Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021
Seðlabankastjóri benti á það á
peningamálafundi Við-
skiptaráðs í gær að himinn og jörð
færust ekki þó að Seðlabankinn
hækkaði vexti. Og hann benti líka
á að það væri að einhverju leyti
jákvætt að bankinn þyrfti að
hækka vexti: „Núll
prósent vextir eru
tákn um dauðann,
stöðnun, atvinnu-
leysi og aumingja-
skap. Á Íslandi er
eðlilegt að raun-
vextir séu jákvæðir.
Neikvæðir raun-
vextir eru aðeins fyrir fyrirtæki
sem hafa í raun ekki rekstr-
argrundvöll.“
- - -
Allt er þetta rétt og lágir vextir
og jafnvel neikvæðir eins og
verið hafa viðvarandi á evrusvæð-
inu eru vitaskuld ekki til marks
um þróttmikið hagkerfi þar eða
eðlilegt efnahagsástand þó að
ESB-flokkarnir íslensku virðist
telja svo vera.
- - -
Hitt er annað mál, eins og
seðlabankastjóri benti líka á,
að gagnrýni þeirra sem sömdu um
kaup og kjör á vinnumarkaði á
stýrivaxtahækkun á ekki rétt á
sér.
- - -
Það eru einmitt óhóflegar
launahækkanir á liðnum miss-
erum og ekki síður fram undan
sem valda miklu um að vextir
þurfa að hækka nú.
- - -
Seðlabankastjóri benti á að það
væri erfitt að fá launahækk-
anir inn í efnahagskerfið nú „og
þær eru að valda verðbólgu“.
Hann bætti því við að þær yllu því
„að við þurfum mögulega að
hækka stýrivexti“.
- - -
Vonandi verður þetta haft í
huga í umræðum um hagvaxt-
arauka og í næstu kjaraviðræðum.
Ásgeir Jónsson
Vaxtaverkir
STAKSTEINAR
Skipulags- og samgönguráð Reykja-
víkurborgar hefur samþykkt að
framvegis verði óheimilt að leggja
ökutækjum við vesturkant Frakka-
stígs, milli Hverfisgötu og Lauga-
vegar. Þarna eru í dag átta bíla-
stæði, en þau verða öll aflögð.
Fram kemur í greinargerð starf-
andi samgöngustjóra Reykjavíkur
að um sé að ræða kafla á Frakkastíg
þar sem einstefnuakstur er til norð-
urs og ökutækjum er alla jafna lagt
beggja vegna götunnar. Frakka-
stígur marki upphaf núverandi
göngugötuhluta Laugavegar og því
sé allri umferð af Laugavegi beint
norður Frakkastíg.
„Í götunni myndast oft mikil
þrengsli og ítrekaðar ábendingar
hafa borist frá lögreglunni og sorp-
hirðu um vandamál sökum þeirra.
Því er lagt til að stæði vestanmegin í
götunni verði fjarlægð og eingöngu
heimilað að leggja ökutækjum við
eystri kant götunnar,“ segir í grein-
argerðinni. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/sisi
Frakkastígur Það getur verið erfitt fyrir stóra bíla að aka um þröngan stíg.
Bílastæði aflögð
vegna þrengsla
Reykjavíkurborg áformar að byggja áningarstað
á sjóvarnargarðinum við Eiðsgranda, neðan við
JL-húsið. Breyta þarf deiliskipulagi fyrir svæðið
og við breytinguna færist lega núverandi göngu-
og hjólastígs lítillega.
Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa var lögð fram
deiliskipulagstillaga arkitektastofunnar Horn-
steina. Þar kemur fram að strandlengjan Eiðs-
grandi-Ánanaust njóti sívaxandi vinsælda borg-
arbúa og hafi löngu sannað gildi sitt sem mikil-
vægt og einstakt útivistarsvæði. Endurbygging
sjóvarnargarðs á svæðinu hafi skapað kjör-
aðstæður fyrir byggingu áningarstaðar á þessum
hluta strandlengjunnar.
„Áningarstaðurinn, sem er sporöskjulaga að
lögun, liggur við sjóvarnargarðinn þar sem hann
er hvað hæstur og myndar eina heild með honum.
Gert er ráð fyrir að hann verði um metra hærri en
aðliggjandi land,“ segir í greinargerðinni. Að-
gengi verði tryggt fyrir alla, annars vegar um
tröppur og hins vegar eftir skábraut með hand-
listum og viðeigandi hvíldarpöllum.
Málinu var vísað til meðferðar hjá verkefnis-
stjóra skipulagsfulltrúa. sisi@mbl.is
Nýr áningarstaður við Eiðsgranda
- Strandlengjan er einstakt svæði til útivistar
Tölvuteikning/Hornsteinar
Eiðsgrandi Áningarstaðurinn liggur við garðinn.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/