Morgunblaðið - 27.08.2021, Side 28

Morgunblaðið - 27.08.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2021 VIÐTAL Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Miklar breytingar standa nú yfir á einu elsta listasafni Bandaríkjanna, Albright-Knox-safninu í Buffalo-borg í New York-ríki en frá stofnun hefur það hvort tveggja safnað og sýnt samtímamyndlist hvers tíma. Verið er að stækka húsakynni safnsins um- talsvert og breyta umhverfi þess og verður það opnað að nýju fyrir gesti eftir eitt ár og þá undir nýju heiti: Buffalo AKG Art Museum. Við breyt- ingarnar verða meðal annars sett upp tvö, ný stór og varanleg listaverk, annað eftir Ólaf Elíasson og hitt sænsku listakonuna Miriam Bäck- ström. Breytingarnar á safninu eru hann- aðar af arkitektastofunni OMA/ Shohei Shigematsu en hann er í hópi kunnustu arkitekta samtímans. Heildarkostnaður við stækkunina og breytingarnar er 170 milljónir dala, um 21,5 milljarðar króna. Ný safn- bygging Shigematsu stendur til hlið- ar við eldri höfuðstöðvar safnsins, sem eru í nýklassískum stíl, byggðar snemma á síðustu öld. Safnið stendur við þekktan borgargarð hannaðan af Frederick Law Olmsted sem hannaði líka Central Park í New York. Meðal athyglisverðra breytinga sem verið er að gera á safninu í Buff- alo, undir stjórn finnsks stjórnanda þess, Janne Sirén, er að hluti starf- seminnar mun fara fram undir hatti verkefnisins „AKG Nordic Art and Culture Iniative“. Skapaður verður vettvangur fyrir samtímamyndlist frá öllum Norðurlöndunum, sá fyrsti slíki í Norður-Ameríku, og í raun má ekki finna neitt safn á Norðurlöndunum sem er helgað samtímalist frá öllu svæðinu með viðlíka hætti. Var þetta verkefni safnsins fyrst kynnt opin- berlega norrænum blaðamönnum á CHART-listkaupstefnunni í Kaup- mannahöfn í gær. Undirstaðan rúmur milljarður Safneign Albright-Knox er afar ríkuleg. Safnið var stofnað árið 1862 og hefur frá upphafi safnað verkum eftir lykillistamenn myndlistarinnar á hverjum tíma. Fyrir vikið á safnið til að mynda mikilvæg verk eftir frönsku impressjónistana, helstu full- trúa kúbisma, súrrealisma og abstraktlistar; það þykir líka eiga mjög gott safn eftir helstu banda- ríska listamenn, hvort sem um er að ræða New York-skólans, popplistar- innar eða í myndlist dagsins í dag. Fyrir vikið lánar safnið mikið af verk- um á á safnasýningar út um heims- byggðina. Að sögn safnstjórans, Janné Sirén, hefur Albright-Knox safnað verkum eftir listamenn frá Norðurlöndum í um sex áratugi og síðustu ár hafa markvisst verið keypt verk eftir sænska samtímalistamenn. Þá hefur safnið mjög horft til norrænna safna sem fyrirmyndar hvað almennings- fræðslu varðar. Norræni vinkillinn verður svo heldur betur styrktur núna. Hið nýja „AKG Nordic Art and Culture Iniative“ miðar að því að til 60 ára verði markvisst unnið með sýningar á og söfnun verka frá Norðurlöndum, og þann tíma má síð- an framlengja. Undirstaða þeirrar framkvæmdar verður afar öflugur sjóður sem Sirén hefur á undanförn- um árum byggt upp með þátttöku nokkurra tuga norrænna velunnara og er markmiðið að í honum verði 10 milljónir dala, hátt í 1,3 milljarðar króna. Sá sjóður verður notaður til að framkvæma verkefni tengd hinni norrænu deild við AKG-safnið en þá er líka við safnið afar öflugur inn- kaupasjóður. Hann byggir á rúmlega 100 milljóna dala höfuðstól og er ár- lega sem nemur fimm prósentum hans notuð til kaupa á listaverkum, í framtíðinni einnig á samtímaverkum eftir norræna listamenn. Þekktur danskur sýningarstjóri, Helga Chri- stoffersen, hefur verið ráðinn til að byggja upp og móta hina norrænu deild við Buffalo-safnið en undir deildina verður lagður einn hluti nýju safnbyggingarinnar. Samtímamyndlistin þenst út Janne Sirén hafði öðlast mikla reynslu sem stjórnandi norrænna safna þegar hann var ráðinn til Albright-Knox fyrir átta árum. Hann hafði stýrt Listasafni Tampere í Finnlandi á árunum 2004-2007 og Listasafni Helsinki 2007-2013. Þá hafði hann um skeið verið aðstoðar- prófessor í listasögu við Hebreska há- skólann í Jerúsalem. Eftir að hann kom til Buffalo hefur Sirén stýrt upp- setningu sýninga sem hafa hlotið mikið lof og góða aðsókn. Þar má nefna sýningarnar „Anselm Kiefer: Beyond Landscape“, „Monet and the Impressjonist Revolution, 1860-1910“ og „Picasso: The Artist and His Mod- els“. Þegar rætt er við Sirén um hið metnaðarfulla uppbyggingarstarf með norræna samtímalist, segir hann mikilvægt að fólk átti sig á því hvað heimur samtímamyndlistar hafi þanist mikið út á síðustu fjórum, fimm áratugum. Á 19. öld hafi París verið deigla samtímamyndlistar, New York hefði tekið við því hlutverki um miðja 20. öld og þá hafi áhugafólk um myndlist getað fylgst með helstu straumum með því að vita hvað væri ferskast í gangi í nokkrum borgum. „En síðan hefur heimur samtíma- myndlistar þanist gríðarlega út,“ seg- ir Sirén. „Sem dæmi þá voru 13 list- kaupstefnur haldnar reglulega í heiminum árið 1985. Nú eru þær á milli 250 og 300. Í dag er engin leið að tala um einhverja eina miðju sam- tímalistar. Áhugaverð listsköpun á sér stað á hundruðum ólíkra staða, frá Jóhannesarborg til Þrándheims, frá Tæpei til Reykjavíkur. Og ekkert safn með samtímamyndlist getur sagst sýna einhvern einn megin- straum eða vita nákvæmlega hvað er að gerast í heimi samtímamyndlist- arinnar.“ Fyrir vikið hafa söfn sem sinna samtímalist þurft á undanförnum ár- um að svara þeirri spurningu hvernig þau nálgist þetta umfangsmikla svið með áhugaverðum hætti. Sirén segir að verkefnið hafi verið nokkuð auð- velt þegar hann var á sínum tíma for- stöðumaður Listasafnsins í Helsinki, en því bar að safna og sýna finnska list. En hann hafi áttað sig sífellt bet- ur á því að það væri engin leið að sýna samtímalist eins og það væri einhver ein birtingarmynd eða stefna. Þess í stað verði hvert safn að vinna út frá ákveðinni, vel mótaðri stefnu, byggðri á sjálfbærni og rannsóknum, á þeim verkum sem það velji að tak- ast á við. Söfn sinna ekki Norðurlöndum Sirén segir að þegar hann var árið 2013 ráðinn forstöðumaður Albright- Knox-safnins, sem hefur frá upphafi staðsett sig á alþjóðlegu myndlistar- sviði, þá hafi hann séð hversu mikil- vægt það var að marka safninu sér- stöðu. „Við réðumst í þessa viðamiklu og metnaðarfullu stækkun, sem mun ljúka á næsta ári, og munum þá vera með húsnæði sem jafnast í stærð á við nýja Whitney-safnið í New York. Þá höfum við svo öflugan innkaupa- sjóð að á ári hverju höfum við meira fé til kaupa á verkum en allir inn- kaupasjóðir norrænna listasafna samanlagt! Við urðum að spyrja okkur hver við værum og hvert við vildum fara með safnið í framtíð- inni.“ Sirén og samstarfsfólks hans skoðaði vandlega sérstöðu þeirra rúmlega 40 listasafna í Bandaríkj- unum sem safna og sýna samtímalist og sáu að þau hafa mörg hver sér- hæft sig í list frá ákveðnum deildum jarðar. Einhver sýna list frá Kína og Suðaustur-Asíu, önnur list frá Afr- íku og allnokkur listsköpun frá Mið- og Suður-Ameríku. „Og þá sáum við að það eina af öllum þeim svæðum jarðar þar sem er öflugt samfélag og deigla samtímalistamanna, safnara, gallería og safna sem ekkert banda- rískt safn hafði litið til var norræni landmassinn, sem ég vil kalla svo. Við erum ekki að horfa á Norður- löndin sem þjóðir og þjóðarbrot heldur landsvæðið sem nær frá aust- urhluta Finnlands að vesturhluta Grænlands. Innan þess svæðis er mikill fjölbreytileiki í listsköpun, vel menntaður almenningur, listaskólar, gallerí og safnarar. Og engin stofnun utan svæðisins hefur verið að sinna þeirri deiglu á markvissan hátt.“ Á Norðurlöndum sáu Sirén og samstarfsmenn hans möguleika sem var kynntur fyrir stjórn Albright- Knox-safnsins sem leist vel á. Hann tók þá að ferðast milli landanna og ræða við kollega, sem styrkti hann í þeirri trú að um væri að ræða afar áhugavert verkefni enda hafi hvergi verið horft til norræna landsvæð- isins sem heildar sem áhugavert væri að sýna verk frá og safna. „Nokkur söfn á Norðurlöndum sýna svolítið af verkum frá hinum löndunum en það er ekki mikið um það,“ segir hann. „Norðurlandabúar eru frekar illa að sér um helstu hrær- ingar í listum á hinum Norður- löndunum. Við hér í AKG sáum mikla möguleika í stöðunni og völd- um að vinna með norræna samtíma- list til langs tíma. Stjórnendur safns- ins samþykktu ótrúlega rausnarlega áætlun um að móta verkefni til 60 ára, þar sem við rannsökum, sýnum og söfnum samtímalist frá þessu svæði, með öflugum og markvissum hætti. Þetta norræna verkefni mun verða um tíundi hluti sýninga og fræðsluverkefna okkar, en afskap- lega mikilvægur hluti. Það býður upp á tækifæri til að líta gegnum nýja linsu á listsköpun í þessum nor- ræna heimshluta og líka undirbyggja nýtt samstarf milli sýningarstjóra og listamanna sem vinna á svæðinu og okkar hér í einu öflugasta listasafni Bandaríkjanna.“ Skynja listræna strauma Eins og þekkt er þá kemur hið opinbera í afar litlum mæli að fjár- mögnun menningarstofnana vestan- hafs, ólíkt því sem þekkist á Norður- löndum. Sirén segir það hafa verið lykilverkefni að mynda á svæðinu hóp öflugra stuðningsaðila sem legðu fé í verkefnið. „Oft er um að ræða myndlistar- safnara og fólk sem hefur reynslu af því að taka þátt í menningarlífinu með framlögum,“ segir hann. „Ég byrjaði að leita að samstarfsmönnum í Finnlandi, þar sem tengslanet mitt var best, og innan árs höfðum við safnað þar meira en tveimur millj- ónum dala. Þá fórum við til hinna landanna og fundum vinalega sam- keppni byggjast upp! En ég skynjaði líka þá tilfinningu þeirra sem þótti verkefnið spennandi að Norður- löndin væru öll saman í þessu. Þetta var erfitt í byrjun en nú höfum við 43 stuðningsaðila og hópurinn fer stækkandi. Við erum enn að leita að stuðningi á Íslandi. Við höfum komið nokkrum sinnum til landsins, rætt við listamenn og safnara, og erum þar með fjóra stofnfélaga sem er frá- bært, en til að mynda 13 í Svíþjóð og 10 í Finnlandi. Markmiðið er að skapa sjóð með tíu milljónum dala sem mun fjármagna verkefnið næstu sex áratugi. Nú höfum við safnað 7,1 milljón og þurfum 2,9 til viðbótar þar til við opnum safnið næsta haust.“ Sirén bætir við að þeir sem leggi fé í sjóðinn myndi líka afar mikilvægan stuðningshóp hvað varðar tengsl og hugmyndir innan landsvæðisins. Þeir muni aðstoða starfsfólk safnsins þegar kemur að hugmyndum um við- burði, sýningar og kaup á verkum. Hann ítrekar að markmiðið sé að sinna samtímamyndlist á svæðinu. Safnið muni ekki kaupa málverk eft- ir Edvard Munch fyrir tíu milljónir dala en ef stungið verði til dæmis upp á verki eftir Rögnu Róberts- dóttur þá verði það skoðað vandlega. „Við lítum svo á að okkar verkefni sé að reyna að uppgötva listrænar byltingar morgundagsins, áður en morgundagurinn fer að hugsa um þær sem byltingar,“ segir Sirén. „Þetta er djörf yfirlýsing en þegar litið er til þess að við vorum til dæmis fyrst safna til að kaupa verk eftir Andy Warhol, og með þeim fyrstu til að kaupa verk eftir Rothko og Clyfford Still, þá má sjá að í 160 ár höfum við staðið okkur vel í að skynja mikilvæga listræna strauma. Við reynum að finna lyktina af mikil- vægum uppgötvunum í myndlist- inni,“ segir hann. Og á næstu áratug- um hyggjast stjórnendur AKG-safnins í Buffalo markvisst leita nýjunganna á Norðurlöndum. Leita nýrra byltinga í listinni Glæsilegt Nýja safnbyggingin í Buffalo eftir Shohei Shigematsu verður opnuð eftir ár, samhliða umfangsmiklum breytingum á eldri byggingum sem og nýrri stefnumörkun í rekstrinum. Kastljósið fellur á norræna samtímalist. Safnstjórinn Janne Sirén beinir sjónum að norrænni myndlist. Skúlptúr Nýtt og umfangsmikið verk sem Ólafur Elíasson hefur skapað og nefnist Common sky, hvelfist yfir eitt megintorgið innan safnsins í Buffalo. - Hið merka listasafn í Buffalo hefur mótað stefnu til 60 ára um að rannsaka, sýna og safna sam- tímalist frá Norðurlöndum - Byggja upp net norrænna stuðningsmanna - Öflugir sjóðir til kaupa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.