Morgunblaðið - 26.10.2021, Page 12
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Þær breytingar sem Pósturinn
hyggst gera á gjaldskrá sinni leggj-
ast vel í forsvarsmenn einkafyrir-
tækja sem starfa á markaði með
pakkasendingar. Enn virðist þó
margt á huldu um hvað hið opin-
bera hlutafélag hyggst fyrir með
nýrri gjaldskrá sem sögð er komin
til vegna lagabreytinga sem banna
fyrirtækinu að viðhafa sama verð
um allt land á pakkasendingum og
bréfum yfir 50 g.
Vantar svör um hlutverkið
Hrólfur Andri Tómasson er
framkvæmdastjóri Dropp sem hef-
ur gerst umsvifamikið í pakkasend-
ingum á undanförnum misserum.
„Breytingin er jákvæð. Það gat
enginn keppt við Póstinn á lands-
byggðinni. En þrátt fyrir að þetta
sé jákvæð breyting þá stendur upp
úr að það vantar svör við spurn-
ingum um hlutverk Íslandspósts.
Verkefni fyrirtækisins fólst í að
dreifa bréfum en nú virðist öll
áherslan á að berjast í samkeppni í
öðrum verkefnum sem einkafyrir-
tæki eru að sinna. Það eru pakka-
sendingar sem voru í raun ekki til
fyrir nokkrum árum en hafa stór-
aukist með aukinni netverslun.
Þessum markaði er sinnt mjög vel
af einkaaðilum en þar gerist Póst-
urinn sífellt aðgangsharðari.“
Þjónustan næg um landið
Bendir Hrólfur Andri á að þjón-
ustunni sé sinnt af mörgum fyrir-
tækjum, bæði stórum
flutningafyrirtækjum og einnig
nýrri aðilum á borð við Dropp sem
m.a. sinni dreifingu í 16 þéttbýlis-
stöðum um allt land.
„Pósturinn hefur lagt í gríðarleg-
ar fjárfestingar, m.a. í 60 póstbox-
um og hundraða milljóna fjárfest-
ingu í nýju flokkunarkerfi núna í
haust. Við getum sinnt þessum
verkefnum með mun hagkvæmari
hætti og minni yfirbyggingu.“
Bendir hann á að Pósturinn hafi
ákveðnu hlutverki að gegna, m.a.
þegar kemur að sendingum sem
berast erlendis frá, t.d. Kína. Ekk-
ert banni Póstinum að leita til
einkaaðila sem geti komið sending-
unum á áfangastað hratt og örugg-
lega og á hagstæðara verði en hann
sjálfur.
„Það skýtur einfaldlega skökku
við að ríkið dembi sér í þessa sam-
keppni, tapi miklum fjárhæðum og
dæli peningum í reksturinn. Ég
hefði haldið að þessum peningum
yrði betur varið t.d. í heilbrigðis-
kerfið,“ segir Hrólfur Andri.
Morgunblaðið leitaði viðbragða
Samtaka verslunar og þjónustu
sem lengi hafa gagnrýnt Póstinn
fyrir framgöngu sína sem byggist á
einu og sama verði á þjónustunni
um land allt. Benedikt S. Bene-
diktsson, lögfræðingur SVÞ, segir
að enn sé verið að rýna í verðskrá
Póstsins og að mörgum spurning-
um sé enn ósvar-
að.
Búa fleiri sjón-
armið að baki?
„Verðskráin er
sögð taka breyt-
ingum því ekki
megi bjóða sama
verð um land allt.
Þjónustan verði
að taka mið af
raunverulegum kostnaði við veit-
ingu hennar. Þrátt fyrir það er
verðið að breytast í mörgum tilvik-
um á höfuðborgarsvæðinu. Það hef-
ur vakið spurningar um hvort verð-
lagningin hafi verið eðlileg á
höfuðborgarsvæðinu. Það virðist að
minnsta kosti meira búa að baki
þessum breytingum en aðeins
krafa löggjafans um að ekki megi
vera sama verð um land allt,“ segir
Benedikt.
Þakkar framtak Alþingis
Morgunblaðið leitaði einnig við-
bragða Vigfúsar Páls Auðbertsson-
ar, sem rekur fyrirtækið Auðbert
og Vigfús Páll ehf. sem gerir út á
flutningastarfsemi frá Vík í Mýr-
dal. Hann hefur áður tjáð sig tæpi-
tungulaust um vægðarlausa og
ójafna samkeppni af hálfu Póstsins.
„Ég á enn eftir að kynna mér
betur hvað þessi breytta verðskrá
felur í sér en ég fagna því að Al-
þingi hafi tekið af skarið og breytt
lögunum sem voru í raun að gera út
af við alla samkeppni með reglunni
um sama verð um land allt.“
Pósturinn gæti falið öðrum
verkin fyrir lægra verð
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sendingar Hörð samkeppni geisar á markaði með pakkasendingar. Þar hefur Pósturinn gerst mjög aðsópsmikill.
- SVÞ rýna í gjaldskrárbreytingar Póstsins - Dropp boðar sókn um landið
Benedikt S.
Benediktsson
Hrólfur Andri
Tómasson
Vigfús Páll
Auðbertsson
Breytingar
» Pósturinn boðar veigamiklar
breytingar á verðskrá sinni frá
og með 1. nóvember.
» Ný lög tóku gildi í ársbyrjun
2020 sem skikkuðu Póstinn til
að viðhafa sömu verðskrá um
allt land.
» Olli það miklu misgengi á
markaðnum þar sem einka-
aðilar úti um landið gátu ekki
keppt á sama verði og Póst-
urinn.
» Nú hefur löggjafinn horfið
frá þessu fyrirkomulagi eftir
mikla gagnrýni á það.
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Bílaframleiðandinn Tesla hefur
með opnun nýrra háhraða-
hleðslustöðva á Akureyri og
Höfn í Hornafirði tryggt að eig-
endur Tesla-bifreiða geti komist
hringinn um landið klakklaust
og án þess að leita á náðir ann-
arra hleðslukerfa en V3-
stöðvanna sem geta náð allt að
250 kW hleðslu við bestu að-
stæður.
Stöðvarnar sem nú eru í notk-
un eru auk fyrrnefndra staða í
Reykjavík, í Staðarskála, á Egils-
stöðum og Kirkjubæjarklaustri.
Lengst er á milli stöðva á leið-
inni milli Akureyrar og Egils-
staða eða 266 km. Model 3-bíll
frá Tesla getur náð allt að 120
km hleðslu á fimm mínútum, sé
hann tengdur við V3-stöð.
Tesla lokar hringnum
Háhraðahleðslunet Tesla á Íslandi
Reykjavík
STAÐARSKÁLI
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJAR-
KLAUSTUR
HÖFN
Í HORNAFIRÐI
Reykjavík Staðarskáli 163 km
Staðarskáli Akureyri 224 km
Akureyri Egilsstaðir 266 km
Egilsstaðir Höfn í Hornafirði 187 km
Höfn í Hornafirði
Kirkjubæjarklaustur 201 km
Kirkjubæjarklaustur
Reykjavík 256 km
- Lengst 266 kílómetrar milli háhraðastöðva
« Útgerðarfélag Reykjavíkur hefur selt
nýútgefin skuldabréf að fjárhæð 7 millj-
arðar króna til innlendra fagfjárfesta og
er uppgjör viðskiptavinanna fyrirhugað
15. nóvember næstkomandi. ÚR sér-
hæfir sig í rekstri frystitogara, er
stærsti hluthafi Brims hf. og þá vinnur
félagið að nýsköpun og vöruþróun í
sjávarútvegi í gegnum dótturfélag sitt
ÚR Innovation. Gefnir verða út tveir
skuldabréfaflokkar sem eru annars veg-
ar óverðtryggð skuldabréf til þriggja ára
að fjárhæð 1.360 milljónir króna með
5,3% ávöxtunarkröfu. Hins vegar er
um að ræða verðtryggð skuldabréf til
sjö ára að fjárhæð 5.680 milljónir króna
með 2,5% ávöxtunarkröfu.
Segir félagið að unnið verði að skrán-
ingu flokkanna beggja á aðalmarkað
Nasdaq Iceland.
ÚR gefur út tvo
skuldabréfaflokka
26. október 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.15
Sterlingspund 178.03
Kanadadalur 104.75
Dönsk króna 20.187
Norsk króna 15.474
Sænsk króna 15.059
Svissn. franki 140.8
Japanskt jen 1.1342
SDR 182.67
Evra 150.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.2207
« Hlutabréf Ice-
landair Group héldu
áfram að hækka á
markaði í gær og
nam hækkunin frá
því fyrir helgi ríflega
1,1%. Nam velta
með bréfin tæpum
840 milljónum
króna. Stendur
gengi þeirra nú í
1,83 og hefur ekki
verið hærra frá því í febrúar á þessu ári.
Þá risu bréfin hratt í kjölfar þess að það
spurðist út að íslensk stjórnvöld myndu
mögulega ná samningi við lyfjarisann
Pfizer um allsherjarbólusetningu hér á
landi á skömmum tíma. Ekkert varð úr
slíku samkomulagi og hrundu bréfin
skarpt í kjölfar þess að upplýst var um
þau málalok.
Markaðsvirði félagsins er nú tæpir
66 milljarðar króna en í liðinni viku var
tilkynnt að félagið hefði skilað 2,5 millj-
arða hagnaði á þriðja ársfjórðungi. Var
það í fyrsta sinn í tvö ár sem félagið skil-
aði jákvæðu uppgjöri. Hlutabréf Play
hækkuðu einnig á First North-
markaðnum í gær og nam hækkunin 1%.
Félagið er nú metið á 20 milljarða króna.
Hlutabréf Icelandair
ekki hærri frá febrúar
Flug Icelandair
sækir í sig veðrið.
STUTT