Morgunblaðið - 26.10.2021, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
S . F. C H R O N I C L E
B B C
T I M E O U T
84%
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Frábær ný mynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali.
S
undurgerð og visst kæru-
leysi eru meðal grunntón-
anna í Sýningunni okkar,
ríflega klukkustundarlöngu
nýju leikverki sem leikhópurinn
Konserta sýnir á Loftinu, smárými
uppi í rjáfri Þjóðleikhússins. Loftið
hefur verið helgað barna- og brúðu-
leiksýningum en það fer líka vel á að
gera það að tilraunastofu fyrir ungt
leikhúslistafólk og aðra sem vilja
reyna sig. Flest af því sem þar var
boðað í kynningarbæklingi leikhúss-
ins eru „verk í vinnslu“, en sá fyrir-
vari er ekki gerður við Sýninguna
okkar, þótt vel mætti hugsa sér frek-
ari úrvinnslu meginefnis hennar.
Engan þarf að undra að leikhópur
sem vísar með nafni sínu í vel þekkt
lyf gegn ofvirkni og athyglisbresti
hlaupi svolítið út undan sér, haldi
ekki alltaf þræði. Þannig er megin-
efni Sýningarinnar okkar brotið upp
með stuttum atriðum, „sketsum“,
sem sumir eiga að vera nokkurs kon-
ar treilerar, eða kynningarbrot úr
sýningum Þjóðleikhússins; þakklæt-
isvottur fyrir aðstöðuna og hjálpina
sem Konserta hefur notið í húsinu.
Það fer nú svona og svona: kynn-
ingarstikla um Framúrskarandi vin-
konu tengist verki Elenu Ferrante
ekki hætishót, en skoðar þess í stað
vináttuna sem fyrirbæri á gervi-
dramatískan hátt, og ekki sérlega
skemmtilegt sem slíkt. Og eitthvað
hefur slegið út í fyrir hópnum þegar
þau ákváðu að stiklugera söngleik
um sjálfan Bubba Morthens. Bráð-
fyndið atriði, fyrir utan kómíkina í
að hafa það yfirleitt með.
Annars er svolítið eins og
Konserta-fólk sé á báðum áttum
með hvort það sé verðugt verkefni
að koma fólki til að hlæja. Jafnvel
þar sem efniviðurinn er í grunninn
skoplegur, og efnistökin háðsk er
eins og þau vilji ekki stíga grín-
skrefið til fulls. Það er eins og þeim
finnist þau ekki vera, eða vilja vera,
„þannig“ listamenn. Þau eigi alvar-
legra erindi.
Þannig verða sketsarnir aldrei
alveg nógu snjallir, og þeir búa
forms síns vegna heldur ekki yfir
möguleikum til að segja eitthvað
djúpt eða sérlega satt um fólkið í
þeim eða gefa áhorfendum bitastætt
efni til að máta við sig og sitt líf.
Þetta er vandratað einstigi sem
Konserta hrasar stundum á.
Þau Jóhann Kristófer Stefánsson
og Tatjana Dís Aldísar Razou-
meenko komast öllu nær „alvöru“
áhrifum í meginefni sýningarinnar:
sögunni af unga parinu Heiðbrá og
Þresti, sem fengu opinberun með
hjálp afurða kakóplöntunnar í Mið-
Ameríku, sérstaklega Heiðbrá sem
glímir við afleiðingar óskilgreindra
áfalla. Og eins og sannir nútíma Ís-
lendingar vilja þau deila þessari op-
inberun með öllum, sérstaklega öll-
um sem eru eitthvað í samfélaginu.
Því að sjálfsögðu er þetta unga og
andlega þenkjandi hugsjónafólk líka
markaðsfræðingar og ætla sér stóra
hluti í viðskiptalífinu. Hvort mann-
ræktarhugsjónin er skel utan um
kapítalíska eðlishvötina eða öfugt
verður aldrei ljóst. En vöruvæðing
sjálfsleitarinnar er vissulega á loka-
stigi í samfélagi okkar og verðugt
viðfangsefni.
Hvort fyrirlestur Heiðbrár í Eld-
borg verður að veruleika, eða hafi
jafnvel farið fram og lukkast vonum
framar, fáum við ekki að vita. Ekki
heldur hvort „rítrítið“, eða afdrepið
sem þau eru að skipuleggja til að
kynna öllum sem einhverju máli ná í
velgengniskreðsunum fyrir dásemd-
um kakósins, stendur undir vænt-
ingum. Ég saknaði að sjá framvindu
í broslegu bjástri þeirra skötuhjúa.
Einhverjar alvöruhindranir, ein-
hverja safaríka bresti í sambandinu.
Og kannski aðeins einarðari afstöðu
til efnisins.
Fínlegu blæbrigðin í valdataflinu
voru ágætlega teiknuð, sérstaklega
eftir að stirðleikinn fór af Jóhanni og
Tatönju eftir fyrsta atriðið. Drep-
fyndnar upptalningar á merkilega
fólkinu sem þurfti að bjóða og blíðka
urðu því sniðugri sem þær urðu
endalausari. Alltaf á mörkunum að
breytast í hina dýrðlegu Bílastæða-
verði Fóstbræðragengisins. Og fal-
legt og snjallt þegar þær þulur
runnu saman við þakkarlista leik-
aranna sjálfra til allra þeirra sem
lögðu hönd á plóg við gerð sýning-
arinnar. Við getum nefnt Karl Ágúst
Þorbergsson dramatúrg, leikmynda-
hönnuðinn Hallveigu Kristínu
Eiríksdóttur, búninga Ernu Guð-
rúnar Fritzdóttur og lýsingu
Jóhanns Friðrik Ágústssonar. Og
Hákon Jóhannesson sem bregður
sér í nokkur smáhlutverk. Enginn er
titlaður leikstjóri í kynningarefni
sýningarinnar. Í sýningunni sjálfri
eru nokkur sögð hafa lagt til efni
fyrir utan þau Jóhann og Tatönju,
þar á meðal Ragnar Kjartansson,
danshöfundurinn Katrín Gunnars-
dóttir og Margrét Bjarnadóttir. En
á endilega að leggja trúnað á það?
Þetta er þegar öllu er á botninn
hvolft fólk sem heldur að 9 líf séu
sýnd í Þjóðleikhúsinu.
Það eru ónýttir möguleikar í
meginefni Sýningarinnar okkar. Ég
hefði viljað meira drama, meiri átök,
skýrari afstöðu. Minna af hálfvolgri
kaldhæðni, þótt sniðug sé. Þó að það
hefði kostað hefðbundnari vinnu-
brögð og ófrumlegra form þá held ég
að það hefði verið þess virði.
Í afdrepi
Áhrif „Þau Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjana Dís Aldísar Razou-
meenko komast öllu nær „alvöru“ áhrifum í meginefni sýningarinnar: sög-
unni af unga parinu Heiðbrá og Þresti,“ segir í dómi um Sýninguna okkar.
Þjóðleikhúsið
Sýningin okkar bbbmn
Eftir Jóhann Kristófer Stefánsson og
Tatjönu Dís Aldísar Razoumeenko.
Dramatúrg: Karl Ágúst Þorbergsson.
Leikmynd: Hallveig Kristín Eiríksdóttir
Búningar: Erna Guðrún Fritzdóttir. Lýs-
ing: Jóhann Friðrik Ágústsson. Leik-
munir: Halldór Sturluson. Tónlist/
hljóðmynd: Guðlaugur Hörðdal Ein-
arsson og Kári Guðmundsson. Leikarar:
Jóhann Kristófer Stefánsson, Tatjana
Dís Aldísar Razoumeenko og Hákon Jó-
hannesson. Leikhópurinn Konserta
frumsýndi á Loftinu í Þjóðleikhúsinu
föstudaginn 22. október 2021.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
„Verkið Eyður eftir sviðslistahóp-
inn Marmarabörn hefur verið valið
til sýningar á stóra sviði hins glæ-
nýja finnska danshúss, Tanssin
Talo, sem opnar í Helsinki í febrúar
2022. Sviðið sem um ræðir, Erkko
Hallen, er það stærsta og fullkomn-
asta sem reist hefur verið fyrir
dans og kóreógrafíu í Finnlandi,“
segir í tilkynningu frá hópnum.
Þar kemur fram að verkið hafi
verið sýnt á norrænu danshátíðinni
Ice Hot Nordic Dance og þar „valið
úr hundruðum umsókna sem bárust
og verður eitt þriggja stórverka
sem prýða mun hátíðina. Danska
sviðslistakonan Mette Ingvartsen
sýnir verk sitt Moving in Concert
og hinn heimsþekkti dansflokkur
Cullberg sýnir On Earth I’m done:
Mountains.“
Danshátíðin Ice Hot Nordic
Dance er haldin annað hvert ár og
er næst haldin í Helsinki 9.-13. febr-
úar 2022. Markmið hátíðarinnar er
að kynna norrænan samtímadans
fyrir alþjóðlegum gestum.
Eyður var frumsýnt í Þjóðleik-
húsinu í janúar 2020 og hlaut lof
gagnrýnenda. Það var tilnefnt til
Grímunnar í 11 flokkum og vann
verðlaun fyrir sviðshreyfingar,
frumsamda tónlist og búninga.
Ljósmynd/Owen Fiene
Plast Tilkomumiklir búningar.
Eyður í
Helsinki í
febrúar
- Marmarabörn
sýna í nýrri danshöll