Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Akureyringar horfa nú til norðurs
þegar kemur að framtíðarbygg-
ingasvæðum undir íbúðir. Tvö ný
íbúðahverfi eru í burðarliðnum í
bænum, mislangt á veg komin.
Annars vegar er Holtahverfi
norður þar sem þegar hefur verið
auglýst eftir umsóknum um lóðir
og framkvæmdir við gatnagerð og
lagnir hefjast innan tíðar. Hins
vegar er um að ræða nýtt hverfi
vestan Borgarbrautar, ofan Síðu-
hverfis og í framhaldi af Gilja-
hverfi, enn sem komið er nefnt
Kollugerðishagi. Gert er ráð fyrir
að um 300 íbúðir verði reistar í
Holtahverfi en allt að 970 í Kollu-
gerðishaga.
Mikill áhugi á lóðunum
Fyrstu lóðir hafa verið auglýstar
í Holtahverfi, en alls voru í fyrsta
áfanga auglýstar 22 lóðir. Mikill
áhugi reyndist vera á lóðum, en
umsóknir bárust frá 33 ein-
staklingum og 15 lögaðilum. Lóðum
verður úthlutað á fundi skipulags-
ráðs í næstu viku. Dregið verður
um þær lóðir þar sem fleiri en ein
umsókn bárust. Vinsælasta lóðin
var einbýlishúsalóð, Hulduholt 21,
en um þá lóð voru alls 18 umsóknir.
Í þessum fyrsta áfanga Holtahverf-
is verða að lágmarki 140 íbúðir í
fjölbýlis-, rað-, par- og einbýlis-
húsum.
Til viðbótar við lóðirnar 22 sem
nú voru auglýstar hefur húsnæðis-
samvinnufélagið Búfesti, í sam-
vinnu við Félag eldri borgara á Ak-
ureyri, fengið vilyrði fyrir lóð undir
fjögur fjölbýlishús sem ætlunin er
að byggja upp á allt að fjórum ár-
um.
Allt að 2.300 íbúar í hverfinu
Nýja hverfið sem kennt er við
Kollugerðishaga er nú í kynning-
arferli sem lýkur í lok næstu viku,
en Akureyrarbær hefur kynnt drög
að deiliskipulagi fyrir þetta nýja
íbúðasvæði.
Unnið verður úr ábendingum eft-
ir að kynningarferlinu lýkur og
verður tillagan þá rædd frekar í
skipulagsráði og bæjarstjórn áður
en hún verður auglýst.
Allt að 970 íbúðir verða á svæð-
inu og má því ætla að íbúafjöldi
verði á bilinu 1.900 til 2.300. Íbúðir
í fjölbýli verða allt að 80% og um
20% í sérbýli. Stefnt er að því að
hefja uppbyggingu hverfisins úr
suðri vegna nálægðar við Síðuskóla
þar sem svigrúm er til að fjölga
nemendum.
Áhersla á gott aðgengi
Markmið með nýja íbúðahverfinu
er að leggja grunn að fjölbreyttum
íbúðagerðum og grænum svæðum.
Í hverfinu verður þétt net göngu-
og hjólastíga. Lögð verður áhersla
á gott aðgengi að grænum svæðum
og þá verður torgsvæði í hverfinu,
leiksvæði, sleðabrekka og mat-
jurtagarður. Þá má nefna að við
hverja botngötu verður snjósöfn-
unarsvæði sem tengist ofanvatns-
lausnum svo ekki þurfi að aka snjó
á brott eftir mokstur.
Vinsælasta lóðin í nýju Holta-
hverfi norður var við Hulduholt 21,
en alls bárust 18 umsóknir um þá
lóð. Akureyrarbær kynnti svæðið í
fyrrahaust og þá þegar var ljóst að
mikill áhugi væri á þessu svæði.
Akureyri Nýtt íbúðasvæði vestan Borgarbrautar á Akureyri, fyrir ofan Síðuhverfi og í framhaldi af Giljahverfi, er í
kynningarferli fram í næstu viku. Gert er ráð fyrir að þar rísi 970 íbúðir og íbúar verði allt að 2.300.
Tvö ný íbúðasvæði
í burðarliðnum
- Holtahverfi og Kollagerðishagi í burðarliðnum á Akureyri
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Einstök
minning
Barna- og
fjölskyldu-
myndatökur
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Skipholti 29b • S. 551 4422
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
TRAUST
Í 80 ÁR
Dúnúlpur
með ekta
skinni
Skoðið
laxdal.is
Frumleg hönnun sem reynir á sjón,
heyrn, snertingu, ilm og bragð ein-
kennir Skyrland, upplifunarsýningu
um skyr og matarmenningu Íslands,
sem var opnuð í Mjólkurbúinu í
miðbæ Selfoss gær, föstudag.
Á sýningunni segir frá Auðhumlu,
frumkúnni sem goðafræðin greini
frá, mjólkurvinnslu á Íslanndi í ald-
anna rás, mjólkurbúunum og mörgu
fleiru. Áberandi í sýningunni allri er
svo skyrið, afurð íslenskrar menn-
ingar og náttúru, sem nú er vinsælt
og víða á borðum. Sýningin hefur
verið í undirbúningi í þrjú ár en aðal-
hönnuður hennar er Snorri Freyr
Hilmarsson, leikmynda- og sýn-
ingahönnuður.
Skyrland er í eigu Skyrheima, fé-
lags sem Mjólkursamsalan og Sig-
tún – þróunarfélag stofnuðu.
Saga Selfoss og mjólkuriðnaðar á
Íslandi haldast í hendur. Fljótlega
eftir stofnun Mjólkurbús Flóamanna
og byggingu gamla mjólkurbúsins
1929 hófst þar framleiðsla skyrs.
Hún fór fram í vinnslustöð, húsi sem
var rifið laust fyrir 1960 en nú hefur
endurgerð þess verið reist í mið-
bænum nýja og heitir Mjólkurbúið.
Skyrland opnað
Skyr Margt áhugavert er að sjá í skyrsafninu í miðbænum á Selfossi.
- Sýning í Mjólkurbúinu á Selfossi
Hafnarfjarðarbær er nú að stíga
fyrstu skref í heildstæðri stefnumót-
un. Verkefnið snýst um að móta
framtíðarsýn fyrir Hafnarfjörð til
ársins 2035 og á þeim grunni byggja
upp meginmarkmið sem styðja við
mótun áherslna til skemmri tíma,
segir í fréttatilkynningu.
Gera á stefnumarkandi áætlanir
þar sem fram koma mælanleg mark-
mið til skemmri tíma og fer sú vinna
fram sem undanfari fjárhagsáætlun-
argerðar.
Verkefnið verður unnið með að-
komu kjörinna fulltrúa, í samráði við
nefndir og ráð sem starfa innan
Hafnarfjarðarbæjar. Þá mun fjöl-
margt starfsfólk koma að verkefninu
þvert á öll svið sveitarfélagsins. Þá
verður fundað með ýmsum hags-
munahópum íbúa og atvinnulífs inn-
an Hafnarfjarðar. Segjast bæjar-
yfirvöld hafa heimsmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna að leiðarljósi í allri
þessari vinnu.
Tilnefndur hefur verið stýrihópur
um verkefnið og fyrstu fundir með
atvinnulífinu fara fram dagana 28.
október og 3. nóvember nk.
Hafnfirðingar ráð-
ast í stefnumótun
- Móta framtíðarsýn til ársins 2035
Morgunblaðið/Hari
Hafnarfjörður Móta á framtíðarsýn
bæjarins til ársins 2035.