Morgunblaðið - 23.10.2021, Síða 46

Morgunblaðið - 23.10.2021, Síða 46
46 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú þarft ekki að breyta svo miklu til þess að ná athygli fólks. Þú átt stund- um erfitt með að stilla þig en reyndu það, teldu upp að tíu áður en þú tjáir þig. 20. apríl - 20. maí + Naut Reyndu að halda einkalífi þínu og starfi aðskildu. Finndu út hvað það er sem þú raunverulega vilt og stefndu svo að því leynt og ljóst. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú heyrir hugsanlega eitthvert slúður um nágranna eða ættingja í dag. Byrjaðu á því að losa þig við þá tilfinningu að þú eigir hitt og þetta ekki skilið. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú ert alltaf að tala um að þú haf- ir engan tíma til gera neitt skemmtlegt, en þú veist betur. Mundu að þakka fyrir það góða í lífinu. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú hefur það réttilega á tilfinning- unni að draumar þínir séu að rætast. Þú átt eftir að hagnast vel á samningi sem þú gerir. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það reynir á trúnaðinn og ákveðnina, þegar taka þarf ákvarðanir í viðkvæmum málum. Dagurinn í dag er líka kjörinn til ferðalaga. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú getur ekki bætt samband þitt við vin þinn með því að reyna að breyta við- komandi. Segðu það sem þér finnst, en kenndu ekki öðrum um líðan þína. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þótt samvinna með öðrum sé ekki alltaf auðveld ertu tilneydd/ur til að halda það út. Taktu á honum stóra þín- um og segðu vini frá því sem hrjáir þig. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Stundarhrifning getur dregið dilk á eftir sér. Hvað tefur þig í að taka af skarið varðandi rifrildi við nágrannann? 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Oft eru það sakleysislegustu spurningarnar sem veiða upp úr manni lengstu svörin. Líttu á björtu hliðarnar og þá sérðu að margt er í góðu lagi. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það er farsælla að segja hug sinn en að byrgja allt inni. Þú verður út um allar trissur næstu vikurnar. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Umhyggja þín fyrir öðrum má ekki verða til þess að þeir varpi allri ábyrgð sinni yfir á þig. Þú stendur á krossgötum í vinnunni. að láni frá tónlistarskólanum dag- inn eftir og til að gera langa sögu stutta hef ég ekki snert fiðluna mína síðan.“ Strax veturinn eftir menntaskóla fór Þórunn út í nám til Hollands og síðan Belgíu hjá prófessor Erv- in Schiffer. Hún útskrifaðist frá Konunglega tónlistarháskólanum í entinn kveiki ég á sjónvarpinu og er þá ekki bara Yuri Bashmet að spila víólukonsert eftir Schnittke í sjónvarpinu á RÚV í heimildar- mynd um Schnittke og gerð víólu- konsertsins! Ég hafði aldrei á ævi minni heyrt svona spilað á víólu og eiginlega vissi ekki að það væri hægt. Svo ég fór og sótti mér víólu Þ órunn Ósk Marinós- dóttir er fædd 23. októ- ber 1971 á Akureyri og ólst þar upp. „For- eldrar mínir voru að- flutt úr sveitunum í kring, mamma úr Fnjóskadalnum og pabbi úr Kinninni. Ég og systkini mín vor- um því mikið í sveitinni öll sumur og oft var rúllað um helgar að vetrum líka. Ég á yndislegar minn- ingar úr sveitinni við létt sveita- störf eins og að raka dreif eða gefa púddunum og sinna inniverkum með ömmu á Hóli og klappa kisu.“ Þórunn minnist þess líka að sitja í eldhúsinu á Hóli og Vatnsleysu og taka þátt í spjalli fullorðna fólks- ins. „Ég bjó fyrst á Brekkunni, lengst af í Þórunnarstræti meira að segja. Þar gekk ég í Barnaskóla Akureyrar. Við fluttum svo í þorp- ið (Glerárhverfið) sem var að byggjast upp á þessum árum en pabbi byggði hús í Hvammshlíð- inni þar sem foreldrar mínir unnu baki brotnu við að koma í stand og þar fluttum við inn árið 1981, löngu áður en húsið var í raun tilbúið. Margir eiga svona sögu frá þessum árum held ég. Þar gekk ég í Glerárskóla sem var algjör and- stæða við barnaskólann þegar kom að aga og öllum skólabrag.“ Þórunn er stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri en hún lærði líka á fiðlu í Tónlistarskólanum á Akureyri frá sjö ára aldri. „Ég var villtur unglingur og hætti á fiðlu í tvö ár meðan ég hljóp af mér hornin. Byrjaði svo aftur að læra á fiðlu um leið og ég byrjaði í menntaskóla en það átti síðan hug minn allan. Ég var staðráðin í að verða fiðluleikari og notaði allar stundir til að æfa mig.“ Örfáum mánuðum fyrir útskrift skipti Þórunn síðan yfir á víólu. „Þannig var að kennarinn minn, Lilja Hjaltadóttir, fór frá Tónlist- arskólanum á Akureyri og flutti suður. Okkar samstarf var á mjög góðu skriði og ég náði mér illa á strik eftir að hún fór. Mitt í dramatískum hugleiðingum þess efnis að ætla að hætta í tónlistar- skólanum meðan ég kláraði stúd- Brussel með meistarapróf 1996 en ílengdist aðeins í Belgíu. „Ég spil- aði þar með ýmsum hópum eins og Prima la Musica og I Fiamminghi og lærði ótal margt af því, ekki síður en í náminu.“ Þórunn fékk síðan stöðu við Sinfóníuhljómsveit Íslands 1998, var orðin aðstoðar- leiðari nokkrum árum seinna en hefur verið að leiða deildina undanfarin 10 ár. „Það er skemmtilegt og mjög krefjandi starf að sitja í hljóm- sveit, það er endalaus áskorun að spila saman með öllum þessum fjölda hljóðfæraleikara og með nýju prógrammi í hverri viku er aldrei beinlínis dauður punktur.“ Þórunn hefur einnig gegnt ýmsum trúnaðar- og félagsstörfum fyrir hljómsveitina, m.a. setið í stjórn SÍ, starfsmannastjórn og kjara- nefnd. „Ég hef líka kennt lengi og eftir því sem árin líða fæ ég meira og meira út úr því að miðla auk þess sem það er yndislegt að kynnast ungu tónlistarfólki og gef- andi að vinna með ástríðufullum nemendum.“ Þórunn hefur mikið spilað kammermúsík gegnum tíðina og fyrir tíu árum stofnaði hún strengjakvartett ásamt Sigurði manni sínum, Unu Sveinbjarnar- dóttur og Helgu Þóru Björgvins- dóttur. Nefnist hann Strokkvart- ettinn Siggi. Fyrir þremur árum fékk kvartettinn Íslensku tónlist- arverðlaunin sem flytjandi ársins. „Við höfum átt í frábæru samstarfi Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóluleikari og leiðari víóludeildar Sinfóníunnar – 50 ára Á Vatnsleysu Þórunn, í rauðum samfestingi, í afmæli ömmu sinnar og afa. Með ástríðu fyrir kammermúsík Fjölskyldan Þórunn, Sigurður og synir árið 2019. Afmælisbarnið Stödd í Salzburg. Sauðárkrókur Páley Fanndís Svæk Ingólfsdóttir fæddist 23. október 2020 kl. 5.39 og á því eins árs afmæli í dag. Hún vó 4.588 g og var 52 cm löng við fæðingu. Foreldrar hennar eru Ingólfur Valsson og Ólína Björk Hjartardóttir. Nýr borgari Við Hækk um í gleð inni Fimmtudaginn 21. október 2021 áttu Kristján Ólafsson og Valgerður Fríður Guð- mundsdóttir 60 ára brúðkaupsafmæli. Þau eru búsett á Dalvík og eiga saman þrjú börn, sjö barnabörn og níu barnabarnabörn. Demantsbrúðkaup

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.