Morgunblaðið - 27.08.2021, Síða 17

Morgunblaðið - 27.08.2021, Síða 17
lagði hana á handriðið. Hún rankaði við sér og rak upp skaðræðisvein, þá ýtti hann henni fram af. Hann fór inn í brunastigahúsið og henti veskinu á efsta pallinn. Fór síðan á næsta stiga- pall, reykti þar fimm sígarettur, það- an í kjallarann til hálfsystur sinnar. Málið var alfarið órannsakað. Það var minnst á brotnu sylgjuna í einni yfirheyrslu. Þá eru sönnunargögnin upptalin. Þeir sem áttu að rannsaka málið vissu hvernig hann myrti hana. Það kom fram í héraðsdómi. Hand- riðið var þakið húðfitu af Áslaugu Perlu. Nóg var af sönnunargögnum og sum komu fram í héraðsdómi, en þau voru bara hunsuð. Hann viður- kenndi verknaðinn samdægurs. Sagð- ist myndu drepa lögregluna og börn hennar þegar hann losnaði eftir 15 til 20 ár. Það voru engin sönnunargögn lögð fyrir í Hæstarétti. Ekki einu sinni áverkavottorð. Áverkar á Ásgeiri: 1. Klór á hægri kinn. 2. Klór hægra megin á hálsi. 3. Á framanverðri öxl. 4. Neðan við hægra brjóst. 5. Á framanverðri vinstri öxl. 6. Við vinstra brjóst. Þar fannst blóð á íþróttatreyju hans. 7. Aftan við vinstra eyra, blóð- kögglar í sárinu. 8. Á miðju baki. Þar fannst einnig blóð á íþróttatreyju hans. 9. Neðarlega á baki. Þar fannst einnig blóð á íþróttatreyju hans. 10. Á framhlið síðbuxna hans voru sýnileg óhreinindi á vinstra hné og hægra læri. Komu við spörk hennar. Í Hæstarétti var hún dæmd fyrir að hafa haft samfarir við nauðgara sinn og morðingja við svalirnar. Ég mun aldrei geta leiðrétt dóminn nema með hjálp. »Ég mun aldrei geta leiðrétt dóminn nema með hjálp. Höfundur er móðir Áslaugar Perlu. UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Nú er hafin bólu- setning barna á aldr- inum 12-15 ára við Co- vid-19. Bólusetning fullorðinna hefur geng- ið hratt og nú eru börnin næst, enda er það stefna stjórnvalda að bólusetja sem allra flesta á sem skemmst- um tíma. Engu máli skiptir að bóluefnin veita mun minni vernd en lofað var. Né heldur að alvarlegar aukaverkanir hafa komið fram, svo sem alvarleg hjartavandamál, lam- anir og sú staðreynd að þau hafa sett tíðahring a.m.k. 1.700 kvenna úr skorðum. Orðræða stjórnvalda hefur verið þannig að helst megi skilja að bólu- efnin séu eins örugg og rannsökuð og önnur lyf sem standa almenningi til boða. Þetta er rangt. Þótt hröð þróun bóluefnanna við Covid-19 sé sjálfsagt merkilegt afrek læknavís- indanna hafa þau enn ekki staðist þær prófanir sem vísindasamfélagið (og lög flestra ríkja) gera kröfu um að ný lyf ætluð mönnum standist. Vísindasamfélagið hefur viður- kennd viðmið um hvernig lyfjarann- sóknir skuli framkvæmdar og hve- nær lyf teljast nægilega rannsökuð svo hægt sé að setja þau á markað. Hér á landi gilda sérstök lög um slíkar rannsóknir, lög nr. 44/2014 um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði. Auk þeirra gilda um efnið ákvæði ýmissa laga og reglugerða, til dæmis lyfjalaga nr. 100/2020 og reglugerða settra á grundvelli þeirra. Hér starfar vísindasiðanefnd og siðanefndir heilbrigðisrannsókna á spítölum landsins. Vísindasiðanefnd hefur meðal annars sett reglur nr. 230/2018 um hvernig velja megi og nálgast fólk til þátttöku í vísinda- rannsóknum á heilbrigðissviði og hvaða fræðslu skuli veita því áður en samþykkis er leitað. Þegar rýnt er í allar þessar reglur er ljóst að markmið löggjafans er að setja skýrar leikreglur um rann- sóknir á heilbrigði manna og að tryggja að þær samrýmist vís- indalegum og sið- fræðilegum sjón- armiðum. Samþykki þeirra bóluefna sem notuð eru hér á landi fylgdi þó ekki í þessum leikreglum og ljóst er þau hafa ekki staðist þessar hefðbundnu og ströngu prófanir, enda hafa þau ekki hefð- bundið markaðsleyfi sem lyf hér á landi. Notkun bóluefnanna hér á landi er byggð á skilyrtu markaðsleyfi frá Lyfjastofnun. Í því felst að lyfja- fyrirtækin þurfa ekki að skila inn gögnum um virkni, öryggi og gæði lyfjanna, sem venjulega er alger for- senda markaðsleyfis, heldur hafa þau lofað að senda þau gögn um leið og þau verða til. Niðurstöðurnar liggja ekki fyrir heldur er verið að rýna gögnin jafn- óðum og þau verða til. Notkun bólu- efnanna er því tilraun, alveg sama þótt samþykki þeirra hjá Lyfjastofn- un hafi farið krókaleið fram hjá reglum sem um lyfjatilraunir gilda. Þetta hafa stjórnvöld verið ótrúlega treg að viðurkenna, jafnvel þótt fyrir liggi að í samningum Evrópu- sambandsins við lyfjarisana sé skýrt tekið fram að um áhættusama til- raun sé að ræða Þar sem engin gögn eru til um langtímaáhrif bólefnanna er ekkert hægt að fullyrða um þau. Þetta er lyfjafyrirtækjunum ljóst, enda er skýrt kveðið á um það í samningum þeirra við ríki heimsins (og ESB) að fyrirtækjunum skuli tryggt algjört skaðleysi vegna mögulegra afleið- inga vegna notkunar efnanna. Sam- kvæmt íslenskum lögum bera lyfja- framleiðendur almennt ábyrgð á notkun lyfja sinna og þurfti því laga- breytingu svo íslenska ríkið gæti tekið á sig alla ábyrgð á notkun efn- anna. Sú lagabreyting var samþykkt á Alþingi 17. desember sl. (lög nr. 156/2020). Í ljósi þess, hve berlega er talað um áhættuna af notkun efnanna í samningum lyfjarisanna við ríki heimsins og þeirrar staðreyndar að bóluefnaframleiðendurnir setja það beinlínis sem skilyrði að bera ekki ábyrgð á afleiðingum af notkun efn- anna, má velta því fyrir sér, hvort það sé siðferðilega og lagalega rétt af stjórnvöldum, sóttvarna- yfirvöldum og starfsfóki heilsugæsl- unnar, að boða fólk með bros á vör í „bólusetningardiskó“, án þess að til- kynna því um þær hættur sem kunna að fylgja því að taka inn efnin. Slíkt er ekki í neinu samræmi við kröfur skv. lögum nr. 44/2014 sem áður voru nefnd, né reglur Vísinda- siðanefndar nr. 230/2018. Þegar metið er hvort brýnt sé að bólusetja ólögráða börn verður að hafa í huga að börn sýkjast síður en fullorðnir af Covid-19 og þegar þau sýkjast verða þau mun síður veik. Þegar litið er til óvissunnar um lang- tímaafleiðingar bóluefnanna og þess að virkni þeirra er minni en vonast var til blasir við að ávinningurinn af bólusetningum réttlætir ekki áhætt- una. Grátlegt er því að herferð stjórnvalda við bólusetningu barna sé hafin. Þar sem ávinningurinn er lítill sem enginn vaknar sú spurning hvort markmiðið sé að verja okkur gegn Covid-19 eða hvort markmiðið sé að kaupa og nota sem flesta skammta af bóluefnunum. Ætli blessuð börnin verði ekki boðuð í örvunarsprautu um svipað leyti og fullorðna fólkið fer í fjórðu spraut- una sína? Já talandi um það – af hverju tryggðu íslensk stjórnvöld sér 1,4 milljónir skammta af bóluefni strax í upphafi? Skyldu menn hrein- lega vera að keyra hér áætlun, sem var skipulögð frá upphafi? Eiga börnin að taka þátt í tilrauninni? Eftir Guðmund Karl Snæbjörnsson » Þar sem engin gögn eru til um langtíma- áhrif bóluefnanna er ekkert hægt að fullyrða um þau. Guðmundur Karl Snæbjörnsson Höfundur er sérfræðingur í heim- ilislækningum. Ég tók að mér að gerast burðardýr fyrir náinn ættingja til að koma búslóð hans frá Svíþjóð til Íslands fyrir nokkrum dögum. Æv- intýrið byrjaði með því að standa í röð í rúman klukkutíma á Suður- landsbraut til að verða mér úti um staðfestingu á að vera greindur nei- kvæður í sýnatöku á veirunni sem okk- ur er öllum farið að þykja svo vænt um. Þetta vottorð þurfti ég til að fá að koma heim til mín aftur en engar kröf- ur um neitt slíkt voru gerðar í landinu sem ég var að heimsækja. Ég var reyndar með bókaðan tíma nokkrum mínútum eftir að ég mætti í röðina og enn hef ég ekki ráðið gátuna um það hvers vegna ég pantaði tíma þegar ekki var farið eftir tímapöntunum. Vegna þess hve búið er að gera ferða- lög flókin þá fórum við sérstaklega út í Leifsstöð kvöldið fyrir brottför til að innrita okkur í flugið héðan sem var svo morguninn eftir. Við mættum svo grímuð í flugstöðina morguninn eftir og nutum þess að hafa þennan sér- staka lepp fyrir vitum okkar allt þar til við komum út úr flugstöðinni ytra. Þar fórum við í gegnum flugstöðina án þess að nokkrar Dísir, Ölmur eða Ólfar reyndu að bregða fyrir okkur fæti. Þegar haldið var til baka daginn eftir frá Arlanda gekk allt eins og í sögu í innritun þrátt fyrir að vera með nánast óteljandi pinkla með okkur. Við þurft- um reyndar að framvísa vottorðum við innritun til að fá að fara heim til okkar aftur. Engin mannmergð eins og hóp- samkoman í Leifsstöð morguninn áður við innritunarborðin. Ekkert mál var að virða tveggja metra regluna nema meðan við sátum í flugvélinni. Þetta yndislega ferðalag breyttist hins vegar í algjöra martröð eftir lendingu í Keflavík. Samkvæmt fyrirmælum sóttvarnayfirvalda hér, sem með réttu ætti að kalla sóttdreifingaryfirvöld, var gegnumstreymi fólks takmarkað svo mjög gegnum flugstöðina að erfitt var að viðhalda tveggja metra fjarlægð, jafnvel í töskusal. Þegar komið var út í komusal versnaði ástandið hins vegar til muna en þar var ásýndin einna lík- ust síld í tunnu. Þar var starfsfólk af öllu mögulegu þjóðerni og litum öðru en íslensku að skipa fólki að þétta hóp- inn þar sem fleiri væru að koma inn í komusal og þyrftu að komast fyrir. Þrátt fyrir að viðkomandi aðilum væri bent á að halda yrði fjarlægð var eins og hreinlega væri ætlast til að menn hengdu sig hver á öxlina á öðrum og slefuðu helst yfir viðkomandi. Þá var farið að borði til að fá strikamerki fyrir sýnatöku á staðnum og enn útilokað að halda fjarlægð. Í litlu skimunarrýminu þar sem sýnin voru tekin ulluðu svo farþegar hver framan í annan þar sem ekki var nokkur möguleiki að halda tveggja metra fjar- lægð þar heldur. Þeir sem stjórna þessu hringleikahúsi úti í Leifs- stöð eru greinilega veru- lega illa áttaðir. Svona lagað er eingöngu til þess fallið að auka mögulega dreifingu smita sem mest og hafa þannig þveröfug áhrif á yfirlýst markmið svokallaðra sóttvarna- ráðstafana. Ef fólk smitast ekki í komusal Leifsstöðvar við svona ástand, sem mér skilst að sé bara al- mennt, þá er tæplega nokkur von til að geta náð sér í afleggjara af veirunni huggulegu nokkurs staðar annars staðar. Af fréttum að dæma verða bólusettir almennt ekki alvarlega veik- ir smitist þeir og finna jafnvel ekki fyr- ir neinum einkennum. Er þá ekki nær að takmarka ferðafrelsi þverhausanna sem ekki vilja þiggja bólusetningu eða jafnvel að leyfa þeim að drepast úr eig- in þrjósku? Það er réttur hvers manns að fá að kveðja þessa jarðvist þótt lög leyfi ekki öðrum að veita hjálp við slíkt. Ekki er heldur að finna í lögum bann við þrjósku og heimsku. Þessi veira virðist vera orðin líkari inflúensu eða kvefi eftir að farið var að bólusetja fólk og það yrði aldrei ráðist í svona ferða- takmarkanir vegna slíkra pesta. Kannski er bara kominn tími á að lifa með veirunni eins og öðrum kvillum. Sá vitleysisgangur sem hafður er uppi í komusal Leifsstöðvar er a.m.k. al- gjörlega galinn og aðeins til að auka líkurnar á að fólk næli sér í þessa veiru sem okkur er öllum orðin svo kær. Þá sem standa fyrir þessu uppistandi ætti að nefna sóttdreifingaryfirvöld frekar en sóttvarnayfirvöld. Vel að merkja mér til undrunar kom neikvæð niður- staða úr sýni því sem tekið var úr mér í komusal Leifsstöðvar. Og þá tel ég mig nokkuð skotheldan gegn smiti annars staðar. En ég hygg ekki á frek- ari ferðalög fyrr en yfirvöld hafa látið af þessum fíflagangi vegna þess að ég vil forðast eins og ég get að ná mér í af- leggjara af hvers kyns pestum og sú sem hér um ræðir er ekkert undan- skilin. Sóttdreifingar- yfirvöld Eftir Örn Gunnlaugsson Örn Gunnlaugsson »Ef fólk smitast ekki í komusal Leifs- stöðvar er tæplega nokkur von til að geta náð sér í afleggjara af veirunni huggulegu nokkurs staðar annars staðar. Höfundur er fv. atvinnurekandi. orng05@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.