Morgunblaðið - 26.10.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 26.10.2021, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021 Út er komin í ágætri þýðingu íslenskri bókin „Sjö goðsagnir um Lúther“ eftir Frederik Stjernfelt, danskan prófessor í hug- myndafræði. Höfundur hefur næmt auga fyrir hinu neikvæða hjá stórsnillingnum, kirkjuföður okkar, dr. Marteini Lúther. Full ástæða er til að mæla með lestri þessarar bókar, en þó ekki hennar einnar og út af fyrir sig. Til þess er hún of einsýn. Bent skal á öndvegisritið „Marteinn Lúther“ eftir Roland H. Bainton í þýðingu síra Guðmundar heitins Óla Ólafs- sonar dómkirkjuprests í Skálholti. Heildarsafn ritverka Lúthers spannar 127 bindi í Weimar- útgáfunni eða um það bil 80.000 blaðsíður. Þarf því engan að undra, þótt þar kenni margra ólíkra grasa. Ákafir skapsmunir höfundar ollu því, að ýmislegt var í hita leiksins látið fjúka, þar sem hvað rakst á annars horn. Persóna Lúthers Glögg mynd fæst af siðbótarfröm- uðinum í borðræðunum góðfrægu og í bréfum hans, en af þeim hafa þúsundir varðveist. Lúther mun hafa verið aðsópsmikil maður, að ekki sé meira sagt, hjartahlýr, bú- inn ríkulegri spauggreind, sem á stundum gat verið ærið stórkarla- leg. Geðríkur var hann með af- brigðum og stórorður; þannig vand- aði hann andstæðingum sínum ekki kveðjurnar, heldur dró fram í lýs- ingu þeirra heila dýrafræði, t.d. voru „asni og lygakjaftur“ sæmd- arheitin sem hann valdi páfanum í Róm. Á yngri árum ritaði hann um Gyðinga í vinsamlegum tóni, vildi fræða þá um Nýja testamentið og freista að snúa þeim til kristinnar trúar, en undir lok ævinnar fauk í hann og hann lagði til að sýnagógur þeirra yrðu brenndar og þeir gerðir landflótta af því að þeir töluðu hæðnislega um Krist og neituðu að ganga í sig. Hann sá Satan sjálfan að baki mótstöðumönnum sín- um og barðist gegn þeim með blóðugum skömmum. Þar má vís- ast greina bóndason- inn, betlimunkinn og skólaspekinginn að baki siðbótarmann- inum. Aðallinn í kenningu Lúthers En hver var þá kjarninn í kenn- ingu Lúthers? Bróðir Marteinn hafði átt í óhemju harðri sálar- baráttu í klefa sínum í klaustrinu í Erfurt – og spurt: Hvernig finn ég náðugan Guð? Loks fann hann svarið í bréfi Páls postula til Rómverja: „Fagnaðar- erindið … er kraftur Guðs sem frelsar hvern þann mann sem trú- ir … Réttlæti Guðs opinberast í því fyrir trú til trúar eins og ritað er: Hinn réttláti mun lifa fyrir trú.“ (Róm. 1,16-17.) Orðið „réttlæti“ merkir hér syndafyrirgefning og „hinn réttláti“ sá, sem syndirnar hafa verið fyrirgefnar. Hið svonefnda „material-prinsip“ lútherstrúarmanna er kenningin um réttlætingu af einni saman trúnni, jusificatio sola fide. Þessa kenningu er að finna, með sístæðu orðalagi, í 4. grein Ágsborgarjátningarinnar. Í lútherskri arfleifð hefur þessi kenn- ing verið nefnd „sú trúargrein, sem kirkjan stendur með eða fellur“, articulus stantis aut cadentis ecclesiae. Um þetta segir svo í Ágs- borgarjátningunni: „Menn geta ekki réttlæst fyrir Guði af eigin kröftum, verðleikum eða verkum, heldur réttlætast þeir án verðskuldunar (gratis) vegna Krists (propter Christum) fyrir trúna (per fidem), er þeir trúa því, að þeir séu teknir til náðar og syndirnar séu þeim fyr- irgefnar vegna Krists, sem með dauða sínum hefur fullnægt fyrir syndir vorar. Þessa trú reiknar Guð til réttlætis fyrir sér.“ Lútherstrú er eindregin ein- staklingstrúarbrögð. Samviska hins kristna manns, bundin af Ritning- unni einni, er æðsta valdið í trú- arefnum. Það, sem Lúther sagði í Worms, hefur jafnan síðan verið í minnum haft: „Það er ekki ráðlegt að breyta gegn samvisku sinni.“ Iðulega hefur verið byrjað með þessum orðum, þegar túlka skal innihald lúthersku siðbreyting- arinnar. Einkenni lúthersku kirkjunnar Nafngiftin „lúthersk kirkja“ kem- ur ekki vel heim við ætlan kirkju- föðurins. Það var ekki á dagskrá hjá honum að stofna nýja kirkjudeild, og jafnvel þegar sambandinu við Róm hafði verið slitið endanlega leit hann samt ekki á lúthersku söfn- uðina sem nýja kirkju. Orðið „lúth- erskur“ var fundið upp af andstæð- ingum Lúthers, en síðar var það viðurkennt af meðhaldsmönnum hans, sem hófu, einkum og sérílagi eftir árið 1530, að kalla sig „hina lúthersku“. Lútherska kirkjan leggur allra kirkjudeilda mesta áherslu á kenn- inguna, svo að segja má með sanni, að helgisiðirnir, kirkjuskipanin og siðalögmálið víki allt fyrir henni. Siðbreytingin, sem kennd er við Lúther, tók fyrst og fremst til kenn- ingarinnar. Það, sem lagt var til grundvallar, var hvorki nýtt trúar- samfélag eða breytt kirkjuskipan eða þá breytingar á helgisiðum ell- egar einhver nýr kristinn lífsstíll. Aðalatriðið var hin nýja kenning Marteins Lúthers, sem vissulega fór í bága við kenningar rómversku kirkjunnar, kenningin um hjálpræð- ið, sem veitist manneskjunni fyrir trúna eina, án verka. Eftir Gunnar Björnsson » Lútherska kirkjan leggur allra kirkju- deilda mesta áherslu á kenninguna. Gunnar Björnsson Höfundur er pastor emeritus. Um Lúther Því hefur verið haldið fram að raf- eldsneyti, þ.e. vetni, metan, metanól og ammoníak, sé hvorki góður kostur fyrir farartæki hér innan- lands né fýsilegt til útflutnings vegna mikils flutningskostn- aðar. Auk þess er fullyrt að fram- leiðsluferlið gangi hreinlega ekki upp orku(nýtni)fræðilega séð. Nokkuð er til í því en það getur engu að síður gengið vel upp viðskiptalega svo ekki sé talað um um- hverfislegan ábata. Sumir telja einnig að orkuskipti í sam- göngum muni krefjast svo mikillar raforku og svo stórtækra virkjanaframkvæmda með nei- kvæðum umhverfisáhrifum að það sé ekki verjandi. Nefnd hefur verið talan 18 TWh af raforku á ári, sem svarar til um 2.000 MW í vatnsafli eða jafnvel 5.000 MW í vindafli. Það slagar hátt í allt sem virkjað hefur verið á Íslandi hingað til. Ekki er ljóst hvaða forsendur er hér verið að miða við. Er átt við allar vegasamgöngur, skipin og flugvélarnar? Hvaða ártal? Svo stórar tölur hrella og geta valdið andófi gegn virkjunarfram- kvæmdum, einkum vegna sjónar- miða náttúruverndar. Einnig er nefnt að það muni sáralítið um slíkt framlag okkar á heimsvísu, hlutur Íslands sé svo ör- smár. Mikilvægt er þó að við verð- um hrein og sýnum heiminum gott fordæmi. Framleiðsla og notkun rafelds- neytis hér innanlands getur stór- lega minnkað innflutning og útgjöld þjóðarinnar vegna jarðefnaelds- neytis og aukið mjög orkuöryggi landsins. Það væri einnig afar æskilegt út frá loftslags- og um- hverfissjónarmiðum. Útflutningur á rafeldsneyti væri í raun útfutn- ingur á raforku. Einnig er um að ræða eftirsóknarverðan geymslu- möguleika á hreinni orku. Vafalaust þarf að virkja talsvert meira hér til að gera heildar- orkuskipti möguleg – og jafnvel út- flutning rafeldsneytis – a.m.k. ef stóriðjan heldur velli hér áfram. Við eigum enn góða möguleika á því og ráðum vel við að virkja á viðunandi hátt af fullri tillitssemi við náttúruna og framtíðina. Land undir virkjanir og orkumannvirki er og verður aldrei nema örsmátt brot af landflæmi Íslands og hinum ósnortnu víðernum. Engum dettur lengur í hug að virkja náttúru- perlur! Orkunotkun í farartækjum – rafmagn/rafgeymar Bílar í einkaeigu og minni farar- tæki verða eflaust í mjög auknum mæli rafknúin, þ.e. fá sína orku beint úr raforkukerfinu og eru knú- in áfram að mestu leyti af hleðslu- rafgeymum og rafmótorum. Ísland hefur algera sérstöðu hvað þessa umhverfisvænu orkunotkun í sam- göngum varðar (ásamt Noregi), fyrst og fremst vegna hinnar hreinu endurnýjanlegu vatnsorku, og þar erum við þegar komin nokk- uð áleiðis. Hins vegar horfir allt öðruvísi við með stærri fólks- og vöruflutn- ingabifreiðar. Þar þurfa rafhlöður að vera mjög stórar, fyrirferðar- miklar og íþyngjandi, og hleðslu- tími svo langur að það er varla hagkvæmur kostur. Einnig er hitunarþörf á stóru farþegarými að jafnaði mikil hér og til þess er rafgeymaorka óheppileg. Rafmagns- vagnar hjá Strætó nota t.d. díselolíu til upphit- unar á farþegarými. Metan Þetta vandamál er hins vegar ekki til staðar í metanfarar- tækjum. Þar verður til nægur varmi til hit- unar eins og í venju- legum bensín- eða dís- elbíl. Vandséð er líka hvers vegna Strætó ætti ekki að nýta met- an frá eigin framleiðslu sveitarfélaganna í Sorpu/GAJA til að knýja vagna sína og fleiri farartæki. Það gera þeir hjá SVA á Akureyri frá sinni litlu „sorpu“ þar. Norður- orka knýr einnig alla sína bíla með metani. Notkun fljótandi metans á þungaflutningabíla fer nú vaxandi víða í Evrópu þar sem þeir komast mjög langt (1.500 km) á einni fyll- ingu. Á því sviði þurfum við að taka okkur á og gera það einnig mögulegt hér. Byggja þarf upp við- eigandi dreifikerfi. Íslensk skip má einnig hæglega knýja með innlendu rafeldsneyti í framtíðinni og er nú þegar byrjað á því annars staðar (Stena Line t.d.). Ísland gæti orðið fyrirmynd ann- arra á þessum vettvangi. Fullþróuð tækni til notkunar á metani í bílum og skipum er nú þegar fyrir hendi, bæði fyrir fljótandi metan og gas. Vetni Vetnið er eitt og sér orkuríkasta rafeldsneytið miðað við þyngdar- einingu (ekki rúmmál) eins og sést í meðfylgjandi töflu og er laust við CO2-losun. Orkuinnihald eldsneytistegunda, kWh/kg Vetni 33,3 Metan 13,9 Metanól 5,5 Ammoníak 5,2 Bensín 11,3 Dísel 1,8 Það er hins vegar afar vand- meðfarið og viðsjárvert í flutningi og dreifingu og því ekki mjög væn- legur kostur að dreifa því eða flytja út enn sem komið er. Örfáir vetnisbílar eru skráðir hér á landi eða um tíu alls og fáir í notkun. Einn var fluttur inn á síð- asta ári og einn í ár en þeir eru enn mjög dýrir. Önnur notkun er nánast engin þannig að þörfin fyrir vetni hér á heimamarkaði er enn hverfandi, nema þá ef væri til framleiðslu rafeldsneytis þegar og ef af því verður. Líklegt virðist að vetnið sé væn- leg lausn á loftslags- og orkumálum heimsins til lengri framtíðar litið. Verið er að þróa öruggari efna- rafala í farartæki (til framleiðslu rafmagns úr vetni) svo og öflugri og hagkvæmari aðferðir við raf- greininguna. Metan er þó líklega mun vænlegri kostur í næstu fram- tíð. Ekki verður fjallað hér um fram- leiðslu og eiginleika ammoníaks og metanóls. Legg heldur ekki mat á fýsileika rafeldsneytis fyrir flug- vélar, en það er alfarið háð þróun hjá flugvélaframleiðendum og sam- þykki flugmálayfirvalda. Eftir Guðmund Pétursson Guðmundur Pétursson » Framleiðsla og notkun rafeldsneytis hér innanlands getur stórlega minnkað inn- flutning og útgjöld þjóð- arinnar. Höfundur er rafmagnsverkfræð- ingur, fyrrverandi verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun og nú forstöðumaður Norður Renewables Iceland ehf. Rafeldsneyti – orkuskipti í samgöngum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.