Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 37
AFP
Verk sem áður voru í eigu Texas-búans og olíujöfursins
Edwins L. Cox voru seld á uppboði í Christie’s í fyrradag
og fengust alls fyrir þau verk, og önnur sem boðin voru
upp, 751,9 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 105
milljarða króna. Hæsta verðið var greitt fyrir verk úr
Cox-safninu, málverk eftir Vincent van Gogh frá árinu
1889 sem nefnist „Cabanes de bois parmi les oliviers et
cyprès“ eða Viðarkofar innan um ólívu- og kýprustré .
Verkið var metið á 40 milljónir bandaríkjadala en var
selt hæstbjóðanda á 71 milljón. Sami kaupandi keypti
annað verk eftir hollenska meistarann, „Meules de blé“
sem sýnir sátur af hveitikorni og er frá árinu 1888. Verk-
ið málaði van Gogh á pappír og var það selt á 35 milljónir
dollara. Á myndinni má sjá ónefnda konu milli verkanna
„Meules de blé“ eftir van Gogh og „Grand bouquet de
fleurs des champs “ eftir Odilon Redon.
Metið á 40 milljónir og selt á 71
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýningar hófust fyrir skömmu í Bíó Paradís á
nýrri íslenskri heimildarmynd, Hvunndags-
hetjur, sem fjallar um fjórar konur af erlendum
uppruna sem búið hafa hér á landi í 20 ár. Kon-
urnar, þær Karolina Von Mrozik Gliszczynska
frá Póllandi, Ayse Ebru Gurdemir frá Tyrklandi,
Maria Victoria Ann Camp-
bell frá Jamaíku og Zineta
Pidzo Cogic frá Bosníu .
Hafa þær allar merkilega
sögu að segja og þá m.a. af
því hvað varð til þess að þær
fluttu til Íslands.
Leikstjóri myndarinnar er
Magnea Björk Valdimars-
dóttir og er hún einnig hand-
ritshöfundur ásamt Maríu
Leu Ævarsdóttur. Þær eru
líka framleiðendur mynd-
arinnar ásamt Júlíusi Kemp.
Magnea er menntuð leikkona og leiklistar-
kennari, hefur auk þess starfað sem leiðsögu-
maður í fjöldamörg ár og starfar nú í Hörpu.
Hún segist hafa snúið sér frá leiklist að kvik-
myndagerð og gert stuttmyndir en Hvunndags-
hetjur er fyrsta heimildarmynd hennar í fullri
lengd. Myndin var frumsýnd á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík, RIFF, í október síðast-
liðnum og er nú komin í Bíó Paradís þar sem hún
verður sýnd í þessum mánuði. Hún verður einnig
sýnd á hátíðum erlendis og hefur hlotið verðlaun,
Magnea var valin besta leikstýran á Barcelona
International Film Festival fyrir skömmu og
myndin var einnig valin heimildarmynd mán-
aðarins á hátíð í París.
Vinkonur í saumaklúbbi
Magnea segir heimildarmynd á borð við þessa
að miklu leyti mótast á klippiborðinu og hand-
ritið því í raun beinagrind sem á eftir að fá kjöt á
beinin. „Ég er mjög virkur klippari, hef reynslu
af því að fara út og filma og klippa. Ég hef gert
það sjálf með mínar myndir en núna fékk ég
styrk frá Kvikmyndasjóði og var með tökulið
með mér, sem var auðvitað lúxus.“
Í myndinni má sjá viðtöl við fjórar fyrrnefndar
konur, án þess að rödd Magneu heyrist, og segir
hún að konurnar séu með ólíkan bakgrunn en tali
allar góða íslensku og séu vel inngrónar í íslenskt
samfélag.
En hvernig urðu þessar fjórar konur fyrir val-
inu? „Þær eru allar vinkonur mínar fyrir, ég bjó
til stóran saumaklúbb með erlendum vinkonum
og þessar urðu fyrir valinu fyrir myndina en
þetta var fjögurra ára ferli, frá byrjun rannsókn-
arferlis til fæðingar myndarinnar,“ svarar
Magnea. „Ég hef mikinn áhuga á stöðu útlend-
inga, hef sjálf verið útlendingur þegar ég bjó á
Spáni og í Frakklandi og hef mikið fylgst með
málefnum hælisleitenda og útlendinga á Íslandi.
Ég hef oft aðstoðað fólk sem hefur orðið fyrir
óréttlæti. Þannig að drifið hjá mér er bæði rétt-
lætiskenndin – mér finnst að innflytjendur ættu
að fá meiri fókus á Íslandi – og svo hef ég líka
verið að gera myndir um miðbæjarkaraktera
sem fá alla jafna ekki fókus. Mér finnst sjarm-
erandi að fara listræna leið að því að rannsaka
hvunndaginn með myndatöku Anníar Ólafs og
tónlist Ólafar Arnalds auk alls hópsins,“ segir
Magnea.
„Öll þurfum við að bursta tennur, kaupa í mat-
inn og setja í þvottavél og öll eigum við okkar
forsögu og þessar konur eiga sér sérstaklega
áhugaverðar og ólíkar forsögur. Þær eru aldar
upp í fjórum mjög ólíkum menningarheimum og
koma hingað norður á hjara veraldar af ólíkum
ástæðum,“ segir Magnea.
Allir geta tengt við efnið
Magnea segir myndina fjalla um hvernig það
sé yfirhöfuð að vera útlendingur og því geti allir
tengt við myndina. Hún sé því ekki bundin við Ís-
land. „Þetta eru pælingar um af hverju við erum
með landamæri, af hverju við erum útlendingar,
af hverju við notum þetta orð og hvernig við get-
um tekið betur á móti fólki og hjálpað því að að-
lagast,“ segir Magnea um efni myndarinnar og
einnig sé leitað svara við spurningunni hvenær
maður hætti að vera útlendingur. Hún bendir í
því sambandi á pólska vinkonu sína í myndinni,
Karolinu, sem segist bæði tala með hreim á ís-
lensku og pólsku. Þó hún hafi búið hér á landi í 20
ár sé hún enn spurð að því hvaðan hún sé.
Magnea segist hafa verið fluga á vegg í við-
tölum myndarinnar því hún hafi viljað gefa kon-
unum rödd. „Uppbyggingin er þannig, þó ég sé
náin vinkona þeirra,“ útskýrir hún og segir vin-
skapinn hafa styrkst enn frekar með þessum
samtölum.
Hlutlaus heimildarmynd ekki til
Þegar blaðamaður spyr hvort þetta sé hlutlaus
heimildarmynd svarar Magnea því til að ekki sé
til neitt sem heiti hlutlaus heimildarmynd. „Leik-
stjóri notar alltaf eigin lífsreynslu og skoðanir og
þetta er alltaf sköpunarverk. Þú þarft alltaf að
nota þína rödd og ég held að það sé því ekki til
hlutlaust listaverk,“ segir hún og blaðamaður
getur tekið undir það. Einhverjar ákvarðanir
þarf jú alltaf að taka í hinu listræna ferli, hvert
svo sem listaverkið er.
„Ég er með minn klippistíl og sterka rödd,
ákveðnar skoðanir en ég er ekki með áróður,
leyfi fólki að gera upp við sig sjálft hvað því
finnst. Það er mikilvægt að bera virðingu fyrir
viðfangsefninu og áhorfendum svo þeir geti gert
upp hug sinn sjálfir,“ segir Magnea.
Hvunndagshetja Ayse Ebru Gurdemir er ein þeirra sem segja frá í Hvunndagshetjum.
Magnea Björk
Valdimarsdóttir
Hvenær hættir
maður að vera
útlendingur?
- Fjórar konur af erlendum uppruna viðfangs-
efni heimildarmyndarinnar Hvunndagshetjur
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
leikur sinfóníska dansa úr West
Side Story eftir Leonard Bern-
stein á tónleikum í Langholts-
kirkju í kvöld kl. 20. Þá verður
einnig fluttur básúnukonsert eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson.
„Einleikari á básúnu er Jón
Arnar Einarsson, en hann er
margverðlaunaður hér heima og
erlendis fyrir leik sinn. Jón Arnar
stundar nú nám við Tónlistar-
háskólann í Osló og lýkur senn
meistaraprófi frá skólanum,“ segir
í tilkynningu.
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
er sjálfstætt starfandi hljómsveit,
skipuð 60 nemendum í tónlistar-
skólum á höfuðborgarsvæðinu,
Listaháskóla Íslands og tónlistar-
háskólum erlendis. Hljómsveitin
var stofnuð árið 2004 og hefur
Gunnsteinn Ólafsson verið aðal-
stjórnandi hennar frá upphafi.
West Side Story í Langholtskirkju
Einleikari Jón Arnar Einarsson.
Bandaríski leik-
arinn Christoph-
er Walken málaði
yfir verk eftir
huldulistamann-
inn Banksy, að
því er fram kem-
ur á vef The
Guardian. Gerð-
ist þetta í loka-
þætti gaman-
þáttaraðarinnar
The Outlaws sem BBC framleiðir en
í henni er fylgst með brotamönnum
sem þurfa að sinna samfélagsþjón-
ustu í niðurníddu hverfi í Bristol,
heimaborg Banksys. Málaði lista-
maðurinn rottu þar á vegg, sem
heldur á úðabrúsa, og fyrir ofan
hana hefur nafn listamannsins verið
skrifað. Í þættinum sést Walken
rúlla málningu yfir listaverkið eftir
að hafa fengið þau fyrirmæli að
mála eigi yfir allt veggjakrot. Stað-
fest hefur verið að verkið var eftir
Banksy og Walken hafi eyðilagt það.
Christopher
Walken
Walken málaði yfir
verk Banksys
Teitur Magnús-
son fagnar
útgáfu nýjustu
plötu sinnar, 33,
á tónleikum í
húsi Máls &
menningar í
kvöld, laugar-
dag, kl. 20. Þar
treður Teitur
upp ásamt
hljómsveit en
Benni Hemm Hemm sér um upp-
hitun.
Nýja platan inniheldur 12 lög og
hafa nokkur þeirra ómað í útvörp-
um landsmanna, má þar nefna:
„Líft í mars“, „Sloppurinn“ og
„Kyssti mig“.
„Titill plötunnar vísar í aldursár
söngvaskáldsins meðan á upp-
tökum stóð, auk þess sem lengd
plötunnar er 33 mínútur og vænt-
anleg vínilplata verður þrjátíu og
þriggja snúninga. 33 fylgir eftir
plötum Teits; 27 og Orna en báðar
hafa þær hlotið góð viðbrögð
gagnrýnenda og tónlistarunnenda
hér á landi og erlendis,“ segir í
tilkynningu frá skipuleggjendum.
Teitur
Magnússon
Teitur fagnar nýrri
plötu sinni í kvöld
Selshamur, fárviðri, hafballaða og
margt fleira kemur við sögu á
næstu tónleikum Nordic Affect sem
fara fram undir yfirskriftinni
„Rekaviður“ í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í dag, laugardag, kl.
17.30. Sérstakir gestir eru skoski
blokkflautuleikarinn Ian Wilson og
Eyjólfur Eyjólfsson söngvari sem
jafnframt leikur á langspil og
rabarbaraflautu.
„Hafið er útgangspunktur verk-
efnavalsins þar sem flutt verða
barokkverk og þjóðlög í bland.
Nordic Affect hefur komið sér á
kortið sem framsækinn tónlistar-
hópur,“ segir í tilkynningu.
Nordic Affect skipa Halla Stein-
unn Stefánsdóttir á fiðlu, Marie
Stockmarr Becker á víólu, Hanna
Loftsdóttir á selló og gömbu og
Guðrún Óskarsdóttir á sembal.
Rekaviður í Listasafni Sigurjóns
Nordic Affect Hafið er leiðarstef á
efnisskrá tónleika hópsins í dag.
Stórsveit
Reykjavíkur
heldur tónleika í
Flóa Hörpu á
morgun, sunnu-
dagskvöld, kl. 20
undir yfir-
skriftinni „Týndi
sonurinn“.
„Þýsk-íslenski
saxófónleikarinn
Stefan Karl Schmid sækir stór-
sveitina heim og stjórnar efnis-
skrá eigin verka en sum þeirra
hafa verið samin sérstaklega fyrir
þetta tækifæri og verða því frum-
flutt. Hugsanlega rífur Stefan upp
saxófóninn en hann er í hópi
fremstu saxófónleikara Þýska-
lands,“ segir í tilkynningu frá
skipuleggjendum.
Miðar fást í miðasölu Hörpu, á
harpa.is og tix.is.
Stefan Karl Schmid
Týndi sonurinn í
Hörpu á morgun