Morgunblaðið - 19.11.2021, Page 12
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Qair Iceland ehf., dótturfélag franska
fyrirtækisins Qair Group, sem er
framleiðandi endurnýjanlegrar raf-
orku víða um heim, hefur undirritað
viljayfirlýsingu við Norðurál á
Grundartanga um sölu á grænni raf-
orku frá fyrirhuguðum vindorku-
görðum Qair á Vesturlandi og föngun
CO2-útblásturs frá álverinu til notk-
unar við framleiðslu á rafeldsneyti.
Samanlagt uppsett afl er áætlað 200
MW.
Rafeldsneyti er heiti á nothæfu
eldsneyti sem búið er til úr vetni við
rafgreiningu á vatni og koltvíildi.
Verulega spennandi verkefni
Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri
viðskiptaþróunar Norðuráls, segir í
samtali við Morgunblaðið að verkefn-
ið sé verulega spennandi og að Norð-
urál sé í mjög góðri stöðu til að styðja
við græn orkuverkefni sem þetta á
Íslandi í dag.
Hann segir að Norðurál sé í dag
kaupandi um fjórðungs allrar raf-
orku í landinu. „Við getum leikið
stórt og mikilvægt hlutverk í þróun
orkuiðnaðarins á landinu, sérstak-
lega með þeirri samvinnu sem fyrir-
huguð er um notkun kolefnis frá ál-
verinu til eldsneytisframleiðslu,“
segir Páll.
Hann segir að mikilvægi og ávinn-
ingur samfélagsins af vindorku m.t.t.
orkuskipta og þróun raforkumarkað-
arins á Íslandi sé ótvíræður. „Með því
að virkja vindinn getum við nýtt enn
betur vatnsaflsvirkjanir landsins.
Norðmenn eru í sambærilegri stöðu
og hafa fjárfest gífurlega í vindorku
undanfarin ár.“
Páll tekur einnig fram að þróun
vindorku sé eitt besta vopn heimsins
gegn loftslagsvánni og með þessu
samstarfi Qair og Norðuráls sé verið
að byggja undirstöðu fyrir þá þróun.
Kaupa af öllum
Norðurál kaupir í dag raforku af
öllum þremur stóru raforkuframleið-
endum landsins, Orkuveitu Reykja-
víkur, Landsvirkjun og HS Orku.
Raforkuþörf Norðuráls miðað við nú-
verandi rekstur er að sögn Páls um
540 MW. Hann segir aðspurður að al-
gengt sé að raforkusamningar er-
lendis í tengslum við ný orkuverkefni
á borð við þetta séu gerðir til 15-20
ára til að hægt sé að fá hagstæða
langtímafjármögnun á orkuverkefn-
in.
Umhverfismat á lokastigi
Tryggvi Þór Herbertsson, stjórn-
arformaður Qair Iceland, segir,
spurður um stöðu verkefnisins, að
umhverfismat sé á lokastigi og unnið
sé að því að afla allra tilskilinna leyfa.
Þau tengist meðal annars fyrirætlun-
um ríkisstjórnarinnar í orkumálum.
„Við bíðum í ofvæni eftir stjórnar-
sáttmála nýrrar ríkisstjórnar,“ segir
Tryggvi.
Um samning fyrirtækjanna um
föngun og bindingu koldíoxíðs segir
Tryggvi að koldíoxíið myndi Qair
nýta til framleiðslu á rafeldsneyti í
fyrirhugaðri vetnisverksmiðju Qair á
Grundartanga sem hægt verði að
nota til orkuskipta.
„Við höfum nú þegar skrifað undir
viljayfirlýsingu við Faxaflóahafnir
um lóð á Grundartanga undir vetn-
isverksmiðjuna. Við erum bjartsýn á
að samningar um leigu náist og við
getum byrjað að skipuleggja hana
innan tíðar.“
Qair Iceland er með samtals 1.000
MW af uppsettu afli í vindorkugörð-
um í undirbúningi, en auk garðanna á
Vesturlandi munu rísa vindorkugarð-
ar á Langanesi, á Suðurlandi og í
Meðallandinu, að sögn Tryggva. „Við
verðum á hinum og þessum stöðum
hringinn í kringum landið ef allt
gengur upp.“
Lengst er garðurinn í Sólheimum
kominn að sögn Tryggva. „Þetta er
um sautján kílómetra frá Búðardal.
Vindrannsóknum er lokið og um-
hverfismatið ætti að verða tilbúið í
janúar nk. Skipulag er komið vel á
veg en rannsóknir hafa staðið í um
þrjú ár.“
Fyrsta umhverfismatið er alltaf
tímafrekast að sögn Tryggva því lög
og reglur eru óskýr á Íslandi hvað
þetta varðar að hans sögn. Menn hafi
rennt svolítið blint í sjóinn. „Við ætt-
um að geta hafið byggingu garðsins
eftir um tvö ár ef leyfi fást.“
Hver garður á 15 milljarða
Spurður um umfang garðanna seg-
ir Tryggvi að í kringum tuttugu og
sjö myllur verði í hverjum garði og
áætlað er að hver vindmylla verði um
150 metrar á hæð. „Hver garður er
fjárfesting upp á um fimmtán millj-
arða.“
Tryggvi segir tækninni við bygg-
ingu vindorkugarða og hagnýtingu
vindsins hafa fleygt fram. „Kostnað-
arkúrfan vísar beint niður á við. Upp-
bygging vindorku er ódýrasti virkj-
anakosturinn á Íslandi í dag.“
Spurður hvort einhver ljón séu í
veginum í ljósi þess að skoðanir eru
oft skiptar um svona framkvæmdir,
segir Tryggvi að bjartsýni ríki um
framgang verkefnisins. „Okkur hefur
verið tekið gríðarlega vel í Dala-
byggð þótt auðvitað séu ýmis sjón-
armið á lofti. En við reynum að vinna
þetta í sem mestri sátt við samfélagið
og taka tillit til ólíkra sjónarmiða.“
Spurður um störf sem skapast seg-
ir Tryggvi að 5-6 muni starfa beint
við hvern vindmyllugarð. „Afleidd
störf sem verða til við notkun rafork-
unnar eru hins vegar margfalt fleiri.“
Þegar talað er um uppsett afl er
miðað við þá orku sem vindmyllan
getur framleitt ef hún er stöðugt í
gangi. „Rannsóknir sýna að hér á Ís-
landi verður hægt að nýta 45-50% af
uppsettu afli. Hér er það ekki lognið
sem er vandamálið heldur er suma
daga hreinlega of mikill vindur. Þeg-
ar hann fer upp í t.d. 28 metra að
meðaltali á sekúndu þurfa myllurnar
að verja sig fyrir því og geta því ekki
framleitt,“ segir Tryggvi að lokum.
Fá vindorku frá Qair
Mannvirki Áætluð hæð Qair-
vindmyllanna er um 150 metrar.
- Samanlagt uppsett afl 200 MW - Einnig samið um föngun CO2-útblásturs frá
álveri Norðuráls til notkunar við framleiðslu rafeldsneytis - Uppbygging eftir 2 ár
Qair Group
» Óháður framleiðandi endur-
nýjanlegrar orku með yfir 30
ára reynslu af þróun, uppsetn-
ingu og rekstri eigin vind-, sól-
ar-, vatnsaflsorkuvera, auk
grænnar vetnisframleiðslu.
» Starfar í 16 löndum
víðs vegar um Evrópu, Mið- og
Suður-Ameríku, Afríku og Asíu.
» Er með samtals 1.000 mw af
uppsettu afli í vindorkugörðum
í undirbúningi.
Garðar Vindorkugarðar Qair, sem Norðurál mun kaupa rafmagnið af, verða
m.a. staðsettir á Sólheimum á Laxárdalsheiði og í Múla ofan Borgarfjarðar.
Tryggvi Þór
Herbertsson
Páll
Ólafsson
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2021
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Gjafakort Einstök
jólagjöf
19. nóvember 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 132.38
Sterlingspund 178.14
Kanadadalur 105.45
Dönsk króna 20.144
Norsk króna 15.147
Sænsk króna 14.935
Svissn. franki 142.26
Japanskt jen 1.1543
SDR 185.21
Evra 149.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.7658
Útgerðarfélagið Brim hf. skilaði 19,9
milljóna evra hagnaði á þriðja árs-
fjórðungi í ár samanborið við 16,0
milljóna evra hagnað á þriðja fjórð-
ungi ársins 2020, sem er um 24%
aukning. Þetta má lesa út úr árs-
hlutareikningi sem stjórn félagsins
hefur samþykkt.
„Rekstur ársfjórðungsins var stöð-
ugur og sambærilegur við sama árs-
fjórðung síðasta árs. Salan nam 91,6
milljónum evra í samanburði við 80,7
milljónir evra á sama tíma 2020.
EBITDA fjórðungsins lækkar
lítillega milli tímabila eða um 0,8
milljónir evra. Hagnaður fjórðungs-
ins eykst milli ára og er 19,9 milljónir
evra samanborið við 16 milljónir evra
á þriðja fjórðungi ársins 2020.
Grunnrekstur er í takt við sama
tímabil 2020 en munurinn liggur í
söluhagnaði skips,“ sagði í
tilkynningu um uppgjörið.
Sóknin á makrílvertíð erfið
Þar segir jafnframt að rekstur
botnfisksviðs hafi gengið mjög vel á
fjórðungnum og að góð aflabrögð hafi
verið í botnfiski og staða á mörkuðum
góð. Á sama tíma hafi sóknin á
makrílvertíðinni verið erfið og einnig
hafi síldveiðar hafist síðar en á árinu
2020. Efnahagur félagsins sé sterkur.
Eignir séu um 772 milljónir evra og
eiginfjárhlutfallið 47%.
Þá var haft eftir Guðmundi Krist-
jánssyni forstjóra að afkoma fjórð-
ungsins væri góð og að hann væri
ánægður með
hversu stöðugur
reksturinn er
orðinn.
„Undanfarin
misseri höfum við
markvisst fjárfest
í botnfisksafla-
heimildum og
nýrri tækni sem
er að skila árangri
í dag. Eins sjáum
við að fjárfestingar í sölufélögunum
styrkja viðskiptalíkanið okkar.
Loðnuvertíð er fram undan og er
þetta mesta magn loðnukvóta frá
árinu 2003. Við þessa aukningu í út-
hlutun fór Brim yfir hámarkshlut-
deild í þorskígildum,“ sagði hann.
Hagnaður Brims á þriðja
fjórðungi 24% meiri en í fyrra
Guðmundur
Kristjánsson
- Munur á 3. fjórðungi 2020 og 2021 sagður liggja í söluhagnaði skips
Iceland Seafood hagnaðist um rúm-
lega 2,1 milljón evra á þriðja fjórð-
ungi ársins, eða 316 milljónir ís-
lenskra króna, samanborið við 350
þúsund evra tap á sama tímabili í
fyrra, eða 52 milljónir króna.
Eignir fyrirtækisins námu í lok
tímabilsins rúmum 99 milljónum
evra, eða 14,8 milljörðum króna, og
hækkuðu um nærri 33% milli ára.
Þær voru tæpar 75 milljónir evra á
sama tíma í fyrra eða 11,1 milljarður
króna.
Eigið fé Iceland Seafood nemur
núna 88,7 milljónum evra, eða 13,2
milljörðum króna, en var á sama
tíma í fyrra 230 milljónir evra, eða
rúmir 12,3 millj-
arðar króna.
Eiginfjárhluta-
fall félagsins er
33,6%.
Bjarni Ár-
mannsson for-
stjóri Iceland
Seafood segir í
tilkynningu að
þriðji ársfjórð-
ungur hafi verið
sterkur í Suður-Evrópu og sala og
dreifing gengið vel. Árangurinn í
norðurhluta Evrópu hafi verið lak-
ari, sérstaklega í Bretlandi, þó svo
að útibú félagsins á Írlandi hafi sýnt
viðunandi niðurstöðu.
16% tekjuvöxtur
Tekjur fyrirtækisins á þriðja árs-
fjórðungi voru rúmlega 111 milljón
evrur, sem er 16% vöxtur á milli ára.
Þegar horft er til fyrstu níu mánaða
ársins þá voru tekjurnar tæplega
320 m. evra og jukust einnig um 16%
frá sama tímabili árið á undan.
IS hagn-
ast um
316 m.kr.
- Eignir jukust
um 33% frá 2020
Bjarni
Ármannsson