Morgunblaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.11.2021, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 9. N Ó V E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 272. tölublað . 109. árgangur . Gefðu tilhlökkun,magnaða upplifun og ljúfarminningar Gjafakort í Þjóðleikhúsið gildir á sýningu að eigin vali og rennur aldrei út. Kynntu þér valkostina og sértilboðin og kláraðu gjafakaupin á leikhusid.is ÖÐRUVÍSI STEMNING NÚ EN Í FYRRA FYLGT EFTIR Í HUNDRAÐ ÁR HALLAÐ UNDAN FÆTI EFTIR FRÁ- BÆRA BYRJUN JÓLABOÐIÐ Í KASSANUM 28 BREIÐABLIK 27SKAUPIÐ 11 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði á peningamálafundi Viðskipta- ráðs Íslands í gær að ákvæði lífs- kjarasamningsins um hagvaxtarauka kæmi afar illa við verðstöðugleika. Hann sagði að Samtök atvinnulífsins (SA) hafi samið af sér varðandi þetta atriði. „Ég kýs að líta á orð seðlabanka- stjóra í víðara samhengi,“ sagði Hall- dór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri SA. „Kjarasamningar voru gerðir í apríl 2019 og gilda út október 2022. Enginn gerði ráð fyrir kórónuveirukreppunni sem skall á okkur í febrúar 2020 og lamaði allt. Það skiptir engu máli hvort horft er til Íslands, annarra landa eða ann- arra heimsálfa. Heimsfaraldurinn hefur sett strik í reikning samninga- gerðar um allan heim,“ sagði Hall- dór. Hann telur að seðlabankastjóri sé að benda á þetta: „Á meðan fram- leiðslugetan, hagkerfið, er ekki að vaxa þá stöndum við ekki undir launahækkunum. Ef laun hækka um- fram svigrúm verður brugðist við með vaxtahækkun.“ „Að sjálfsögðu stendur ákvæði lífs- kjarasamningsins um hagvaxtarauk- ann. Samningar skulu standa. At- vinnurekendur hljóta að gera sér grein fyrir því,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Hann segir að stýrivaxta- hækkun upp á 0,5% hafi mikil áhrif á launafólk. Mánaðarleg afborgun af 35 milljóna króna láni með breytileg- um vöxtum geti hækkað um allt að 15.000 krónur. Þar hverfi 41% af launahækkun á kauptaxta þann 1. janúar 2022 á einu bretti. Þá sé eftir að mæta öllum öðrum hækkunum. „Samningar skulu standa“ - Öndverðar skoðanir á hagvaxtarauka - Kórónuveirukreppa breytti forsendum MVinnumarkaðurinn »4 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ræddi við skoska rithöfundinn Ian Rankin í Iðnó í gær, á glæpasagnahátíðinni Iceland Noir 2021. Katrín og Rankin ræddu heimaborg Rankin, Edinborg, og bókaseríu hans Inspector Rebus sem fjallar um lögregluforingjann Rebus í Edinborg. Þá spjölluðu þau sömuleiðis um virði glæpasagna sem og það góða og slæma sem býr í hverri manneskju. Morgunblaðið/Eggert Katrín og Rankin ræddu það góða og slæma í fólki Á bilinu 6 til 40 einstaklingar grein- ast með jákvæða niðurstöðu úr hrað- prófum á dag vegna kórónuveiru- sýkingar, að sögn Ingibjargar Salóme Steindórsdóttur, verk- efnastjóra sýnatöku hjá Heilsugæsl- unni á höfuðborgarsvæðinu. Aðsókn í hraðpróf hefur aukist síðustu daga í kjölfar hertra sótt- varnaaðgerða. Þá hafa fleiri ein- kennalausir greinst með jákvæða niðurstöðu úr hraðprófum samhliða hækkandi smittíðni í samfélaginu. Ingibjörg segir ekki hægt að draga þá ályktun, að tilkoma hrað- prófanna hafi gert það að verkum að hlutfallslega fleiri smit greinist hér á landi en áður. Ekki er þó enn búið að taka saman tölfræði um fjölda sýna sem er tek- inn á dag með hraðprófum eða greiningarhlutfall þeirra. Hertar sóttvarnaaðgerðir tóku gildi innanlands fyrir rúmri viku. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að eftir helgi verði hægt að segja til um hvort að þær hafi borið árangur. Sem stendur horfir hann ekki til þess að herða aðgerðir en hann segir jákvæð teikn á lofti um að fólk sé að passa sig. „Maður sér að grímunotkun virð- ist vera orðin almenn. Ég veit að fólk hefur verið að aflýsa alls konar við- burðum sem það er að halda sjálft eða afbóka komu sína á ýmsa við- burði,“ sagði Þórólfur. »4 Fleiri ein- kennalaus- ir greinst - Hafa ekki tekið saman tölfræði _ Þrír árgangar virðast vera góðir af stofni íslenskrar sumargotssíldar en rannsóknarleiðangur á svæði frá Austurmiðum að Reykjanesi er ný- lega lokið. Guðmundur Óskarsson, sviðs- stjóri á uppsjávarsviði Hafrann- sóknastofnunar, segir stofninn hafa tekið við sér síðustu ár. Árgang- urinn frá 2017 kemur sterkur inn í veiðina fyrir vestan land, auk þess sem árgangar frá 2018 og 2019 lofa góðu. Þá þykja einnig jákvæðar fréttir að sýkingin, sem plagað hef- ur stofninn frá 2008, virðist vera að fjara út. »14 Jákvæðar fréttir af sumargotssíldinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.