Morgunblaðið - 26.10.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 26.10.2021, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. O K T Ó B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 251. tölublað . 109. árgangur . NÁLGAST VERKEFNIÐ AF FESTU VILJA FLJÚGA UM GLERÁRGIL BEITTI GERVI- GREIND Á ÞJÓÐLÖGIN FIMM FLUGLÍNUR 11 KJARTAN ÓLAFSSON 28UNDANKEPPNI EM 27 Hér siglir maður skútunni sinni úr Reykjavíkurhöfn. Um- hverfis hann liggja stærri systur skútunnar í slippnum og láta dekra við sig. Á þessum bjarta degi var mikið um að vera en jafnframt svo kyrrlátt að annríkið hafði yfir sér friðsælt yfir- bragð. Líkt og íslenski hversdagsleikinn fyrir hvern þann sem ber hann augum úr fjarska. Morgunblaðið/Árni Sæberg Siglt framhjá slippnum _ Eigendur og stjórnendur skemmtistaða Reykjavíkur brýna nú fyrir starfsfólki hver einkenni byrlunar eru og hvernig bregðast skuli við. Sindri Snær Jensson, eigandi skemmtistaðarins Auto, segir í samtali við Morgunblaðið að hann hafi brýnt fyrir sínum dyravörðum að spyrja konur á leiðinni út úr skemmtistaðnum hvort þær þekki örugglega manninn sem þær fara með, eigi það við. Þá segir Sindri að skemmtistaðurinn sé vel dekkaður af öryggismyndavélum sem nýst gætu, kæmi upp byrlunarmál innan veggja Auto. Þá hafa eigendur skemmtistaða verið í sambandi sín á milli til að samræma vinnulag. Birgitta Líf Björnsdóttir, eigandi skemmtistaðarins Bankastræti club, sagði nýverið í viðtali við Morgunblaðið að hún hefði orðið vör við mikla fjölgun á tilvikum byrlunar og líkti því við faraldur. Fjölmargar stúlkur og konur hafa á allra síðustu dögum stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa ver- ið byrluð ólyfjan sem í sumum til- fellum endar með nauðgun eða ann- ars konar ofbeldi. »4 Einkenni byrlunar brýnd fyrir starfs- fólki skemmtistaða Byggingarferli á nýjum íbúðum er tímafrekt við bestu aðstæður og enn fremur þegar byggt er á þéttingar- reitum. Fleiri hindranir eru til staðar þeg- ar byggt er inni í miðri íbúðabyggð heldur en þegar brotið er nýtt land undir byggð, sem hefur auknar tafir og kostnað í för með sér. Fyrir vikið eru íbúðir á þéttingarreitum ekki jafnhagkvæmar og í nýjum hverfum. Það ásamt áfangaskiptri byggingu íbúðarhúsa skýrir að miklu leyti fjölda vannýttra byggingarleyfa sem gefin hafa verið út af Reykjavíkur- borg. Bent hefur verið á vannýtt byggingarleyfi sem eina megin- ástæðu íbúðaskorts í borginni, ásamt tregðu bankanna til að lána fyrir byggingaframkvæmdum. Stóru viðskiptabankarnir þrír hafa hins vegar staðfest að þeir hafi ekki hætt að lána til uppbyggingar, en þegar lóðirnar skorti og umsvif í byggingargeiranum minnki þá sé vitaskuld minna lánað. Samtök iðnaðarins (SI) telja íbúð- ir í byggingu, en árið 2019 var metár að því leyti. Síðan hefur íbúðum í byggingu fækkað verulega. Flóknara að byggja á þéttingarreitum - Viðskiptabankar enn tilbúnir til að lána fyrir uppbyggingu MLóðaframboð lykill … »14 Morgunblaðið/Eggert Nýbygging Byggingar á fyrsta byggingarstigi eru ekki í talningu SI. _ Miðað við árstíma og aðstæður í kórónufaraldrinum hefur verið drjúgt að gera í hvalaskoðun hjá Norðursiglingu og Eldingu síðustu vikur. Fyrirtækin eru með skoð- unarferðir í Eyjafirði, Skjálfanda og Faxaflóa og hafa hnúfubakar og fleiri tegundir hvala sýnt listir sínar. Hörður Sigurbjarnarson hjá Norðursiglingu segir að landkynn- ing eins og fékkst með Eurovision- myndinni, sem tekin var upp á Húsa- vík, og útsendingu þaðan á Óskars- verðlaunahátíðinni skili sér eflaust í auknum áhuga á hvalaskoðun fyrir norðan. Í vikunni er haldin stór jarðhitaráðstefna í Reykjavík og segir Rannveig Grétarsdóttir hjá Eldingu að bókunum í hvalaskoðun fjölgi samhliða slíkum viðburði. »10 Ljósmynd/Ales Mucha Ferðamennska Hvalaskoðun í Eyjafirði. Fleiri skoða hvalina eftir Óskarsverð- launahátíðina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.