Morgunblaðið - 13.11.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.11.2021, Blaðsíða 20
minna mæli milli bólusettra og þeir veikist ekki jafn hastarlega og hinir óbólusettu fái þeir veiruna. Tölurnar bera því vitni. Már Kristjáns- son, yfirmaður smitsjúkdómadeildar Land- spítala, lýsir í viðtali við mbl.is í gær ástandinu vegna innlagna út af kórónuveir- unni. Hátt í helmingi fleiri starfsmenn þurfi til að gæta megi smitvarna. Á A7- deildinni séu venjulega um 42 starfsmenn, en um 74 þurfi til að reka deildina vegna flókinnar umönnunar sjúklinga og krefjandi vinnuaðstæðna. Vissulega ber að hafa sam- úð með þessu sjónarmiði, en um leið vaknar sú spurning hvers vegna viðbúnaður sé ekki einfaldlega fyrir hendi. Baráttan við veiruna hefur nú staðið síðan snemma árs 2020 og ætti því að vera orð- ið kunnuglegt hvað þarf til þannig að hún eigi erfiðara með að koma aftan að okkur. Þegar í gær var farið að af- lýsa ýmsum viðburðum vegna hertra samkomutak- markana. Miðar höfðu rok- selst á jólatónleika og aðra viðburði. Margfrestaðar uppákomur voru loks komn- ar á dagskrá. Það verður þungt högg fyrir marga þurfi á nýjan leik að fara að fresta og afboða viðburði. Íþróttafélög mega vart við því að fara aftur í þann gír að láta leiki fara fram fyrir tómu húsi. Ekki er ólíklegt að kostn- aðurinn fyrir þjóðfélagið af því að setja allt í lás sé meiri en að tryggja að spítalinn geti brugðist við þegar smit- um fjölgar. Ef spurningin snýst um mannskap má skoða hvort ekki sé hægt að leita víðar en nú er gert. Það er ekki auðvelt að eiga við kórónuveiruna og hingað til hefur það að mörgu leyti gengið farsællega. Færri hafa látist af völdum veir- unnar en víðast hvar annars staðar og þá hefur víða verið gripið til mun harkalegri takmarkana en gert hefur verið á Íslandi, þótt þær hafi verið lýjandi. Grundvallarviðmiðið þeg- ar gripið er til aðgerða af þessu tagi hlýtur hins vegar ávallt að vera að þær afstýri meira tjóni en þær valda. Kórónu- veiran ætlar að halda áfram að gera okkur lífið leitt. Smitum hef- ur farið fjölgandi í haust, ekki bara hér á landi, held- ur allt í kringum okkur. Í Þýskalandi er talað um að delta-vetur sé í aðsigi og átt við hið smitgjarna af- brigði veirunnar, sem kennt er við gríska bókstafinn. Þar er skuldinni skellt á bólu- setningarfælni Þjóðverja og sagt að það greiði fyrir út- breiðslunni hvað margir vilji ekki láta bólusetja sig. Lönd verða hins vegar ekki stikkfrí þótt betur hafi gengið að bólusetja en í Þýskalandi. Í fréttum var sagt að Hollendingar hefðu riðið á vaðið í gærkvöldi með fyrstu samkomutakmörk- unum vetrarins. Þær eiga að standa í þrjár vikur. Þar eru tilfellin komin yfir 16 þúsund á dag. Íslensk stjórnvöld urðu fyrri til í gær að lýsa yfir nýjum reglum um samkomu- takmarkanir, þótt þær séu ekki jafn harkalegar og í Hollandi. Hér mega að há- marki 50 manns koma saman án takmarkana og 500 manns að undangengnu smitprófi. Rökin eru þau sömu í Hol- landi og hér. Haldi fram sem horfi muni sjúkrahúsin ekki ráða við ástandið. Þar líkt og hér eru smit af völdum kórónuveirunnar mun algengari meðal þeirra, sem eru óbólusettir, en hinna bólusettu. Birting talna um smit, inn- lagnir á sjúkrahús og fjölda í gjörgæslu getur blekkt vegna lítils munar á fjölda bólusettra annars vegar og óbólusettra hins vegar. Hin- ir óbólusettu eru aftur á móti svo miklu færri en þeir, sem hafa látið bólusetja sig, að það er augljóst að veiran er mun atkvæðameiri takist henni að stinga sér niður meðal hinna fyrrnefndu. Það er gremjulegt að enn skuli þurfa að grípa til tak- markana. Þótt smitum fari fjölgandi er fjöldi þeirra, sem þurft hefur að leggja inn á sjúkrahús, ekki mikill. Hlutfall innlagna miðað við smit sýnir virkni bólusetn- ingarinnar. Það hefur margkomið fram að veiran smitast í Grundvallarviðmiðið þegar gripið er til aðgerða af þessu tagi hlýtur hins veg- ar ávallt að vera að þær afstýri meira tjóni en þær valda} Enn gripið til aðgerða 20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ M ér hefur þótt ólíðandi að horfa upp á hvernig þjón- ustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar (ÞON) hefur farið með fjármagn borgarbúa í þessa uppgötvunar- og tilrauna- starfsemi þegar þess hefur ekki þurft þegar kemur að stafrænni umbreytingu. Stafrænar lausnir eru framtíðin. Um það er ekki deilt og þörf fyrir stafrænar lausnir er brýn fyrir þjónustuþega og starfsfólk til að einfalda ferla og liðka fyrir þjónustu. Það eru meira en þrjú ár síðan hin staf- ræna vegferð Reykjavíkurborgar hófst. Í málaflokkinn hafa verið settir 10 milljarðar á þremur árum sem virðast að mestu hafa far- ið í þenslu á í þjónustu- og nýsköpunarsvið- inu sjálfu, t.d. margvíslegar innri breytingar, stækkun húsnæðis, húsbúnað og ráðningu tuga sér- fræðinga. Þegar farið er yfir verkefnastöðu þjónustu- og ný- sköpunarsviðs má glöggt sjá að ekki liggja fyrir skýr verkefnatengd markmið með nákvæmri tíma- og fram- kvæmdaáætlun. Flest verkefni hafa verið og eru enn í einhvers konar tilrauna- og þróunarfasa eins og verið sé að finna upp hjólið. Þarna hefur verið farið með fé af lausung í stað þess strax í byrjun að leita að lausn- um sem þá þegar voru til og farnar að virka. Í stað þess að festa sig í tilrauna- og þróunarfasa á lausnum sem eru allt um kring hefði verið hagkvæm- ast að eiga samvinnu við Stafrænt Ísland í upphafi þessarar vegferðar. Sveitarfélagið Reykjavík hefur enga sér- stöðu. Það eru sömu þarfir sem þarf að uppfylla hjá notendum og því mikilvægt að koma sér saman um stafrænar lausnir. Fulltrúi Flokks fólksins í borgarstjórn hef- ur gagnrýnt þetta í bráðum eitt ár, með bókunum, blaðaskrifum og fyrirspurnum, og lifir enn í þeirri von að dropinn holi stein- inn. Á þriðjudaginn 16. nóvember mun fulltrúi Flokks fólksins leggja fram tillögu í borg- arstjórn um að samþykkt verði að gera breytingar á skipuriti og innra skipulagi þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem miða að því að leitað verði eftir auknu samstarfi við Stafrænt Ísland og island.is um stafræna þróun borg- arinnar, innskráningu notenda í gegnum island.is og sameiginleg innkaup á tækjabúnaði og hugbúnaðar- leyfum. Með þessum breytingum verði lögð enn meiri áhersla á að stafræn umbreyting auðveldi aðgengi borgarbúa að rafrænni þjónustu á vefjum borgarinnar í stað þess að stór hluti fjármagnsins fari í innri um- breytingar á sviðinu sjálfu eða í tilrauna- og þróunar- fasa sem engan endi virðist ætla að taka. Kolbrún Baldursdóttir Pistill Reykjavíkurborg vill finna upp hjólið Höfundur er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is F orsvarsmenn heildar- samtaka og stéttarfélaga launafólks bregðast hart við þeirri afdráttarlausu afstöðu ríkisins að sóttkví verði ekki jafnað til veikinda í orlofi og það réttlæti ekki frestun á orlofstöku ef launamenn lendi í sóttkví, hvorki samkvæmt lögum né kjarasamn- ingum. Þessu eru forystumenn laun- þega algerlega ósammála, starfsfólk eigi ekki að þurfa að eyða frídögum sínum þó það sæti sóttkví í faraldri kórónuveirunnar. Hvetja þeir yfir- völd til að endurskoða þessa afstöðu sína og ætla að skoða, væntanlega fljótlega í næstu viku, hvort nauð- synlegt sé að láta reyna á það fyrir dómstólum hvort túlkun ríkisins standist skoðun. „Ég geri ráð fyrir því að við munum með einum eða öðrum hætti láta reyna á þetta. Það er ekkert annað í spilunum þegar af- staðan er þetta hvöss,“ segir Friðrik Jónsson, formaður BHM, í samtali við Morgunblaðið. Samtök launa- fólks og ríkið séu algerlega á önd- verðri skoðun um þetta og pattstaða komin upp. Samræmist ekki samningum Öll heildarsamtök launafólks, BHM, ASÍ, BSRB, KÍ og Félag ís- lenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélag Íslands sendu í seinasta mánuði kjara- og mannauðssýslu ríkisins sameiginlegt erindi og segja að borið hafi á því að ríkisstofnanir neiti að breyta orlofsskráningu starfsfólks sem hefur þurft að sæta sóttkví á meðan það var í sumarfríi. Stofnanirnar hafi svarað starfsfólki því að tími í sóttkví teljist til orlofs. Telja samtök launafólks þessa túlk- un hvorki samræmast lögum né ákvæðum kjarasamninga. Ein- staklingur í sóttkví sé meðhöndlaður líkt og hann sé sýktur þar til annað komi í ljós og þurfi að sæta ýmsum takmörkunum meðan á sóttkví stendur. Honum sé t.d. bannað að umgangast annað fólk, nota almenn- ingssamgöngur og vera í fjölmenni og gefi augaleið að starfsmaður í sóttkví geti tæplega notið þess að vera í orlofi. Í svarbréfi kjara- og mannauðs- sýslunnar 9. nóvember segir að af- staða fjármálaráðuneytisins sé óbreytt og hafni því að endurskoða þessa afstöðu sína til þess hvernig standa skuli að orlofsskráningu þeg- ar starfsmanni er gert að sæta sóttkví á meðan hann er í orlofi. Er þessi afstaða rökstudd í ítarlegu máli. Í fréttatilkynningu frá BHM í gær er lýst verulegum vonbrigðum með þetta svar ráðuneytisins. Haft er eftir Friðriki að það skjóti skökku við að á sama tíma og verið er að herða eina ferðina enn á sóttvarna- aðgerðum ætli ríkið „að ganga fram af hörku og óbilgirni í túlkun sinni. Það gengur beinlínis gegn mark- miðum takmarkana og dregur úr nauðsynlegri samstöðu,“ segir hann. Í svarbréfi ráðuneytisins er rifj- að upp að fjármála- og efnahags- ráðherra hafi við upphaf faraldurs- ins lýst yfir að starfsmenn ríkisins skyldu eiga rétt til launa kæmi til þess að þeir færu í sóttkví. Það hafi einnig verið afstaða ráðuneytisins að orlofsskráning ætti að standa óbreytt. Viðkomandi starfsmaður teljist ekki veikur í skilningi kjara- samninga og orlofslaga. Ástæður sem réttlæti frestun töku orlofs séu tæmandi taldar bæði í lögum og kjarsamningum. Þá teljist sóttkví ekki til veikinda í sóttvarnalögum. Takast á um skerð- ingu frídaga í sóttkví Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Beðið eftir skimun Forsvarsmenn launþega halda því fram að ein- staklingur í sóttkví sé meðhöndlaður líkt og hann sé sýktur. Spurður hvort ágreiningurinn um réttarstöðu starfsfólks sem þarf að sæta sóttkví í orlofi sínu eigi við um allan vinnumark- aðinn segir Friðrik Jónsson, for- maður BHM, að það hljóti að vera mikilvægt, þegar ýmist er verið að herða eða slaka á sótt- varnareglum, að sameiginlegur skilningur liggi fyrir á þessu. Launþegasamtökin telji engan vafa leika á hvernig beri að túlka þetta en ríkið sé algerlega á öndverðum meiði. Það hljóti að hafa áhrif á hvernig almenni markaðurinn túlkar veik- indarétt. Ef ríkið hafi gefið þá línu að túlka eigi þetta eins þröngt og hægt er þá sé viðbúið að almennir atvinnurekendur horfi til þess. Mikilvægt sé að fundin verði skynsamleg nið- urstaða. Brýnt að skera úr Á ÖNDVERÐUM MEIÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.