Morgunblaðið - 23.10.2021, Page 56
Tríóið KIMI ensemble flytur efnisskrá undir yfirskrift-
inni Ferðalög á fyrstu tónleikum 15:15-tónleikasyrp-
unnar nú í haust. Tónleik-
arnir, sem einnig eru hluti
af Óperudögum, eru
haldnir í Breiðholtskirkju
í dag, laugardag, kl. 15.15.
Tríóið skipa þau Katerina
Anagnostidou slagverks-
leikari, Jónas Ásgeir Ás-
geirsson harmóníkuleik-
ari og Þórgunnur Anna
Örnólfsdóttir sópran. Þau
leika eigin útsetningar á
þjóðlögum frá Grikklandi,
Íslandi og Írlandi ásamt
verkum sem samin eru fyrir hópinn. Má þar nefna Like
Dreams of the Dawn and Scarecrows of the Night
(2020) eftir gríska tónskáldið Christos Farmakis og
Ferðalög (2021) eftir íslenska tónskáldið Finn Karlsson
sem þau frumflytja á tónleikunum. Miðasala er við inn-
ganginn og á tix.is.
Ferðalög með KIMI ensemble í dag
LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 296. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Bandaríska skíðakonan Mikaela Shiffrin setur nú stefn-
una á að keppa í öllum fimm keppnisgreinunum í alpa-
greinum á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Shiffrin
segir þó að slíkar áætlanir kalli á mikinn undirbúning,
ekki síður andlegan en líkamlegan. Nú er farið að stytt-
ast í Vetrarólympíuleikana en þeir eiga að hefjast 4.
febrúar í Kína eða eftir tæpa fjóra mánuði. »48
Stefnir á fimm greinar í Peking
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Stigið … og Sigtryggur vann“
hljómaði um árabil í glímukeppni á
árum áður. Sama er upp á ten-
ingnum í pílukasti, þar sem Þorgeir
Guðmundsson, sem verður 77 ára á
sunnudag, hefur verið í sviðsljósinu
í um aldarfjórðung, en hann fagnaði
tveimur titlum í tvímenningi á dög-
unum. „Ég hef verið ansi sigursæll
og er örugglega elsti A-landsliðs-
maður Íslands og þótt víðar væri
leitað,“ segir Þorgeir.
Íslandsmótið í 301 fór fram í hús-
næði Pílukastfélags Reykjavíkur
um liðna helgi. Þorgeir, sem keppir
fyrir PFR og er í úrvalsliði félags-
ins sem keppir á Íslandsmóti fé-
lagsliða um þessar mundir, og Guð-
jón Hauksson úr Grindavík, sem er
63 ára, urðu Íslandsmeistarar í tví-
menningi eftir æsispennandi úr-
slitaleik við Grindvíkingana Matt-
hías Örn Friðriksson,
Íslandsmeistara í einliðaleik í 501,
og Björn Steinar Brynjólfsson.
Fyrir skömmu urðu Þorgeir og
Karl Jónsson Reykjavíkurmeistarar
í 501. Þorgeir og Guðjón urðu Ís-
landsmeistarar í 501 í fyrra, en fyr-
irkomulagið er öðruvísi í 301. „Við
ákváðum að fylgja Íslandsmótinu í
fyrra eftir og vera með núna, en
áttum ekki von á að sigra,“ segir
Þorgeir. „Reyndar vorum við betri
en mótherjarnir í undanúrslitunum,
en byrjuðum illa í úrslitaleiknum og
áttum ekki að vinna þessa spræku
stráka. Þeir komust í 2-0 og 4-1 en
við náðum að jafna. Í stöðunni 6-5
voru þeir með pálmann í höndunum
en komust ekki út, eins og stundum
gerist, klikkuðu á útskotinu og við
höfðum það 7-6. Þetta var bara
meistaraheppni, eins og Guðjón
segir, en kannski fóru strákarnir
hreinlega á taugum.“
Íslandsmeistari 25 sinnum
Titlarnir eru fleiri en Þorgeir
hefur tölu á. Hann hefur þrisvar
orðið Íslandsmeistari í einmenningi
í 501, átta sinnum í tvímenningi og
var meistari meistaranna 2019.
Hann hefur nokkrum sinnum orðið
Reykjavíkurmeistari í einmenningi
og tvímenningi í 501 en sjaldnar í
301. „Ég hef samtals orðið 25 sinn-
um Íslandsmeistari í 501, 301 og
krikket að ónefndum ótalmörgum
titlum í innanfélagsmótum,“ segir
Þorgeir.
Í lok árs í fyrra hætti hann í
launaðri vinnu og fór þá í að grisja
verðlaunasafnið. „Ég taldi 330 bik-
ara og gaf Hafnfirðingum um 50
þeirra til nota í unglingastarfinu
auk þess sem ég hef gefið Grindvík-
ingum ámóta marga verðlaunagripi.
Starfið í þessum félögum er mjög
öflugt og Ástþór Ernir Hrafnsson í
PFH varð til dæmis Íslandsmeist-
ari í einliðaleik í fyrstu tilraun.
Hann er ótrúlega góður.“
Vegna kórónuveirufaraldursins
hafa mót að mestu legið niðri, jafnt
innanlands sem utan. Fjögur stiga-
mót verða í Reykjanesbæ fyrstu
helgina í nóvember en að loknum
átta mótum er Þorgeir, sem hefur
verið í landsliðinu síðan 1996, í sjö-
unda sæti.
„Ég var í fimmta sæti fyrir mótið
á Akureyri og í nóvember skýrist
hvort ég held áfram að falla á list-
anum eða held mér í landsliðinu.
Það er auðvitað stefnan og komi
kallið enn einu sinni er ég tilbúinn.
Ég er hugsanlega elsti A-landsliðs-
maður í heimi og þarf að gull-
tryggja sætið!“
Á toppnum 77 ára
- Þorgeir Guðmundsson gefur ekkert eftir í pílunni
- Hefur verið í landsliðinu síðan 1996 og vill halda sætinu
Íslandsmeistarar 2021 Þorgeir Guðmundsson og Guðjón Hauksson.
Reykjavíkurmeistarar 2021 Þorgeir Guðmundsson og Karl Jónsson.