Morgunblaðið - 26.10.2021, Page 8

Morgunblaðið - 26.10.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021 Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is Bleikt kvöld á Smáratorgi 28. október frá 19:00 – 20:30 Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, dregur réttar ályktanir í pistli sínum: - - - Lifi menn í trúnni á kosn- ingasvindl og út- breiði hana með að- stoð gagnrýnislausra fjölmiðlamanna, sem telja grun full- vissu um saknæman verknað, er sama hvað þingnefnd heldur marga fundi, miðlun falsfréttanna verður ekki hætt. - - - Í frétt um afstöðu frambjóðanda Viðreisnar, Guðmundar Gunn- arssonar, glitti í hótun sem helst virðist snúa að því að leitað verði til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg! - - - Michel Barnier, sem samdi um úrsögn Breta úr ESB fyrir hönd Brusselmanna, leitar nú eftir stuðningi til forsetaframboðs meðal franskra hægrimanna. Eitt af því sem hann telur sér til fylgisauka er að vara við valdafíkn ESB-dómara í Lúxemborg og MDE-dómara í Strassborg. Á sínum tíma var litið á dóm MDE vegna skipunar í lands- rétt hér sem einskonar æfingu dómaranna í Strassborg fyrir at- lögu að dómskerfinu í Póllandi. Varðstaða pólskra dómara um full- veldi lands síns veldur nú klofningi og illdeilum innan Evrópusam- bandsins. - - - Það lofar hvergi góðu að beint sé vegið að fullveldi þjóða með málskoti til dómara sem telja sig hafa yfirþjóðlegt vald. - - - Að því skyldu þeir huga sem hafa í hótunum um málskot til MDE vegna endurtalningar atkvæða í NV-kjördæmi.“ Björn Bjarnason Enn elta þeir eigið skott STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Gerð nýrra hafnarmannvirkja vegna ferjusiglinga yfir Breiðafjörð hleyp- ur á hundruðum milljóna króna, að mati Vegagerðarinnar. Hún hefur gefið það út að ný hafnarmannvirki á Brjánslæk og í Stykkishólmi séu for- senda fyrir áframhaldandi ferju- rekstri á Breiðafirði. Vegagerðin tel- ur hagkvæmast að uppfylla núverandi samning um ferjusigling- ar og nota gildistíma hans til hönn- unar og útboðs á hafnarmannvirkj- um fyrir ferjusiglingarnar. Núverandi mannvirki voru hönnuð fyrir gamla Baldur, sem var óvenju- mjótt skip, og löguð að þeim nýja. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær krefjast sveitarstjórn- armenn á Vestfjörðum þess að feng- in verði ný og afkastameiri ferja en Baldur til siglinga yfir Breiðafjörð. Var Herjólfur III nefndur í því sam- bandi þar til ný ferja finnst. G. Pétur Matthíasson, upplýsinga- fulltrúi Vegagerðarinnar, bendir á að ekki sé búið að samþykkja fjár- veitingu til að lagfæra umrædd hafn- armannvirki svo þau geti tekið við Herjólfi III eða annarri ferju. Vega- gerðin hefur gert tillögu um fram- kvæmdina og er það í höndum fjár- veitingavaldsins að ákveða hvort veita eigi fé í þá framkvæmd. gudni@mbl.is Hleypur á hundruðum milljóna - Framhald ferjusiglinga yfir Breiða- fjörð krefst nýrra hafnarmannvirkja Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Herjólfur III Vestfirðingar vilja fá gamla Herjólf á Breiðafjörð. Félag íslenskra kvenna í atvinnulíf- inu í Kaupmannahöfn (FKA-DK) fagnaði í gær kvennafrídeginum með hátíð í sendiherrabústaðnum í boði sendiherra Íslands, Helgu Hauks- dóttur. Í annað sinn í sögu félagsins voru hvatningarverðlaun FKA-DK veitt íslenskri konu í Danmörku sem sýnt hefur frumkvæði, styrk og verið öðrum konum hvatning í starfi. Alls hlaut 21 kona tilnefningu. Dómnefnd skipuðu Helga Hauksdóttir sendi- herra, Vigdís Finnsdóttir, fyrrver- andi verðlaunahafi (2019), og Auður Kristín Welding, fyrrverandi stjórn- armanneskja FKA-DK. Viðurkenninguna hlaut Herdís Steingrímsdóttir, vinnumarkaðs- hagfræðingur og dósent við Copen- hagen Business School (CBS). Hefur hún þar fjölmörg ár að baki, en áður sinnti hún náms- og fræðistörfum við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Herdís hefur nýlega fengið 120 millj- óna króna styrk til rannsókna um fæðingarorlofsmál og verkaskiptingu foreldra á heimilum, bæði á Íslandi og í Danmörku. Síðan 2014 hafa íslenskar konur í atvinnulífinu í Danmörku hist reglu- lega með það að markmiði að styrkja tengslanet og efla sýnileika kvenna í atvinnulífinu. Félagsskapurinn telur nú yfir 900 íslenskar konur. Hvatning F.v. Halla Benediktsdóttir, formaður FKA-DK, Herdís Steingríms- dóttir verðlaunahafi og Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Danmörku. Hvatning í Danaveldi - Herdís Steingrímsdóttir fékk hvatn- ingarverðlaun FKA í Danmörku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.