Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021
✝
Hrafnhildur
Guðmunds-
dóttir fæddist á
Patreksfirði 3.
nóvember 1946.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Vestfjarða á Pat-
reksfirði 4. nóv-
ember 2021. For-
eldrar hennar
voru Guðmundur
Kristinn Krist-
jánsson, f. í Bjarnareyjum á
Breiðafirði 20. júlí 1900, d. 22.
ágúst 1959, og Ingveldur Gísla-
dóttir, f. í Rauðseyjum á
Breiðafirði 4. apríl 1904, d. 21.
febrúar 2005. Systkini hennar
eru: Gísli Briem, f. 1925, d.
2014; Kristján, f.
1927, d. 1974;
Gyða, f. 1928, d.
2002; Höskuldur, f.
1929; Erlingur, f.
1931 d. 2014;
Kristín, f. 1932, d.
2006; Ólína, f.
1936; Ragna, f.
1938; Jón Sig-
urður, f. 1940.
Samfeðra er
Magnús Benedikt
Guðni, f. 1920, d. 2005.
Hrafnhildur giftist Sæmundi
Hólm Jóhannssyni bílstjóra frá
Barðaströnd, f. 24. febrúar
1943. Börn þeirra eru: 1)
Björg, f. 27. apríl 1967. Sam-
býlismaður Brynjar Finnsson.
Björg á tvö börn og 3 barna-
börn, Brynjar á 5 börn frá
fyrra hjónabandi og 6 barna-
börn. 2) Guðmundur Jóhann, f.
17. mars 1970. Giftur Eygló
Hreiðarsdóttur, þau eiga 4
dætur og 1 barnabarn. 3) Fríða
Eyrún, f. 27. febrúar 1974. Gift
Matthíasi Ágústssyni, hann á
tvær dætur frá fyrra hjóna-
bandi og 4 barnabörn. 4) Jenný
Kristín, f. 1. júlí 1976. Sam-
býlismaður Erlendur Gíslason,
þau eiga eina dóttur og Er-
lendur á eina dóttur frá fyrra
sambandi og 1 barnabarn.
Hrafnhildur ólst upp á Pat-
reksfirði og bjó þar alla tíð.
Með húsmóðurstörfum vann
hún við verslunarstörf en
lengst af við fiskvinnslu.
Útför Hrafnhildar fer fram
frá Patreksfjarðarkirkju í dag,
13. nóvember 2021, og hefst
athöfnin klukkan 14.
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Mig langar að senda inn nokk-
ur orð um hana Hrafnhildi okk-
ar. Hrafnhildur átti svo sannar-
lega mikinn þátt í uppvexti
mínum þar sem ég bjó næstum
heima hjá henni upp að 16 ára
aldri, enda vorum við Fríða
sjaldan hvor án annarrar eftir að
við kynntumst við að smakka
saman á sandinum á róló. Hrafn-
hildur passaði vel upp á sína og
dekraði okkur iðulega í bak og
fyrir. Uppáhaldsafmælisveisl-
urnar voru heima hjá Fríðu þar
sem Hrafnhildur var þá búin að
hrista fram úr erminni alls konar
góðgæti, ég er nokkuð viss um
að skonsubrauðtertan hafi verið í
uppáhaldi hjá mörgum og það
vantaði nú aldrei kaffibrauðið á
því heimili, ávallt veisla á þeim
bænum.
Við vinkonurnar komum sam-
an núna síðast í september á
Patreksfirði. Því miður fengum
við ekki að heimsækja Hrafn-
hildi en í staðinn stóðum við í öll-
um okkar skrúða sem Mjallhvít
og dvergarnir sjö uppi á snjó-
flóðavörnunum fyrir ofan sjúkra-
húsið og veifuðum. Við fengum
líka að spjalla aðeins við hana í
myndskilaboðum og það sem
hún skellihló að fíflaganginum í
okkur; hlátur hennar mun ávallt
hljóma í huga okkar og gleðin í
augum hennar var svo greinileg.
Okkur mun alltaf þykja vænt
um þessa síðustu stund sem við
áttum með þér Hrafnhildur. Ég
er viss um að þú hefur það gott
núna, situr við eldhúsborðið
þarna uppi, leggur kapal og jafn-
vel kveikir þér í einni, brosir svo
að ruglinu sem okkur vinkonun-
um dettur næst í hug.
Elsku Hrafnhildur:
Takk fyrir að vera alltaf til
staðar fyrir okkur vinkonurnar.
Takk fyrir að skamma okkur
þegar á þurfti að halda – sem var
alls ekki oft, við vorum svo aga-
lega stilltar … eigum samt
örugglega þátt í nokkrum gráum
hárum …
Takk fyrir að vera þolinmóð
og hlæja að vitleysunni í okkur.
Takk fyrir að sýna okkur
ávallt umhyggju.
Takk fyrir að kenna mér að
leggja kapal.
Takk fyrir að vera þú.
Elsku Sæmundur, Fríða,
Björg, Guðmundur og Jenný,
innilegar samúðarkveðjur til
ykkar.
Kveðja,
Linda Rós Daðadóttir.
Hrafnhildur
Guðmundsdóttir
Elsku Erna Líf.
Það var skrítin til-
finning að heyra af
andláti þínu. Þú átt-
ir eftir að gera svo
margt. Ég átti eftir að sjá þig
sigra heiminn eins og þú ætlaðir
þér alltaf, með þrautseigjunni og
hæfileikunum.
Ég man þegar ég sá þig fyrst.
Ég vissi strax að þessi stelpa yrði
að vera vinkona mín. Ég veit ekki
í hvaða bekk það var sem ég
loksins þorði að spyrja hvort þú
vildir leika eftir skóla. Þú varst
strax til í það og gerðist það svo
oftar og oftar. Ég á flestar minn-
ingar með þér úr Lundarbrekk-
unni þar sem þú bjóst. Þar leið
okkur svo vel og við brölluðum
svo margt saman. Við tókum
mikið upp á segulbandstæki, vor-
um miklar áhugakonur um tón-
list og þú fékkst mig til að syngja
og dansa með þér. Þú varst mik-
ill leiðtogi í þér og mér leið alltaf
svo vel með þér. Með þér var ég
skapandi. Með þér var gaman.
Með þér gat ég hlegið mig mátt-
lausa. Við fórum líka saman í
nokkrar bústaðaferðir með for-
eldrum mínum. Þar fundum við
upp á ýmsu og aldrei varð dauð
stund hjá okkur. Við þurftum
enga síma, engar tölvur. Bara
hvor aðra og sköpunargáfuna.
Það sem við gátum bullað saman.
Ég sakna þess.
Þegar fór að nálgast unglings-
árin fluttirðu úr Kópavogi í Graf-
arholtið. Þú tókst því vel eins og
Erna Líf
Gunnarsdóttir
✝
Erna Líf Gunn-
arsdóttir fædd-
ist 11. apríl 1991.
Hún lést 31. októ-
ber 2021.
Útförin fór fram
11. nóvember 2021.
öllum öðrum verk-
efnum. Það var þér
þó erfitt að mörgu
leyti þótt þú hafir
eignast nokkra vini í
hverfinu. Við héld-
um áfram sam-
bandi. Sumarið fyr-
ir menntaskóla
komstu með mér til
Akureyrar þar sem
við laumuðumst út
að drekka vodka í
sprite og hlógum eins og vitleys-
ingar. Við vorum ekki lengur
börn. Eða það fannst okkur að
minnsta kosti ekki.
En menntaskólaárin held ég
að hafi tekið mikið af þér og
smám saman fór að dofna yfir
stelpunni sem ég þekkti. Þú
hættir að reyna að passa inn í hið
skrítna og úrelta norm og fyrir
það var ég ákaflega stolt af þér.
Þú reyndir að vera þú sjálf. En
upp úr menntaskóla flosnaði upp
úr sambandi okkar hvorrar við
aðra. Ég veit ekki hvað gerðist.
Það bara gerðist. Ég fylgdist þó
alltaf með þér úr fjarska, mér
þótti svo vænt um þig. Ég sá að
þú varst komin inn í FÍH. Þú
varst farin að æfa þig á hljóm-
borð. Þú varst búin að lita hárið
þitt bleikt. Áttir kisu sem hét
Sean og barðist af fullu í þágu
dýranna – málleysingjanna sem
þurfa manneskjur eins og þig til
að berjast fyrir lífi sínu. Já ég
fylgdist sko með þér. Þú varst á
þinni einstöku braut. Þú eignað-
ist þinn fyrsta kærasta og fluttir
í Kópavoginn með honum og ég
man hvað mér hlýnaði um hjart-
að þegar ég hitti þig einhvern
tímann í strætó og við loksins töl-
uðumst við. Mörgum árum
seinna fékk ég svo þessi skilaboð
frá mömmu þinni. Um að þú vær-
ir farin. Og hjartað mitt fylltist af
sorg. Því þú áttir alltaf part af
því. En ég veit að þér líður betur
núna. Þér var ætlað eitthvað
meira og stærra í öðrum heimi.
Fordómalausum heimi, þar sem
allir mega vera þeir sjálfir. Þar
sem enginn þarf að níðast á öðr-
um, hvorki dýrum né mönnum.
Þar sem alltaf er sól og tónlist.
Þar sem er sungið og dansað.
Allan liðlangan daginn. Því þann-
ig varst þú. Ég mun aldrei
gleyma þér, elsku vinkona mín.
Þín vinkona,
Hólmfríður.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall okkar
ástkæra
ANNMARS ARNALDS REYKDAL,
Ásvegi 13, Akureyri.
Kærar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar SAk.
Ásta Þórðardóttir
Agnes Reykdal
Þórður S. Reykdal Sigurbjörg Bjarnadóttir
Steindór V. Reykdal Sigríður Lóa Rúnarsdóttir
Anna K. Reykdal Njáll Kristjánsson
Ingibjörg Reykdal
Hjördís Reykdal Vilhjálmur H. Þorgrímsson
afabörn og langafabörn
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELLEN MARGRETHE GUÐJÓNSSON
hjúkrunarfræðingur,
lést á Grund 27. október
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Grund og Múlabæ fyrir
frábæra umönnun.
Grímur Andrésson María Friðriksdóttir
Kristín Þorsteinsdóttir
ömmubörn, makar og langömmubörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
JÓNASAR SCHEVINGS
ARNFINNSSONAR
múrarameistara,
áður Vesturgötu 155,
Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar- og
dvalarheimilisins Höfða fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Ingunn Hjördís Jónasdóttir
Magnea Sigríður Jónasdóttir
Ragnheiður Jónasdóttir Eiríkur Þór Eiríksson
Ingunn Dögg Eiríksdóttir Jón Ingi Þórðarson
Jónas Kári Eiríksson Rakel Rósa Þorsteinsdóttir
Ilmur, Eldon og Ragnheiður Marey
Elskulega móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JENNÝ SÓLBORG FRANKLÍNSDÓTTIR,
hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést föstudaginn 5. nóvember á hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Höfða. Útför hennar fer fram frá
Akraneskirkju föstudaginn 19. nóvember klukkan 13 með
nánustu ættingjum og vinum. Streymt verður frá athöfninni
á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða,
Akranesi.
Ágústa Ólöf Gunnarsdóttir Vilhjálmur Diðriksson
Guðlaugur Kr. Gunnarsson Kolbrún Kjerulf
Sigurður Árni Dagbjartsson Jeanevee Yuboc Dagbjartsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæra
MARÍA PÁLSDÓTTIR,
Bleikjukvísl 20, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 7. nóvember. Útförin fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum starfsfólki líknardeildar fyrir hlýhug og umhyggju.
Reynir Ástþórsson
Páll Reynisson Ragnheiður Sif Ragnarsdóttir
Reynir Pálsson
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
FRIÐRIK JÓHANNSSON
húsasmíðameistari,
Hlíðargötu 8, Akureyri,
lést á heimili sínu sunnudaginn
7. nóvember. Útförin fer fram
frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 18. nóvember klukkan 13.
Útförinni verði streymt á vef Akureyrarkirkju.
Eygló Björnsdóttir
Gunnlaug E. Friðriksdóttir Daníel Freyr Jónsson
Björn Friðriksson Anna Lára Gísladóttir
Jóhann Friðriksson Arna Dögg Tómasdóttir
og barnabörn
Ástkær sonur minn og bróðir okkar,
ÞORVALDUR AÐALSTEINN
HAUKSSON,
sjómaður og þúsundþjalasmiður,
lést af slysförum miðvikudaginn
3. nóvember.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 18. nóvember klukkan 13.
Kristín Hreiðarsdóttir
Hreiðar Hauksson
Maríanna Sól Hauksdóttir
Gunnlaugur Valtýsson Halldóra Guðmundsdóttir
Kristbjörg Anna Valtýsdóttir
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma,
langamma, stjúpmóðir og lífsförunautur,
ÁSA PÁLSDÓTTIR
frá Stóru-Völlum í Landsveit,
síðast til heimilis í Kópavogi,
lést þriðjudaginn 2. nóvember á líknardeild
Landspítalans. Hún verður jarðsungin frá Lindakirkju
föstudaginn 19. nóvember klukkan 10.
Róbert Viðar Pétursson Kolbrún Isebarn Björnsdóttir
Bragi Róbertsson
Thelma Birna Róbertsdóttir
Sunna Ella Róbertsdóttir
Viðar Róbertsson
Margrét Rún Gunnarsdóttir Bjarki Jónsson
Gunnar Gunnarsson
barnabörn og langömmubörn