Morgunblaðið - 23.10.2021, Síða 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Í LAUGARDAL
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Fjögurra marka sigur gegn liði sem
er mjög svipað að styrkleika flokk-
ast svo sannarlega undir frábær úr-
slit. Íslenska kvennalandsliðið bók-
staflega varð að vinna Tékka á
Laugardalsvelli í gærkvöld til að
lenda ekki í afar erfiðri stöðu í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins og
gerði það með glæsibrag.
Vissulega gefa lokatölurnar 4:0
enga mynd af gangi leiksins sem gat
hæglega sveiflast í hvora áttina sem
var, allt þar til varamaðurinn Svava
Rós Guðmundsdóttir skoraði hið
mikilvæga þriðja mark tíu mínútum
fyrir leikslok. Það var rothöggið á
Tékkana sem áttu sextán mark-
tilraunir gegn tólf hjá íslenska liðinu
í leiknum.
Þessum frábæru úrslitum þarf ís-
lenska liðið að fylgja eftir í seinni
leiknum í Tékklandi 11. apríl. Vinni
þær tékknesku sinn heimaleik verða
þær áfram með undirtökin í barátt-
unni um annað sætið vegna jafn-
teflisins sem þær náðu svo óvænt í
Hollandi í sínum fyrsta leik. Þótt
fimm öðrum leikjum sé ólokið í riðl-
inum er ljóst að útileikurinn við
Tékka verður nánast úrslitaleikur
um annað sætið. Svo má ekki
gleyma því að Tékkar eiga eftir
heimaleik við Hollendinga í nóv-
ember og gætu gert íslenska liðinu
enn erfiðara fyrir með því að krækja
aftur í stig þar.
En það bíður allt síns tíma og auð-
vitað þarf íslenska liðið að vinna
leikina fjóra gegn Kýpur og Hvíta-
Rússlandi til að vera með í barátt-
unni.
Þorsteinn Halldórsson þjálfari
Morgunblaðið/Unnur Karen
2:0 Dagný Brynjarsdóttir rís hæst allra á markteig Tékka og skorar annað mark Íslands í leiknum í gærkvöld með föstum og óverjandi skalla.
getur verið stoltur af sínu liði og
ánægður með tilfærslur á liðinu.
Þetta gekk einhvern veginn allt upp.
Guðrún Arnardóttir kom inn í vörn-
ina fyrir Ingibjörgu Sigurðardóttur
og sýndi hversvegna Svíþjóðar-
meistarar Rosengård fengu hana til
liðs við sig á miðju sumri til að fylla
skarð Glódísar Perlu Viggósdóttur.
Guðrún var að öðrum ólöstuðum
besti leikmaður íslenska liðsins og
þær Glódís mynda virkilega öflugt
miðvarðapar. Guðrún átti eitt af
stóru augnablikum leiksins þegar
hún kom í veg fyrir með mögnuðum
varnartilþrifum að Andrea Stasková
skoraði úr dauðafæri og minnkaði
muninn í 2:1, skömmu áður en Svava
gerði út um leikinn með þriðja
markinu.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom
fyrir Alexöndru Jóhannsdóttur á
miðjuna, Dagný Brynjarsdóttir var í
óvenjulegri stöðu sem varnar-
tengiliður en leysti hana virkilega
vel ásamt því að skora klassískt
Dagnýjarmark – með skalla eftir
góða fyrirgjöf Öglu Maríu Alberts-
dóttur.
Í rauninn væri hægt að telja upp
allt liðið því hver einasti leikmaður
skilaði sínu. Frá Söndru Sigurðar-
dóttur markverði sem var gríð-
arlega örugg í öllum aðgerðum,
hvort sem það var að verja skotin,
staðsetja sig eða skila boltanum frá
sér – og til Berglindar Bjargar Þor-
valdsdóttur sem var einstaklega
óheppin að fá ekki mark skráð á
sinn reikning. Skaut í stöngina, í
markvörðinn og inn í fyrsta markinu
og átti skemmtilega tilraun þar sem
boltinn datt á þverslána í stað þess
að detta í markhornið.
Næsta skref á leiðinni á HM verð-
ur stigið á þriðjudagskvöldið þegar
Kýpur mætir á Laugardalsvöllinn.
Stórsigur í jöfnum leik
- Frábær úrslit á Laugardalsvellinum sem styrkja stöðu Íslands í slagnum um
að komast á HM - Tékkar áttu fleiri markskot en máttu sætta sig við 4:0-tap
Eggert Gunnþór Jónsson, knatt-
spyrnumaður úr FH, staðfesti í yfir-
lýsingu í gær að hann væri hinn ís-
lenski landsliðsmaðurinn sem
sakaður sé um kynferðisbrot í Kaup-
mannahöfn árið 2010. Hann var
nafngreindur í netmiðlinum Stund-
inni í gær og sendi út yfirlýsinguna í
kjölfarið. Eggert kveðst fullkomlega
saklaus og segir að hann hafi 1.
október óskað eftir því að vera boð-
aður í skýrslutöku vegna málsins.
Aron Einar Gunnarsson sendi frá
sér sambærilega yfirlýsingu 30.
september. Nánar á mbl.is.
Eggert lýsir
yfir sakleysi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Yfirlýsing Eggert Gunnþór Jónsson
í leik með FH í sumar.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson verður
einn aðalþjálfari karlaliðs Keflvík-
inga í knattspyrnu á næsta keppnis-
tímabili. Hann og Eysteinn Hauks-
son hafa þjálfað liðið saman
undanfarin tvö keppnistímabil en
Eysteinn var áður einn með liðið í
hálft annað tímabil þar á undan.
Haraldur Freyr Guðmundsson, sem
var fyrirliði Keflvíkinga um árabil,
verður aðstoðarþjálfari Sigurðar
en hann hefur stýrt Reyni í Sand-
gerði undanfarin fjögur ár og farið
með liðið upp um tvær deildir á
þeim tíma.
Sigurður einn
með Keflavík
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Keflavík Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son verður áfram með liðið.
ÍSLAND – TÉKKLAND 4:0
1:0 Sjálfsmark 12.
2:0 Dagný Brynjarsdóttir 59.
3:0 Svava Rós Guðmundsdóttir 81.
4:0 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir 83.
MM
Guðrún Arnardóttir
M
Sandra Sigurðardóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Guðný Árnadóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Dagný Brynjarsdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Agla María Albertsdóttir
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir
Lið Íslands: (4-3-3) Mark: Sandra Sig-
urðardóttir. Vörn: Guðný Árnadóttir
(Elísa Viðarsdóttir 88), Glódís Perla
Viggósdóttir, Guðrún Arnardóttir,
Hallbera Guðný Gísladóttir. Miðja:
Dagný Brynjarsdóttir (Ingibjörg Sig-
urðardóttir 85), Gunnhildur Yrsa Jóns-
dóttir , Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
(Alexandra Jóhannsdóttir 75). Sókn:
Sveindís Jane Jónsdóttir, Berglind
Björg Þorvaldsdóttir (Svava Rós Guð-
mundsdóttir 75), Agla María Alberts-
dóttir (Selma Sól Magnúsdóttir 85).
Dómari: Lina Lehtovaara, Finnlandi.
Áhorfendur: 1.474.
_ Dagný Brynjarsdóttir skoraði sitt
31. mark fyrir A-landslið Íslands,
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir sitt tólfta
mark og Svava Rós Guðmundsdóttir
sitt annað mark.
Haukur Örn
Birgisson gefur
ekki kost á sér til
endurkjörs sem
forseti Golf-
sambands Ís-
lands þegar þing
sambandsins
verður haldið 20.
nóvember.
Haukur hefur
gegnt for-
mennsku í átta ár en í heildina
starfað fyrir GSÍ í tvo áratugi.
Fyrst sem starfsmaður, síðar
stjórnarmaður í sextán ár og for-
maður í átta ár.
Hulda er tilbúin
Hulda Bjarnadóttir, stjórnar-
maður í Golfsambandi Íslands, til-
kynnti á facebooksíðu sinni í gær að
hún hefði ákveðið að gefa kost á sér
í kjöri á nýjum forseta sambands-
ins.
Hættir sem
forseti GSÍ
Haukur Örn
Birgisson
Subway-deild karla
Vestri – Þór Ak ..................................... 88:77
Njarðvík – Valur................................... 96:70
Staðan:
Njarðvík 3 3 0 312:243 6
Keflavík 3 3 0 270:237 6
Tindastóll 3 3 0 279:261 6
Grindavík 3 2 1 236:222 4
Þór Þ. 3 2 1 279:276 4
KR 3 1 2 290:290 2
Stjarnan 3 1 2 270:279 2
Vestri 3 1 2 264:278 2
Valur 3 1 2 213:249 2
Breiðablik 3 1 2 341:340 2
Þór Ak. 3 0 3 229:266 0
ÍR 3 0 3 267:309 0
1. deild karla
ÍA – Hamar ........................................... 79:99
Fjölnir – Selfoss.................................. 97:104
Staðan:
Haukar 5 5 0 546:335 10
Höttur 4 4 0 410:302 8
Sindri 4 3 1 352:324 6
Álftanes 4 3 1 376:313 6
Selfoss 5 3 2 457:448 6
Hamar 5 2 3 396:420 4
Hrunamenn 5 2 3 426:499 4
Fjölnir 5 1 4 402:493 2
Skallagrímur 4 0 4 289:380 0
ÍA 5 0 5 377:517 0
1. deild kvenna
Ármann – Hamar/Þór .......................... 94:56
Staðan:
Þór Ak. 3 3 0 243:195 6
Ármann 4 3 1 347:257 6
Snæfell 3 2 1 230:223 4
ÍR 2 2 0 148:109 4
KR 3 2 1 230:209 4
Tindastóll 3 1 2 212:231 2
Fjölnir b 2 1 1 131:151 2
Aþena/UMFK 3 1 2 189:222 2
Hamar/Þór 3 1 2 222:250 2
Stjarnan 3 0 3 192:239 0
Vestri 3 0 3 169:227 0
Belgía
Liege – Antwerp Giants ................... 75:100
- Elvar Már Friðriksson skoraði 10 stig
fyrir Antwerp, átti sex stoðsendingar og
tók fjögur fráköst á 24 mínútum.
NBA-deildin
Atlanta – Dallas .................................. 113:87
Miami – Milwaukee ............................ 137:95
Golden State – LA Clippers ............ 115:113
>73G,&:=/D
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Ásvellir: Haukar – Afturelding ............. L14
Framhús: Fram – KA/Þór ..................... L16
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
KA-heimilið: KA – Valur ........................ S18
Víkin: Víkingur – Fram .......................... S18
Hertz-höllin: Grótta – Haukar............... S18
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Dalhús: Fjölnir/Fylkir – ÍR................... L16
Hertz-höllin: Grótta – Selfoss................ S16
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Digranes: Kórdrengir – Vængir............ S18
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin:
Dalhús: Fjölnir – Skallagrímur ........ S18.15
HS Orkuhöll: Grindavík – Haukar ... S19.15
Smárinn: Breiðablik – Njarðvík ....... S19.15
Origo-höll: Valur – Keflavík.............. S20.15
1. deild kvenna:
Ísafjörður: Vestri – ÍR ........................... L14
Akranes: Aþena/UMFK – Fjölnir b ..... L17
Sauðárkrókur: Tindastóll – Snæfell ..... L18
Höllin Ak.: Þór Ak. – Stjarnan............... S15
UM HELGINA!