Morgunblaðið - 19.11.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.11.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Tökur á Áramótaskaupi Sjónvarps- ins hófust í byrjun vikunnar og fara vel af stað að sögn leikstjórans Reynis Lyngdal. „Við erum búin að mynda í þrjá daga og verðum að næstu tvær vikur. Svo er það sama sagan og alltaf, við vonum svo inni- lega að ekkert afdrífaríkt gerist í samfélaginu svo við getum haldið okkur við það sem erum búin að skrifa,“ segir leikstjórinn en við- urkennir um leið að það sé eig- inlega regla frekar en hitt að taka þurfi upp nýtt efni á lokametrunum. „Já, í fyrra var fjármálaráðherra að vesenast í einhverju partíi og við þurftum að kommenta eitthvað á það. Við erum með varnagla til að geta brugðist við.“ Þetta verður þriðja árið í röð sem Reynir leikstýrir Áramótaskaupinu en höfundar þess í ár eru Vilhelm Neto, Bergur Ebbi Benediktsson, Hugleikur Dagsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Gagga Jónsdóttir og Lóa Hjálmtýsdóttir. Republik sér um framleiðsluna. „Ég get náttúrulega ekkert sagt um hvað verður í Skaupinu. Það verður þó einhver ponsu pólitík og hugsanlega eitthvað sem snýr að eldhræringum. Svo verður mikið sungið og glensað,“ segir leikstjór- inn sem setur upp íbyggið glott þegar hann er spurður hvort taln- ing atkvæða í alþingiskosningunum og starf undirbúningsnefndar kjör- bréfanefndar kunni að bera á góma. „Það er aldrei að vita,“ segir hann einfaldlega. Reynir kveðst skynja aðra stemningu í þjóðfélaginu í ár en í fyrra. „Þetta ár er öðruvísi. Í fyrra skynjaði maður samstöðu en nú er aðeins búið að brýna hnífana. Ég veit ekki hvort það er vegna ein- hvers Covid-óþols en tilfinning mín er að það sé aðeins harðar tekið á ýmsum málum. Það er komið að einhvers konar suðupunkti.“ Hann segir að rétt eins og í fyrra verði reynt að hafa fjölbreyttan hóp leikara í Áramótaskaupinu. Viss kjarni muni bera hitann og þung- ann en hann og framleiðendurnir muni „reyna að koma inn slatta af andlitum og hafa þetta eins fjöl- breytt og við komumst upp með.“ Reynir segir nauðsynlegt fyrir þjóðina að geta hlegið að því sem miður fer í samfélaginu. „Alltaf þegar ég fer að vinna við Skaupið verður mér hugsað til þeirra Spaugstofumanna og hvað við höfð- um gott af því að hafa þannig þátt einu sinni viku. Það var gott að tappa af vissum málum, það var næstum eins og þjóðin skriftaði einu sinni í viku.“ Ljósmynd/Hannes Friðbjarnarson Tökur Skaupið verður fjölbreytt og þar verður meðal annars þessi skets um konur sem tekinn var á Árbæjarsafni. Ljósmynd/Jói B Tilbúnir Reynir Lyngdal leikstjóri og Vilhelm Neto, leikari og höfundur. Búið að brýna hnífana í samfélaginu - Tökur hafnar á Áramótaskaupinu - Önnur stemning en í fyrra - Pólitík, eldgos, söngur og glens Grín Katla Margrét Þorgeirsdóttir er einn handritshöfunda Skaupsins. Ljósmynd/Jói B Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkra- flutningamanna hófst í gær með heimsókn Slökkviliðs Borgarbyggðar og bæjarstjórans í Grunnskólann í Borgarnesi. Átakið að þessu sinni beinist að nem- endum í 3. bekk grunnskólanna og fjölskyldum þeirra. Slökkviliðsmenn um allt land taka þátt í átak- inu á næstu dögum og vikum. Lögð er áhersla á að heimili séu búin eldvarnabúnaði á borð við reykskynj- ara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Borg- arbyggðar, mætti ásamt slökkviliðsmönnum á skóla- lóðina í Borgarnesi í gær og fékk líkt og krakkarnir æfingu í að slökkva opinn eld. Hún ræddi við nem- endur um eldvarnir og mikilvægi þess að eiga gott slökkvilið. Til gamans má geta að krakkarnir spurðu hana hvort hún væri borgarstjóri Borgarness en hún svaraði því til að hún væri frekar „bæjarstýra“ Borgarbyggðar. Morgunblaðið/Theódór Kr. Þórðarson Eldvarnaátakið hófst í Borgarnesi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.