Morgunblaðið - 27.08.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.08.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021 PÖNTUN AUGLÝSINGA er til 7. september SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Börn & uppeldi Víða verður komið við í uppeldi barna í tómstundum, þroska og öllu því sem viðkemur börnum frá fæðingu til 12 ára aldurs. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir 569 1105 kata@mbl.is fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 10. sept. 30 ÁRA Lilja Rúriksdóttir fædd- ist og ólst upp í Reykjavík. Hún byrjaði í dansi aðeins þriggja ára í Ballettskóla Eddu Scheving og níu ára fór hún í Listdansskóla Íslands og var þar til 2008. Hún byrjaði í Menntaskólanum í Hamrahlíð en fór þaðan árið 2008 í hinn heims- fræga listaháskóla Juilliard í New York og útskrifaðist þaðan vorið 2013, fyrst íslenskra listdansara, og fékk verðlaun fyrir framúrskarandi frammistöðu í kóreógrafíu. „Það var frábært að vera í skólanum og allt sem mig dreymdi um á þessum tíma. Það var mjög krefjandi en á sama tíma mjög skemmtilegt.“ Lilja kynntist eiginmanni sínum, leik- aranum Aron Clifton Moten, í skól- anum. „Eftir útskriftina var ég að dansa í New York í tvö ár.“ Hún segir að hún hafi vissulega verið heppin því samkeppnin í listageir- anum er gífurlega hörð. „Ég gat unnið við þetta og þurfti ekki að vinna annars staðar, sem var frá- bært.“ Lilja og Aaron fóru til Los Angeles árið 2015 til að freista gæf- unnar og gekk það vonum framar. „Það var allt öðruvísi heimur. Hiti og strönd og meira pláss og stærri íbúðir.“ Lilja fór að dansa hjá LA Dance Project-dansflokknum. „Það var rosalega gaman og við fórum í sýningarferðir út um allan heim.“ Árið 2018 kom Lilja heim, en þá var fjölskyldan að stækka. Hún hefur verið að kenna t.d. við Listaháskóla Íslands en er núna að hefja BSc- nám í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og segir leiklist, sálfræði og tennis vera helstu áhugamálin þessa dagana. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Lilju er Aron Clifton Moten leikari, f. 28.2. 1989. Þau eiga dæturnar Ey- dísi Amelíu Aronsdóttur, f. 2018. og Sóleyju Ölmu Aronsdóttur, f. 2021. Foreldrar Lilju eru hjónin Harpa Helgadóttir, doktor í sjúkraþjálfun, f. 1966. og Rúrik Vignir Vatnarsson lögfræðingur, f. 1965. Þau búa í Reykjavík. Lilja Rúriksdóttir Ljósmynd/ Jónatan Grétarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Í dag tekur ástin völdin hjá þér, þegar þú tekur klikkaðar ákvarðanir í henn- ar nafni. Berðu höfuðið hátt og vertu hvergi smeyk/ur. 20. apríl - 20. maí + Naut Í dag má auðveldlega leysa deilumál sem upp hafa komið milli vina. Það gengur ekki lengur að sitja með hendur í skauti og láta tímann líða án þess að aðhafast nokk- uð. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Hugsaðu vel um hvernig þú gætir bætt samskipti þín við aðra. Því afslapp- aðri sem maður er, þeim mun meiru kemur maður í verk. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú hælir fólki hægri-vinstri og finn- ur eitthvað jákvætt við alla sem þú hittir. Hver er sinnar gæfu smiður. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Ýms persónuleg málefni sem þú hefur látið reka á reiðanum verður þú nú að taka fyrir og leysa. Reyndu að nálgast málin með jákvæðu hugarfari. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Á meðan þú umbreytir þínum ytri heimi verða einnig breytingar á þínum innri heimi. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ert í essinu þínu núna og gengur auðveldlega í augun á fólki án þess að leggja nokkuð á þig. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Sjálfsöryggi og einurð eru lyk- illinn að frábæru verki og þú ert sterkur á báðum þeim sviðum. Hittu vin sem alltaf fær klikkuðustu hugmyndirnar. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú hefur verið á útopnu og þarft því nauðsynlega að hægja aðeins á þér og gefa þér tíma til að líta í eigin barm. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þótt þú sért tilbúinn til að vera einn er ekki þar með sagt að þú hafir þann stuðning sem þú þarft. Gakktu markvisst til verks og ljúktu þeim verkefnum sem bíða á skrifborðinu þínu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú ert að glíma við eitthvert vandamál sem veldur þér miklum heila- brotum. Heppnin eltir þig ef þú leyfir fyrir- gefningunni að flæða í gegnum líf þitt. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Á ferli þínum hefur mannorðið stundum orðið fyrir hnjaski, en það hefur bara gert þig svalari týpu. Spurðu bara ást- vini þína. G uðlaugur Helgi Guð- laugsson fæddist 27. ágúst 1961 í Keflavík og hefur alla tíð búið þar. „Það var mikið um að vera hérna í Keflavík. Það var alltaf mikið að gerast í kringum bryggjuna og alltaf líf og fjör í bænum, enda margir krakkar.“ Guðlaugur gekk í Grunnskóla Keflavíkur og var mikið í bæði fót- bolta og handbolta á sínum yngri árum og eignaðist stóran og góðan vinahóp enda er hann glaðvær og hress. Eins og gerist í sjávar- plássum var byrjað að vinna í fiski. „Svo fór ég á sjóinn. Ég var nú svo- lítið sjóveikur svona fyrst, en það skánaði alltaf þegar maður var bú- inn að fara einn túr.“ Guðlaugur kynntist eiginkonu sinni, Guðbjörgu, á skemmtistaðn- um Sigtúni í Reykjavík, þá 22 ára gamall. „Ég hefði nú ekkert þurft að fara í bæinn til þess, því hún er héðan úr Keflavík,“ segir hann hlæjandi. Þau byrjuðu fljótt að búa í Keflavík og elsti sonurinn fæddist árið 1984. „Ég var búinn að kaupa mér íbúð áður, sem við byrjuðum á að flytja í, en síðan vorum við að stækka við okkur í gegnum árin eftir því sem fjölskyldan stækkaði. Þegar við vorum komin með fjögur börn á tíu árum keyptum við okkur einbýlishús.“ Þessi fyrstu ár vann Guðlaugur ýmis störf áður en hann fann sína hillu. Hann vann hjá Keflavíkur- verktökum bæði í járnsmíði og tré- smíði og hefur því góða reynslu af byggingarferli húsnæðis. „Svo próf- aði ég að fara í lögregluna á Kefla- víkurflugvelli, sem mér fannst mjög spennandi, en svo þróaðist það þannig að ég keypti sendibíl og fór að vinna hjá sjálfum mér í tals- verðan tíma og endaði svo í slökkvi- liðinu í bænum,“ segir hann hlæj- andi. Þegar honum bauðst starf sem fasteignasali ákvað hann að taka því og keypti sig inn í Fast- eignaþjónustu Suðurnesja, en árið 1999 stofnaði hann sína eigin fast- eignasölu, Stuðlaberg, sem hann hefur rekið alla tíð síðan. „Ég er búinn að vera í fasteigna- sölunni í 30 ár og kann mjög vel við það.“ Hann segir að eiginleikar góðs fasteignasala séu margvíslegir. „Þeir þurfa að vera heiðarlegir, traustir, þolinmóðir, góðir hlust- endur og góðir í samskiptum.“ Hann bætir við að góð þekking á sínu markaðssvæði sé augljóslega líka mikilvæg og eins að hafa brennandi áhuga á starfinu við að hjálpa fólki að finna sér góðan samastað í tilverunni. Það er víst að fyrri reynsla Guð- laugs víða úr samfélaginu er góður grunnur fyrir starfið. „Núna erum við hjónin að fara að minnka við okkur því við erum bara ein eftir í kotinu og þurfum ekkert stórt hús lengur. Mér finnst gífurlega mikil- vægt að vera sveigjanlegur í lífinu og haga seglum eftir vindi. Fólk hefur mismunandi þarfir í húsnæð- ismálum á einni ævi. Það er um að gera að fara að leika sér meira og hafa gaman þegar fuglarnir eru flognir úr hreiðrinu.“ Golfið hefur átt stóran hlut í Guð- laugi núna í næstum 25 ár. „Núna er konan komin í golfið líka og hún hefur eiginlega ennþá meiri áhuga en ég, þótt hún hafi bara byrjað fyrir þremur árum. Við höfum verið að fara utan, mest til Flórída og til Guðlaugur Helgi Guðlaugsson fasteignasali – 60 ára Fjölskyldan Frá vinstri: Guðbjörg, Súsanna Edith, Guðlaugur Helgi, Brynjar, Guðlaugur Ingi og Davíð. Mikilvægt að njóta lífsins Hjónin Guðlaugur og Guðbjörg eru mjög áhugasöm í golfinu. Riddarar Golffélagarnir kalla sig Riddarana og fara árlega til Bretlands. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.