Morgunblaðið - 23.10.2021, Page 8

Morgunblaðið - 23.10.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 Ríkisvaldið gerir mikið af því að hlaða upp hvers kyns stofnunum sem eiga að hafa eftirlit með alls kyns starfsemi almennings og fyrir- tækja. Sumar eru óhjákvæmilegar, en jafnvel í þeim til- vikum þarf að gæta þess að starfsemi þeirra fari ekki úr böndum og starfsmennirnir of- metnist ekki og fari offari. - - - Aðrar eru síður mikilvægar og þá er enn brýnna að hafa eft- irlit með eftirlitinu og gera strangar kröfur um að það fari ekki að flækjast um of fyrir fólki og fyrirtækjum. - - - Svo eru sumar alveg óþarfar og jafnvel til hreinnar óþurftar og þá er eina ráðið að leggja þær niður og hlífa almenningi og fyrir- tækjum við starfsemi þeirra og kostnaði. - - - Samkeppniseftirlitið gerði í gær athugasemd við það að for- svarsmenn hagsmunasamtaka fyr- irtækja hefðu tekið þátt í umræðu um yfirvofandi vöruskort, hækk- andi hrávöruverð og fleira sem kunni að hafa áhrif á „verðlag og hagsmuni neytenda hér á landi“. - - - Eftirlitið telur að með þessu hafi forsvarsmennirnir geng- ið of langt og að þeir eigi ekki að tjá sig um slíka hluti. Eftirlitið virðist telja að slík umræða feli í sér samráð og jafnvel aðför að neytendum. - - - Vöruverð hækkar ekki vegna þess að tilteknir einstaklingar tjá sig um það sem öllum má ljóst vera. Og það lækkar ekki við að þessi ríkisstofnun reyni að tak- marka tjáningarfrelsi þeirra. Að ganga of langt STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Viðræður um makríl á árlegum haustfundi strandríkja hófust á þriðjudag og verða teknar aftur upp á miðvikudag í næstu viku, en þeim var frestað á fimmtudag. Fundurinn er haldinn í Lund- únum og til umræðu eru makríll, norsk-íslensk síld og kolmunni, en engir heildarsamningar eru í gildi um þessa stofna og hefur því hver strandþjóð fyrir sig ákveðið afla- mark. Haustfundurinn hófst á makríl- umræðum með hliðsjón af stjórnun, ráðgjöf, veiðitölum og ramma fyrir vísindamenn, sem munu taka sam- an yfirlit um líffræðilega dreifingu og veiði úr stofninum. Þrýstingur hefur verið á stjórn- völdum strandríkjanna um að semja um veiðar úr deilistofnum en stórir kaupendur uppsjávarafurða hafa ákveðið að gefa strandríkjum í norðausturhluta Atlantshafs þrjú ár til að tryggja að veiðar á makríl, síld og kolmunna verði innan vís- indalegrar ráðgjafar. hmr@mbl.is Viðræðum frestað fram í næstu viku Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Makríll Þrýstingur er á strandríki um að ná samkomulagi um veiðar. Logi Sigurðarson logis@mbl.is Rannsókn lögreglunnar á hoppu- kastalaslysinu sem átti sér stað 1. júlí á Akureyri stendur enn, tæpum fjórum mánuðum síðar. Rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri vildi ekki tjá sig um rann- sókn málsins í gær eða hvenær bú- ist sé við að henni ljúki. Því er enn óljóst hver endanleg niðurstaða verður í málinu. Herdís Storgaard, verkefna- stjóri hjá Miðstöð slysavarna barna, sagðist í samtali við mbl.is í sumar hafa boðið lögreglunni á Akureyri aðstoð við rannsókn máls- ins þar sem hún þekkti öryggis- staðlana sem stuðst er við í tengslum við starfsleyfi hoppukast- ala. Blaðamaður heyrði í Herdísi og gat hún heldur ekkert sagt um stöðuna á rannsókninni. Hún segir sína aðkomu að þessu máli í raun hafa verið að aðstoða lögreglu varð- andi þekkingu á tæknibúnaði og hvaða kröfur hann ætti að uppfylla. Þeirrar hjálpar hafi ekki verið þörf í byrjun þar sem lögregla hafi verið að safna almennum upplýs- ingum um slysið. Bætir hún við að þegar málið komist á það stig muni lögreglan væntanlega hafa sam- band við sig aftur. Hoppukastalinn enn til rannsóknar - Tæpir fjórir mánuðir liðnir frá slysinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Hoppukastali Lögreglan vildi ekki tjá sig um rannsókn málsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.