Morgunblaðið - 13.11.2021, Blaðsíða 16
Efni í þættinum:
Helgi Pétursson var kjörinn formaður LEB
fyrr á þessu ári. Hann skoraði fyrir skömmu á
forystumenn stjórnamálaflokkanna að verða
við tilmælum sem landsamtökin settu fram
og varða framtíðarhagsmuni eldri borgara á
Íslandi. Rætt er við Helga um þessi málefni og
annað.
Byggðasafn Árnesinga á sér um 30 ára sögu
og miðstöð þess er á Eyrarbakka þar sem
Húsið er staðsett. Rætt er við Lýð Pálsson
safnstjóra um starfsemina og hvað hægt er að
kynna sér í þessu merka húsi sem á sér mjög
langa sögu.
Páll Bergþórsson er líklega sá veðurfræðingur
sem mesta reynslu hefur af öllum öðrum
ólöstuðum. Hann varð 98 ára fyrr á þessu
ári og í viðtali við þáttastjórnanda lýsir hann
veðurfarinu síðan 1875 en spáir jafnframt fyrir
um veðrið næstu 100 árin. Þetta er viðtal sem
enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Umsjónarmaður er Sigurður K.Kolbeinsson
Dagskráin
á Hringbraut um helgina
Fréttir, fólk og menning
á Hringbraut og hringbraut.is
Lífið er lag
Laugardag kl. 10.00 og 17.30
Sunnudag kl. 13.00
Páll Bergþórsson
Helgi Pétursson
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021
gáfu, sjá röð 13 jólasveina sem allir
eru þekktir í dag – fyrir utan að
Faldafeykir er á meðal þeirra.
„Faldafeykir er auðvitað nefndur,
líkt og bróðir hans Froðusleikir, eft-
ir einum af þeim tugum jólasveina
sem voru partur af gömlum þjóðsög-
um hér á landi en hlutu ekki náð hjá
Jóhannesi úr Kötlum þegar hann
orti Jólasveinavísurnar sem auðvitað
gerðu 13 bræðranna ódauðlega,“
segir Sturlaugur bruggmeistari.
„Það er þó áhugavert að Faldafeykir
var einn af þeim 13 sem Jón Árnason
getur í fyrstu útgáfu Þjóðsagnanna
og í raun er eini munurinn á þessu
byrjunarliði Jóhannesar að hann
skiptir út Faldafeyki fyrir Hurða-
skelli – þá má því færa rök fyrir því
að Faldafeykir hafi verið sorglega
nálægt því að meika það,“ segir
bruggarinn.
Froðusleikir og Faldafeykir
Hann er ánægður með þá þróun
sem hefur orðið í áfengislausum
bjórum hér á landi og viðtökurnar
sem þeir hafa fengið. „Við sendum
frá okkur Bríó nr. 75, áfengislaust
Wheat Ale, seinnipart sumars 2020.
Hann var þá fyrsti áfengislausi ís-
lenski bjórinn sem kom á markað
eftir umtalverða þróun. Það er
óhætt að segja að einhver uppsöfnuð
þörf hafi verið fyrir slíku því viðtök-
urnar hafa verið langt fram úr björt-
ustu vonum. Segja má að um leið og
sú lending heppnaðist hafi orðið til
langur listi af ólíkum bjórstílum og
hugmyndum sem lá fyrir okkur með
framhaldið, eins og gengur og gerist.
Næsti áfengislausi bjór sem fylgdi á
eftir var einmitt Froðusleikir sem
við gáfum út sem jólabjór í fyrra.
Það var sama þar að viðtökur voru
framar öllum áætlunum okkar.
Við höfum á þessu rúma ári sent
frá okkur fimm ólíka áfengislausa
bjóra ef mér skjátlast ekki og eru
þeir í ýmsum stílum. Nú er svo loks
komið að því að við kynnum til leiks
fyrsta áfengislausa súrbjór Íslands-
sögunnar, Faldafeyki. Hann er þó
eins og vinsælt er með nýmóðins
súröl með talsverða sætu á móti og
er því auðdrekkanlegur fyrir flesta
að ég held. Við setjum í hann umtals-
vert magn af hágæða hindberjum og
svo lakkrís sem gerir hann að ein-
hvers konar jólanammi.“
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér líst bara vel á þessa þróun.
Sérstaklega ef fólk drekkur í aukn-
um mæli léttöl í stað gosdrykkja. Það
eru yfirleitt minni kolvetni og enginn
sykur í þessum drykkjum og því má
segja að þeir séu hollari. Svo þarf
maður ekki að hafa áhyggjur af því
hversu marga maður drekkur,“ segir
Baldur Kárason, bruggmeistari hjá
Víking brugghúsi.
Mikil gróska hefur verið í fram-
leiðslu á áfengislausum og léttum
bjórum hér á landi síðasta eitt og
hálfa árið. Hinn íslenski Pilsner og
sams konar 2,25% léttbjórar hafa
lengi notið vinsælda en undanfarið
hafa bæst við bjórar sem flokkast
sem áfengislausir. Sífellt fleiri virð-
ast kunna að meta þessa flóru eins og
sjá má í matvöruverslunum þar sem
heilu hillustæðurnar eru nú lagðar
undir bjórinn. Nú er þessi þróun far-
in að smitast yfir í jólabjórinn. Stóru
brugghúsin tvö senda bæði frá sér
metnaðarfulla jólabjóra sem fást í
matvöruverslunum fyrir jólin.
Baldur segir að gróskan í fram-
leiðslu léttbjóra spegli að einhverju
leyti þá þróun sem hefur verið í
framleiðslu handverksbjóra síðustu
ár. „Þessi þróun fylgir í kjölfarið á al-
gerri sprengingu sem hefur orðið í
sterku bjórtegundunum. Bruggarar
hafa verið að prófa sig áfram í öllum
gerðum af bjór. Núna eru menn
farnir að gera dökka léttbjóra, dökka
IPA-bjóra og allskonar tegundir.“
Víking er með tvo létta jólabjóra
fyrir þessi jól, báða 2,25% að styrk-
leika. Annar kallast einfaldlega Vík-
ing jólabjór en hinn er Jólagosi. Er
þar um að ræða gosbjór með trönu-
berjasafa.
„Það er nýjung hjá innlendum
framleiðendum að gera svona „radl-
er“, sem er blanda af gosi og bjór.
Svona drykkir eru mjög vinsælir í
Þýskalandi. Hjólreiðamönnum þar í
landi fannst of mikið að fá sér bjór
þegar þeir stoppuðu á ferðum sínum
og tóku upp á því að blanda saman
bjór og gosi. Þar með fengu þeir smá
orku en ekki áfengisáhrifin,“ segir
Baldur.
Hann segir að fleiri léttbjórar
muni líta dagsins ljós á næstunni.
„Já, við munum halda áfram í þessu,
bæði í áfengislausum og bjórum með
lágri alkóhólprósentu. Eins og fyrr-
verandi forstjóri hér orðaði það
gjarnan, það er ýmislegt í gerjun.“
Var sorglega nálægt
því að meika það
Sturlaugur Jón Björnsson, brugg-
meistari hjá Borg brugghúsi, segir
að brugghúsið hafi frá árinu 2011
nefnt jólabjóra sína eftir íslensku
jólasveinunum og hefur nýr sveinn
bæst við árlega síðan Stekkjarstaur
reið á vaðið.
Í fyrra var svo aukalega kynntur
til leiks fyrsti áfengislausi íslenski
jólabjórinn og nefndist hann Froðu-
sleikir, eftir einum af þeim fjöl-
mörgu jólasveinum sem stóðu utan
þess 13 manna hóps sem hlotið hefur
frægð og frama fyrir tilstuðlan Jó-
hannesar úr Kötlum og útgáfu hans
á Jólasveinavísunum árið 1932,
skreyttum með myndum Tryggva
Magnússonar. Froðusleikir er af
tegundinni India Pale Ale og er aftur
á boðstólum í ár en við hann bætist
nú annar lítt þekktur jólasveinn,
Faldafeykir, sem er súröl með hind-
berjum og lakkrís – ferskur og sval-
andi.
Upphaflega er opinberlega ritað
um Faldafeyki í Þjóðsögum Jóns
Árnasonar og má þar, í fyrstu út-
Áhugi á áfengis-
lausum jólabjór
- Fjórar tegundir af léttum jólabjór - Gróska í bjórgerð
Ljósmynd/Hari
Jólaskál Sturlaugur Jón Björnsson bruggmeistari er ánægður með Faldafeyki sem er óáfengur jólabjór.
Ljósmynd/Dagný Steinþórsdóttir
Gosbjór Hilmar Geirsson og Baldur
Kárason frá Víking brugghúsi á
bjórhátíð Ölverks á dögunum.