Morgunblaðið - 26.10.2021, Page 21

Morgunblaðið - 26.10.2021, Page 21
arbólstrunum fóru að berast. En það var ekki fyrr en Kobbi hringdi af vettvangi og sendi myndir úr návígi að ljóst var að þetta var stórbruni. Fyrst- ur með fréttirnar – fyrstur með nærmyndirnar. Ritstjórn mbl.is hlaut tæpu ári síðar blaðamannaverðlaun fyrir umfjöllunina um Skeifu- brunann. Við létum hann strax vita af tíðindunum og þökk- uðum honum fyrir hans mik- ilvæga þátt. Eins og alltaf þakkaði hann fyrir af hógværð en hló þegar við sögðumst enn hafa hann grunaðan um að hafa kveikt í, svo snöggur hefði hann verið á vettvang. Kobbi hélt áfram að taka myndir en ástríða hans leitaði í aðrar áttir og hann fór utan í flugvirkjanám. Vinátta okkar hélst áfram og við fylgdumst bæði stolt með honum í nýjum verkefnum, fallega drengnum með þægilegu nærveruna, ró- lega fasið, hlýju augun og feimnislega brosið. Ástvinum Jakobs Fannars sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hann var sannarlega gulldrengur. Sunna Ósk Logadóttir og Júlíus Sigurjónsson. Elsku hjartans Jakob Fann- ar minn. Þú birtist glaðbrosandi og sóttir um vinnu sem dyravörð- ur hjá mér, allt of ungur en svo sætur og mikið krútt að þú varst ráðinn á staðnum. Og þrátt fyrir allt of ungan aldur sannaðist það fljótt að þú varst hörkuduglegur, sniðinn í starf- ið og einstaklega vinsæll. Með tímanum þróaðist með okkur mjög sérstök vinátta bæði í og utan vinnu. Við hittumst oft og okkar „thing“ var að heilsast með kallinu halló og faðmast. Þegar NASA var lokað hjálp- aðir þú mér að tæma staðinn og varst mín stoð og stytta, stappaðir í mig stálinu og sagðir: „Ingólfs (eins og þú kallaðir mig oft), þetta verður allt í lagi,“ og upphófst ferða- sumarið mikla ásamt öðru NASA-staffi og vinum. Við keyrðum út um allt og áttum ógleymanlegar stundir öll saman. Ég og þú héldum áfram að hittast af og til í bur- ger. Síðast þegar við heyrð- umst töluðum við um að nú væri kominn tími á burger, af því verður víst ekki. Ég vaknaði fyrir tveimur vikum og varð hugsað svo mik- ið til þín. Elsku Kobbi minn, gulldrengurinn af NASA, ég skil ekki af hverju þú ert far- inn. Megi góður Guð taka á móti þér opnum örmum. Ég sé þig fyrir mér þarna uppi með þitt fallega bros og útréttan faðminn, með Bono þér við hlið. Megi góður Guð veita mömmu þinni, stjúpa og þín- um nánustu styrk á þessum erfiða og óskiljanlega tíma. Hvíldu í friði, gulldrengurinn minn, og okkar allra. Kveðja, þín Ingibjörg (Inga) á NASA. Við systur vorum sannar- lega heppnar þegar stóri bróð- ir okkar kynntist henni Rakel sinni. Ekki einungis eignuð- umst við góða vinkonu, heldur fylgdu henni tveir ungir fal- legir drengir sem bættust við glæsilegan barnahóp fjölskyld- unnar. Ríkidæmið okkar. Jakob og Andri urðu strax órjúfanlegur hluti af því, bróð- ursynir okkar og frændur barnanna okkar. Jakob ljúfur, myndarlegur, örlítið hlédrægur og mátulega stríðinn. Hann kunni að gleðj- ast og gleðja aðra, upplifa augnablikið og hrífa aðra með sér. Hann var duglegur að ferðast og njóta lífsins. Með honum urðu jólaboðin ævintýri, því hann sá alltaf til þess að jólaveinarnir mættu til að gleðja börn og fullorðna. Þá glitti sko í stríðnispúkann og Baldur bróðir varð að gjöra svo vel að hlýða Skyrgámi, standa uppi á stól og syngja með jóla- lögunum, en það þótti börnun- um fyndið. Og okkur reyndar líka. Það var upplifun að kíkja í heimsókn í Garðshorn til þeirra Jakobs og Björgvins. Þar fengu börnin okkar að kynnast sveit- inni þeirra, sjá nautgripi, klappa nýköstuðum folöldum, geitum og heimalningum. Og Jakob alltaf þolinmóður með bros á vör. Það er svo sárt að þurfa að horfast í augu við okkar stærsta ótta í lífinu. Við höfum misst úr ríkidæminu okkar, eitt sæti er autt til framtíðar. Elsku hjartans Björgvin, Andri, Rakel og Baldur, Villi, Steinþór, Einar og Rut, og við öll sem þekktum og elskuðum Jakob, sársaukinn verður alltaf til staðar og við stöndum frammi fyrir því erfiða verkefni að læra á lífið án Jakobs, en við lofum honum að halda áfram og kenna börnunum okkar að njóta, upplifa augnablikið og trúa á jólasveinana. Laufey, Þórey og Arney. Kæri vinur minn. Í dag kveð ég þig í hinsta sinn. Ég hef undanfarið verið að lesa geng- um gömul skilaboð okkar á milli og hugsa um liðna tíma. Hversu mikilvægt það var mér að þú sýndir mér alltaf að vin- átta okkar var góð, sterk og traust, sama hversu mikið gekk á í lífinu. Ég kynntist þér fyrst þegar þú varst að vinna á Nasa og um tíma unnum við mikið saman. Við tókum svo sannarlega þátt í ýmsu misgáfulegu en það sem eftir situr eru góðar minningar um þig og vináttu þína. Hugmyndaflug þitt og að- dráttarafl þegar kom að því að draga mig og fleiri úr húsi var magnað. Mér leið vel í návist þinni og vona ég innilega að til- finningin hafi verið gagnkvæm. Mér er búið að vera afar minn- isstæð ferð sem við fórum í saman til Selárvíkur fyrir nokkrum árum. Ferðina sjálfa hef ég hugsað minna um en ferðalagið þangað. En þú varst förunautur minn í 9-10 tíma akstri sem innihélt ratleik, rat- leik sem þú ætlaðir að vinna. Má segja að þetta hafi verið með betri rúntum sem ég hef farið á og átt þú heiðurinn af því. Leiðin til baka snerist ekki um ratleik, en þá töluðum við saman alla ferðina. Mér fannst ég þá fyrst kynnast þér fyrir alvöru. Síðan hefur margt gerst, tíminn og lífið dregið okkur í ýmsar áttir, en mikið var alltaf gaman að rekast á þig og spjalla. Þú sagðir mér frá öllu sem þú hafðir verið að bardúsa með bros á vör allar stundir. Spurðir hvernig væri með mig, hvort þú gætir eitthvað fyrir mig gert, hvort mig gæti vant- að eitthvað frá þér. Mikið sem mig myndi langa að eiga eitt svona spjall við þig aftur kæri vinur minn. Ég vil að endingu kveðja þig með hluta úr ljóði, ljóði sem kom í huga minn um leið og ég heyrði að þú hefðir nú kvatt þennan heim. Hvert andartak verður að ári hver einasta hugsun að sári hver tilfinning að tári. Reyni samt að dreyma opna nýja heima sorgum virðist erfitt að gleyma (Davíð Stef.) Góða ferð elsku Jakob, takk fyrir allar góðu stundirnar og vináttuna. Tjörvi Guðjónsson. Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlát- um og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar upplýsingar ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar- greinar Hægt er að lesa minningargreinar, skrifa minningargrein ogæviágrip. Þjónustu- skrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlát ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendur við fráfall ástvina Minningarvefur á mbl.is MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.