Morgunblaðið - 23.10.2021, Qupperneq 24
24 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
23. október 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.75
Sterlingspund 177.71
Kanadadalur 104.33
Dönsk króna 20.133
Norsk króna 15.429
Sænsk króna 14.958
Svissn. franki 140.15
Japanskt jen 1.1276
SDR 182.09
Evra 149.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.6947
« Einkahluta-
félagið Óson, sem
er í 100% eigu
Frosta Ólafssonar,
framkvæmdastjóra
Olís, hefur keypt
100.000 hluti í
Högum, móður-
félagi Olís. Var til-
kynnt um kaupin í
gegnum Kauphöll
Íslands í gær. Voru
þau gerð á genginu 63,5 og því er kaup-
virði bréfanna 6,35 milljónir króna.
Frosti var ráðinn framkvæmdastjóri
Olís í lok ágúst síðastliðins og tók við af
Jóni Ólafi Halldórssyni sem gegnt hafði
starfinu í tæp sjö ár.
Frosti var áður forstjóri ORF líftækni
og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Ís-
lands.
Frosti kaupir í Högum
Frosti
Ólafsson
STUTT
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Stór hluti Kyrrahafsins, stærsta haf-
svæðis heims, er vaktaður með
tækni sem á rætur að rekja til þeirr-
ar nýsköpunar sem íslenska fyrir-
tækið Trackwell hefur þróað á und-
anförnum áratugum. Vöktunin
miðar að því að koma í veg fyrir rán-
yrkju í hafinu. Trackwell hlaut við-
urkenningu fyrir nýsköpun í
tengslum við birtingu lista Credit-
info yfir framúrskarandi fyrirtæki
2021.
Jón Ingi Björnsson er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og hann
er gestur í Dagmálum á mbl.is í dag.
Þar útskýrir hann m.a. hvernig nú-
tímatæknin gerir yfirvöldum kleift
að sinna eftirliti á víðfeðmum svæð-
um á borð við Kyrrahafið.
Rafspor skipa skoðað
Tæknin byggist m.a. á því að
greina mynstur og leggja mat á það
hvert hentugast er að beina eftirlit-
inu á hverjum tíma. Slíkt spari bæði
tíma og fjármuni. Notast er við
gervitunglamyndir en þá sé einnig
notast við tækni sem geti „greint raf-
spor skipa, hvernig þau geisla frá sér
og þá er hægt að finna út úr því
hvernig skip þetta eru eða gætu ver-
ið“, útskýrir Jón Ingi. Nýsköpun er
hjartað í starfsemi Trackwell, jafn-
vel þótt fyrirtækið hafi nú starfað í
aldarfjórðung. Það er afsprengi upp-
byggingar hinnar svokölluðu sjálf-
virku tilkynningarskyldu sem er eitt
mikilvægasta öryggistæki sjófar-
enda í kringum landið. Trackwell
rekur kerfið enn í dag í samstarfi við
vaktstöð siglinga, Landhelgisgæsl-
una og Neyðarlínuna.
„Það hefur verið rauði þráðurinn í
öllu því sem við höfum gert að sinna
rauntímaskráningu og búa til virði
fyrir okkar viðskiptavini úr þeim
gögnum sem hún safnar.“ Í dag er
þjónustan mun umfangsmeiri en sú
sem snýr að rauntímavöktun skipa-
flotans. Tækninni er beint að eftirliti
ýmiskonar, mannauðsstýringu,
flotastýringu tækja hjá fyrirtækjum
og flutningum svo dæmi sé tekið.
Rekstur fyrirtækisins hefur geng-
ið mjög vel síðustu ár. Þannig námu
rekstrartekjur þess 592 milljónum í
fyrra og heildarhagnaður stappaði
nærri 150 milljónum króna. Jón Ingi
viðurkennir að þetta hafi ekki alltaf
verið dans á rósum og að árum sam-
an hafi reksturinn verið röngum
megin við núllið. Þróunarstarfið hafi
hins vegar tekið að bera ávöxt og nú
séu viðskiptavinirnir um 800 talsins
um heim allan.
Helmingur tekna að utan
„Við erum að vonast eftir því að
helmingur tekna okkar komi frá er-
lendum aðilum á þessu ári. Það er
þannig að stærri hlutinn af hagnað-
inum kemur frá erlendum aðilum.
Við sjáum langmestu tækifærin á er-
lendum mörkuðum en einhvers stað-
ar verða menn að eiga heima og ef þú
færð gott uppeldi þá er það risavega-
nesti. Ég held að við höfum fengið
frábært uppeldi hjá íslenskum fyrir-
tækjum sem við erum að nýta er-
lendis. Það er frábært að hafa fengið
þetta aðhald,“ útskýri Jón Ingi.
Hann bendir á að tæknina sem
fyrirtækið notar sé auðvelt að skala
upp. Þegar rannsóknarkostnaður og
fastur kostnaður hefur verið greidd-
ur skipti tekjur frá nýjum viðskipta-
vinum mjög miklu. Framlegð af slík-
um samningum sé mjög mikil.
Viðskiptalíkan fyrirtækisins byggist
á endurkvæmum tekjum í formi
fastra samninga. Nýsköpun og
framþróun skipti því miklu máli við
að halda í viðskiptavini sem fyrir eru,
stækka samninga og búa til tækni
sem geri þjónustuna sífellt verðmæt-
ari fyrir þá.
Nýsköpun er lífæðin
Hann segir að þetta sé grundvall-
aratriði í starfseminni. Þótt fyrir-
tæki hafi starfað lengi á sama sviði,
rétt eins og Trackwell, verði þau að
sinna nýsköpun af fullu afli. Það sé
þeirra leið til að lifa af og standast
samkeppni. Fyrirtæki hans sæki
fram á erlendum mörkuðum og það
hafi lukkast vel, hins vegar sæki er-
lend samkeppni einnig inn á mark-
aðina hér heima og áskoranirnar því
sífellt til staðar.
Trackwell mun áfram verja mikl-
um fjármunum í nýsköpun að sögn
Jóns Inga. Hins vegar verði hlutfall
þess kostnaðar ekki eins stórt þegar
tækjurnar hafa vaxið mikið. Oft á
tíðum hafi verulegur hluti tekna
fyrirtækisins runnið til þeirra mála.
Vakta sjálft Kyrrahafið
Uppskera Trackwell veitti viðurkenningunni viðtöku í Hörpu á fimmtudag á sama tíma og listinn yfir framúrskar-
andi fyrirtæki var kynntur. Kristín Björg Hrólfsdóttir, Ólöf Inga Jónsdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, Kolbeinn
Gunnarsson, Jón Ingi Björnsson, Sigurður Elvar Sigurðsson, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir og Aðalheiður Gísladóttir.
- Trackwell sækir fram á erlendum mörkuðum - Fyrirtækið hlaut nýsköpunar-
verðlaun Creditinfo - Gera greinarmun á nýsköpun og framþróun
Íslenska lífeyriskerfið vermir efsta
sætið á lista alþjóðlegrar lífeyr-
isvísitölu sem ráðgjafarfyrirtækið
Mercer og samtökin CFA Institute
standa að. Er þetta í fyrsta sinn sem
íslenska lífeyriskerfið er metið eftir
kvörðum vísitölunnar en alls eru 43
ríki sem það gera. Skammt á hæla
íslenska kerfisins koma lífeyriskerfi
Hollands og Danmerkur. Neðstu
ríkin á listanum samkvæmt vísitöl-
unni eru Taíland, Argentína og Fil-
ippseyjar.
Í skýrslu sem gefin er út samhliða
vísitölunni kemur fram að styrkleika
kerfisins hér heima megi rekja til til-
tölulega ríflegs lífeyris frá ríkinu,
samtryggingarsjóðir alls launafólks
taki til sín hlutfallslega há iðgjöld og
það leiði til þess að verulegar eignir
séu lagðar til hliðar fyrir framtíðina.
Þá er einnig nefnt að góðir stjórn-
arhættir og regluverk lífeyrissjóð-
anna sé tryggt og að kerfið búi yfir
góðum eiginleikum. Í skýrslunni er
einnig bent á hvernig íslenska kerfið
gæti komið betur út samkvæmt vísi-
tölunni. Er þar sagt að minnka megi
skuldir heimilanna sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu, hækka líf-
eyristökualdur eftir því sem lífslíkur
halda áfram að aukast og þá megi
minnka skuldir ríkisins sem hlutfall
af vergri landsframleiðslu.
Morgunblaðið/Eggert
Sparnaður Íslenska lífeyriskerfið
er sterkt í alþjóðlegum samanburði.
Metið
sterkt
- Íslenska lífeyris-
kerfið efst í alþjóð-
legri vísitölu