Morgunblaðið - 13.11.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 13.11.2021, Síða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021 ✝ Magnhildur Magnúsdóttir fæddist á Brenni- stöðum í Eiða- þinghá 5. sept- ember 1926. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Dyngju 29. októ- ber 2021. For- eldrar hennar voru Guðbjörg Sigríður Sig- björnsdóttir f. 12.4. 1890, d. 12.11. 1968, og Jón Magnús Þórarinsson, f. 15.12. 1880, d. 9.12. 1954, bændur á Brenni- stöðum. Systkini hennar Anna María, f. 6. febr. 1912, d. 25.11. 1963, Ingibjörg, f. 8. okt. 1914, d. 19.8. 1950, Margrét, f. 13. maí 1918, d. 23.11. 1995, Sig- björn, f. 21. maí 1919, d. 19.3. 1964 og Kristján flutti á Ak- ureyri. Magnhildur bjó í Hvoli til 2005 er hún veiktist og flutti í sitt fæðingarhérað. Þau eign- uðust tvö börn Guðbjörgu Torfhildi , f. 10.11. 1950, d .2.4. 2020, og Magnús, f, 22.1. 1953, maki hans er Guðrún María Þórðardóttir, eiga þau fjögur börn, Svein Elmar, f. 12.3. 1978, Kristján Orra, f. 18.6. 1982, Hafliða Bjarka, f. 28.4. 1985, og Magnhildi Ósk, f. 1.12. 1991. Magnhildur lauk Alþýðu- skólaprófi frá Eiðum 1947 og Húsmæðraskólaprófi frá Laugalandi í Eyjafirði 1949. Hún var verkamaður og húsmóðir, starfaði hjá Land- síma Íslands nokkur ár, en lengstum hjá KHB í frystihúsi. Útför Magnhildar fer fram frá Egilsstaðakirkju í dg, 13. nóvember 2021, klukkan 14. Útförinni verður streymt. https://egilsstadaprestakall.com/ Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat 1993, Soffía, f. 2. okt. 1920, d. 25.5. 1988, Þórunn, f. 1. apríl 1924, d. 3.4. 2016, Svanhvít, f. 15. apríl 1925, d. 8.9. 2003, Magn- hildur, f. 5. sept. 1926, d. 29.10. 2021, Arnþór Reynir, f. 28. des. 1931. Magnhildur giftist Kristjáni Ólasyni klæð- skera 5. apríl 1950, þau byrj- uðu sinn búskap á loftinu í Kaupfélagshúsinu á Reyð- arfirði við hliðina á sauma- stofu KHB þar sem Kristján starfaði. Síðan byggðu þau hús á Búðareyrinni sem þau nefndu Hvol, þar bjuggu þau þar til þau slitu samvistum Þá er nú komið að því sem ég sem barn vildi að aldrei gerðist, að þú kveddir þessa tilveru, en svona er lífið. Margs er að minn- ast, hvað þú varst góð og ósér- hlífin, vannst myrkranna á milli til að sjá fyrir okkur Bobbu með- an við gerðum ekkert gagn í þeim efnum, hvað lífið var skemmtilegt við leik frá morgni til kvölds, alltaf sól og blíða, við Bjarni vinur minn alltaf niðri á Kaupfélagsbryggju að veiða sem okkur var þó stranglega bannað, þú með stöðugar áhyggjur að við færum okkur að voða eða fremd- um einhver prakkarastrik, sem við vorum ekki alveg saklausir af, ekki fannst ykkur Stúllu gaman að því þá, en ekkert þótti ykkur skemmtilegra í seinni tíð en að rifja þessi afglöp okkar upp. Skilnaður ykkar pabba var þér mjög erfiður og er það í eina skiptið sem ég sá þig bugaða og vil ekki hugsa þá hugsun til enda hvað hefði orðið ef góðmennin í Dvergasteini hefðu ekki tekið okkur upp á arma sína. En svo fór smám saman að sjást til sólar hjá okkur og við fluttum aftur í Hvol. Þinn að- alstarfsvettvangur var hjá KHB í frystihúsi og sláturhúsi. Ég man hvað þú varst glöð þegar þú fékkst vinnu á Sím- stöðinni sem talsímavörður og grunar mig að Mæja vinkona þín hafi þar átt hlut að máli. Þegar ég lauk unglingaprófi var í fyrsta sinn boðið upp á mið- skóla á Reyðarfirði, en mig lang- aði að fara í Eiða sem varð svo raunin, ég fann að þú varst ekki sátt en samt stappaðirðu í mig stálinu, þá sennilega sem gömul Eiðasál. Þú varst iðulega með hugann á þínum fæðingarstað, Brenni- stöðum, en þar rákuð þið systur sumarbúðir í ykkar sumarfríum í Gamla bænum allmörg sumur, eftir að hafa lesið minningar- grein um afa þinn, Þórarin Jóns- son, þá skildi ég hve römm sú taug var. Svo kom áfallið síðla sumars 2005, heilablóðfall, misstir málið, lamaðist alveg hægra megin, ekki datt mér í hug að þú mynd- ir rísa upp aftur, en með seigl- unni tókst þér að ná nokkurri heilsu og byrjuð búskap á Egils- stöðum í mars 2006 til 2016 er þú færðir þig yfir á Hjúkrunar- heimilið Dyngju, þar sem þú undir hag þínum vel, og verður starfsfólki þar seint fullþakkað fyrir ást og umhyggju í þinn garð. Annað áfall varð þér þung- bært en þú barst þann harm í hljóði, er Bobba systir dó í apríl 2020. Voru aðstæður þá þannig að þú áttir ekki kost á að vera við útför hennar vegna farald- ursins sem nú geisar, heldur voruð þið nöfnur múnderaðar upp í geimfarabúninga til að sitja saman og horfa á streymi í sjónvarpi þá stund er útförin varði, stóðst svo uppáklædd í herbergisglugganum þínum er líkfylgdin staldraði við á bíla- stæðinu og kvaddir dóttur þína í síðasta sinn, en enginn heyrði þig kvarta. Ég vildi að ég gæti státað af því að vera lítið brot af því sem þú hafðir til brunns að bera. Eitt var þér þó kærara en allt annað í þessari veröld og voru það ömmubörnin þín, þau voru þér allt og þú þeim allt. Vertu nú sæl mamma mín og ég bið að heilsa öllum þarna hin- um megin, það veit ég að það hafa verið fagnaðarfundir þar, hugsa til þín á hverjum degi, og eins biður Nunna fyrir kveðjur og þakkir fyrir allt. Meira á www.mbl.is/andlat Þinn sonur, Magnús Kristjánsson. Elsku heimsins besta Magn- hildur amma. Nú er komið að kveðjustundinni sem ég vonaði að kæmi aldrei. Þú, ein allra besta og mik- ilvægasta manneskjan í mínu lífi, búin að glotta út í annað í síðasta skiptið. Þetta er og verður erfitt að sætta sig við en það sem er mitt haldreipi á erfiðum tímum er hafsjór frábærra minninga. Í raun er ekki ein slæm minning sem kemur upp í hugann enda er ekki hægt að eiga slæma minn- ingu um ömmu sem bókstaflega gerði allt (nema taka bílpróf eða læra að hjóla) fyrir mig. Ömmu sem nuddaði á mér bakið með mjúku höndunum sín- um þar til ég sofnaði, kvöld eftir kvöld. Ömmu sem eldaði handa mér allt sem ég óskaði eftir, þó svo það væru fiskibollur í dós 5 daga í röð eða kakósúpa í eft- irrétt í hádeginu á þriðjudegi. Ömmu sem lagði mjúkt teppi í sjónvarpsstólinn á hverjum morgni og breiddi svo sæng yfir mig og kom færandi hendi með kókópöffs til að ég gæti átt ógleymanlegar stundir yfir barnatímanum á morgnana (og var með áskrift að Stöð 2). Ömmu sem átti alltaf til ís í frystikistunni og súkkulaðikex í skápnum. Ömmu sem skar alltaf niður ávexti á kvöldin og færði mér í áðurnefndan sjónvarps- stól. Ömmu sem bakaði uppá- haldsjólasmákökurnar handa mér í júlí í 23 stiga hita bara af því að mig langaði í þær. Ömmu sem fullyrti að sterkir molar væru besta munnangursmeðalið. Ömmu sem spilaði við mig langt fram yfir hefðbundinn háttatíma (fyrirgefðu hvað ég hló mikið að þér fyrir að ná aldrei að bregð- ast rétt við ásnum í hæ gosa, held ég hafi aldrei hlegið eins mikið fyrr eða síðar og ég skil núna af hverju þú vildir aldrei spila það spil við mig aftur). Ömmu sem hlustaði innilega áhugasöm á upplestur minn á eigin einkunnum í lok hverrar annar í um það bil 10 ár. Ömmu sem var alltaf tilbúin við símann þegar ég vildi heyra í henni og tilbúin að masa í ótakmarkaðan tíma. Ömmu sem laumaði að mér seðli í lok hverrar heim- sóknar, allt að 7 daga ofdekur á launum, er til betri díll en það? Ömmu sem sýndi mér sínar allra þrjóskustu hliðar á tímum sem flestir hefðu gefist upp. Ömmu sem kvartaði aldrei yfir neinu og hafði það alltaf „bara gott“ sama hvað, en á sama tíma vorkenndi hún mér alveg rosa- lega ef ég svo mikið sem saug upp í nefið. Ömmu sem ég þurfti ekki endilega að eiga samskipti við með orðum til að við skildum hvor aðra. Svo að lokum lang- ömmu sem sýndi syni mínum óbilandi áhuga og væntumþykju eins og henni einni var lagið. Í raun varstu mér svo miklu meira en „bara“ amma. Þú varst ein mín besta vinkona og fyr- irmynd í einu og öllu og verður um ókomna tíð. Eitt er víst að ég mun aldrei gleyma þér og góðmennsku þinni. Ef ég kemst með tærnar þar sem þú hefur hælana varð- andi allt nema akstur og hjól- reiðar, get ég gengið nokkuð sátt frá borði. Hlakka til að sjá þig „bak við ystu sjónarrönd“ þegar að því kemur, þó eftir vonandi mörg ár, því ef þú verður þar þá eru það allavega mín „æskudrau- malönd“. Hafið bláa, hafið hugann dregur. Hvað er bak við ystu sjónarrönd? Þangað liggur beinn og breiður vegur bíða mín þar æskudraumalönd. Beggja skauta byr bauðst mér aldrei fyr. Bruna þú nú, bátur minn. Svífðu seglum þöndum, svífðu burt frá ströndum. Fyrir stafni haf og himinninn. (Örn Arnarson) Ég elska þig amma, takk fyr- ir allt og ég bið að heilsa Bobbu. Þín nafna, gullið þitt og grjónið þitt, Magnhildur Ósk Magnúsdóttir. Amma á Reyðarfirði. Ef þú ætlar að skrifa hand- bók um hvernig þú eigir að fá barnabörnin til að elska þig, farðu þá bara eftir því sem hún gerði. Í hennar tilfelli er ekki hægt að taka bara það besta því hún gerði bara það besta. Að komast í viku til hennar og Bobbu í Hvol var eins og að komast í viku frí frá raunveru- leikanum. Heil vika af bara góð- um hlutum og „já-um“ sem var bara norm, jafnvel heimskuleg- ustu óskir urðu bara sjálfkrafa að normi. Hún vann við færiband, fremst af þrem við að flaka fiska. Ég fékk það hlutverk að taka fiskana af færibandinu og setja á brettið hennar, fyrst lét ég hana hafa fisk og dáðist að henni flaka hann, svo annan og annan, hraðar og hraðar þar til ég var farinn að taka alla fiskana og setja á brettið hennar svo hinar tvær gátu allt eins verið í fríi, hún skammaði mig ekki, bað mig ekki að hætta þessu heldur hló bara og flakaði hraðar. Hún byrjaði hvern dag á að færa mér Coco Puffs í hæginda- stól þar sem hún hafði búið um mig á hverjum morgni fyrir framan teiknimyndir og spyr svo um hádegismatinn. Alltaf sagði ég grjónagraut og alltaf fékk ég grjónagraut. Þá datt mér í hug að það gæti verið gott að fá ostbita með grautnum, upp frá því voru oststykkin skorin í bita og höfð á disk með grautn- um. Hún kenndi mér að spila, alls konar spil, ólsen, rommí og kas- ínu og lærði síðan seinna að spila skítakall hjá mér. Hún kynnti mig líka fyrir (fjárhættu- spilum), happaþrennum og spilakössum í sjoppunni Fis hjá Sigrúnu. Ég ímynda mér að þetta hafi verið ein erfiðustu „já-in“ sem ég fékk frá henni en samt fylgdi alltaf hlátur og bros og virtist hún hafa alveg jafn gaman af þessu og ég. Hún fór með mig að veiða á stöng á bryggjunni, síli með sigti úr eldhúsinu upp á mel, köngulær í krukkur og mýs í gildrur meðfram húsinu á nótt- unni. Hún spilaði meira að segja fótbolta við mig í garðinum með plastbolta. Þrátt fyrir að vera mjög framsækinn og eiga auðvelt með að kynnast krökkum þá eign- aðist ég aldrei vini á Reyðar- firði, ég þurfti þá ekki, ég hafði ömmu og Bobbu, Sigrúnu og Vigga, Mæju, Adda, Erlu og Kára. Það var miklu meira en nóg og ég minnist þess aldrei þrátt fyrir frábæra fjölskyldu eða alla þá vini og áhugamál sem ég átti á Egilsstöðum að sakna einhvers meðan ég var hjá ömmu og Bobbu. Eftir að hún flutti til Egils- staða þá gerði ég einhliða samn- ing við hana um að hún eldaði og ég borðaði, svo færi ég og legði mig í hægindastólnum meðan hún tæki til eftir matinn og vaskaði upp, svo myndi hún vekja mig 12:55 og senda mig aftur í vinnuna. Þarna er ég orð- inn fullorðinn en kemst samt í frí frá raunveruleikanum bara af návistinni einni saman og leið eins og hún nyti þess alveg jafnt á við mig. Það var eins og hún upplifði sömu gleði og ég í öllum okkar uppátækjum og uppskar í raun fyrir utan hlátur, bros og ánægju mína ekkert nema van- þakklæti, því fyrir mér „átti“ þetta bara að vera svona og ég held ég hafi í raun aldrei þakkað henni fyrir fyrr en í allra síðasta skipti sem við töluðum saman bæði í þessum heimi, þá bað ég hana fyrir kveðju til Bobbu og þakkaði henni fyrir allt og ég veit að hún meðtók það, því með sínum síðasta andardrætti horfði hún ekki bara í augun á mér heldur einhvern veginn inn í tárvot augun á mér. Ég elska þig amma og það mun ég alltaf gera. Nú er komið nóg af voli, næstum er til skammar. Alveg víst hún amma í Hvoli, nú annars staðar djammar. Súkkulaði, molar sterkir og þriggja bita kökur. Étið þar til magaverkir kall’á sykursýkissýnatökur. Hvoll var mörgum mikill staður, nefnt mannasiðaskóli. Ég brottskráðist ósiðaður. Takk! Þinn súkkulaðikossanjóli. Hafliði Bjarki Magnússon. Elsku amma. Það kom að deginum sem ég hélt að myndi aldrei koma. Þú þessi sterka ósérhlífna kona sem gerði allt fyrir okkur barnabörnin kvaddir þennan heim. Það var svo fallegt þegar pabbi hringdi í mig og tilkynnti mér nú værir þú búin að kveðja, þá braust sólin fram úr skýj- unum og skein framan í mig þar sem ég sat í sófanum. Það var eins og þú værir að hugga mig og mér leið eins og ég væri í mjúka fanginu þínu. Fram brutust minningar um þig og þar sem ég sat þarna einn hágrátandi minnti það óneitan- lega á grátfossinn sem kom nið- ur stigann í Hvoli um árið þegar ég gat ekki sofnað. Ég hafði nefnilega fyrr um daginn slasað mig við að leika Spiderman og fékk skurð á hökuna og var þess vegna frekar lítill þegar ég fór að sofa. Ósjaldan fékk maður flísar úr trégólfinu í Hvoli, þá var manni haldið á meðan flísin var dregin úr og sárið sprittað. Þú bættir gjarnan óþægindin upp með köku af Toffie Pops. Þú varst frábær kokkur og hjá þér var alltaf veisla. Hlaðið borð með heimabökuðu í kaffi og svo lambalæri eða kótelettur í raspi í kvöldmatinn og heima- tilbúinn ís í eftirmat. Þegar við kvöddum eftir þessar veislur fylgdir þú okkur alltaf út á hlað og veifaðir okkur þar til við hurf- um sjónum. Þú kallaðir mig „Gullið mitt“ eða „Elli minn elskan“ til heið- urs Bibbu á Brávallagötunni. Ég mátti vaða í allar skúffur og skápa í fjársjóðsleit en það var þó einn læstur skápur sem ég hafði séð þig sækja fimmþús- undkalla í. Ég var viss um að þú værir forrík og skápurinn væri fullur af fimmþúsundköllum. Það voru því vonbrigði þegar ég fann lykilinn af skápnum og hann var peningalaus. Þér var hugleikið að vel færi um mann. Þegar teiknimyndir voru í sjónvarpinu pakkaðir þú manni inn í teppi og last svo textann fyrir mig. Þú bakaðir svokallaðar þriggja bita kökur fyrir jólin sem eru smákökur með þremur súkkulaðibrotum ofan á. Eitt sinn ákvaðstu að það væri kannski sniðugt að sleppa að saxa allt þetta súkkulaði og sett- ir bara einn súkkulaðidropa ofan á. Það féll ekki í ljúfan jarðveg hjá okkur systkinum enda hvernig gætu þriggja bita kökur haft bara einn bita? Næstu jól voru kökurnar aftur orðnar þriggja bita. Skömmu eftir að þú hafðir gert fastráðningarsamning í frystihúsinu 75 ára veiktist þú skyndilega sem olli þér svolitlu málstoli og áttir þá oft til að segja nei þegar þú meintir já. Ég man þegar ég hringdi í þig og bauð þér og Bobbu á rúntinn. Þú svaraðir nei. Svo hringdir þú daginn eftir og spurðir hvort ég væri ekki á leiðinni. Þetta nei þýddi sem sagt já. Þú kenndir mér að spila og margar góðar stundir áttum við að spila þjóf eða kasínu. Þú gafst mér mitt fyrsta úr og kenndir mér á það. Þú kenndir mér að elda kóte- lettur og rjúpu og þriggja bita kökurnar baka ég þér til heiðurs fyrir hver jól. Ég vildi að ég hefði getað ver- ið hjá þér þegar þú kvaddir og lesið fyrir þig Selinn Snorra sem þú alltaf last fyrir mig fyrir hátt- inn í Hvoli. Nú veifa ég þér alla leiðina heim í síðasta sinn eins og við gerðum alltaf þegar við kvödd- umst í Hvoli. Þinn Sveinn Elmar. Til ömmu á Reyðarfirði, Til hvílu ert nú komin, elsku amma mín. Hugurinn reikar að Hvoli, kompuna stelst ég í. Finn ég þar fótboltaspilið, en kjarkur kiknar – ég þori ekki lengra, húsdraugur hrellir mig. Nú kallarðu á mig að taka í spil, kasínu – steliþjóf. Á veggnum á sama stað alltaf, dagatal skipafélagsins. Hjá þér alltaf hlýja, græna dýnan, gryfjan úti, gamla sjónvarpið. Í stofunni Soffíukaka, í frystinum súkkulaðiís. Þó margt þú reyndir, aldrei sýndir, okkur systkinum annað en ást. Léttari í lundu ég hef aldrei fundið, manneskju aðra en þig. Æðruleysi, ósérhlífni, alger ákveðni. Hjartahlýja, hugulsemi, hafsjór jákvæðni. Þó farin sértu skaltu vita: Ég mun ekki gleyma þér. Ef einhverja ósk ég á mér heita, eftirbreytni þína, tileinka vil mér. Þinn Kristján Orri. Magnhildur Magnúsdóttir Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar um útför þína af nærgætni og virðingu – hefjum samtalið. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Hinsta óskin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.