Morgunblaðið - 26.10.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Jón Heiðar Rúnarsson og Aníta
Hafdís Björnsdóttir hafa kynnt fyr-
ir skipulagsráði á Akureyri hug-
myndir sínar um að setja upp svo-
nefndar fluglínubrautir, eða zip-
línur, á svæði við Glerárgil á
Akureyri. Ráðið tók jákvætt í er-
indið. Svæðið sem um ræðir er
skammt neðan við brú við Þing-
vallastræti og til norðurs í átt að
Háskólanum á Akureyri og hug-
myndin gengur út á að setja upp
alls fimm línur. Sviðsstjóra skipu-
lagssviðs var falið að vinna málið
áfram.
„Þetta er enn á byrjunarreit hjá
okkur, við erum á hönnunar- og
hugmyndastigi með þetta verkefni
en munum halda okkar vinnu
áfram,“ segir Jón Heiðar. Hann
nefnir að hér á landi séu tvær teg-
undir af fluglínum í gangi. Annars
vegar einnar línu braut þar sem
farið er í einni bunu niður og hins
vegar margra línu brautir eins og
eru hjá Zipline Iceland í Vík í Mýr-
dal.
„Við erum í nánu samstarfi við
vini okkar í Vík og stefnum á að
setja upp braut í Glerárgili sem er
svipuð og þar er,“ segir Jón Heiðar.
„Í okkar hugmyndum er stefnt á að
setja upp fimm línur sem krossa
Glerána fram og til baka.“
Fræðandi göngutúrar
á milli brauta
Leiðsögumenn munu tengja fólk
við línuna og taka á móti því einnig
við hinn endann á henni. Þá taka
við stuttir göngutúrar á milli lína
sem bjóða upp á möguleika á léttri
fræðslu fyrir ferðamenn um nær-
umhverfið.
„Í okkar fyrstu hugmyndum er
gert ráð fyrir að fyrsta lína byrji
við göngubrúna sem liggur yfir
Glerá við Þingvallastræti og sú síð-
asta endi um það bil 500 metrum
neðar,“ segir hann. Lokahönnun og
úttekt á brautinni verður unnin af
erlendum sérfræðingum sem sér-
hæfa sig í brautum sem þessum.
Jón Heiðar segir að fluglínubraut
af þessu tagi muni auka mjög
möguleika til afþreyingar á Ak-
ureyri og yrði frábær viðbót við þá
útivistarparadís sem Akureyri er.
„Þetta gefur fjölskyldum sem og
einstaklingum einstakt tækifæri á
að kynnast Glerárgilinu á nýjan
máta og fellur frábærlega að því
sem er í gangi þar nú þegar en á
svæðinu er frisbígolfvöllur, hjóla-
brettagarður, göngustígar og hjóla-
leiðir,“ segir hann.
Hugmyndir um
fluglínubraut
í Glerárgili
- Fimm línur sem krossa Glerána
fram og til baka - Einstakt tækifæri
til að kynnast Glerárgili á nýjan máta
Fluglínur yfir
Glerá á Akureyri
Glerá
Glerá
H
líð
ar
br
au
t
Þingval
lastræt
i
Háskólinn
á Akureyri
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Afþreying Fluglínur eru vinsælar þar sem þær hafa verið settar upp, m.a. yfir Varmá í Hveragerði.
Stórhuga Aníta Hafdís Björnsdóttir
og Jón Heiðar Rúnarsson.
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Ten Points Pandora
34.990 kr.
Samiðn, samband iðnfélaga, hvetur
stjórnvöld til að tryggja að átakið
Allir vinna verði fest varanlega í
sessi. Þetta kemur fram í ályktun
miðstjórnarfunds sambandsins.
Meðal þeirra ráðstafana sem
stjórnvöld gripu til á árinu 2020 var
umrætt átak, sem fólst í því að virð-
isaukaskattur vegna framkvæmda
og endurbóta var endurgreiddur að
öllu leyti. Í ályktun Samiðnar segir
m.a. að umræddar aðgerðir hafi
heppnast vel. Vísað er til þess að
endurgreiðslur fyrir janúar til
ágúst á þessu ári séu samtals 5,9
milljarðar króna. Átakið stuðli að
mörgum virðisaukandi verkefnum
til samfélagsins. Enn fremur skipti
það miklu máli út frá neytendasjón-
armiðum.
Vilja festa í sessi átakið Allir vinna