Morgunblaðið - 23.10.2021, Page 52

Morgunblaðið - 23.10.2021, Page 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 S agan segir að frammáfólk í sveitaballasenunni hafi vaknað einn mánudaginn, skömmu eftir síðustu alda- móti, við þann vonda draum að þau voru ekki kúl lengur. Einhverjir héldu að það væri í þann mund að gerast í rappsenunni á Íslandi. Það var að minnsta kosti fullyrt í Lestar- þætti Rásar 1 fyrir rétt rúmu ári. Þá var flutt andlátsfregn, þar sem því var lýst yfir að íslensk hipphopp- senan væri öll. Þar brunaði lestin á sjálfa sig. Nýjasta plata Birnis, án efa eins sérstæðasta tónlistarmanns sem Ís- land hefur alið af sér síðustu ár, er þétt vafinn textíll. Í flestum lögunum er hver stafkrókur þrunginn merk- ingu og hrífandi myndmáli. Í lögum eins og „Vogur,“ „Baugar,“ „200“ og „Slæmir ávanar“ leggur Birnir spilin á borðið og hrífur lesandann inn í heim drauma og langana, angistar og kvala, hæða og lægða – heim Birnis. Silkihúfurnar sem sögðu rappið dautt fyrir rúmu ári höfðu þó að hluta til rétt fyrir sér. Senan var ekki beint í fluggír á meðan heimsfarald- urinn geisaði með tilheyrandi bylm- ingshöggum í síðu sviðslistafólks. Á þeim tíma rann greinilega margt vatn til sjávar hjá Birni, eins og sannast með nýútkominni plötu. Saga Birnis, rétt eins og flestra ann- arra ungra tónlistarmanna, er þroskasaga. Á Bushido leitar Birnir á ný mið, nýja takta og ný viðfangs- efni, án þess þó að missa sjónar á uppruna sínum. Stíll Birnis er ein- stakur og enginn getur leikið hann eftir, eins og hann sjálfur ítrekar á nýrri plötu. Bushido einkennist þannig af þróaðri hljóðheimi en áður og þokukenndari myndhverfingum, sem þó smella saman á svo ferskan hátt að það brakar í heilabúinu. Þrátt fyrir þetta heldur Birnir sig við sinn kjarna og sitt upprunalega hugarfylgsni og aðdáendur hans eru því ekki sviknir. Á Bushido fær Birnir til liðs við sig landsliðið í taktagerð; Young Nazareth, Þormóð Eiríksson, Mistersir, Bngrboy, Intr0beatz að ógleymdum Magnúsi Jóhanni Ragn- arssyni og Friðriki Jóhanni Róberts- syni (Flona). Þar að auki nýtur Birn- ir fulltingis góðra vina; Arons Can, GDRN, Högna Egilssonar og Krabba Mane, svo að úr verður sannkölluð tónlistarhátíð. Hver og einn þessara listamanna setur sinn einkennandi svip á þau lög sem þeir syngja inn á og þar með setja þeir svip sinn á plötuna sjálfa; kaotíska orkan hans Krabba Mane, þroskuð lagvísi GDRN, ofursvölu Mídas- arhendur Arons Can og listfengi sjálfs Högna Eg- ilssonar. Það dylst engum að eiturlyfjaneysla og eftir- köst hennar setja svip sinn á Bushido. Birnir er ekkert að fíflast þegar hann talar um raunir sínar á næturlífinu og þeir sem hafa sakað íslenska rappara um að dásama eitulyfjaneyslu svo að úr verði e.k. glansmynd, sem spillir æsku þjóðarinnar, hafa ekki lengur rétt til að tjá sig. Bushido er harð- neskjuleg plata, sönn og listræn. Það dylst heldur engum að íslenskt hipp- hopp er ekki dautt. Það hefur e.t.v. legið í dvala undanfarna mánuði, en það er ekki dautt. Bushido er sönnun þess. Rapparinn „Bushido er harðneskjuleg plata, sönn og listræn. Það dylst heldur engum að íslenskt hipphopp er ekki dautt,“ segir rýnir um plötu Birnis. Rappið er dautt, sögðu þau Hipphopp Bushido bbbbm Breiðskífa Birnis Sigurðssonar. Um upptökustjórn sáu Arnar Ingi Inga- son, Þormóður Eiríksson, Marteinn Hjartarson, Þórir Már Davíðsson o.fl. Lög og textar eftir Birni Sigurðsson. Sticky Records gefur út, 2021. ODDUR ÞÓRÐARSON TÓNLIST M yrkrið milli stjarnanna er hrollvekja sem les- andinn ætti helst að setjast niður með í góðu tómi og klára í einum rykk. Bæði vegna þess að það er vel mögulegt, ef litið er til auðlesins textans og blaðsíðnanna sem eru færri en 200 tals- ins, og af þeim sökum að það er eiginlega ekki annað hægt vegna spennunn- ar sem vex með hverri blaðsíðu. Myrkrið milli stjarnanna fjallar um Ið- unni, konu sem vaknar örþreytt á hverjum morgni án þess að hafa nokkrar skýringar á því. Hægt og rólega fer að renna upp fyrir henni ljós en þó hún viti að það sé ekki allt með felldu reyn- ir hún að hrista af sér vitneskjuna um fjarstæðukennda og hrollvekj- andi orsök þreytunnar. Ástandið stigmagnast og spennan með. Strax í fyrsta kafla slær höf- undur bókarinnar, Hildur Knúts- dóttir, tóninn og lætur lesandann fá á tilfinninguna að eitthvað óhugn- anlegt sé í aðsigi. Með snilldar- legum hætti tekst Hildi að byggja upp eftirvæntingu sem nær algjöru hámarki undir lok bókarinnar. Það sem Hildur gerir sér- staklega vel í Myrkrinu á milli stjarnanna er að sýna lesandanum söguna frekar en að segja honum hana. Þannig verða kaflar bók- arinnar lifandi og lesandinn getur ekki annað en tekið þátt í fram- vindunni. Til dæmis fær lesandinn að vita eitt og annað um baksöguna í gegnum samtöl persóna í stað þess að gripið sé til endurlita eins og of oft er gert í íslenskum skáld- sögum. Þannig stöðvar höfundur ekki frásögnina með baksögunni heldur fléttar hana inn í nútíð sög- unnar. Þótt þetta sé afar vel gert hjá Hildi þá vantar svolítið af upplýs- ingum í bókina, sérstaklega hvað varðar baksögu Iðunnar sem er mikilvæg bókinni í heild sinni. Höf- undur skilur of marga enda eftir óhnýtta og situr lesandinn eftir með fullmargar spurningar eftir lesturinn. Þegar á heildina er litið er Myrkrið milli stjarnanna æsispenn- andi hrollvekja sem kallar fram til- finningaleg og líkamleg viðbrögð hjá lesandanum. Þótt undirritaðri þyki ýmislegt vanta inn í söguþráð- inn er sagan sterk og persónusköp- unin sömuleiðis. Morgunblaðið/Eggert Höfundurinn „Með snilldarlegum hætti tekst Hildi að byggja upp eftirvænt- ingu sem nær algjöru hámarki undir lok bókarinnar,“ skrifar rýnir. Æsispennandi hrollvekja Skáldsaga Myrkrið milli stjarnanna bbbbn Eftir Hildi Knútsdóttur. JPV, 2021. Innbundin, 191 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Nærri þriggja metra há stytta af Angelu Merkel, fráfarandi kansl- ara Þýskalands, var fyrr í þessum mánuði vígð fyrir framan Tempel- safnið í Etsdorf í Þýskalandi. Höf- undur styttunnar er Wilhelm Koch, safnstjóri Tempel-safnsins. Segist hann þannig vilja heiðra Merkel fyrir vel unnin kanslara- störf sl. 16 ár. „Ég hef alltaf heillast af árangri Merkel í starfi í þágu þjóðarinnar. Það er stórkostlegt afrek í sjálfu sér að hafa aldrei sagt neitt rangt. Mér er líka hugleikið að öll þessi ár í pólítík hefur hún stöð- ugt verið að fást við karla,“ segir Koch í samtali við Süddeutsche Zeitung. Athygli hefur vakið að Koch lætur Merkel sitja á hestabaki án þess að hesturinn sé með hnakk og beisli. Í frétt Süddeutsche Zeitung kemur fram að Koch sé sama þó uppsetningin sé ekki raunsæ og sjálfur hafi hann ekki hugmynd um hvort Merkel hafi nokkurn tímann farið á hestbak. Í hans huga sé mikilvægast að Mer- kel virki sjálfsörugg á hestinum og einnig að styttan sé ekki á stalli heldur beint á grasinu, sem eigi að undirstrika góð og sterk tengsl Merkel við íbúa landsins. Raunar sér Koch ekki fyrir sér að styttan verði á sama stað til fram- búðar, því hann hyggst selja hana eftir um hálft ár til að afla fjár fyrir Tempel-safnið. Styttan, sem gerð er úr steypu, var búin til með þrívíddarprentara. Ghandi á háum hælum Í liðinni viku var önnur umdeild stytta afhjúpuð, en það er 1,8 metra há bronsstytta af Mariu Callas sópran sem reist hefur ver- ið skammt frá Akrópólis í Aþenu. Höfundur styttunnar, sem verið hefur mörg ár í vinnslu, er Aphro- dite Liti, sem er prófessor í högg- myndalist við Listaháskólann í Aþenu. Í frétt The Guardian um málið kemur fram að aðdáendur söngkonunnar fari háðulegum orð- um um styttuna sem lýst er sem kits eða listlíki, sögð óviðeigandi og það sem verra er, alls ekki lík söngkonunni frægu. Gárungar hafa sagt að styttan líkist helst Ghandi á háum hælum eða Óskarsstyttunni frægu. Michael Moussou, óperusöngvari og list- rænn stjórnandi Aþenu-hátíð- arinnar, býsnast yfir stellingunni sem Callas er sett í. „Enginn óperusöngvari myndi nokkurn tímann krossleggja hendurnar með þessum hætti fyrir framan brjóstkassann, því það myndi hindra allt flæði raddarinnar. Ópera snýst um sönginn og að frelsa röddina. Ef Callas hefði reynt að syngja í þessari stellingu hefði það hljómað eins og fiðlu- leikari væri að leika á ónýta fiðlu,“ segir Moussou. Umdeildar styttur AFP Án hnakks og beislis Stytta Wilhelms Koch af Angelu Merkel á hestbaki. Of ung fyrir krabbamein? Saga Sóleyjar nefnist ljós- myndasýning Þórdísar Erlu Ágústsdóttur sem opnuð verður í Gallery Ramskram á Njálsgötu 49 kl. 15 í dag. Í fréttatilkynningu kemur fram að Brakkasamtökin standi fyrir sýningunni. „Sóley Björg Ingibergsdóttir greindist með brjóstakrabbamein aðeins 27 ára gömul. Sóleyju datt í hug að athuga hvort hún hefði BRCA2- meinvaldandi breytingu í geni þegar Íslensk erfða- greining opnaði aðgang að þeim upplýsingum vorið 2019,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Sóley hafi nú farið í lyfjameðferð, tvöfalt brjóstnám og ný- lokið geislameðferð. „Myndefni ljósmynda sýningarinnar er dramatískt og það verður ekkert reynt að komast hjá því þar sem ætlunin er að undir- strika það hvernig lífið með BRCA getur umbylt lífi fólks. Sóley Björg er hugrökk ung kona sem er tilbúin til að segja og sýna sögu sína til að vekja athygli á þessu mikilvæga málefni.“ Of ung fyrir krabbamein? í Ramskram Ör Ein myndanna. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave fer fram í þrettánda sinn nú um helgina í Frystiklefanum á Rifi. „Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er stórleikarinn Ólafur Darri Ólafsson sem mun sitja fyrir svörum í sérstöku meistaraspjalli sem er stýrt af Guðrúnu Elsu Bragadótt- ur kvikmyndafræðingi,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að sýndar verði rúmlega 60 erlendar og innlendar stuttmyndir auk íslenskra tónlistarmyndbanda. Auk þess verður boðið upp úrval vinnusmiðja, tónleika og sérstaka barnadagskrá. Norrænar Stelpur Skjóta nefn- ist norræn vinnustofa fyrir ungar og upprennandi kvikmyndagerðarkonur sem fer fram samhliða hátíðinni. Allar nánari upplýsingar um hátíðina og viðburði hennar eru á vefnum á northernwavefestival.com. Hátíðin Northern Wave haldin í 13. sinn Ólafur Darri Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.