Morgunblaðið - 13.11.2021, Side 31
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... stundum það eina
sem þú sérð.
VIÐ ERUM KATTAFÓLK
UTAN ÚR GEIMNUM
VIÐ ERUM KOMIN TIL AÐ TAKA
YFIR JÖ… HAAAH…HAAAAAAAH…
Haaaaak!!
ÓKEI, ÞIÐ
SÁUÐ ÞETTA
EKKI
ÆTLI ÞAÐ SÉ OF
SEINT AÐ SKIPTA
UM DÝRATEGUND?
TÆKNILEGA SÉÐ ER ÞETTA LAK!
„ALLT Í LAGI – FARÐU BARA. ÞAÐ ER
HVORT EÐ ER OF MIKIL VINNA AÐ VERA
Í SAMBANDI MEÐ ÞÉR.“
ÉG VEIT AÐ ÞAÐ ER SPAGETTÍ Í KVÖLDMATINN
EN VERÐ ÉG VIRKILEGA AÐ
VERA MEÐ ÞENNAN SMEKK?
29.1. 1999, bankastjóri og alþingis-
maður. Þau bjuggu á Ísafirði og í
Reykjavík. Foreldrar Bjarna voru
hjónin Jensína Jensdóttir, f. 25.3.
1879, d. 21. 1930, húsmóðir, og Guð-
björn Guðbrandsson, f. 9.7. 1875, d.
26.7. 1927, bókbindari, búsett í
Reykjavík.
Börn Gunnþórunnar og Bjarna
eru: 1) Björn Ragnar Bjarnason, f.
15.5. 1943, viðskiptafræðingur og
fyrrverandi framkvæmdastjóri, bú-
settur í Garðabæ. Maki: Jóhanna
Brynjólfsdóttir, f. 22.5. 1946, lyfja-
tæknir; 2) Þórdís Bjarnadóttir, f.
25.4. 1948, d. 5.10. 1995, hár-
greiðslukona og skrifstofustarfs-
maður. Maki: Henrik Thorarensen
Gunnlaugsson, f. 1.5. 1950, d. 4.5.
2017, bankastarfsmaður; 3) Gunnar
Þór Bjarnason, f. 8.4. 1957, sagn-
fræðingur, búsettur á Seltjarnarnesi.
Maki: Jóhanna Thelma Einarsdóttir,
f. 8.6. 1958, talmeinafræðingur og
prófessor við Háskóla Íslands.
Barnabörnin eru Gunnþórunn
Arnarsdóttir, f. 1969, Hulda Henriks-
dóttir, f. 1987, Brynjólfur Björnsson,
f. 1970, Guðrún Arna Björnsdóttir, f.
1972, Bjarni Þór Gunnarsson, f. 1980,
Einar Gunnarsson, f. 1986, og
Jóhann Helgi Gunnarsson, f. 1994.
Systkini Gunnþórunnar eru Þór-
hallur Björnsson, f. 9.1. 1910, d. 16.6.
2000, Kristveig Björnsdóttir, f. 15.10.
1921, d. 30.7. 1924, Gunnar Kristján
Björnsson, f. 20.1. 1924, d. 26.2. 2009,
Guðmundur Björnsson, f. 2.11. 1925,
d. 13.12. 1988, Kristveig Björns-
dóttir, f. 2.1. 1927 og Jónína Ásta
Björnsdóttir, f. 28.6. 1930.
Foreldrar Gunnþórunnar voru
hjónin Rannveig Gunnarsdóttir frá
Skógum í Öxarfirði, f. 6.11. 1901, d.
29.1. 1991, húsmóðir, og Björn Krist-
jánsson frá Víkingavatni í Öxarfirði,
f. 22.2. 1880, d. 10.7. 1973, kaup-
félagsstjóri og alþingismaður, lengst
af búsett á Kópaskeri en síðar í
Reykjavík.
Gunnþórunn
Björnsdóttir
Kristján Árnason
bóndi íÆrlækjarseli og á Víkingavatni, frá Garði í Kelduhverfi
Sigurveig Guðmundsdóttir
húsfreyja íÆrlækjarseli í Öxarfirði
og á Víkingavatni, fráÆrlækjarseli
Kristján Kristjánsson
bóndi á Víkingavatni
Jónína Aðalbjörg Þórarinsdóttir
húsfreyja á Víkingavatni
í Kelduhverfi
Björn Kristjánsson
kaupfélagsstjóri á
Kópaskeri og alþingismaður
Þórarinn Björnsson
bóndi á Víkingavatni, var þaðan
Guðrún Árnadóttir
húsfreyja á Víkingavatni, frá Hóli á Fjöllum
Árni Björnsson
bóndi á Ytri-Bakka, frá Laxárdal í Þistilfirði
Rannveig Gunnarsdóttir
húsfreyja á Ytri-Bakka í Kelduhverfi,
frá Skógum í Öxarfirði
Gunnar Árnason
bóndi í Skógum
Kristveig Björnsdóttir
húsfreyja í Skógum í Öxarfirði
Björn Gunnlaugsson
bóndi í Skógum, frá
Gunnarsstöðum í Þistilfirði
Arnþrúður Jónsdóttir
húsfreyja í Skógum, frá Laxárdal í Þistilfirði
Ætt Gunnþórunnar Björnsdóttur
Rannveig Gunnarsdóttir
húsmóðir á Kópaskeri
og í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Kann að vera unnin ull.
Erkiflón, sem þylur bull.
Grastoppur, sem klæðir klett.
Kannski torf í veggi sett.
Guðrún B. svarar:
Tó er stundum unnin ull.
Ótó skömmum drullar.
Á tónni kúrir finkan full.
Í fornvegg tó, auk ullar.
Bergur Torfason frá Felli á þessa
lausn:
Ullin kembd svo úr varð tó,
ótó nefndist flón sem hló,
gjarnan á kletti græn er tó,
gjörð milli steina í vegg er tó,
Þessi er lausn Hörpu á Hjarð-
arfelli:
Áður fyrr menn tættu tó.
Til mun vera heimskutó.
Krummi býr í klettató.
Karlar lögðu í veggi tó.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Tó má vera unnin ull.
Iðkar heimskutóin bull.
Grastó köllum gróðurblett.
Gjarnan tó í vegg er sett.
Þá er limra:
Við tóvinnu sat hún Tinna
og Tóti var fénu að sinna,
Gunna var þreytt
og gerði ekki neitt,
en Geiri fór músum að brynna.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Hrönn við kletta brotnar blá,
berast öldur vítt um sjá,
líkt og gárur græði á
gátur enn mér streyma frá:
Köttur oft þar unir sér.
Einatt með sér dauða ber.
Áhlaupsveður gerði í gær.
Gjarnan ást það vakið fær.
Ingólfur Ómar Ármannsson seg-
ir, að ellin láti á sér kræla:
Orðnir lúnir fótafúnir
förlast gleði þrengir að.
Fjöri rúnir flestir búnir
fyrir neðan beltisstað.
Þetta er „stöðumat“ Dagbjarts
Dagbjartssonar:
Skrokkurinn er ljóst og leynt
við lífsins gæði sloppinn.
Hausinn virkar hægt og seint.
– Hangir þó við kroppinn.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
svarar:
Þó hreystin væri sjálfsagt sönn
sem í arf við fengum.
Alla nagar tímans tönn
tíminn gleymir engum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gott er tóið í honum