Morgunblaðið - 23.10.2021, Síða 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Notaðir bílar
Meira úrval á
notadir.benni.is
Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035
Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. * Tökum aðeins 1 bíl uppí hvern nýlegan notaðan bíl.
Chevrolet Captiva Lt ‘13, sjálfskiptur,
ekinn 172 þús. km. Verð: 1.690.000 kr.
SsangYong Korando Dlx ‘17, sjálfskiptur,
ekinn 80 þús.km. Verð: 2.850.000 kr.
Nissan Qashqai Acenta ‘20, sjálfskiptur,
ekinn 47 þús. km. Verð: 4.490.000 kr.
591834 590454 5917764
x4
4
x4
Gott úrval notaðra bíla
Einnig tökum við gamla bílinn uppí valda bíla fyrir 500.000 kr.*
SsangYongRextonDlx ‘16, sjálfskiptur,
ekinn 105 þús. km. Verð: 3.790.000 kr.
591914 4
x4
4
x4
ÚR BÆJARLÍFINU
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Það gladdi Eyjamenn umfram flesta þegar
ákveðinn var loðnukvóti upp á rúm 900 þúsund
tonn á næstu vertíð. Í hlut íslenskra skipa
koma 662.064 tonn og eru það viðbrigði eftir
tvö loðnulaus ár og mjög takmarkaðan kvóta á
síðustu vertíð. Sem þó nýttist vel og gaf hátt í
20 milljarða í þjakað þjóðarbú.
Árið 2019 hafði loðnubrestur, bara í Vest-
mannaeyjum, bein áhrif á 350 starfsmenn og
ígildi 60 ársverka. Tapaðar launatekjur um
milljarður, tekjutap útgerða 7,6 milljarðar og
annarra fyrirtækja um 900 milljónir. Bæjar-
sjóður og hafnarsjóður urðu af um 160 millj-
ónum. Þannig var þetta árin 2019 og 2020.
- - -
Eyjamenn eru mjög öflugir í loðnu og er
Ísfélag Vestmannaeyja með mesta hlutdeild
yfir landið, rétt um 20% sem eru 125.313 tonn.
Vinnslustöðin er fjórða hæst með 12,33% eða
77.298 tonn. Samanlögð hlutdeild Vest-
mannaeyja er því tæplega þriðjungur heild-
arkvótans, samtals rúmlega 200.000 tonn.
Verður aflinn unninn í Vestmannaeyjum og
Þórshöfn þar sem Ísfélagið er með frystihús
og bræðslu. Til samanburðar var kvóti ís-
lenskra skipa tæp 70.000 tonn á síðustu vertíð.
- - -
Það er ástæða til að gleðjast í sjávar-
plássum eins og Vestmannaeyjum. Sjást þegar
merki um að væntingar auka blóðstreymið um
æðar bæjarfélagsins. Meiri umsvif eru á neta-
verkstæðum Hampiðjunnar og Ísfells því veið-
arfæri verða að vera í lagi þegar slagurinn
hefst. Sögur segja að Ísfélagið leiti að nýju
uppsjávarskipi. Fyrir á það þrjú öflug skip,
Sigurð, Heimaey og Álsey, en meira þarf til að
ná kvótanum.
- - -
Vinnslustöðin auglýsir grimmt eftir iðn-
aðarmönnum því ekkert má klikka þegar ver-
tíðin fer af stað. VSV er með fjögur skip, Ísleif,
Kap, Hugin og Sighvat Bjarnason, og verður í
nógu að snúast að yfirfara vélar og tæki um
borð áður en haldið er til veiða. Sama á við í
landi hjá bæði Ísfélagi og VSV sem á undan-
förnum árum hafa fjárfest fyrir milljarða
króna í tækjum og húsnæði.
Kemur til kasta þjónustufyrirtækja í
Vestmannaeyjum, Skipalyftunnar sem fagnar
40 ára afmæli í næsta mánuði, Vélaverkstæð-
isins Þórs og Eyjablikks auk annarra sem
hvert er á sínu sérsviði.
- - -
Íris bæjarstjóri hefur líka ástæðu til að
kætast. Fleiri krónur í bæjarsjóð koma með
meiri umsvifum í sjávarútvegi. Það á líka við
hafnarsjóð þar sem Dóra Björk ræður ríkjum.
Það er ekki ólíklegt að brúnin hafi lyfst á Jóni
Óskari í Landsbankanum og Þórdísi í Íslands-
banka. Bættur hagur viðskiptavina og geta til
fjárfestinga er þeirra hagur. Ætli megi ekki
segja það sama um tryggingafélögin Sjóvá,
Vörð og TM sem öll eru með útibú í Eyjum.
- - -
Iðnaðarfyrirtæki, iðnaðarmenn, bygg-
ingavöruverslanir í Eyjum og víðar fá sinn
skerf þegar hækkar í buddunni hjá sjómönn-
um og starfsfólki í landi. Það er svo sem ekki
eins og það hafi ekki verið nóg að gera hjá iðn-
aðarmönnum því aldrei hefur meira verið
byggt í Eyjum en undanfarin ár. Ekkert lát er
á og hafa bæjaryfirvöld vart undan að úthluta
lóðum. Ekki ólíklegt að góð loðnuvertíð bæti
um betur.
Gangi allt eftir, loðnan mæti í því magni
sem reiknað er með, kófið sé á útleið, markaðir
haldist opnir og veðrið verði hagstætt skapast
mikil verðmæti úr loðnunni, heyrst hafa tölur á
bilinu 50 til 70 milljarðar. En það er með
loðnuna eins kálið; það er ekki sopið fyrr en í
ausuna er komið.
- - -
Sjómenn eiga erfitt verk fyrir höndum að
sækja hana þegar verstu veðra er von. Það
tekur í hjá landverkafólki sem stendur vaktina
allan sólarhringinn þegar allt er á fullu. Iðn-
aðarmenn sjá um að gangverkið haldist smurt.
Sölumenn dusta rykið af tengslaneti sem nær
yfir Evrópu og Asíu og kynna vöruna sem í
boði er. Henni þarf að koma til kaupenda og
vonandi verður búið að greiða úr þeirri flækju
sem nú er á flutningsneti heimsins.
- - -
Árið hefur verið hagstætt Íslendingum
í uppsjávarveiðum. Makrílvertíð var þokkaleg,
vel gengur á síldinni og ekki ólíklegt að ein-
hverjir haldi til loðnuveiða fyrir áramót. Fyrsti
viðkomustaður peninganna sem verða til er í
vasa sjómanna, landverkafólks og fyrirtækj-
anna.
Þaðan dreifast þeir um þjóðfélagið og
stærsta hlutann fær Bjarni Ben eða annar sem
fer með völdin í fjármálaráðuneytinu. Því mið-
ur er ekki alltaf skilningur á þessu flæði í um-
ræðunni um sjávarauðlindina. Fyrir nokkrum
árum lögðu Vestmannaeyingar sjö milljarða í
ríkiskassann og fengu þrjá til baka í þá þjón-
ustu sem ríkið veitir. Það eru því fleiri en út-
gerð og sjómenn sem græða.
- - -
Lífið í sjávarplássum er ekki bara loðna.
Um aðra helgi verður haldin Safnahelgi í Vest-
mannaeyjum, sú fyrsta í tvö ár. Nýlega var
opnuð fullkomin auglæknastofa á Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum í
samstarfi við Sjónlag í Reykjavík. Sparar
Eyjamönnum ferðalög þegar sjónin daprast.
Það voru Lions, fyrirtæki, félagasamtök og
einstaklingar í Vestmannaeyjum og hið opin-
bera sem lögðu til fjármagn.
Von um góða loðnuvertíð kemur
blóðinu á hreyfingu í Eyjum
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Eyjar Starfsmenn Hampiðjunnar, f.v. Birgir Guðjónsson, Ingi Freyr Ágústsson og Jón Garðar Einarsson, að vinna við nótina af skipinu Kap VE.