Morgunblaðið - 26.10.2021, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021
✝
Jakob Fannar
Sigurðsson
fæddist í Reykjavík
19. febrúar 1992.
Hann lést 13. októ-
ber 2021.
Hann var sonur
Rakelar Einars-
dóttur og Sigurðar
R. Sigurliðasonar.
Bróðir Jakobs er
Andri Freyr Jóns-
son, fæddur 18. júlí
1996.
námi. Hann lauk námi í flug-
virkjun og starfaði sem slíkur
hjá Icelandair. Hann var ævin-
týragjarn og hafði ferðast út um
allan heim.
Jakob sinnti margskonar
áhugamálum og félagsmálum af
krafti, var t.d. í Björgunarsveit
HSSK og síðustu árin í Odd-
fellow.
Sambýlismaður Jakobs er
Björgvin Helgason. Þeir höfðu
komið sér upp heimili að Garðs-
horni í Hörgársveit.
Útförin fer fram frá Digra-
neskirkju 26. október 2021
klukkan 15.
Streymt verður frá útför:
https://youtu.be/KhknlDdAnhg
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Stjúpfaðir þeirra
er Baldur Vil-
hjálmsson.
Hálfsystkini Jak-
obs í Bandaríkj-
unum eru Hanna
Ragnar og Jett
Ragnar.
Jakob Fannar
byrjaði ungur sem
ljósmyndari hjá
Morgunblaðinu,
auk þess að sinna
ýmsum öðrum störfum með
Elsku fallegi Jakob okkar.
Þó sólin nú skíni á grænni grundu
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kallaður á ör-
skammri stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göf-
uga og góða,
svo fallegur, einlægur og hlýr.
En örlögin þín ráðin – mig setur
hljóða,
við hittumst samt aftur á ný.
Megi algóður guð þína sálu nú
geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó kominn sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Höf. ók.)
Mamma og Baldur.
Í dag kveðjum við lífsglaða,
fallega og frábæra gullmolann
okkar.
Heilsteyptur og tryggur vin-
ur er fallinn frá.
Hans verður sárt saknað.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið loga skæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(Friðrik Guðni Þórleifsson)
Afi Einar og amma Rut.
Jakob Fannar var einn af
mínum bestu og traustustu vin-
um, hann var alltaf til í allt,
sama hvað. Það skipti ekki máli
hvort það var að fara til New
York með sólarhringsfyrirvara
eða einfaldlega út í ísbúð, alltaf
var Jakob til. Hann vissi öll
mín leyndarmál og ég hans og
alltaf þegar eitthvað bjátaði á
gat maður treyst því að Jakob
væri með kveikt á símanum
sínum og myndi gefa góð ráð.
Þegar ég lít yfir farinn veg
okkar vinanna saman, er frá
svo mörgu að segja en bestu og
skemmtilegustu sögurnar eru
víst varla birtingarhæfar í
minningargrein í Morgun-
blaðinu. Það sem tengdi okkur
þó helst saman var áhugi okkar
á ferðalögum. Við fórum víða
og oftast var ferðin ekki plönuð
með meira en nokkra daga fyr-
irvara. Við fórum seinast sam-
an til Baltimore á NFL-leik í
janúar 2020. Það var ein
skemmtilegasta ferð sem ég hef
farið í og mun ég búa að þeirri
minningu sem og öðrum alla
mína ævi. Við félagarnir geng-
um einnig saman í Oddfellow-
regluna árið 2019 og sá ég hvað
hann naut sín í botn í þeim fé-
lagsskap. Það er stórt skarð
höggið í fimmtudaga hjá mér,
en þá nýttum við til að fara
saman út að borða fyrir fund í
stúkunni þegar Jakob kom að
norðan.
Þann 26. september síðast-
liðinn skírðum við Erna litla
strákinn okkar og var Jakob
skírnarvottur drengsins. Verð
ég ævinlega þakklátur fyrir að
þeir hafi fengið tækifæri til
þess að eiga þá tengingu og
mun ég halda minningu Kobba
frænda á lífi við litla Magnús
minn. Ég er einnig mjög þakk-
látur fyrir stundina sem þeir
vinirnir áttu saman hér á heim-
ili okkar föstudaginn fyrir and-
látið en þá bauðst Jakob til
þess að sitja með stráknum á
meðan ég skaust frá að sækja
mömmuna. Það kom mér mikið
á óvart þegar sonur okkar
fæddist hvað Jakob hafði ótrú-
legt lag á börnum en litla
kveisubarnið snarhætti að
gráta um leið og hann var kom-
inn í fangið á Kobba frænda.
Það gerir mig óendanlega sorg-
mæddan að vita að stundir okk-
ar saman verði ekki fleiri en ég
mun gera mitt til að halda
minningunni um yndislegan
dreng á lífi.
Guð geymi þig, elsku dreng-
urinn minn.
Lífið er yndislegt.
Heiðar Smith.
Elsku Kobbi sinn. Fyrir átta
árum fangaðir þú þrjú hjörtu á
svipstundu. Vinátta okkar hef-
ur alla tíð síðan einkennst af
kærleika, trausti, einlægni, um-
hyggju og hlátri. Við munum
ávallt varðveita allar þær minn-
ingar sem þú gafst okkur. Allar
þær samræður sem áttu sér
stað í bíltúrunum, Hilton-hitt-
ingarnir, heimsóknirnar á bar-
inn til okkar og allir viðburð-
irnir sem við náðum að draga
þig á með okkur. Þú passaðir
alltaf svo vel upp á okkur og
gafst þér alltaf tíma til að vera
til staðar.
Þegar fréttirnar bárust var
eins og veröldin hefði hrunið og
mikill tómleiki í hjarta okkar
tók við. Söknuðurinn er ólýs-
anlegur, á hverju horni sjáum
við eitthvað sem minnir á þig
en á sama tíma á þá staðreynd
að þú ert farinn. Við munum þó
ávallt geyma þig innst við
hjartarætur og vitum að sama
hvað bjátar á verður þú alltaf
með í för hvert sem leiðin ligg-
ur.
Lífið var yndislegt með þér.
Í söknuði dvelja dökkir skuggar
sem þunga setur í brjóst.
En lýsast upp þessir dimmu gluggar
er ég minnist þess hvernig þú hlóst.
Það er mun betra að minnast þess
hve ljúft mitt líf var með þér.
Og alltaf áttu þinn fasta sess
merktan þér í hjarta mér.
(Gunnhildur Erla)
Þínar að eilífu, hepp hepp,
Ástrós, Dagmar og
Gunnhildur.
Okkur setur hljóð við váleg
tíðindi og yfir streyma góðar
minningar um glaðlegan og
skemmtilegan dreng.
Jakob Fannar vinur okkar er
fallinn frá langt fyrir aldur
fram.
Við kynntumst Jakobi í
gegnum son okkar Heiðar, en
þeir voru vinir og gott ef ekki
var hann í jólasveinabúningi
þegar við sáum hann fyrst.
Þegar hann kom til að heim-
sækja Heiðar leit hann alltaf
við hjá okkur og leyfði okkur
að fylgjast með öllu sem hann
var að gera. Sagði okkur frá
náminu í flugvirkjun og sögur
úr vinnunni.
Árið 2019 kom hann að máli
við mig og lýsti áhuga á að
ganga í Oddfellowregluna og
var mjög gaman að fylgja hon-
um þar inn, stoltu glæsimenni í
kjólfötum. Þarna var maður
sem virkilega var tilbúinn að
taka þátt í uppbyggilegu fé-
lagsstarfi og gefa vel af sér til
náungans. Stundaði hann stúk-
ustarfið vel og tók strax þátt af
heilum hug í öllum þeim verk-
efnum sem honum voru falin.
Hann gaf okkur afurðir úr
sveitinni fullur af gleði, með
sögum þar sem hann fann ham-
ingjuna með Björgvini eftir að
hafa misst vinnuna vegna Co-
vid-faraldursins. Þar gekk hann
með jákvæðni og áhuga til allra
starfa hvort sem það var að
rækta kartöflur, fagna lömbum
í heiminn eða að fóstra kiðling
inni hjá sér. Sögurnar voru
endalausar.
Þegar sonur Heiðars og
Ernu var skírður tók hann
stoltur að sér það hlutverk að
vera skírnarvottur nafna míns
og á þeim stutta tíma sem lið-
inn er flaug hann oft suður sér-
staklega til að veita allan þann
stuðning sem hann átti til og að
líta til með litla vini sínum en
þar sýndi hann takta sem hann
væri fullnuma ljósmóðir í með-
höndlun á guðssyni sínum.
Genginn er heill og góður
drengur alltof fljótt.
Við vottum okkar innilegustu
samúð til Björgvins og fjöl-
skyldunnar og allra þeirra sem
eiga um sárt að binda vegna
fráfalls Jakobs Fannars.
Guð geymi þig elsku vinur,
minningin um góðan dreng og
Oddfellowbróður lifir.
Magnús Smith og Ólöf Inga.
Vorið 2008 stóðu mótmæli
vörubílstjóra sem hæst. Þetta
voru stórtíðindi á Íslandi, ein
háværustu mótmæli í langan
tíma. Ljósmyndarar Morgun-
blaðsins voru á vettvangi þegar
mest gekk á og þannig var því
einnig farið með dökkhærðan
grannvaxinn ungling sem fylgd-
ist af athygli með fagmönnun-
um að störfum og myndaði
sjálfur í gríð og erg. Það var
einmitt við þetta tækifæri sem
Júlli hitti Kobba fyrst. Og það
var frá fyrstu kynnum augljóst
að ungi maðurinn hafði metnað
fyrir því að verða fréttaljós-
myndari og það áræði sem til
þurfti.
Fyrstu myndirnar eftir hann
voru birtar í Mogganum um
þetta leyti. En hann varð þó að
bíða eftir því að fá vinnu við
sumarafleysingar því fyrst varð
hann að taka bílprófið!
Ári síðar var hann mættur
upp á Mogga með ökuskírteinið
í vasanum. Gekk með Júlla um
ritstjórnina og brosti feimnis-
lega til allra sem hann átti eftir
að vinna með næstu vikurnar.
Kominn með draumastarfið en
eflaust kvíðinn meðal „risanna“
– hinnar samrýndu ljósmynda-
deildar sem skartaði bestu
fréttaljósmyndurum landsins.
Það var draumur að vinna með
Kobba. Hann var viljugur til
allra verka og sérlega vand-
virkur. Vildi læra og það hratt.
Hann var einstaklega hógvær
en það fór ekkert á milli mála
hvað það gladdi hann að fá hrós
fyrir myndirnar sínar enda
voru þær sumar valdar til að
vera á útsíðum blaðsins. Þá
kom þetta fallega blik í augun,
sem okkur fannst alltaf svo ein-
kennandi fyrir hann.
Sumrin hans á Mogganum
urðu tvö en hann var þar þó
viðloðandi í mörg ár. Kom
margsinnis með ábendingar
enda með gott fréttanef og
sendi fréttastjórum myndir af
vettvangi ýmissa atburða. Oft á
undan nokkrum öðrum.
Á júníkvöldi árið 2014 steig
reykur til himins úr Skeifunni.
Jón Pétur Jónsson, fréttastjóri
á mbl.is, var á kvöldvaktinni er
ábendingar og myndir af reykj-
Jakob Fannar
Sigurðsson
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐLAUG STEINGRÍMSDÓTTIR,
lést á Hjúkrunarheimilinu Seltjörn
miðvikudaginn 13. október.
Útför fer fram frá Neskirkju föstudaginn
29. október klukkan 13.
Blóm afþökkuð, látið líknarstofnanir njóta.
Jóhannes Long Ása Finnsdóttir
Guðlaugur Long Anna Jónsdóttir
Steingrímur Long Hrefna Sigurðardóttir
Ásta Long Örlygur Ásgeirsson
Árni Long Sigurveig Ólafsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma
og langamma,
KOLBRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Boðaþingi 22, Kópavogi,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
föstudaginn 15. október.
Útförin fór fram í kyrrþey að hennar ósk.
Valdimar Friðrik Einarsson
Eygló Þorkelsdóttir
ömmu- og langömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐMUNDA SIGRÍÐUR
GUNNLAUGSDÓTTIR,
lést í faðmi fjölskyldunnar á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn
20. október. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 29. október klukkan 13.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Grundar fyrir frábæra umönnun.
Olga Sigríður Marinósdóttir Gunnar Örn Jakobsson
Friðjón Albert Marinósson Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir
Gunnlaugur Marinósson Magnea Guðný Hjálmarsdóttir
Rúnar Örn Marinósson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, afi,
tengdafaðir og bróðir,
JÓN BRYNJÓLFSSON,
Sóltúni 10,
lést 11. október. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Sjöfn Ólafsdóttir
börn, barnabörn, tengdabörn og systir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA PÉTURSDÓTTIR,
Dalseli 20, Reykjavík,
andaðist laugardaginn 16. október
á Landspítalanum Fossvogi.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 27. október
klukkan 13. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild B7
Landspítala Fossvogi.
Guðrún Guðbjartsdóttir Guðjón Þ. Sigfússon
Kristinn H. Guðbjartsson Laufey Ó. Hilmarsdóttir
Álfheiður J. Guðbjartsdóttir Olaf Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku hjartans móðir mín, tengdamóðir,
systir, mágkona, frænka og kærleiksljós
fjölskyldu og vina,
ÁSLAUG M.G. BLÖNDAL,
lést fimmtudaginn 7. október. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Björg Catherine Blöndal Þorkell Ragnar Grétarsson
Guðmundur Blöndal
og fjölskylda
Haraldur G. Blöndal María Aldís Kristinsdóttir
og fjölskylda
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞURÍÐUR BERGMANN JÓNSDÓTTIR,
Þingholtsstræti 13, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 21. október. Útförin fer
fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
29. október klukkan 15.
Valtýr Guðmundsson
Oddur Már Gunnarsson
Sólveig Kr. Bergmann
og aðrir ástvinir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar