Morgunblaðið - 23.10.2021, Page 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Melteigur 23, 230 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
5 herbergja einbýli á tveimur hæðum með bílskúr
við miðbæ Keflavíkur, gróin og afgirt lóð með
sólpalli og heitum potti.
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Verð 59.500.000 151,5 m2
V
ið athugun á lokaþætti
skákviðburðarins mikla í
Argentínu fyrir 50 árum,
lokaeinvígi áskorenda-
keppninnar milli Fischers og Pet-
rosjans, hafa nokkrar stöður í sjöttu
og sjöundu skák orðið sífelld upp-
spretta bollalegginga um valkosti þá
sem kapparnir stóðu frammi fyrir.
Greinarhöfundur skildi við einvígið
síðast þegar staðan var jöfn, 2½:2½.
Fischer steig á svið fölur og fár en
kvefpest hafði herjað á hann. Tigran
Petrosjan á hinn bóginn virtist
sjálfsöruggur og í góðu jafnvægi. En
fyrstu fréttir sem bárust til Íslands
varðandi skákina sem fór í bið voru á
þá leið að líkur stæðu til þess að
Fischer myndi vinna peð:
Áskorendakeppnin, Buenos
Aires 1971; 6. skák:
Tigran Petrosjan – Bobby Fisch-
er
Upp úr umslaginu kom …
42. Re2
Eðlilegasti leikurinn. Kasparov og
fleiri góðir menn stungu síðar upp á
óvæntum leik, 42. f4!? með hug-
myndinni 42. … gxf4 43. g5!? fxg5
44. Rf3 eða 43. Rf3 strax og fullyrt
var að hvítur næði jafntefli. En það
var ólíklegt að Petrosjan myndi
velja slíkan biðleik.
42. … Ba5 43. Hb2+ Kxa6 44.
Hb1 Hc7 45. Hb2 Be1 46. f3 Ka5 47.
Hc2 Hb7
48. Ha2+?
48. Rc1 heldur jafntefli með bestu
taflmennsku.
48. … Kb5 49. Hb2+ Bb4 50. Ha2
Hc7 51. Ha1 Hc8 52. Ha7 Ba5 53.
Hd7 Bb6 54. Hd5+ Bc5 55. Rc1 Ka4
56. Hd7 Bb4 57. Re2 Kb3 58. Hb7
Ha8 59. Hxh7 Ha1 60. Rxd4+ exd4
61. Kxd4 Hd1+ 62. Ke3 Bc5+ 63.
Ke2 Hh1 64. h4 Kc4 65. h5 Hh2+ 66.
Ke1 Kd3
– og hvítur gafst upp.
Þraut baráttuþrek Petrosjans eft-
ir þessa skák? Rona eiginkona Pet-
rosjans hellti úr skálum reiði sinnar
yfir aðstoðarmanninn Alexei Suetin
fyrir lélegar biðskákarannsóknir. Til
varnar gömlum vini okkar bað ég
Daða Örn Jónsson tölvufræðing að
þaulkanna framhaldið eftir bið og
niðurstaða hans var að eini afleikur
Petrosjans hafi verið 48. leikurinn.
Nú var staðan 3½:2½. Í næstu
skák lék Fischer einum frægasta
leik á ferli sínum:
Áskorendakeppnin, Buenos
Aires 1971; 7. skák:
Bobby Fischer – Tigran Petrosj-
an
22. Rxd7+
Menn urðu agndofa þegar Fischer
skipti upp á „góða riddaranum“ án
þess að depla auga. Ískaldir útreikn-
ingar „vélanna“ leiða í ljós að besti
leikurinn, 22. a4, tryggir unnið tafl!
En hér er komið ágætt dæmi dæmi
um muninn á huglægu mati og því
vélræna. Leikurinn ber vitni um
praktíska afstöðu Fischers, sem sá
og setti í gang tiltölulega einfalda
leikáætlun byggða á næmum skiln-
ingi á skákstíl og persónuleika and-
stæðingsins.
22. … Hxd7 23. Hc1 Hd6?
Stóri afleikurinn. Eftir 23. … d4
getur svartur varist þótt staðan sé
augljóslega erfið eftir 24. Hc4 eða
24. Kf2. En Petrosjan var ekki lík-
legur til að „rasa um ráð fram“.
24. Hc7 Rd7 25. He2 g6 26. Kf2
h5 27. f4
„Vélarnar“ eru ekki hrifnar af
þessum leik og telja 27. h4 best. Pet-
rosjan mun hafa getað varist með 27.
… Rb4 og síðan –Rc4. En hróks-
endatafl peði undir hvarflaði ekki að
honum.
27. … h4 28. Kf3 f5 29. Ke3! d4+
30. Kd2 Rb6 31. Hee7 Rd5 32. Hf7+
Ke8 33. Hb7 Rxb4 34. Bc4
- og Petrosjan gafst upp.
Næstu skák varð hann að vinna,
fórnaði peði en kom fyrir ekki.
Fischer vann örugglega í 40 leikjum.
Byrjun 9. skákar var ekki góð hjá
Petrosjan og enn tapaði hann og nið-
urstaðan 6½:2½. Fischer hafði unnið
réttinn til að skora á heimsmeist-
arann Boris Spasskí.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Getty Images
Aftur á sigurbraut Áttunda einvígisskákin nýhafin.
Þraut þar
baráttuþrekið?
50 ár frá einvígi Fischers og Petrosjans – III
Eftirfarandi umsögn
sendi ég nýlega inn í
samráðsgátt kirkj-
unnar, vegna tillögu
kirkjuþings til þings-
ályktunar um afnám
greiðslna vegna
prestsþjónustu. Mér
þykir nauðsynlegt að
koma þessari afstöðu á
framfæri. Málið verður tekið fyrir á
kirkjuþingi 2021-2022, sem sett
verður í Bústaðakirkju laugardaginn
22. október nk.
„Með þessari umsögn er þeirri
skoðun minni komið á framfæri að
ég er fylgjandi afnámi gjaldtöku
vegna hinna svokölluðu aukaverka
presta.
Núgildandi gjaldskrá kirkjuþings
um gjaldtöku vegna prestsþjónustu
þjóðkirkjunnar tók við af reglugerð
ráðherra um þóknun vegna auka-
verka presta. Sú gjaldskrá ráðherra
grundvallaðist á lögum frá árinu
1931.
Í ljósi þeirra miklu skipulags-
breytinga sem kirkjan er að ganga í
gegnum um þessar mundir, myndi
það skjóta skökku við, ef ekki yrði
leitað nýrra leiða til að tryggja sann-
gjarna umbun til presta fyrir þá
mikilvægu þjónustu sem felst í at-
höfnum kirkjunnar og fræðslu,
skírnum, fermingarfræðslu, hjóna-
vígslum og útförum. Það er að mínu
mati tímaskekkja að halda slíkri
gjaldskrá til streitu og styð ég þá
grunnhugsun sem að baki þessu
máli kirkjuþings býr, að vinna skuli
að nýjum tillögum í þessu sambandi.
Þess ber þó að gæta að núgildandi
kjarasamningur Þjóðkirkjunnar-
Biskupsstofu og
Prestafélags Íslands
byggist m.a. á því að í
gildi sé gjaldskrá
vegna prestsþjónustu.
Með þessari tillögu
um afnám gjaldskrár-
innar hlýtur það því að
verða verkefni samn-
inganefndar kirkju-
þings og samninga-
nefndar Prestafélags
Íslands að semja um
heildarkjör, á þeim nýja grundvelli,
þar sem umbun vegna prestsþjón-
ustu verði í framtíðinni hluti af kjör-
um og kjarasamningi.
Í þessari vinnu og í þessum undir-
búningi þarf án efa að hrinda í fram-
kvæmd breytingum á skipulagi á
þjónustu kirkjunnar sem tryggja
muni til framtíðar framúrskarandi
þjónustu við sóknarbörnin hvar-
vetna á landinu, sem og að þjón-
ustubyrði sé dreift á sem farsæl-
astan máta milli presta kirkjunnar.“
Mál kirkjuþings og umsagnir er
hægt að nálgast í samráðsgáttinni á
heimasíðu kirkjunnar,
www.kirkjan.is/kirkjan/samradsgatt
Gjaldskráin til-
heyrir fortíðinni
Eftir Þorvald
Víðisson
» Gjaldskráin er tíma-
skekkja og styð ég
þá grunnhugsun sem að
baki þessu máli kirkju-
þings býr, að vinna skuli
að nýjum tillögum í
þessu sambandi.
Þorvaldur Víðisson
Höfundur er sóknarprestur
í Fossvogsprestakalli.
thorvaldur@kirkja.is
Helga Jónsdóttir fæddist
1567 á Holtastöðum í Langa-
dal, Hún. Foreldrar hennar
voru hjónin Jón Björnsson, f.
1538, d. 1613, lögréttumaður og
sýslumaður, og Guðrún Árna-
dóttir, d. 1603.
Helga ólst upp á Holtastöð-
um og giftist þar árið 1591
Oddi Einarssyni Skálholtsbisk-
upi, f. 1559, d. 1630, en hann
hafði þá verið biskup í þrjú ár.
Afi Helgu var Björn prestur á
Melstað og langafi hennar var
Jón Arason Hólabiskup, en
þeir voru báðir hálshöggnir í
Skálholti, 41 ári áður en Helga
varð biskupsfrú þar.
Helga var biskupsfrú í 39 ár,
bjó síðan tvö ár í Hraungerði
en tók svo við búsforráðum
Gísla biskups sonar síns í Skál-
holti við andlát tengdadóttur
sinnar. Þegar Gísli lést 1638
flutti hún að Leirá í Leirársveit
til Árna lögmanns sonar síns og
var þar til dánardags.
Helga var sögð „nafnfræg
höfðíngskvinna að röksemd, ör-
læti, góðgerðum, ásamt öðrum
kvendygðum,“ en það var mik-
ill starfi að sjá um bústjórn í
Skálholti. Fátækt fólk sótti
þangað mikið í von um ölmusu
og í þjóðsögum segir að Helga
hafi látið brjóta steinboga yfir
Brúará til að hindra för fólks í
Skálholt.
Þau Oddur eignuðust 6 börn.
Helga lést 23.10. 1662.
Merkir Íslendingar
Helga
Jónsdóttir
Leirárkirkja Helga dvaldi síð-
ustu árin á Leirá og lést þar.
Atvinna