Morgunblaðið - 26.10.2021, Side 29

Morgunblaðið - 26.10.2021, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ S . F. C H R O N I C L E B B C T I M E O U T 84% SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný mynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. S undurgerð og visst kæru- leysi eru meðal grunntón- anna í Sýningunni okkar, ríflega klukkustundarlöngu nýju leikverki sem leikhópurinn Konserta sýnir á Loftinu, smárými uppi í rjáfri Þjóðleikhússins. Loftið hefur verið helgað barna- og brúðu- leiksýningum en það fer líka vel á að gera það að tilraunastofu fyrir ungt leikhúslistafólk og aðra sem vilja reyna sig. Flest af því sem þar var boðað í kynningarbæklingi leikhúss- ins eru „verk í vinnslu“, en sá fyrir- vari er ekki gerður við Sýninguna okkar, þótt vel mætti hugsa sér frek- ari úrvinnslu meginefnis hennar. Engan þarf að undra að leikhópur sem vísar með nafni sínu í vel þekkt lyf gegn ofvirkni og athyglisbresti hlaupi svolítið út undan sér, haldi ekki alltaf þræði. Þannig er megin- efni Sýningarinnar okkar brotið upp með stuttum atriðum, „sketsum“, sem sumir eiga að vera nokkurs kon- ar treilerar, eða kynningarbrot úr sýningum Þjóðleikhússins; þakklæt- isvottur fyrir aðstöðuna og hjálpina sem Konserta hefur notið í húsinu. Það fer nú svona og svona: kynn- ingarstikla um Framúrskarandi vin- konu tengist verki Elenu Ferrante ekki hætishót, en skoðar þess í stað vináttuna sem fyrirbæri á gervi- dramatískan hátt, og ekki sérlega skemmtilegt sem slíkt. Og eitthvað hefur slegið út í fyrir hópnum þegar þau ákváðu að stiklugera söngleik um sjálfan Bubba Morthens. Bráð- fyndið atriði, fyrir utan kómíkina í að hafa það yfirleitt með. Annars er svolítið eins og Konserta-fólk sé á báðum áttum með hvort það sé verðugt verkefni að koma fólki til að hlæja. Jafnvel þar sem efniviðurinn er í grunninn skoplegur, og efnistökin háðsk er eins og þau vilji ekki stíga grín- skrefið til fulls. Það er eins og þeim finnist þau ekki vera, eða vilja vera, „þannig“ listamenn. Þau eigi alvar- legra erindi. Þannig verða sketsarnir aldrei alveg nógu snjallir, og þeir búa forms síns vegna heldur ekki yfir möguleikum til að segja eitthvað djúpt eða sérlega satt um fólkið í þeim eða gefa áhorfendum bitastætt efni til að máta við sig og sitt líf. Þetta er vandratað einstigi sem Konserta hrasar stundum á. Þau Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís Aldísar Razou- meenko komast öllu nær „alvöru“ áhrifum í meginefni sýningarinnar: sögunni af unga parinu Heiðbrá og Þresti, sem fengu opinberun með hjálp afurða kakóplöntunnar í Mið- Ameríku, sérstaklega Heiðbrá sem glímir við afleiðingar óskilgreindra áfalla. Og eins og sannir nútíma Ís- lendingar vilja þau deila þessari op- inberun með öllum, sérstaklega öll- um sem eru eitthvað í samfélaginu. Því að sjálfsögðu er þetta unga og andlega þenkjandi hugsjónafólk líka markaðsfræðingar og ætla sér stóra hluti í viðskiptalífinu. Hvort mann- ræktarhugsjónin er skel utan um kapítalíska eðlishvötina eða öfugt verður aldrei ljóst. En vöruvæðing sjálfsleitarinnar er vissulega á loka- stigi í samfélagi okkar og verðugt viðfangsefni. Hvort fyrirlestur Heiðbrár í Eld- borg verður að veruleika, eða hafi jafnvel farið fram og lukkast vonum framar, fáum við ekki að vita. Ekki heldur hvort „rítrítið“, eða afdrepið sem þau eru að skipuleggja til að kynna öllum sem einhverju máli ná í velgengniskreðsunum fyrir dásemd- um kakósins, stendur undir vænt- ingum. Ég saknaði að sjá framvindu í broslegu bjástri þeirra skötuhjúa. Einhverjar alvöruhindranir, ein- hverja safaríka bresti í sambandinu. Og kannski aðeins einarðari afstöðu til efnisins. Fínlegu blæbrigðin í valdataflinu voru ágætlega teiknuð, sérstaklega eftir að stirðleikinn fór af Jóhanni og Tatönju eftir fyrsta atriðið. Drep- fyndnar upptalningar á merkilega fólkinu sem þurfti að bjóða og blíðka urðu því sniðugri sem þær urðu endalausari. Alltaf á mörkunum að breytast í hina dýrðlegu Bílastæða- verði Fóstbræðragengisins. Og fal- legt og snjallt þegar þær þulur runnu saman við þakkarlista leik- aranna sjálfra til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg við gerð sýning- arinnar. Við getum nefnt Karl Ágúst Þorbergsson dramatúrg, leikmynda- hönnuðinn Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur, búninga Ernu Guð- rúnar Fritzdóttur og lýsingu Jóhanns Friðrik Ágústssonar. Og Hákon Jóhannesson sem bregður sér í nokkur smáhlutverk. Enginn er titlaður leikstjóri í kynningarefni sýningarinnar. Í sýningunni sjálfri eru nokkur sögð hafa lagt til efni fyrir utan þau Jóhann og Tatönju, þar á meðal Ragnar Kjartansson, danshöfundurinn Katrín Gunnars- dóttir og Margrét Bjarnadóttir. En á endilega að leggja trúnað á það? Þetta er þegar öllu er á botninn hvolft fólk sem heldur að 9 líf séu sýnd í Þjóðleikhúsinu. Það eru ónýttir möguleikar í meginefni Sýningarinnar okkar. Ég hefði viljað meira drama, meiri átök, skýrari afstöðu. Minna af hálfvolgri kaldhæðni, þótt sniðug sé. Þó að það hefði kostað hefðbundnari vinnu- brögð og ófrumlegra form þá held ég að það hefði verið þess virði. Í afdrepi Áhrif „Þau Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís Aldísar Razou- meenko komast öllu nær „alvöru“ áhrifum í meginefni sýningarinnar: sög- unni af unga parinu Heiðbrá og Þresti,“ segir í dómi um Sýninguna okkar. Þjóðleikhúsið Sýningin okkar bbbmn Eftir Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjönu Dís Aldísar Razoumeenko. Dramatúrg: Karl Ágúst Þorbergsson. Leikmynd: Hallveig Kristín Eiríksdóttir Búningar: Erna Guðrún Fritzdóttir. Lýs- ing: Jóhann Friðrik Ágústsson. Leik- munir: Halldór Sturluson. Tónlist/ hljóðmynd: Guðlaugur Hörðdal Ein- arsson og Kári Guðmundsson. Leikarar: Jóhann Kristófer Stefánsson, Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko og Hákon Jó- hannesson. Leikhópurinn Konserta frumsýndi á Loftinu í Þjóðleikhúsinu föstudaginn 22. október 2021. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST „Verkið Eyður eftir sviðslistahóp- inn Marmarabörn hefur verið valið til sýningar á stóra sviði hins glæ- nýja finnska danshúss, Tanssin Talo, sem opnar í Helsinki í febrúar 2022. Sviðið sem um ræðir, Erkko Hallen, er það stærsta og fullkomn- asta sem reist hefur verið fyrir dans og kóreógrafíu í Finnlandi,“ segir í tilkynningu frá hópnum. Þar kemur fram að verkið hafi verið sýnt á norrænu danshátíðinni Ice Hot Nordic Dance og þar „valið úr hundruðum umsókna sem bárust og verður eitt þriggja stórverka sem prýða mun hátíðina. Danska sviðslistakonan Mette Ingvartsen sýnir verk sitt Moving in Concert og hinn heimsþekkti dansflokkur Cullberg sýnir On Earth I’m done: Mountains.“ Danshátíðin Ice Hot Nordic Dance er haldin annað hvert ár og er næst haldin í Helsinki 9.-13. febr- úar 2022. Markmið hátíðarinnar er að kynna norrænan samtímadans fyrir alþjóðlegum gestum. Eyður var frumsýnt í Þjóðleik- húsinu í janúar 2020 og hlaut lof gagnrýnenda. Það var tilnefnt til Grímunnar í 11 flokkum og vann verðlaun fyrir sviðshreyfingar, frumsamda tónlist og búninga. Ljósmynd/Owen Fiene Plast Tilkomumiklir búningar. Eyður í Helsinki í febrúar - Marmarabörn sýna í nýrri danshöll

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.