Morgunblaðið - 23.10.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 23.10.2021, Qupperneq 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 FÖGNUM VETRI Skoðaðu uppskriftirnar á íslensktlambakjöt.is MEÐ ÍSLENSKRI KJÖTSÚPU – NÁTTÚRULEGA Íslenska kjötsúpan er í grunninn alltaf eins, en samt einhvern veginn aldrei eins. Allir eiga sína uppáhalds kjötsúpu og hefðirnar, uppskriftirnar og leynihráefnin leynast í hverju eldhúsi. Frá upphafi landnáms hefur hún fært okkur yl í kroppinn og kraftmikla næringu – og öll viljum við meina að „okkar súpa“ sé best. Fögnum vetrinum með fjölbreyttri íslenskri lambakjötssúpu – náttúrulega. ÍSLENSKI KJÖTSÚPUDAGURINN VERÐUR HALDINN HÁTÍÐLEGUR Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG Í DAG, FYRSTA VETRARDAG, KL. 13–16. kemur alltaf eitthvað upp á yfir- borðið sem er svo hægt að vinna áfram með. Sköpunarkrafturinn brýst alltaf fram undir þessari skeið- klukkupressu.“ Dýrmætt samtal verður til Að taka þátt í ritsmiðjunni er þátttakendum að kostnaðarlausu og hún er í boði Orðskjálfta, félags sem þær Sunna Dís og Ragnheiður Harpa stofnuðu sjálfar. „Þetta covid-verkefni núna er sprottið úr dönskum samtökum sem við unnum báðar með fyrir sex árum. Þá tókum við þátt í að gera norrænt verkefni þar sem ungt fólk á öllum Norðurlöndunum var að skrifa um sameiginlega reynslu, en þau höfðu öll alist upp í fátækt og skrifuðu um það. Við unnum það með íslenskum hópi og mjög náið með dönsku sam- tökunum. Það verkefni gat af sér systurfélög, Orðskjálfta, sem við stofnuðum hér á Íslandi og er líka til í Danmörku, Svíþjóð og Noregi,“ segja þær og bæta við að það hafi verið magnað að fylgja verkefninu um fátækt eftir frá upphafi til enda. „Við sáum hvað þetta gaf krökk- unum ótrúlega mikið að fara í gegn- um þetta ferli, og það urðu til tengsl og dýrmætt samtal milli krakkanna frá hinum löndunum. Afrakstur smiðjanna núna um covid-reynsluna verður gefinn út á bókarformi í sam- vinnu við þessi systrasamtök okkar og við munum fagna þeirri útgáfu í Kaupmannahöfn næsta vor.“ Púður fyrir yngri hópa Orðskjálfti var með aðra smiðju í sumar sem leið þar sem þær Ragn- heiður Harpa og Sunna Dís fengu ungskáld til sín. „Þau lásu öll íslensk ljóð sem komu út í fyrra og völdu úr þeim það sem þeim þótti best. Það úrval verður gefið út í samvinnu við systursamtökin Ordskælv í Dan- mörku, Ordskjelv í Noregi og Ord- skalv í Svíþjóð, ásamt ljóðum sem ungt fólk í hinum norrænu lönd- unum valdi. Þetta verður því sam- norræn útgáfa með hinu allra besta af norrænni ljóðlist, samkvæmt mati þessara ungu skálda. Ritsmiðjan núna er ákveðið púður fyrir hinn yngri hóp skrifandi skálda, allt ungt fólk sem hefur áhuga á að skrifa er velkomið í smiðjur til okkar, líka þeir sem aldrei hafa skrifað, enda er markmið Orðskjálfta að nýta bók- menntir og ritlist til tjáningar og hvetja ungt fólk til að taka virkan þátt í bókmenntalífi.“ Ritsmiðjan um covid-reynsluna verður tvo mánudaga, 8. og 15. nóv- ember, frá kl. 17.00 til 19.30. Skrán- ing fer fram á netfanginu ord- skjalfti@gmail.com. Facebook: Orðskjálfti. Gaman Ungt fólk í ritsmiðju í sumar hjá Ragnheiði Hörpu og Sunnu Dís. Nú þegar kólnar í veðri er sannarlega vert að huga að smáfuglunum, þess- um litu vinum okkar sem gleðja svo mikið með nærveru sinni og söng. Á vefsíðu Fuglaverndar, fugla- vernd.is, er að finna góðar leiðbein- ingar um fóðrun fugla og full ástæða til að hvetja fólk til að gefa sér tíma til að gauka góðgæti að fiðruðum fé- lögum í görðum sínum. Á morgun, sunnudag 24. október, hefst hin ár- lega garðfuglakönnun Fuglaverndar og stendur til og með laugardeginum 23. apríl. Í tilkynningu segir að „til- gangur garðfuglakönnunarinnar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görð- um á Íslandi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nán- asta umhverfi. Það skiptir ekki máli þótt fólk byrji aðeins seinna að telja eða hætti fyrr, aðalatriðið er að vera með. Allt fuglaáhugafólk er hvatt til að kynna sér efnið og taka þátt. Þægilegast er að vera með fugla á fóðrum þar sem maður dvelst og telja daglega, vikulega eða eins og hverjum hentar best. Fuglavernd hvetur allt fuglaáhugafólk, hvort sem það er félagar Fuglaverndar eða ekki, að taka þátt í könnuninni. Á fugla- vernd.is er hægt að sækja eyðublöð sem þarf til að vera með.“ Munum eftir fiðruðu vinum okkar og tökum þátt í talningu Garðfuglakönnun hefst á morgun Ljósmynd/Örn Óskarsson Saman á grein Skógarþröstur, stari og gráþröstur gæða sér á epli í vetrartíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.