiðin til að ein- staklingur geti borið nokkra ábyrgð á eigin lífi er að hann geti eignast frjálst sparifé. Sá er þetta ritar hefur barist fyr- ir því í um 50 ár að einstaklingurinn geti eignast frjálst sparifé, án þess að því sé eytt með verðbólgu ellegar hirt með óhóflegri skattlagningu. Aðeins einn stjórnmálamaður hefur tekið undir með greinarhöfundi. Nú er sá fallinn frá og hjálpræðið horf- ið! Hvers vegna er þetta umræðuefni? Þegar kosningar eru fram undan er hætta á skelfilegum kosninga- loforðum. Með kosningaloforðum er átt við hvers kyns gjörninga sem skapa skammtímaávinning fyrir út- valda á kostnað almannahagsmuna. Greinarhöfundur hefur oft undr- ast að galnasta kosningaloforð þess- arar aldar skuli aldrei hafa orðið umræðuefni þeirra sem hafa lagt stund á hagfræði og verðbólguvís- indi. Þessi aðgerð var kynnt sem „mesta skuldaleiðrétting í heimi“. Sá sem kynnti efnahagsaðgerðina gerði allt sem var mest í heimi. Fjármálaráðherrann fékk kaleikinn af framkvæmdinni. Forsenda „skuldaleiðrétting- arinnar“ var „stökkbreytt húsnæð- islán“. Stökkbreyting vegna verð- bólgu! Í raun ríkisábyrgð á verðbólgu! Stjórnmálamenn haga sér stund- um eins og maður sem gefur stúlku hænsn! Og telur sig vera séní. Aðrar stökkbreytingar Það var fleira sem stökkbreyttist á þessum tíma! Laun stökkbreytt- ust og fasteignaverð stökkbreyttist. Bæði laun og fasteignaverð hækk- uðu meira en vísitala neysluverðs. Kaupmáttur jókst! Eignastaða batnaði! Hvað þurfti að leiðrétta? Greinarhöfundur, sem tókst á við löggjafarstarfsemi, er mjög stoltur af því að hafa greitt atkvæði gegn þessari geðþóttaúthlutun á gæðum! Annar tveggja alþingismanna sem gerðu slíkt! Stór hluti þing- manna sýndi eymingjaskap og greiddi ekki atkvæði. Ætlunin var að kröfuhafar þrota- búa hinna föllnu banka greiddu fyr- ir veisluna. Niðurstaðan var sú að aðrir lántakendur greiddu stóran hluta „mestu skuldaleiðréttingar í heimi“, auk þess sem stöðugleika- framlag til ríkissjóðs minnkaði. Kröfur og kosningamál á heilbrigðissviði Stjórnmálamenn á Íslandi eiga sér fábrotnar hugsjónir. Því fer fram leit að kosningamálum. Kórónuveirufaraldur er vont kosn- ingamál því veiran stökkbreyttist. Önnur heilbrigðismál kunna að verða kosningamál. Það getur aldrei orðið ásættanlegt að sjúklingar þjá- ist í þrjá eða sex mánuði. Biðlistar á heilbrigðisstofnunum eru ekki ásættanlegir, að því tilskildu að ekki sé um sjúkdómavæðingu að ræða. Það er heldur ekki ásættanlegt að búa til nýtt fyrirbrigði í heilbrigðismálum, fyrirbrigði sem heitir valkvæðar aðgerðir! Val- kvæðar aðgerðir eru ekki val- kvæðar fyrir þann sem þjáist. Þján- ing í boði stjórnvalda er ekki ásættanleg. Ábyrgð mannsins Fátt er jafn brigðult og óstöðugt eins og elskandi brjóst stjórnmála- mannsins og það er jafnvel sá stað- ur í veröldinni þar sem engin er til samlíðanin. Þrátt fyrir kosningaloforð, loforð misviturra manna og kvenna, um allt er varðar líf samborgarans þá er það svo að maðurinn, hinn mann- lega vera, ber ábyrgð á eigin lífi. Vera kann að biðin eftir hjálpræði Drottins verði löng ef maðurinn tekst ekki á við eigin ábyrgð. Með því er greinarhöfundur ekki að hafna hvers kyns trygginga- kerfum. Tryggingakerfi er fyrir þá sem hafa farð á mis við lífsins gæði en alls ekki fyrir þá sem hafa það verulega gott. Þó er sú undantekning gerð í ís- lensku samfélagi að aðgangur að heilbrigðiskerfi á Íslandi er á við- ráðanlegu verði fyrir alla og að- gangur á að vera jafn fyrir alla. Með því að maðurinn ber ábyrgð á eigin lífi er verið að vísa til þess að lífsstílstengdir sjúkdómar koma oftar en ekki af ólifnaði. Er það gefið mál að reykinga- stampar eigi að hafa það gott? Eða eiga þeir sem eru miður sín af öl- drykkju að hafa það gott í fráhvörf- um! Er ekki þjáningin eðlilegur fylgifiskur?! Þá þýðir lítið að segja: Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Það er enginn að biðja um annað af stjórnálamönnum en það að þeir hafi hugkvæmni og þekkingu til þess að þeir, sem þetta land byggja, geti lifað þrautalausu lífi án afskipta þeirra. Þrátt fyrir allt er ekkert geig- vænlegra en hið ósagða milli karls og konu. Það er mikil ábyrgð. Eftir Vilhjálm Bjarnason »Með því að maðurinn ber ábyrgð á eigin lífi er verið að vísa til þess að lífsstílstengdir sjúkdómar koma oftar en ekki af ólifnaði. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður og verð- ur það aftur. Ber maðurinn ábyrgð á eigin lífi andspænis hjálpræðinu?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.