Morgunblaðið - 13.11.2021, Side 2

Morgunblaðið - 13.11.2021, Side 2
Varðskipið Þór var tekið upp í flotkví Vélsmiðju Orms og Víg- lundar í Hafnarfirði á fimmtudag. Þar fer fram hefðbundið við- hald og er áætlað að sú vinna taki þrjár vikur. Þór fer svo aftur til eftirlitsstarfa við landið í byrjun desember. Slipptaka Þórs var boðin út í haust og barst eitt tilboð, frá vélsmiðjunni, og hljóðaði það upp á tæpar 49 milljónir króna. Í síðasta mánuði var þess minnst að tíu ár voru liðin frá komu Þórs til landsins. Skipið hafði fyrst viðkomu í Vestmannaeyjum 26. október árið 2011, að viðstöddu fjölmenni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Varðskipið Þór tekið upp til viðhalds í Hafnarfirði 2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021 Opið hús 13. nóvember kl. 14:00 til 14:30 Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt sérmerktu bílskýli. Húsvörður, lyfta. Glæsilegt útsýni til sjávar og stutt í fallega náttúru. Stærð 146,7 fm, þar af geymsla 6,5 fm og stæði í bílskýli 15,9 fm. Sameiginlegur salur/ setustofa með eldhúsi er á 1. hæð. ÞORRAGATA 5, 102 REYKJAVÍK - 63 ÁRA OG ELDRI ERLA DRÖFN MAGNÚSDÓTTIR lögfræðingur/löggiltur fasteignasali 692 0149 erla@fastlind.is Allar nánari upplýsingar veitir: Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Á fundi trúnaðarráðs Eflingar, sem fór fram á fimmtudag, var ekki heim- ilt að ræða um Sólveigu Önnu Jóns- dóttur, fyrrverandi formann félags- ins, eða Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra. Var sú ákvörðun tekin í ljósi þess að þau voru ekki viðstödd. Þetta herma heimildir Morgun- blaðsins en sömu heimildir herma að Sólveig hafi ítrekað óskað eftir því að fá að koma á fund trúnaðarráðsins en þegar hún fékk loks svar við fyr- irspurn sinni hætti hún við. Aldrei fengið vinnufrið Mun hún vilja skýra sína hlið í þeim átökum sem hafa átt sér stað á milli hennar og starfsfólks Eflingar. Sólveig segir starfsfólkið hafa hrakið sig úr formannsstólnum og aldrei gefið sér vinnufrið. Samkvæmt ályktun sem trúnaðar- menn Eflingar afhentu stjórnendum í júní síðastliðnum hefur starfsfólkið upplifað vanlíðan og óöryggi á vinnu- staðnum. Vísaði til athugasemdar Ákveðið var á fundinum að bjóða bæði Sólveigu og Viðari að koma á fund trúnaðarráðsins eftir viku, en þá verður um að ræða aukafund, þar sem ráðið fundar venjulega einu sinni í mánuði. Á fimmtudag var einnig fundur í stjórn Eflingar, sá fyrsti eftir að ný forysta tók við. Sólveig telur að Magnús M. Norð- dahl, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands, hafi gert sambandið van- hæft til aðkomu að málum sem snerta kynbundið ofbeldi og áreiti. Hún greinir frá þessu í facebook- færslu sinni og vísar til athugasemd- ar sem Magnús ritaði við facebook- færslu Tryggva Marteinssonar á fimmtudagskvöld, þar sem hann til- kynnti að sér hefði verið sagt upp störfum hjá Eflingu eftir 27 ár í starfi. Sólveig hefur áður greint frá því að starfsmaður Eflingar hafi hót- að sér ofbeldi, en í færslunni kemur fram að umræddur starfsmaður sé Tryggvi. Ekki náðist í Drífu Snædal, forseta Alþýðusambandsins, við vinnslu fréttarinnar í gær. Óheimilt að ræða Sólveigu og Viðar - Boðað til aukafundar trúnaðarráðs Eflingar - Sólveig hafi hætt við að mæta á fundinn eftir að hafa ítrekað beðið um að fá að mæta - Telur ASÍ vanhæft eftir ummæli lögfræðings hjá sambandinu Morgunblaðið/Eggert Farin Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður, og Viðar Þorsteins- son, fyrrverandi framkvæmdastjóri. Ekki mátti ræða þau tvö á fundinum. Fjöldi eftirskjálfta hefur mælst eftir snarpan skjálfta við Vatna- fjöll, um 7,5 kílómetra suður af Heklu, á fimmtudag sem var 5,2 að stærð og fannst vel á höfuð- borgarsvæðinu. Stærstu eftir- skjálftarnir sem mælst hafa í kjöl- farið voru báðir 2,7 að stærð og varð annar þeirra skömmu eftir miðnætti í gær en hinn klukkan að ganga sex í gærmorgun. „Allir eft- irskjálftarnir eru þarna á svipuðu svæði í Vatnafjöllum,“ sagði Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræð- ingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir skjálftana á svæðinu þó ekki vera að aukast en fylgst sé grannt með þeim. „Skjálftinn varð á Suðurlands- brotabeltinu og þetta er það sem þeir kalla tektonískan skjálfta. Þegar það losnar svona mikil spenna í einu fylgja oft margir eftirskjálftar og eru að finnast í nokkra daga eftir á.“ Nokkrir stórir skjálftar hafa einnig mælst við Bárðarbungu en að sögn Einars mælast oft stærri skjálftar á því svæði síðan eldgos varð í Holuhrauni árið 2014. Fylgst verði áfram með Bárðar- bungu en þó sé ekki óalgengt að þar séu stærri skjálftar. Fjölmargir eftirskjálftar riðið yfir við Vatnafjöll - Stærstu 2,7 að stærð eftir stóra skjálftann á fimmtudag Morgunblaðið/Árni Sæberg Hekla Skjálfti varð á fimmtudag um 7,5 km suður af Heklu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.