Morgunblaðið - 13.11.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021
Á fundi Félags sjálfstæðismanna
um fullveldismál sem haldinn
var á dögunum ræddi Arnar Þór
Jónsson, fyrrverandi dómari og nú
varaþingmaður, um
stöðu laga Evrópu-
sambandsins gagn-
vart íslenskum lög-
um. Hann benti á að
ríkjasambandið ESB
stefndi í átt að sam-
bandsríki, en að Pól-
land og Þýskaland
hefðu spyrnt við fót-
um gagnvart því að lög ESB gengju
framar stjórnarskrám þessara ríkja.
- - -
Arnar Þór velti síðan upp þeirri
spurningu hvort fullveldi Ís-
lands hefði verið skert og sagði:
„Þegar við horfum á það að stór
hluti löggjafar sem fer í gegnum Al-
þingi Íslendinga er í rauninni sam-
inn af fólki sem við kunnum engin
deili á, sem enginn hefur kosið, við
höfum engan aðgang að því að
hlusta á umræður um þessi laga-
frumvörp, ef það má kalla þetta það
þegar það er í fæðingu, við höfum
enga, eða að minnsta kosti af-
skaplega litla möguleika á að
tempra það sem þarna er að gerast,
hvernig má það þá vera að því sé
haldið fram samhliða því að við höf-
um haldið fullveldi okkar? Er verið
að halla réttu máli? Getur verið að
menn séu hugsanlega beinlínis að
setja fram blekkingar eða slá ryki í
augu Íslendinga? Það væri býsna al-
varlegt mál frammi fyrir svona mik-
ilvægu atriði eins og innleiðingu er-
lends réttar og regluverks sem
hugsanlega kann að skerða yfir-
ráðarétt Íslendinga gagnvart nátt-
úruauðlindum sínum, samanber um-
ræðuna um þriðja orkupakkann.
- - -
Ég spyr: hafa sérfræðingar á
þessu sviði verið fullkomlega
heiðarlegir? Hafa stjórnmálamenn
verið fullkomlega heiðarlegir? Og
að hvaða ósi fljótum við sem þjóð
inni í þessu samstarfi sem kennt er
við EES?“
Arnar Þór
Jónsson
Áleitnar
spurningar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Helmingur fólks er mjög (36%) eða
frekar (14%) hlynntur lausagöngu
katta í sínu sveitarfélagi. Þetta sýnir
ný könnun Prósents. Þeim sem
stendur á sama eru 11%, frekar and-
víg eru 15% og mjög andvíg eru 24%.
Niðurstaðan bendir til þess að íbú-
ar höfuðborgarsvæðisins séu hlynnt-
ari lausagöngu katta en þeir sem búa
úti á landi. Yngri þátttakendur (18-
24 ára) eru hlynntari lausagöngu
katta en 35 ára. Þeir sem eru 65 ára
og eldri eru meira á móti lausagöngu
en hinir yngri.
Einnig var spurt um gæludýra-
eign þátttakenda. Eigendur katta
voru hlynntari lausagöngu þeirra en
eigendur hunda og annarra gælu-
dýra og eins þeir sem ekki eiga
gæludýr.
Netkönnunin var gerð 5.-11. nóv-
ember með því að könnun var send
til könnunarhóps Prósents. Í hópn-
um eru 18 ára og eldri sem búsettir
eru á Íslandi. Í úrtakinu voru 2.800
manns, 1.435 svöruðu og var svar-
hlutfall 51%. Gögnin voru vigtuð til
þess að úrtakið endurspeglaði álit
þjóðarinnar. Tekið var tillit til kyns,
aldurs og búsetu. Tölur voru ná-
mundaðar að næstu heilu tölu. Þann-
ig var t.d. aldurshópurinn 18-24 ára
3,8% fyrir vigtun en 13,2% eftir vigt-
un. gudni@mbl.is
Helmingur vill lausagöngu katta
- Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru
hlynntari lausagöngu en fólk úti á landi
Morgunblaðið/Eggert
Frjáls Kettir mega víða vera frjálsir
en sum sveitarfélög setja takmörk.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt Arngrím Jóhannsson flug-
mann og Sjóvá til þess að greiða
ekkju og börnum Arthurs Grants
Wagstaffs rúmar níu milljónir króna
í bætur vegna flugslyss sem varð
honum að bana árið 2015.
Komst dómstóllinn að því að Arn-
grímur hefði sýnt af sér stórfellt gá-
leysi í aðdraganda nauðlendingar en
Wagstaff lét lífið í kjölfarið.
Ekkju Wagstaffs voru dæmdar
rúmar þrjár milljónir króna í bætur
og þremur börnum þeirra hverju um
sig tvær milljónir en fyrir dómi
kröfðust dætur Wagstaffs hver um
sig bóta upp á 12 milljónir króna.
Flugslysið átti sér stað hinn 9.
ágúst 2015 í Barkárdal en í vélinni
voru þeir Arngrímur og Wagstaff,
sem fórst í kjölfar brotlendingar.
Flugvélin sem brotlenti var í eign-
arumráðum Arngríms en formlegur
eigandi var Wells Fargo, fjármála-
fyrirtæki í Bandaríkjunum.
Kröfu ekkju Wagstaffs um bætur
vegna missis framfæranda var hafn-
að.
Niðurstaða rannsóknarnefndar
samgönguslysa, sem gaf út skýrslu
um slysið árið 2018, var sú að flug-
vélin hefði verið ofhlaðin. Afkasta-
geta hennar hafi því verið talsvert
skert, auk þess sem ekki hafi verið
skilyrði til sjónflugs á flugleiðinni
yfir Tröllaskaga, þeirri leið sem flug-
mennirnir hugðust taka.
Arngrímur hefur síðar sagst muna
vel eftir atburðarásinni.
„Við vissum að við vorum á leiðinni
niður og það var erfið tilhugsun. Það
er án efa versta upplifun sem ég hef
gengið í gegnum að sitja við hliðina á
látnum vini mínum lengst uppi á
fjöllum og geta ekkert gert.“
Bætur dæmdar
vegna slyssins
- Flugslysið í Barkárdal árið 2015
Morgunblaðið/Þór
Héraðsdómur Flugvélin var við
rannsókn talin hafa verið ofhlaðin.