Morgunblaðið - 23.10.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
Full búð
af nýjum
náttfötum
Livia
náttsett
S-XXL
9.990kr
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hef-
ur tekið jákvætt í ósk um leyfi til að
byggja ofan á húsið Skipholt 21,
sem stendur á horni Skipholts og
Nóatúns. Hins vegar var ekki fallist
á jafn mikla hækkun hússins og
óskað var eftir. Bent hefur verið á
að hornbyggingin á lóð nr. 21 við
Skipholt bæri sterkan karakter
eftirstríðsmódernisma og sé sem
slík áberandi kennileiti á svæðinu.
Vanda þurfti til verka við hvers-
kyns útfærslu á stækkun hússins,
svo sem við yfirborðsfrágang út-
veggja, glugga og gerð nýrra svala.
Gert ráð fyrir þéttingu
Í gildandi aðalskipulagi Reykja-
víkur fyrir svæðið Holt-Laugaveg-
ur er gert ráð fyrir að þar verði
fyrst og fremst rýmisfrekar smá-
söluverslanir, skrifstofur, stofn-
anir, ýmis ráðgjafar- og þjónustu-
fyrirtæki, hönnunarfyrirtæki og
handverk, hótel og veitingastaðir.
Þar sem aðstæður leyfa er íbúð-
arhúsnæði heimilt, einkum á efri
hæðum bygginga. Gert er ráð fyrir
allnokkurri þéttingu byggðar á
svæðinu, ekki í síst í því skyni að
skapa heildstæðari götumyndir. Á
undanförnum árum hefur átt sér
stað umtalsverð þétting íbúða-
byggðar á þessu svæði.
Í umsókn Arkþing-Nordic ehf.
arkitekta um breytingu á deili-
skipulagi segir að Skipholt 21 sé vel
staðsett með tilliti til almennings-
samgangna við samgöngu- og þró-
unarás, lóðin sé innan 200 metra
jaðarmarka frá Borgarlínu og í um
500 metra fjarlægð frá kjarnastöð
við Hlemm. Aukið byggingarmagn,
fjölgun íbúða í bland við verslun og
þjónustu á jarðhæð, þakgarðar,
bætt ásýnd byggingarinnar og
fækkun bílastæða muni styðja við
lifandi mannlíf í borginni.
Í breytingunni felist að heimilt
verður að byggja ofan á húsið þann-
ig að það verði 4-5 hæðir og sex
hæðir á horni byggingar. Gert verði
ráð fyrir verslun og þjónustu á
jarðhæðum og íbúðum á efri hæð-
um, sem voru áður atvinnuhúsnæði.
Byggingarreitur jarðhæðar stækki,
heimilt verði að vera með sameigin-
lega þakgarða, bílastæðum á lóð
fækki og fjöldi hjólastæða verði í
samræmi við reglur borgarinnar.
Byggingin er nú 1.783 fermetrar en
yrði eftir stækkun 3.110 fermetrar.
Skipulagsfulltrúi sendi erindið til
meðferðar frá verkefnastjóra sem
skilaði áliti sem skipulagsfulltrúi
hefur samþykkt. Verkefnastjórinn
bendir á að Skipholtið sé skilgreint
sem aðalgata (íbúðabyggðar) en
meðfram slíkum götum sé heimil
fjölbreyttari landnotkun þó grunn-
skilgreining lóða við aðalgötur sé
oftar en ekki íbúðabyggð. Skipholt-
ið sé einnig skilgreind sem borg-
argata en litið er á slíkar götur sem
lykilgötur viðkomandi hverfis, fyrir
verslun, þjónustu og vettvang fjöl-
breytts mannlífs.
Verkefnastjórinn tekur að hluta
jákvætt í erindið. Hann leggur til
að heimilt verði að bæta við einni
heilli hæð (4h) á núverandi þak
og einnig að byggja inndregna
þakhæð/afmarkaða aukahæð (5h)
á horni sem tilheyrir horníbúð á
nýrri 4. hæð. Hann leggst gegn
því að núverandi takmarkaður
byggingarreitur á jarðhæð við
Skipholt verði stækkaður og nái
að lóðamörkum nr. 23.
Viðbótarbyggingarmagni í inn-
garði (núverandi porti) skal
halda í lágmarki og vera á for-
sendum dvalarsvæða íbúa húss-
ins í inngarði svo byggja megi
undir gæði í nýju búsetu-
umhverfi.
Hús við Skipholt verði hækkað
- Hornbyggingin á lóð númer 21 við Skipholt er sögð bera sterkan karakter eftirstríðsmódernisma
Morgunblaðið/sisi
Skipholt 21 Áberandi bygging sem stendur á horni Skipholts og Nóatúns.
Mynd/Arkþing-Nordic
Útfærsla Þannig sáu arkitektarnir fyrir sér að húsið liti út eftir stækkun.
Ágæt reynsla hefur fengist af út-
gerð á Ford Ranger Raptor, fyrsta
pallbílnum sem lögreglan á Íslandi
notar í útköll og eftirlit. Bíllinn er
í flota Ísafjarðarstöðvar lögregl-
unnar á Vestfjörðum og var tekinn
í notkun í byrjun sumars. „Bíllinn
hefur virkað vel hingað til, en við
sjáum þetta betur í snjó og vetrar-
færð á næstu mánuðum,“ segir
Hlynur Hafberg Snorrason yfir-
lögregluþjónn.
Fordinn góði
var fluttur inn af
Brimborg, en
standsettur sem
lögreglubíll hjá
Rafsölum hf. á
Siglufirði. Skilta-
gerð Norður-
lands á Ólafsfirði
sá um að setja
viðeigandi merk-
ingar á bílinn. Sá
er með fjögurra strokka og 214
hestafla vél og meðaleyðslan er 9,1
lítri á hverja 100 km.
„Lögreglumenn, áhöfn bílsins,
segja að vel fari um sig í bílnum;
hann sé rúmgóður og þægilegur.
Þá sé gott aðgengi að þeim búnaði
sem er á lokuðum palli bílsins; út-
draganlegri skúffu með til dæmis
ýmsum sjúkrabúnaði, skóflum og
verkfærum,“ segir Hlynur.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Öflugur Væntingar eru bundnar við Fordinn í vetrarríki vestra.
Pallbíll reynist lögreglu vel
Hlynur Hafberg
Snorrason
- Ford Ranger Raptor á Ísafirði - Rúmgóður með skúffu
Rebekka Líf Ingadóttir
rebekka@mbl.is
Birgir Ármannsson, formaður und-
irbúningsnefndar fyrir rannsókn
kjörbréfa, segir að fundur nefnd-
arinnar í gær hafi gengið vel. Kær-
endur kosninganna komu fyrir
nefndina og gerðu grein fyrir kær-
um sínum og umkvörtunarefnum.
Nefndin hitti í gær síðasta yfir-
kjörstjórnarmanninn úr Norð-
vesturkjördæmi og er búin að hitta
hina fulltrúana á síðustu dögum,
sagði Birgir í samtali við mbl.is.
Ekkert kom Birgi á óvart
„Síðan fengum við til okkar sex af
þeim sem hafa kært framkvæmd
kosninganna og fórum nokkuð ítar-
lega yfir þeirra kærur, gáfum þeim
kost á að rökstyðja þær og þess
háttar.“
Spurður hvort hann hafi verið
sáttur við þau svör sem kærendurnir
gáfu nefndinni segir hann að allt
sem nefndin geri nýtist henni við sín
störf. Ekkert hafi komið á óvart á
fundinum.
„Eins og ég segi – við erum bæði
að ræða við þá sem tóku þátt í fram-
kvæmdinni í Norðvesturkjördæmi
og eins þá sem hafa kært fram-
kvæmdina, auk þess að afla annarra
gagna, og þetta er hvort tveggja
mikilvægur liður í okkar vinnu.“
Fundi daglega í næstu viku
Spurður hver séu næstu skrefin í
málinu segir Birgir að á mánudag sé
áform um fund með þeim kærendum
sem ekki var fundað með í gær.
„Þannig að ég geri ráð fyrir að þá
komi til okkar sex aðrir sem lögðu
fram kærur. Við þurfum nú líka á
okkar fundum að fara yfir hvað er
komið af gögnum til viðbótar því
sem hefur verið og fara í gegnum
þau.“
Birgir segist reikna með að nefnd-
in þurfi að funda daglega í næstu
viku eins og hún gerði í þessari viku.
Fóru yfir kærurnar
með kærendum
- Undirbúningsnefndin kom saman
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fundur Birgir, hér til hægri, ásamt
fleiri nefndarmönnum á fundi.