Morgunblaðið - 13.11.2021, Side 14

Morgunblaðið - 13.11.2021, Side 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Bækur NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir kl. 16 mánudaginn 29. nóvember SÉRBLAÐ Í blaðinu verður umfjöllun um nýjar bækur, rætt við rithöfunda og birtir kaflar úr fræðiritum og ævisögum. –– Meira fyrir lesendur fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 3. desember fyrir jólin Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdir eru hafnar við upp- byggingu fyrsta áfanga Móabyggð- ar, nýs 450 íbúða hverfis í Þorláks- höfn. Aðstandendur verkefnisins telja að þetta sé eitt af stærstu íbúðaverkefnum á Suðurlandi og mögulega á landinu öllu, utan höfuð- borgarsvæðisins. Þróunarfélagið Hamrakór ehf. stendur að uppbyggingunni. Alls verða 78 íbúðir í fyrsta áfanga, í ell- efu lágreistum fjölbýlishúsum. Íbúð- irnar í hverfinu verða tveggja til fjögurra herbergja, 60 til 95 fermetr- ar að stærð. Mikil eftirspurn eftir húsnæði Þær verða í nokkrum kjörnum sem tengjast saman með vistgötum. Sérstaklega er hugað að vistvænni uppbyggingu, að því er fram kemur í tilkynningu Hamrakórs um verkefn- ið. Áætlað er að sala nýrra íbúða geti hafist fljótlega á nýju ári. Mikil eftir- spurn hefur verið eftir húsnæði í Þorlákshöfn og nýlega kom upp sú staða að ekki var neina lóð að fá og engar fasteignir til sölu. Samhliða uppbyggingu nýja hverfisins mun sveitarfélagið Ölfus ráðast í byggingu nýs leikskóla, stækka grunnskólann og byggja upp í þágu aldraðra íbúa. Tölvuteikning/Hamrakór Móabyggð Fyrsti áfangi Móabyggðar mun líta þannig út. 78 íbúðir verða í lágum fjölbýlishúsum. Hafin er uppbygging 450 íbúða hverfis - Allar voru uppseldar og engin íbúð til sölu í Þorlákshöfn Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Skóflustunga Elliði Vignisson bæjarstjóri, Grétar Ingi Erlendsson, for- maður bæjarráðs, og til hægri eru eigendur Hamrakórs, Gísli Steinar Gísla- son, Jón H. Erlendsson og Jóhann Pétur Reyndal. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökuls- þjóðgarðs var með hugmyndir í fyrrahaust um að banna veiðar í drögum að verndaráætlun fyrir Breiðamerkursand. Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands (Skotvís) og líffræðingur, segir að svæðisráðinu hafi verið bent á að með því færi það langt út fyrir sitt hlutverk. Fallið var frá þessum hugmyndum. Morgunblaðið sagði í gær frá lögfræðiáliti vegna takmörkunar á hreindýraveiðum á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Samkvæmt álitinu eru þessar takmarkanir ekki í samræmi við lög og reglugerð um þjóðgarðinn. „Svæðisráð suðursvæðis var að velta því fyrir sér hvort leyfa ætti hreindýraveiðar á Breiðamerkur- sandi eða ekki og eins hvort þar ætti að banna gæsaveiðar,“ sagði Áki. Hann kvaðst hafa skoðað málið og komist að því að engin lagaheimild var fyrir því að setja slíkt veiðibann í stjórnar- og verndaráætlun. Auk þess hefði ekki verið heimilt að refsa fyrir möguleg brot á slíku banni. Ákvæði um veiðar eru þegar til „Sjálfbær nýting og veiðar eru heimilar innan þjóðgarðsins. Það gilda sérstök lög um veiðar. Það er hlutverk Náttúrufræðistofnunar Ís- lands (NÍ) og Umhverfisstofnunar (UST) að kanna sjálfbærni veiða úr dýrastofnum og ráðleggja um veiðar. Það þarf ekki sérstaka veiðistjórnun þjóðgarða,“ sagði Áki. Skotvís aflaði óformlegs lögfræðiálits á fyrirhug- uðu banni við veiðum á Breiðamerk- ursandi. Niðurstaðan var að svæð- isráðið hefði ekki heimild til að banna veiðar. Skotvís hefur átt í viðræðum við Umhverfisstofnun um friðlýsingar. Áki segir að oft hafi verið farið út fyrir yfirlýst markmið friðlýsinga þegar því hefur verið hnýtt við að skotveiðar séu bannaðar. „Þótt land- eigandi vilji friðlýsa land sitt og setja veiðibann inn í friðlýsinguna þá kem- ur veiðibannið Umhverfisstofnun ekkert við. Landeigandinn hefur alltaf heimild til að banna veiðar á sínu landi. Það hvort á að friðlýsa landsvæði t.d. vegna sérstakra jarð- myndana kemur veiðum ekkert við,“ sagði Áki. Hann kvaðst óttast að Umhverfisstofnun og Vatnajökuls- þjóðgarður væru að skjóta sig í fót- inn með því að banna veiðar þar sem slíkt bann nýtur ekki lagastoðar eða tengist ekki tilgangi friðlýsingar. „Fólk fær þá á tilfinninguna að þjóðgarðar og friðlýst svæði þýði mikil og víðtæk bönn. Það verður þá andvígt þjóðgörðum og friðlýstum svæðum,“ sagði Áki. Þjóðgarðar eiga sér langa sögu í Bandaríkjunum. Áki segir að yfir- leitt séu veiðar heimilar í þeim, nema ef veiðarnar eru taldar ógna sjálf- bærni dýrastofnna eða öryggi gesta. Þá er tekið fyrir veiðar á tilteknum svæðum. „Við bentum á það í um- ræðunni um Breiðamerkursand að villt dýr eru almennt ekki hrifin af ferðamönnum. Ef ferðamenn eru margir á svæði þá forða dýrin sér og þá verður ekkert veitt þar,“ sagði Áki. Ekki þjóðgarða að stýra veiðum - Skotvís gerði athugasemd við áform svæðisráðs á Breiðamerkursandi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Breiðamerkursandur Jökulsárlón er þekktur staður á þeim slóðum. Kynning verður á bókinni Guðni á ferð og flugi í Kakalaskála á Kringlumýri í Skagafirði kl. 14 á morgun, sunnudag. Þar mætir Guðni Ágústsson fv. landbún- aðarráðherra með bók sína ásamt Guðjóni Ragnari Jónassyni, sem skrásetti hana. Auk þeirra félaga kemur Geirmundur Valtýsson tón- listarmaður með harmonikuna og leikur fyrir gesti skálans. Í bókinni fer Guðni með lesand- ann í ferðalag um hinar dreifðu byggðir Íslands og heimsækir fólk af öllu tagi. Fyrir utan að vera skemmtilegir og forvitnilegir við- mælendur fæst það við spennandi og oft og tíðum nýstárleg við- fangsefni sem styrkja lífið í sveit- unum. Guðni verður á flugi í Kakalaskála Bústólpi Guðni Ágústsson og for- ystukindin Elding frá Grobbholti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.