Morgunblaðið - 26.10.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 26.10.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021 Límtré • Vatnsfráhrindandi olíuborið límtré • Hægvaxið gæðalímtré • Sérsmíðum eftir máli Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is „EF TIL VILL ER LAUS STAÐA Í TÆKNIDEILDINNI OKKAR. ÉG GET SÉÐ ÞAÐ UM LEIÐ OG HELVÍTIS SÍÐAN OPNAST.“ „ÉG FINN EKKI SPJALDIÐ HANS. ER ÞAÐ UNDIR „B“ FYRIR BRJÁLAÐI EÐA „H“ FYRIR HESTUR? Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að flýta sér heim. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GRETTIR, ÉG HLÓÐ NIÐUR NÝJU MEGRUNAR-APPI. ÞÚ TEKUR BARA MYNDOG ÞAÐ SEGIR ÞÉR FITUINNIHALDIÐ SMELL JÆKS! HEPPNI EDDI! FJARLÆGÐU FLÍSINA ÚR FÆTINUM Á MÉR FYRIR MIG! ÉG ER EKKI RÉTTI MAÐURINN Í VERKIÐ! ÉG GET EKKI HALDIÐ ANDANUM NIÐRI Í MÉR NÓGU LENGI! MANNAUÐS- STJÓRI ÆTLAR ÞÚ AÐ BORÐA ÞENNAN? höfum líka brennandi áhuga á tónlist og kvikmyndum. Við lifum á spenn- andi tímum. Það er svo margt sem hægt er að njóta gegnum streymis- veitur og hefur verið dýrmætt á tím- um covid-19, en auðvitað söknum við ferðalaga. Það þarf að halda heilsunni í lagi með góðri hreyfingu og þar er skemmtilegast af öllu að æfa ballett með Silfursvönum í Ballettskóla Eddu Scheving. Ég stundaði ballett í Listdansskóla Þjóðleikhússins frá 10-15 ára og tók upp þráðinn eftir 55 ár. Ef heilsan er góð eru efri árin innihaldsrík. Mesta gleði og ham- ingju veita barnabörnin, fjögur stór- veldi á aldrinum 10-25 ára. Fjölskylda Eiginmaður Ásdísar er Erlendur Sveinsson, f. 18.12. 1948, kvik- myndagerðarmaður og fv. forstöðu- maður Kvikmyndasafns Íslands. Þau búa í Hafnarfirði, gamla suður- bænum. Foreldrar Erlends voru hjónin Sólveig Erlendsdóttir, f. 9.3. 1930, d. 3. 1. 1982, húsmóðir, og Sveinn Björnsson, f. 19.2. 1925, d. 28.4. 1997, listmálari, búsett í Hafnarfirði. Börn Ásdísar og Erlends eru: 1) Hlín, f. 7.8. 1971, fiðluleikari og kennari, búsett í Reykjavík. Maki: Bogi Reynisson, f. 1.3. 1976, hljóð- maður; 2) Hallur, f. 19.7. 1974, há- skólanemi, búsettur í Hafnarfirði, ókvæntur. Barnabörnin eru Fidel Atli, f. 1996, Daníel Fróði, f. 2004, Sóley María, f. 2008, Bragi, f. 2011. Systkini Ásdísar eru Hrefna Eg- ilsdóttir, f. 11.8. 1956, leikskólakenn- ari, búsett í Reykjavík, og Dagný Egilsdóttir, f. 18.2. 1959, skrifstofu- stjóri, búsett í Reykjavík. Foreldrar Ásdísar voru hjónin Erla Sigurjónsdóttir, f. 16.5. 1928, d. 10.1. 2008, sjúkraliði, og Egill Val- geirsson f. 5.3. 1925, 2. 19.6. 2012, hárskeri, búsett í Teigahverfinu í Reykjavík. Ásdís Egilsdóttir Kristján Eggertsson bóndi í Dalsmynni í Hnappadalssýslu Guðný Guðnadóttir húsmóðir í Dalsmynni Valgeir Kristjánsson klæðskeri í Reykjavík Kristín Benediktsdóttir húsmóðir í Reykjavík Egill Valgeirsson hárskeri í Reykjavík Benedikt Benediktsson bóndi á Sauðhúsum Þorbjörg Jóhannesdóttir húsmóðir á Sauðhúsum í Laxárdal, Dal. Guðmundur Jónsson bóndi á Eyrarbakka Kristín Brynjólfsdóttir húsmóðir á Eyrarbakka Sigurjón Guðmundsson verkstjóri í Reykjavík Kristjana Guðmundsdóttir húsmóðir í Kópavogi Guðmundur Guðmundsson sjómaður á Hrauni Kristín Aðalsteinsdóttir húsmóðir á Hrauni í Dýrafirði Ætt Ásdísar Egilsdóttur Erla Sigurjónsdóttir sjúkraliði í Reykjavík Kristján Karlsson yrkir: Með tilfinning mjúka sem tekk hún tíndi úr orðskviðasekk alla bragðverstu mola sem við börn megum þola og brosti eins og kerti í trekk. Pétur Stefánsson skrifar mér: „Nú þegar vetur gengur í garð verða til svona vísur“: Kominn vetur, kólnar tíð, kveð ég sumardaga. Brátt mun nöpur norðanhríð nísta menn og plaga. Á Boðnarmiði birtir Gunnar J. Straumland þessar stökur „Úr heil- ræðabálki“: Allra mest við eygjum flest ótal bresti náungans. Mannsins lesti munum best mitt í verstu stundum hans. Tungukorða temja skal, taum og skorður finna. Gaspur forðast, göfga tal, gæta orða sinna. Hólmfríður Bjartmarsdóttir birt- ir „Eitt gamalt haustkvæði“, gull- fallegt: Ljóskeilur bílanna lýsa upp fannbarða kletta litlar stjörnur úr frosthörðum mosanum spretta og uppúr veganna ís. Þvílíkar stjörnur og norðurljós næstum of skær. nú verður dagurinn aftur skemmri en í gær Ég heyri og finn hvernig frýs. Nótt eftir nótt hefur vindurinn sungið sinn söng. Söngskemmtun vinda er dulúðug mögnuð og löng en oftast með óþíða hljóma. Í suðri er ljósrönd að breytast úr bláu í rautt blómið á rúðunni ljómar, þó það sé dautt í frumskógi frosinna blóma. Friðrik Steingrímsson segir: „Þessi var fyrirsögn á mbl.is: Bjargar Adam og Evu“: Er um málin þrotlaust þvargað þó má segja bless, því Adam verður ekki bjargað, Eva sá til þess. Gunnar Hólm Hjálmarsson segir „Svo á himni sem á jörðu“: Upp til himna er ég sný andans býður gróði og skatturinn kemst ekki í alla mína sjóði. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kerti í trekk og nöpur norðanhríð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.